Morgunblaðið - 04.09.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VEIGAMESTU breytingar íbúa-
þróunar hér á landi undanfarin ár
hafa verið flutningar af landsbyggð-
inni til höfuðborgarsvæðisins og
flutningar fólks milli landa. Á síð-
ustu misserum hefur seinni þátt-
urinn verið mera áberandi. Í því
sambandi má nefna að dregið hefur
úr búferlaflutningum íslenskra rík-
isborgara í báðar áttir og ríkir nú
algert jafnvægi á þeim. Aðfluttum
erlendum ríkisborgurum hefur hins
vegar fjölgað stöðugt frá 1996 en
fjöldi brottfluttra stendur nokkurn
veginn í stað.
Í frétt Þjóðhagsstofnunar um
íbúaþróun á Íslandi segir að reiknað
sé með að aðflutningur erlendra rík-
isborgara í ár verði meiri en nokkru
sinni fyrr, geti orðið rúmlega 3.000
manns og fjölgun erlendra ríkis-
borgara vegna aðflutnings geti
numið rúmlega 2.000 manns eða
0,8% af mannfjölda. Segir að fari
sem horfir verði erlendir ríkisborg-
arar sem hingað flytja í fyrsta sinn
fleiri en aðfluttir Íslendingar.
Útlendingum fjölgar stöðugt
á vinnumarkaðinum
Stærsti hluti erlendra ríkisborg-
ara sem fluttu hingað á fyrri hluta
ársins eru frá Evrópulöndum utan
EES. Pólverjar eru fjölmennastir í
þessum hópi og eru þeir nú veru-
lega fleiri en var í fyrra. Litháum
hefur fjölgað en Júgóslavar eru
heldur færri en var fyrir ári.
Næstfjölmennasti hópurinn sem
hingað flytur er frá löndum Evr-
ópska efnahagssvæðisins en flutn-
ingar fólks þaðan eru mun meiri
fram og til baka en úr öðrum heims-
hlutum. Danskir ríkisborgarar hafa
löngum verið fjölmennastir í bú-
ferlaflutningum í þessum hópi en á
síðustu árum hefur mjög færst í
vöxt að Þjóðverjar flytji hingað.
Þriðji stærsti hópurinn sem hing-
að flytur eru Asíubúar en fjölgun
þeirra er næstmest enda er minna
um að fólk þaðan flytji til baka aftur
en hjá Evrópubúum.
Í upphafi þessa árs voru erlendir
ríkisborgarar búsettir hér á landi
tæplega níu þúsund manns en það
var um 3,1% af íbúafjöldanum. Ald-
ursskipting þeirra er verulega frá-
brugðin því sem gildir um þjóðina í
heild. Stærstu aldurshóparnir eru
milli 20 og 35 ára. Hlutfall erlendra
ríkisborgara meðal kvenna hefur
alltaf verið hærra en hjá körlum,
var 3,4% í upphafi yfirstandandi árs
meðan það var 2,8% hjá körlum. Á
árinu 2.000 dró þó saman með kynj-
unum að þessu leyti.
Erlendir ríkisborgarar eru mjög
misdreifðir um landið. Hlutfall
þeirra er langhæst á Tálknafirði og
Bakkafirði. Ásahreppur og Þórs-
hafnarhreppur fylgja á eftir með 11
og 10%.
Spáir Þjóðhagsstofnun því um
framvindu íbúaþróunar það sem eft-
ir er af árinu að erlendum ríkis-
borgurum á vinnumarkaði muni
fjölga um 1.500 manns. Sú fjölgun
er um það bil sú sama og náttúruleg
fjölgun fólks á vinnumarkaði hér á
landi miðað við atvinnuþátttöku árið
2000 í vinnumarkaðskönnun Hag-
stofu.
Í umfjöllun Þjóðhagsstofnunar
rætt um búsetuþróun innanlands.
