Morgunblaðið - 04.09.2001, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.09.2001, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁLFRAMLEIÐSLA á Íslandi gæti ríflega fjórfaldast næstu 10–12 árin verði fyrirhuguð áform um stækk- anir álvera og byggingu nýrrar verksmiðju að veruleika. Í dag framleiða tvö álver, Ísal í Straums- vík og Norðurál á Grundartanga, samtals um 260 þúsund tonn á ári eftir að framleiðsla jókst úr 60 þús- und tonnum í 90 þúsund tonn hjá Norðuráli á þessu ári. Bæði hafa þessi fyrirtæki uppi áform um stækkanir. ÍSAL kynnti nýlega að hafin væri könnun á möguleikum á stækkun álversins í 370 þúsund tonna framleiðslu ári og Norðurál kynnti í fyrra áform um stækkun í 240 þúsund tonna álver. Þá hefur Skipulagsstofnun nýlega fallist á framkvæmdir við byggingu 420 þúsund tonna álvers í Reyð- arfirði í tveimur áföngum, en sam- anlögð framleiðsla þessara þriggja álvera eftir byggingu og stækkanir yrði ríflega ein milljón tonna á ári. Blikur á lofti vegna orkuöflunar Þrátt fyrir stór áform um stækk- un og byggingu álvera hér á landi á næstu árum eru nokkrar blikur á lofti varðandi orkuöflun fyrir verk- smiðjurnar og ekki ennþá séð fyrir endann á því hvernig eða hvort hægt verður að útvega fyrirtækj- unum nægjanlega orku. Skipulags- stofnun hefur þegar fallist á bygg- ingu álvers og hafnar við álverið í Reyðarfirði og lagningu háspennu- lína úr Fljótsdal til Reyðarfjarðar en hins vegar hafnað virkjun við Kárahnjúka. Eins og staðan er í dag eru engir aðrir kostir á borðinu og því virðist álver Reyðaráls hf. standa og falla með því hvort virkj- að verði við Kárahnjúka. Kæru- frestur vegna úrskurðar Skipulags- stofnunar um Kárahnjúkavirkjun rennur út á morgun og mun Lands- virkjun senda umhverfisráðherra kæru vegna úrskurðarins. Vonir standa til að nýjar upplýsingar sem fram koma í kæru Landsvirkjunar muni hafa þau áhrif að umhverf- isráðherra hnekki úrskurði Skipu- lagsstofnunar og heimili byggingu virkjunar við Kárahnjúka. Skipulagsstofnun kynnti á föstu- dag þann úrskurð sinn að fallist væri á byggingu álvers og raf- skautaverksmiðju í Reyðarfirði. Sett voru tvö skilyrði fyrir fram- kvæmdum vegna umtalsverðrar mengunar frá álverinu og raf- skautaverksmiðjunni en ekki munu þau skilyrði standa í vegi fyrir byggingu álversins, fáist næg raf- orka til rekstursins. Kárahnjúkavirkjun eini kosturinn fyrir Reyðarál Geir A. Gunnlaugsson, stjórnar- formaður Reyðaráls hf., segir úr- skurð Skipulagsstofnunar jákvætt skref í þá átt að framkvæmdin verði að veruleika í Reyðarfirði og að menn séu bjartsýnir á byggingu ál- versins þrátt fyrir að Skipulags- stofnun hafi hafnað byggingu virkj- unar við Kárahnjúka. „Það mál er í þeim farvegi sem löggjafinn setur um það. Landsvirkjun hefur ákveðið að kæra úrskurð Skipulagsstofnun- ar til umhverfisráðherra og ég reikna með því að Landsvirkjun muni fylla betur upp í þá mynd hver umhverfisáhrifin verða, þannig að hægt verði að sýna með faglegum hætti fram á að hægt sé að byggja þessa virkjun í viðunandi sátt við umhverfið.“ Geir segir mikilvægt að fá nið- urstöðu varðandi virkjunarfram- kvæmdir á næstu vikum og sú nið- urstaða verði jákvæð gagnvart Kárahnjúkavirkjun, enda séu engir aðrir kostir í boði fyrir Reyðarál. „Það er engin önnur lausn á því að útvega orku til þessa álvers. Það eru ekki á borðinu neinar aðrar virkjanir. Menn hafa verið að velta upp að virkja t.d. Jökulsá á Dal í svokölluðum þrepavirkjunum, en ég held að það sé nokkuð ljóst að um- hverfisáhrif hennar yrðu ennþá meiri. Þannig að á þessu stigi er ekki neinn annar kostur en Kára- hnjúkavirkjun.