Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 8

Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ 16. starfsár Enskuskólans Átta kunnáttustig í námskeiðum Nú á evrópskutungumálaári erEnskuskólinn er að hefja sextánda starfsár sitt. Skólinn er til húsa í Faxafeni 8 og er hann þar í nýju húsnæði. Julie Ing- ham stofnaði skólann haustið 1986 og hefur rek- ið hann síðan. Hún var spurð hvort breytingar yrðu á rekstri eða náms- fyrirkomulagi samhliða flutningi í nýtt húsnæði. „Já, fyrst og fremst höf- um við nú fleiri kennslu- stofur og getum því boðið upp á að hafa fleiri bekki. Betri aðstaða er nú fyrir nemendur og kennara og við getum boðið margar kynningar í nýju opnu rými. Við ætlum m.a. að skipuleggja kynningar á mála- skólum í Bretlandi og víðar. Þetta eru nýjungar. Við erum og með nýtt útibú á Selfossi. Þetta er í fyrsta skipti sem við kennum utan Reykjavíkur. Við auglýstum ný- lega og höfum fengið frábærar viðtökur. Margir vilja bæta við sig enskukunnáttu á námskeiðum hjá okkur. Fólk vill gjarnan fá kennslu hjá kennurum sem hafa ensku að móðurmáli og leggja áherslu á talmálið. Við höfum fjölgað námskeiðum verulega síð- ustu ár, einkum hefur þessa gætt í fyrirtækjanámskeiðum. Við ætl- um að fara að kynna næstu daga enskuþjónustu fyrir fyrirtæki. Þetta er þjónusta þar sem starfs- fólki fyrirtækja er boðið á Netinu tækifæri til þess að senda okkur bréf eða tölvupóst sem við próf- arkalesum sama dag. Mjög mikill áhugi er meðal fyrirtækja á að senda okkur starfsfólk til kunn- áttumats eða að við komum í fyr- irtækin til þess að meta kunnáttu starfsfólksins með viðtali. Þá mælum við með annaðhvort sér- námskeiði fyrir þeirra starfsgrein eða almennum námskeiðum til þess að gefa fólki aukið sjálfs- traust í samskiptum á ensku. Þá má nefna að við erum að fara að opna nýja vefsíðu sem heitir enska.is. Þar verður upplýsinga- miðlun fyrir Íslendinga um ensku og enskumælandi lönd og mála- skóla erlendis. Einnig upplýsing- ar um orðabækur og líka upplýs- ingar fyrir enskukennara. Við erum búin að vinna við þetta í fimmtán ár og við búum yfir mikl- um upplýsingum sem við viljum með þessum hætti miðla til fólks.“ – Hefur aðsókn verið góð hjá ykkur almennt? „Já, fólki virðist líka mjög vel við það sem við bjóðum upp á. Fyrst kemur fólk í persónulegt viðtal og þá er því sagt á hvaða kunnáttustigi það lendir hjá okk- ur. Síðan er það spurt hvernig það ætli að nota sína enskukunnáttu – hvort það ætlar að nota hana í starfi, við ferðalög o.s.frv. Eftir svör bendum við fólki á hvar það er best sett, hvort sem það fer t.d. á almennt talnámskeið eða við- skiptanámskeið. Við erum líka með mál- fræði- og skriftarnám- skeið. Sumir hafa góða kunnáttu en skortir orðaforða. Við höfum svo sérnámskeið fyrir eldri borgara. Fólk sem er á byrjendastigi er sett í mjög litla bekki og æfir þar talmálið. Það gefur gott and- rúmsloft og örvar kjark fólks til þess að ráðast í að tala ensku. Ekki má svo gleyma barnanám- skeiðunum. Við erum með nám- skeið fyrir börn á aldrinum 5 til 15 ára. Þau eru mjög vinsæl. Á þess- um fimmtán árum hef ég séð hvernig yngri og yngri börn eru komin með nokkuð góðan orða- forða. Þegar þau koma í kennslu geta þau tengt saman þau orð sem þau hafa lært, bæði t.d. í tölvum, söng og fleira. Þau skortir bara tækifæri til að læra að tengja orð- in saman, börn 6 til 8 ára hafa brennandi áhuga á að læra. Skól- arnir eru farnir að kenna tíu ára börnum ensku en okkur sýnist að þau hafi áhuga á að byrja fyrr. Því yngri sem þau eru því betur geng- ur að kenna þeim.“ – Hvað kenna margir við Enskuskólann? „Við erum með fimm kennara í fullu starfi. Við erum svo með þrjá til fimm í viðbót sem eru með stundakennslu. Þetta fólk hefur allt ensku sem móðurmál og er allt sérlært í þeirri kennslugrein sem við bjóðum upp á. Sumir hafa mikla reynslu í viðskiptaensku- kennslu. Flestir kennararnir eru frá Bretlandi, tveir frá Bandaríkj- unum, einn frá Írlandi og einn frá Kanada.“ – Er aðferð ykkar til að kenna ensku mjög ólík því sem gerist í skólakerfinu hjá okkur? „Já, skólakerfið á Íslandi eins og víðar beinir kröftum sínum einkum að því að kenna nemend- um fyrir próf. Það er yfirleitt meira en tuttugu nemendur í bekk í grunnskólum og þá er erfitt fyrir kennara að veita nemendum mik- inn tíma í talæfingar. Við erum með átta kunnáttustig. Fólk hækkar sig um hálft stig milli nám- skeiða þannig að í raun er hægt hér að ganga upp sextán mismun- andi námskeiðastig. Þannig getum við boðið nemendum upp á kennslu sem er sniðin við þeirra hæfi. Nemandinn heyrir strax að hinir nemendurnir eru með svip- aða kunnáttugetu. Þá slakar fólk á og tekur fljótt þátt í kennslunni. Í okkar kennsluaðferð er mikið lagt upp úr paræfingum og hópum- ræðum.