Þar segir meðal annars að um miðj-
an síðasta áratug hafi mismunur að-
fluttra á landsbyggðinni vegna bú-
ferlaflutninga innanlands verið milli
1.700 og 1.800 manns, eða um 43%
af því sem hann hafi verið þegar
mest var. Á yfirstandandi ári hefur
mismunur brottfluttra og aðfluttra
innanlands aukist nokkuð á nýjan
leik. Ef seinni hluti ársins verður í
samræmi við það sem gerst hefur á
fyrri hlutanum og dreifing búferla-
flutninga yfir árið í reynslu und-
anfarinna ára gæti mismunur að-
fluttra og brottfluttra innanlands
orðið tæplega 1.000 manns á lands-
byggðinni.
Fleiri hafa flust á landsbyggð-
ina frá útlöndum en farið hafa
Frá árinu 1996 hafa fleiri flust á
landsbyggðina frá útlöndum en far-
ið hafa. Mismunurinn hefur farið
stöðugt vaxandi og hefur hann
dregið úr heildarfækkun íbúa vegna
innanlandsflutninga þótt hann hafi
ekki náð að vega hann upp. Útlit er
fyrir í ár verði fjölgun á lands-
byggðinni vegna millilandaflutninga
meiri en nokkru sinni fyrr.
Segir í frétt Þjóðhagsstofnunar
að þegar horft sé á áhrif búferla-
flutninga á íbúaþróun einstakra
landshluta yfir lengra tímabil megi
sjá að í öllum landshlutum skipta
þeir miklu. Innanlandsflutningar
hafa leitt til fækkunar íbúa í öllum
landshlutum utan höfuðborgar-
svæðisins en flutningar milli landa
hafa bætt við mannfjöldann nema á
Norðurlandi eystra og Austurlandi.
Mesta fækkunin á Vestfjörðum
Áhrifa þessa gætir mest á Vest-
fjörðum þar sem fækkun vegna bú-
ferlaflutninga innanlands á tíma-
bilinu 1992–2001 nemur samtals
nær 29% af íbúafjölda í landshlut-
anum í upphafi þess tímabils sem
hér er til umræðu. Á Norðurlandi
vestra nemur fækkun íbúa vegna
innanlandsflutninga tæplega 18% af
íbúafjölda undir lok ársins 1991 en á
Austurlandi nemur fækkun 17%. Á
höfuðborgarsvæðinu nema búferla-
flutningar síðustu tíu ára alls 9,6%
af íbúafjöldanum. Munar þar mest
um aðflutta innanlands sem eru
samtals 8,3% viðbót við mannfjöld-
ann. Fjölgun íbúa á höfuðborgar-
svæðinu á þessu tímabili var 17,2%
og því standa beinir búferlaflutn-
ingar fyrir um 55% af breytingu
mannfjöldans á tímabilinu. Þeim til
viðbótar kemur mannfjölgun að-
fluttra eftir að þeir eru fluttir.
Að því er varðar innanlandsflutn-
inga er íbúaþróun höfuðborgar-
svæðisins spegilmynd af lands-
byggðinni. Öðru máli gegnir um
búferlaflutninga milli landa. Þeir
hafa vaxið stöðugt frá árinu 1995 en
aðfluttir urðu fyrst fleiri en brott-
fluttir árið 1998. Árið 2000 urðu að-
fluttir frá útlöndum fleiri en aðflutt-
ir af landsbyggðinni. Í ár stefnir í að
fjölgun vegna búferlaflutninga milli
landa verði um það bil sú sama og
náttúruleg fjölgun(fæddir umfram
dána) og verði meiri en nokkru sinni
fyrr.
Útlendingar draga úr fólks-
fækkun á landsbyggðinni
Enn fækkar landanum á landsbyggðinni en
fjöldi aðfluttra erlendra ríkisborgara dreg-
ur víða úr fólksfækkuninni. Útlit er fyrir að
í ár verði fjölgun á landsbyggðinni vegna
millilandaflutninga meiri en nokkru sinni.