“ Að sögn Geirs er nú verið að vinna að undirbúningi að byggingu álversins, enda fjölmargir samning- ar sem þurfti að gera og unnið sé af fullum krafti í þeim málum. „Menn trúa því ennþá að hægt verði að sýna fram á að virkjunin geti lifað í sátt við umhverfi sitt þarna, með sama hætti og eins og gildir um ál- verið,“ segir Geir. Forsvarsmenn Norðuráls kynntu á síðasta hausti hugmyndir um stækkun álversins á Grundatanga upp í allt að 300 þúsund tonna fram- leiðslu á ári. Hugmyndirnar gerðu ráð fyrir að strax yrði ráðist í bygg- ingu 150 þúsund tonna stækkunar þannig að heildarstærð álversins verði 240 þúsund tonn. Með nýrri tækni, þar á meðal betri nýtingu á kerum, voru síðan áform uppi um að ná framleiðsluaukningu til viðbótar upp á 60 þúsund tonn, þannig að heildarframleiðslugetan yrði 300 þúsund tonn. Ákveðnir möguleikar varðandi gufuaflsvirkjanir Ragnar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri fjármála- og stjórn- unarsviðs hjá Norðuráli, segir að staðan sé svipuð hjá Norðuráli og fyrr í sumar en viðræður við ýmsa aðila varðandi stækkun verksmiðj- unnar hefjist nú aftur í september. Ekki þarf einungis að huga að orku- málum því athuga þarf endurnýjun fjárfestingarsamninga, semja við birgja um aðföng, tryggja fjár- mögnun og reikna út hvort ávöxtun eiginfjár verði ásættanleg í saman- burði við aðra fjárfestingarkosti. „Ef öll þessi atriði ganga upp og ávöxtun eiginfjár er viðunandi, þá er hægt að taka ákvörðun um fram- kvæmdir. Það verður ekki komin endanleg mynd á öll atriði málsins fyrr en næsta vor, til dæmis hafa nægjanleg virkjanaleyfi ekki verið gefin út og hugmyndir stjórnvalda um almennar skattalækkanir eru í vinnslu,“ segir Ragnar. Norðurál mun eiga viðræður inn- an skamms við Landsvirkjun um virkjunarkosti og verð á rafmagni. Hins vegar liggur ekki ennþá fyrir hvort Norðlingaöldulón getur orðið að veruleika og því hefur Lands- virkjun ekki getað ábyrgst sölu á nægilegri orku til Norðuráls vegna stækkunar úr 90 þúsund í 180 þús- und tonn. Ragnar segir að verið sé að kanna ýmsa aðra kosti með það fyrir augum að tryggja orku til stækkunar í 240 þúsund tonn, en það er sú stærð sem Norðurál ósk- aði eftir fyrir ári. Hann segir að ákveðnir mögu- leikar séu varðandi gufuaflsvirkjan- ir sem nú eigi eftir að ræða betur hvenær geti orðið tilbúnar og á hvaða verði sú orka fáist, en Norð- urál hefur kannað þau mál hjá Hita- veitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur. Ef orkuverð þar verð- ur hagkvæmt og Landsvirkjun fær nauðsynleg leyfi vegna Norðlinga- öldulóns, segir Ragnar að tímasetn- ingar varðandi stækkun Norðuráls verði skoðaðar í því ljósi. Varðandi virkjanir á Vestfjörðum segir Ragnar að engar viðræður hafi átt sér stað en stefnt sé að kynningarfundi hjá Orkubúi Vest- fjarða um virkjunarkosti til lengri tíma litið, en ljóst sé að þeir kostir komi ekki til móts við fyrirhugaða stækkun álversins á Grundartanga. „En við ætlum að hitta þá og heyra hvað þeir hafa fram að færa en það eru engar viðræður að fara af stað núna. Það er seinni tíma mál ef skil- yrði eru fyrir hendi af hálfu beggja aðila,“ segir Ragnar. Vinna við matsáætlun vegna Norðlingaöldulóns að hefjast Samkvæmt áætlunum Norðuráls er gert ráð fyrir að stækkun álvers- ins komist í gagnið seinni hluta árs- ins 2004, verði ákvörðun tekin að ráðast í framkvæmdir. Þær nýju virkjanir sem þá gætu verið komnar í gagnið hjá Landsvirkjun eru Búð- arhálsvirkjun í Tungnaá og aukin orkuframleiðsla með tilkomu Norð- lingaöldulóns í Þjórsá. Skipulags- stofnun hefur fallist á fyrirhugaða byggingu allt að 120 MW Búðar- hálsvirkjunar í Tungnaá við Búð- arháls í Rangárvallasýslu, lagningu Búðarhálslínu 1 og lagningu vega á Búðarhálsi með því skilyrði að bætt verði fyrir umhverfisáhrif vegna gróðurlendis sem tapist af völdum Sporðöldulóns við Búðarháls. Hins vegar hefur staðið styr um Norð- lingaöldulón þar sem hluti lónsins mun lenda inni á friðlýstu svæði, Þjórsárverum. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir Norðlinga- öldulón ekki ennþá komið í um- hverfismat en segist eiga á von á að það gerist á allra næstu dögum, þ.e.a.s. að lögð verði fram drög að matsáætlun. „Samkvæmt lögunum um mat á umhverfisáhrifum þarf fyrst að koma fram með matsáætl- un og menn eru að undirbúa mats- áætlunina vegna Norðlingaöldu- virkjunar, eins og við höfum þegar gert varðandi virkjanir í neðri Þjórsá. Það er auðvitað til þess að vera í viðbragðsstöðu til að geta í framhaldi af því lagt fram skýrslu um mat á umhverfisáhrifum þegar nánar liggja fyrir upplýsingar um stækkun álversins á Grundar- tanga.“ Norðlingaöldulón og Búðarhálsvirkjun nauðsynleg Friðrik segist gera ráð fyrir því að Landsvirkjun eigi fund með Norðurálsmönnum eftir tvær vikur. „Þá munum við ræða við þá með sama hætti og við höfum verið að gera af og til undanfarin misseri.“ Að sögn Friðriks myndu Norð- lingaöldulón og Búðarhálsvirkjun nægja til framleiðslu á rafmagni sem stæði undir 90 þúsund tonna ársframleiðslu á áli á Grundartanga og gætu þessa virkjanir því staðið undir stækkun Norðuráls í 180 þús- und tonn. „Ef þeir ætla að stækka um 150 þúsund tonn og sú framkvæmd verður að veruleika seinni hluta árs- ins 2004 þurfa þeir talsvert meira og þurfa þá að sækja þá orku til annarra fyrirtækja, því virkjanirnar í neðri Þjórsá eru ekki komnar nægilega langt. Hins vegar erum við langsamlega fljótastir að eiga við Norðlingaöldulónið því þar er ekki verið að byggja nein stöðv- arhús eða þess háttar, þar er ein- göngu um veitu að ræða, stíflu og jarðgöng til að koma vatninu í gegn- um þær vélar sem til eru,“ segir Friðrik. Núpsvirkjun og Urriðafossvirkj- un koma ekki til álita fyrr en eftir 2005, að sögn Friðriks. Hann segir að í ljósi þess að ÍSAL sé farið að huga að stækkun gætu þær virkj- anir verið ágætur kostur til að bjóða þegar ákvörðun liggur fyrir um stækkun álversins við Straumsvík. „Þeir hafa lauslega rætt við okk- ur um möguleika en sagt okkur að málið sé ekki komið á ákvörðunar- stig hjá þeim. Þeir hafa einungis sagt okkur að þeir hafi ákveðið að fara fram með matsáætlun vegna stækkunarinnar og hagkvæmnisat- hugun og ætla að gera það á sama tíma, því það gefi betri mynd af rekstrarforsendum. Í því felst engin ákvörðun um að stækka heldur að kanna hvort það geti orðið hag- kvæmt.“ Talsverðar líkur á fram- kvæmdum við stækkun ÍSAL Íslenska álfélagið ákvað á dög- unum að hefja matsferli vegna fyr- irhugaðrar stækkunar álvers ÍSAL í Straumsvík. Fyrirhuguð stækkun felur í sér 200 þúsund tonna fram- leiðsluaukningu á ári í tveimur áföngum og gæti fyrri áfangi orðið að veruleika árið 2005 og seinni áfanginn komist í gagnið eigi síðar en árið 2010. Fyrirtækið hefur þeg- ar látið kynna tillögu að matsáætl- un, þar sem fram kemur að tíma- setning framkvæmda muni einkum ráðast af niðurstöðum viðræðna við orkuframleiðendur um öflun raf- orku og hvort af samningum verði við Hafnarfjarðarbæ um land undir starfsemina. Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi ÍSAL, sagði í samtali við Morgunblaðið fyrir viku að tals- verðar líkur væru á að framkvæmd- ir við stækkun álversins yrðu að veruleika, svo framarlega sem stækkunin færi í gegnum þann formlega feril sem slíkar fram- kvæmdir þurfa að fara í gegnum. Orkuþörf álversins mun aukast um 3.000 GWst á ári við stækkunina, en engar formlegar viðræður hafa farið fram við þá aðila sem gætu annað slíkri orkuþörf. Morgunblaðið/Golli Bráðinni raflausn hellt í ker í álveri Norðuráls á Grundartanga. Framleiðsla gæti aukist um 770 þús- und tonn næstu árin Umræður um virkjanir og álver hafa verið í hámæli undanfarin misseri. Bæði ÍSAL og Norðurál hafa lýst yfir áhuga á verulegri stækkun og fallist hefur verið á byggingu verksmiðju í Reyðarfirði, sem yrði stærsta álver landsins. Eiríkur P. Jörundsson kynnti sér stöðu mála og hvaða virkjunarkosti er um að ræða til að mæta gríðarlegri orkuþörf álveranna. Áætlanir um stækkanir og byggingu nýs álvers kalla á nýtingu fjölda virkjunarkosta eirikurj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.