“ Julie Ingham  Julie Ingham fæddist 5. sept- ember 1959 í Rosendale í Norð- vestur-Englandi. Hún lauk fram- haldsskólaprófi og hóf svo nám í Leeds-háskóla og lagði þar stund á ensku, málvísindi og bók- menntir. Eftir réttindapróf í kennslufræði IFL (kennsla í ensku fyrir útlendinga) kom hún til Íslands og hóf að kenna þar. Fyrst kenndi hún í Málaskól- anum Mími og einnig í sendiráð- um og víðar. Hún stofnaði Enskuskólann fyrir fimmtán ár- um og hefur rekið hann síðan. Julie á þrjú börn. Fólk vill kennslu hjá kennurum sem hafa ensku að móðurmáli FYRSTI vinningur verður þrefald- ur í Víkingalottóinu á morgun, mið- vikudag, og mun hann verða í kringum 180 milljónir króna. Í Laugardagslottóinu verður vinning- urinn fimmfaldur og stefnir í að verða um eða yfir 20 milljónir. Síð- ast þegar fyrsti vinningur var fimmfaldur skiptu þrír honum á milli sín. Hægt er að kaupa miða til klukk- an 16 á miðvikudag í Víkinga- lottóinu og til klukkan 18:40 á laug- ardag í Laugardagslottóinu. Þrefaldur og fimmfaldur fyrsti vinningur PÁLL Skúlason háskólarektor opn- aði formlega á föstudaginn kennslu- miðstöð Háskóla Íslands. Kennslu- miðstöðinni er m.a. ætlað að halda utan um allt fjarnám háskólans, en nú stunda um 400 nemendur fjarnám við skólann. Garðar Gíslason, fræðslu- stjóri Kennslumiðstöðvar, segir að fjarnámið hafi verið að eflast og fram- undan sé mikil aukning á þessu sviði. Háskólar um allan heim leggi núna metnað sinn í að efla verulega þennan þátt í starfsemi sinni. Háskóli Íslands ætli sér að standa þar í fremstu röð. „Auk þess að sjá um fjarnámið sér Kennslumiðstöðin um að kenna kenn- urum að nota tæki og tól. Við höldum námskeið fyrir kennara og kennum þeim að nota forrit sem tengjast kennslunni. Við erum einnig með kennslufræðileg námskeið fyrir kenn- ara. Rektor leggur mikla áherslu á þessi námskeið, en þau eru m.a. til- komin vegna samnings háskólans við menntamálaráðuneytið. Við erum í nánu samstarfi við kennslu- og símenntunarstöðvar um allt land. Þær eru að meginstofni til átta, en við sendum út til miklu fleiri staða. Við notum fjarfundabúnað og sendum út fyrirlestra og svo notum við það sem við köllum WebCT, sem er stafrænt kennsluumhverfi. WebCT er eins og heimasíða, reyndar mjög kennslufræðileg, og hefur þann kost að vera lokuð. Þetta er í raun eins og skóli á Netinu. Það eru mjög margir kennarar sem nota þetta, ekki bara í fjarnámi heldur einnig í stað- bundnu námi,“ sagði Garðar. Garðar sagði Háskóli Íslands væri í ágætu samstarfi við háskóla á Íslandi og erlendis um fjarnám. Háskólinn á Hólum í Hjaltadal hefði t.d. séð um námskeið fyrir HÍ í fjarnámi og Há- skólinn í Iowa í Bandaríkjunum verið með eitt námskeið í hjúkrun. HÍ væri einnig í góðu samstarfi við Háskólann á Akureyri og Kennaraháskólann. Garðar sagði að markmið Kennslu- miðstöðvar væri að sem allra flest námskeið í háskólanum yrðu einnig á Netinu. Sumir ættu reyndar erfitt með að sjá að það væri t.d. hægt að gera efnafræðitilraunir á Netinu. Möguleikarnir væru hins vegar fjöl- breyttir. Nýlega hefði t.d. verið hald- inn fyrirlestur í Háskólabíói í lækn- isfræði. Fyrirlesarinn var í Svíþjóð og sýndi hann m.a. aðgerð á innra eyra sem gerð var á sjúkrahúsi þar í landi. „Það á eftir að verða gífurleg aukn- ing í fjarnámi á næstu árum. Það eru svo margir sem ekki geta mætt í dag- skóla vegna vinnu, fjölskylduað- stæðna eða vegna þess að þeir búa á landsbyggðinni. Að mínu viti er lífs- spursmál fyrir háskóla að bjóða bæði upp á nám á Netinu og staðbundið nám. Það er mikil samkeppni milli há- skóla í heiminum á þessu sviði og nemendur gera miklar kröfur til skól- anna,“ sagði Garðar. 400 nemendur í fjarnámi við Háskóla Íslands FÁTT er betra á borðum en glænýr fiskur úr sjó eða ám og vötnum landsins. Margir bregða fyrir sig stöngum og veiðihjólum við veið- arnar á meðan aðrir leggja net sem þeir vitja eftir hæfilegan tíma. Á myndinni er Gylfi Gylfason að vitja silungsneta í Apavatni og bjástrar við að losa myndarlegan urriða úr netinu. Gylfi var með tvær lagnir og í þeim voru 22 fiskar, bæði bleikjur og urriðar. Vænn urriði í Apavatni Morgunblaðið/Brynjar Gauti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.