Á UNDANFÖRNUM árum hafa
þeir landshlutar sem eru næst höf-
uðborgarsvæðinu í vaxandi mæli
þróast í líkingu við það sem þar
hefur gerst. Þannig hefur fækkun
vegna búferlaflutninga innanlands
orðið óveruleg eða jafnvel lands-
hlutunum í hag. Þetta gerðist árið
1999 á Suðurlandi og árið 2000 á
Suðurnesjum og Vesturlandi.
Í ár er það einungis á Suður-
nesjum sem ætla má að aðfluttir
innanlands verði fleiri en brott-
fluttir. Umbreytingin er mest á
Vesturlandi þar sem brottfluttum
hefur fjölgað verulega meðan
fjöldi aðfluttra stendur í stað.
Þessi þróun á sér stað um allan
landshlutann og er Akranessvæðið
ekki undanskilið.
Á Suðurlandi er brottfluttum
einnig að fjölga þótt í minna mæli
sé. Aukning hefur átt sér stað um
allan landshlutann. Aðfluttu fólki
frá útlöndum fjölgar jafnt og þétt
á Suðurlandi og Suðurnesjum og
útlit er fyrir að árið 2001 verði
metár í þeim efnum.
Mismunur aðfluttra og brott-
fluttra um 300–400 manns
Mannfækkun vegna búferla-
flutninga hefur á undanförnum ár-
um verið mest á Vestfjörðum og
Austurlandi. Mismunur aðfluttra
og brottfluttra var 3–400 manns á
ári í hvorum landshluta.
Brottfluttum fækkaði fyrst árið
2000 á Austurlandi og sú fækkun
heldur áfram í ár. Í umfjöllun
Þjóðhagsstofnunar um íbúaþróun
hér á landi segir að hugsanlega sé
hér farið að gæta væntinga um
framkvæmdir í stóriðju sem ráð-
gerðar eru en þess er að geta að
þessarar tilhneigingar gætir víðs
vegar í landshlutanum.
Fækkun vegna innanlandsflutn-
inga var mikil á Norðurlandi
vestra seinni hluta tíunda áratug-
arins þótt úr henni drægi undir
lokin. Í ár hefur á ný orðið aukn-
ing á brottflutningi samfara
minnkandi aðflutningi. Fólki þar
hefur heldur fjölgað á undanförn-
um árum með aðflutningi frá út-
löndum en í þeim efnum stefnir í
samdrátt á þessu ári.
Á Norðurlandi eystra stefnir nú
í minni fækkun vegna innanlands-
flutninga en verið hefur í langan
tíma. Á Akureyri er brottflutn-
ingur minni og aðflutningur meiri í
búferlaflutningum innanlands á
fyrri hluta yfirstandandi árs en
var á sama tíma í fyrra.
Brottfluttum fækkar
áfram á Austurlandi
helgina og sagði hann ána standa
vel undir grínnefninu „Tóma Laxá“
þessa dagana. „Við sáum ekki mik-
ið af laxi, en það sem var verra og
kom okkur raunar á óvart var hve
lítið vatn var í ánni. Áður illvæð
brot varla í hné. Eins og ég segi þá
vorum við undrandi á þessu því það
var tilfinning okkar að það hefði
verið bærilega úrkomusamt á Suð-
urlandi að undanförnu. Ég fékk
einn 5 punda leginn lax á Munroe
Killer númer 14 í Kálfhagahyl. Það
var eini laxinn sem hollið veiddi,“
sagði Loftur.
Vel á annað hundrað laxar eru
komnir á land úr Stóru Laxá allri
sem gæti ýtt undir betri lokatölu en
sést hefur í ánni síðustu sumur.
