Morgunblaðið - 04.09.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EMBÆTTI húsameistara gerði á
sínum tíma tillögur að stækkunum og
viðbyggingum við Arnarhvol og
gamla Hæstaréttarhúsið sem taka
mið af byggingastíl Guðjóns Samúels-
sonar. Í tveimur mismunandi tillög-
um er gert ráð fyrir því að hæstarétt-
arhúsið sé nýtt sem miðja fyrir
byggingu, sem nær annars vegar út
að íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
og hins vegar alla leið út að Skugga-
sundi.
Að sögn Garðars Halldórssonar,
fyrrverandi húsameistara ríkisins,
voru tillögurnar gerðar fyrir um tíu
árum fyrir Stjórnarráðið þegar fyr-
irséð var að Hæstiréttur myndi flytja
sig um set. „Þá gerðum við nokkrar
athuganir á þessum viðbyggingar-
möguleikum og tillögurnar gengu
meðal annars út á að stækka Arnar-
hvol með því útliti sem hann er með í
dag til þess að framlengja bygging-
arstíl Guðjóns Samúelssonar. Hluti af
þeim tillögum byggðist á því að nota
Hæstaréttarhúsið en rífa Jóns Þor-
steinssonarhúsið“ segir Garðar.
Á teikningunum má sjá hvernig
hæstaréttarhúsið, sem Gujón Sam-
úelsson teiknaði einnig, skapar
ákveðna miðju lengjunnar og að sögn
Garðars var hugmyndin sú að hafa
inngang þar. „Við ætluðum að nota
framhliðina þar sem svona áherslu í
fletinum og halda svo áfram með eitt-
hvað svipað og Arnarhvol hinum
megin við þá miðju.“
Setti ekki enda á húsið
Hann segir ekki vitað hvort Guðjón
hafi sjálfur hugsað sér þetta framhald
af Hæstaréttarhúsinu. „Arnarhvoll
eins og hann er í dag var byggður í
tveimur áföngum og þess vegna
framlengir Guðjón Arnarhvol sjálfur
einu sinni því austurendinn sem er
meðfram Lindargötu var byggður
síðar en sá hluti sem er vestar. Svo
teiknar hann Hæstarétt en við höfum
nú ekki rekist á teikningar frá honum
sjálfum sem sýna framhald af því.
Það eru hugmyndir sem komu frá
okkur hjá embætti húsameistara á
seinni stigum.
Aftur á móti vitum við að hann end-
ar Hæstaréttarhúsið með branngafli
þannig að hann setur ekki enda á hús-
ið. Þetta þýðir að hann reiknar með
því sem arkitektar kalla randbygg-
ingu áfram, þ.e.a.s. að þetta séu ekki
sjálfstæð hús heldur haldi áfram að
stækka, annaðhvort með sama formi
eða öðru formi. Það er ekkert óeðli-
legt að þetta form Guðjóns bara haldi
áfram og það myndi styrkja Arnar-
hvol sem slíkan útlitslega. En það má
ekki skilja það þannig að við höfum
fundið einhverja tillögu frá Guðjóni
um það en við vorum kannski að
ímynda okkur að þetta myndi Guðjón
hafa gert ef honum hefði verið falið að
stækka það.“
Ekki til skoðunar núna
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri
í forsætisráðuneytinu, kannaðist við
þessar hugmyndir en sagði þær ekki
hafa verið til skoðunar í tengslum við
nýtt deiliskipulag stjórnarráðsreits-
ins. „Við höfum í rauninni ekki verið
að skoða nákvæmlega hvernig útlitið
eða nýtingin yrði akkúrat á þessum
reit vegna þess að við höfum alfarið
verið að hugsa um Sölvhólsgötuna.
Það er í rauninni það eina sem hefur
verið rætt um og undirbúið til fram-
kvæmdar vegna þess að það verður
fyrsti áfanginn í því sem gert verður á
reitnum.“
Hann segir tillögurnar sem liggja
fyrir ekki útiloka þessa tíu ára gömlu
útfærslu. „En ég held að þessar hug-
myndir séu alfarið barn síns tíma. Þá
var til dæmis ekki búið að gera neitt
deiliskipulag. Eins var verið að velta
fyrir sér hvernig mætti nýta þetta
með eða án húss Jóns Þorsteinssonar
en nú liggur fyrir í deiliskipulaginu að
það geti farið.“
Tíu ára gamlar hugmyndir um viðbyggingar við Arnarhvol komnar í dagsljósið
!"
#
"
$%
Byggt áfram í stíl
Guðjóns Samúelssonar
Miðborg
UMHVERFI og kennslusvæði Vík-
urskóla er nú komið í viðunandi horf
að mati Gunnars Kristinssonar, heil-
brigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftir-
liti Reykjavíkur, en eins og Morgun-
blaðið greindi frá um helgina setti
Heilbrigðiseftirlitið ákveðin skilyrði
fyrir því að hægt yrði að hefja
kennslu í skólanum nú eftir helgi.
„Þetta hefur tekið alveg geysilega
miklum stakkaskiptum þannig að
þetta er komið í viðunandi horf,“ seg-
ir Gunnar. „Ég ætla þó að fara með
héraðslækni í fyrramálið [í dag] í
skólann til að skoða ástandið með til-
liti til hugsanlegrar rykmengunar og
þess háttar en ég held að þetta verði
allt í lagi. Ég bíð svo eftir því sem
hann segir varðandi það hvaða kröf-
ur við munum gera í framhaldinu.“
Hann segir að gengið hafi verið frá
lóðinni í samræmi við óskir hans
þannig að umferðarhætta hafi
minnkað verulega. Þá sé búið að ryk-
binda allt innandyra nema gólfin en
til standi að bæta þar úr með því að
setja á þau glæra húð sem geri öll
þrif auðveldari.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Þessir krakkar voru að leik í blíðviðrinu fyrir utan Víkurskóla í gær.
Víkurskóli kominn
í viðunandi horf
Grafarvogur
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
auglýsa breytingu á deiliskipulagi
Ofanleitis sem felur í sér að götunni
verði lokað þannig að aðkoma að
bílastæðum Verslunarskóla Íslands
og Háskóla Reykjavíkur verði ein-
ungis frá Listabraut.
Morgunblaðið greindi frá því í vor
að íbúar í nágrenni skólanna hefðu
þungar áhyggjur af umferðaraukn-
ingu í Ofanleiti í tengslum við stækk-
un skólanna.
Ofanleiti verði lokað
Leiti