Morgunblaðið - 04.09.2001, Síða 9

Morgunblaðið - 04.09.2001, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 9 Á SÍÐUSTU tveimur mánuðum hefur fækkað á atvinnuleysis- skrá á höfuðborgarsvæðinu um 200 manns. Hugrún Jóhannes- dóttir, forstöðumaður Vinnu- miðlunar höfuðborgarsvæðisins, sagði að þessi fækkun væri þvert á það sem búist hefði verið við. Nú eru um 1.200 manns á at- vinnuleysisskrá hjá stofnuninni. Ekki er langt síðan Kjötum- boðið, áður Goði, tilkynnti um uppsagnir starfsfólks. Hugrún sagði að þegar um slíkar hóp- uppsagnir væri að ræða byði Vinnumiðlunin upp á ráðgjafar- þjónustu þar sem farið væri yfir réttindi starfsfólks og því veitt aðstoð við að finna nýja vinnu. Áður en til þess kom að slíkur fundur væri haldinn með starfs- fólki voru hins vegar allir búnir að finna nýja vinnu. Hún sagði að svo virtist sem eftirspurnin eftir vinnu væri enn það mikil að fólk ætti tiltölulega auðvelt með að fá vinnu. Hugrún sagði að venjan væri sú að það fækkaði á atvinnuleys- isskrá þegar liði á sumarið. Þar sem mikið hefði verið rætt um að þensla í efnahagslífinu væri að minnka hefði Vinnumiðlunin reiknað með að þróunin yrði önnur í sumar og haust og at- vinnulausum myndi jafnvel fjölga. Sú hefði hins vegar ekki orðið raunin og á síðustu tveim- ur mánuðum hefði fækkað á at- vinnuleysisskrá um 200 manns. Vinnumiðlun höfuð- borgarsvæðisins Fækkar á atvinnu- leysisskrá Neðst við Dunhaga sími 562 2230 Prjónapils og toppar Stórar stærðir ELENA - MIRO - SPORT Opið mán.-fös. kl. 10-18. Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347. Haustfatnaðurinn okkar er engu líkur Opnum aftur á laugardögum Vertu velkomin Sérhönnun. St. 42-56 Laugavegi 4, sími 551 4473. Póstsendum Glæsileg undirföt JAIPUR Peysur með loðkraga heilar kr. 5.200, hnepptar kr. 6.200 Stærðir 36—56                Flottu barnaskórnir frá BOPY komnir Opið virka daga frá kl. 10—18, laugardaga frá kl. 11—15 Suðurlandsbraut 52 Bláu húsin við Faxafen sími 568 3919 Smáskór Hverfisgötu 78, sími 552 8980 20% aukaafsláttur Nýjar vörur Mikill afsláttur Laugavegi 56, sími 552 2201 www.englabornin.com Bankastræti 14, sími 552 1555 Ný sending af dönskum peysum Gott verð! TILBOÐ Kringlunni, sími 581 1717 Barna- og unglingafataverslun Ragazzi gallabuxurnar Tvennar á 2.500 stk. Mismunandi tegundir Stelpur! Síðu gallabuxurnar komnar aftur KÆRUNEFND útboðsmála hefur hafnað kröfum Nýherja hf. um að stöðvað verði útboð Innkaupastofn- unar Reykjavíkurborgar á tölvubún- aði fyrir grunnskóla og Fræðslumið- stöð Reykjavíkur. Nýherji krafðist þess einnig að ákvörðun Innkaupa- stofnunar um að taka tilboði Bræðr- anna Ormsson hf. yrði hnekkt og lagt yrði fyrir Innkaupastofnun að taka tilboði Nýherja. Málavextir eru þeir að með útboð- inu óskaði Innkaupastofnun eftir til- boðum í tölvur fyrir grunnskóla Reykjavíkur ásamt uppsetningu, þar á meðal 662 borðtölvur. Samkvæmt því sem greinir í kæru Nýherja gætti misræmis í útboðsgögnum að því er varðaði það atriði hvort stýrikerfi skyldi fylgja vélunum eða ekki. Úrskurðarnefndin taldi m.a. ekki unnt að skýra útboðsskilmála á aðra leið en að óskað hefði verið eftir tölv- um með uppsettu stýrikerfi, þó þannig að Innkaupastofnun hefði ekki talið sér skylt að greiða fyrir stýrikerfin vegna samnings síns við Microsoft. Í úrskurði nefndarinnar segir að ekki hafi komið fram að brotið hafi verið gegn reglum um opinber inn- kaup við umrætt útboð og var kröf- um Nýherja því hafnað. Innkaup á tölv- um brjóta ekki í bága við reglur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.