September er ævinlega besti mán-
uðurinn í Stóru Laxá, en ef enginn
er laxinn á Iðu, sbr. fréttina að of-
an, þá er vandséð hvaðan haustafl-
inn á að koma, en hann byggist æv-
inlega á því að uppsöfnuð laxatorfa
tekur sig upp á Iðu og gengur upp í
Stóru Laxá.
ÞRÁTT fyrir að almennt séð hafi
verið frekar líflegt í laxveiðiám á
Hvítár–Ölfusársvæðinu í sumar þá
hefur veiði á Iðu verið afar slök það
sem af er, að sögn Birgis Sum-
arliðasonar sem þar er öllum hnút-
um kunnur. Bestu dagarnir hafa
aðeins gefið 5-7 laxa á þrjár stangir
og heildarveiðin er ekki nema milli
120 og 130 laxar, en í venjulegu ári
ættu að vera komnir að minnsta
kosti helmingi fleiri laxar á land og
raunar annað eins að auki.
„Þetta er nokkur ráðgáta, skil-
yrði hafa alls ekki verið slæm, en
það rigndi talsvert snemma í ágúst
og þá kom skot í Stóru Laxá. Það
virðist sem mest af því litla sem hér
hafði komið af laxi hafi skotið sér
upp í Stóru Laxá. Það veiddist vel í
henni í nokkra daga á eftir, en svo
dofnaði yfir henni aftur, en ágúst
hefur verið lélegur á Iðu,“ sagði
Birgir.
Frést hefur af einum rúmlega 20
punda laxi sem veiðst hefur á Iðu
og er stærstur þar í sumar. Laxinn
veiddi Þórarinn Sigþórsson tann-
læknir og notaði fluguna Sunray
Shadow í túpuútfærslu. Það er saga
til næsta bæjar ef ekki veiðist
stærri lax á Iðu í sumar, en Iða hef-
ur verið nokkurs konar svar Sunn-
lendinga við Nesveiðum í Laxá í Að-
aldal þeirra Norðlendinga.
Loftur Atli Eiríksson var að veið-
um á svæðum 1-2 í Stóru Laxá um
Sjóbirtingur er farinn að gefa
sig í ánum í kringum Klaustur.
Atli Óskarsson er hér með fal-
lega 10 punda hrygnu úr Vatna-
mótunum.
Afar ró-
legt á Iðu
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
TVEIR menn, sem játað hafa
hjá lögreglu stórfelld innbrot
í Reykjavík að undanförnu,
voru á laugardag úrskurðaðir
í sex daga gæsluvarðhald í
þágu ransóknarhagsmuna.
Málið er stærsta innbrotsmál
sem upplýst hefur verið í
Breiðholti, Grafarvogi og
Mosfellsbæ og hefur aldrei
verið lagt hald á eins mikið
þýfi við upphaf nokkurs máls
eins og í því sem hér um ræð-
ir. Við húsleit heima hjá öðr-
um mannanna fannst um tug-
ur tölva, prentarar, ljósrit-
unarvélar, skotvopn, erlendur
gjaldeyrir, fíkniefni, borðbún-
aður og fleira.
Ýmsar ábendingar um
hugsanleg afbrot
Mennirnir eru 21 og 24 ára
og hafa báðir komið við sögu
lögreglunnar. Áður en lög-
reglan í Breiðholti lét til
skarar skríða gegn mönnun-
um hafði hún haft málið til
rannsóknar í tæpan hálfan
mánuð. Ýmsar ábendingar
höfðu borist henni um menn-
ina og meint glæpsamlegt
hátterni þeirra. Sést hafði til
bifreiðar sem þeir notuðu við
innbrotin en þeir hafa þegar
játað bílstuldi auk innbrota.
Mennirnir voru djúpt sokknir
í fíkniefnaskuldir og munu
skuldir annars þeirra hafa
numið 2,5 milljónum króna,
en með innbrotunum átti að
grynnka á skuldunum.
Í sex daga
gæsluvarð-
hald vegna
stórfelldra
innbrota