Morgunblaðið - 04.09.2001, Page 16

Morgunblaðið - 04.09.2001, Page 16
AKUREYRI 16 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Tölvunámskeið á næstunni Tölvulæsi 1 60 kennslustundir 11.sept – 18.okt kl.17:30 – 21:00 þri, fim Hæg yfirferð. Hagnýtt tölvunám 1 60 kennslustundir 18.sept – 26.okt kl.17:30 – 21:00 þri, fim Venjuleg yfirferð. Stök námskeið 10-20 kennslustundir Venjuleg yfirferð. • Excel 1 10.–13. sept kl. 08:30–12:00 • Internet Explorer 12.– 13. sept kl. 17:30 – 21:00 • Outlook 17.-19.sept kl. 13:00 – 16:30 • Windows 17.- 20.sept kl. 17:30 – 21:00 Lært á laugardögum 10 kennslustundir kl. 09:00 – 17:00 Hraðnámskeið fyrir þá sem vilja nýta helgina til náms. • Windows 2000 15.sept • Word 1 22.sept • Excel 1 29.sept Hádegismatur innifalinn. Tölvugrunnur og Windows 17. – 19.sept kl. 08:30 – 12:00 Internet og tölvupóstur 24. – 26.sept kl. 08:30 – 12:00 Word 1 01. – 03.okt kl. 08:30 – 12:00 Ath! Skrá ning sten dur yfir Sérnámskeið fyrir Eflingar félaga: Horfðu til framtíðar Faxafeni 10 (Framtíð) · Sími 561 6699 tolvuskoli@tolvuskoli.is · www.tolvuskoli.is SVANFRÍÐUR Jónasdóttir alþing- ismaður setti viku símenntunar í Eyjafirði í gær, en hún er nú haldin í annað sinn og er dagskráin fjöl- breytt. Svanfríður nefndi í setningar- ræðu sinni að mikilvægt væri að tryggja sem flestum aðgang að tölv- um og Neti, það væru mikilvægir lyklar að menntun í framtíðinni. Menntmálaráðuneytið, Mennt og fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar um land allt standa að viku símennt- unar, en um er að ræða alþjóðlegt átak sem miðar að því að hvetja ein- staklinga og fyrirtæki til endur- menntunar og þekkingarleitar. Á sjöunda tug námskeiða kynnt Í Eyjafirði hefur rík áhersla verið lögð á að fá fyrirtæki, stofnanir, stéttarfélög og einstaklinga á svæð- inu til samstarfs við undirbúninginn. Á tímabilinu frá 6. til 26. september verður í boði á sjöunda tug fræðslu- og námskeiðskynninga fyrir fyrir- tæki, en á annað hundrað fyrirtækja við Eyjafjörð hefur fengið bréf þar sem þau eru hvött til að gefa gaum að fræðslumálum starfsmanna sinna og fá til sín áhugaverðar kynningar. Meðal þeirra sem kynna nám og námskeið eru Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Reynir-ráðgjafastofa, Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, Verkmenntaskólinn á Ak- ureyri, Jafnréttisstofa, Svæðis- vinnumiðlun Norðurlands eystra, Tölvufræðslan, World Class, Ein- ing-Iðja, Félag byggingarmanna í Eyjafirði og Félag málmiðnaðar- manna. Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri opnar námstorg á fimmtu- dag og á föstudag verður haldin ráð- stefna um Eyjafjörð og umheiminn þar sem fjallað verður um umhverf- ismál í Eyjafirði frá sjónarhóli fyr- irtækja en þar verður m.a. varpað ljósi á nokkrar leiðir sem fyrirtæki geta farið í þeim efnum. Menntun og menning við fjörðinn Menning og menntun við fjörðinn okkar er yfirskrift safnadags sem haldinn verður næstkomandi laug- ardag. Ljóðalestur verður í Sigur- hæðum, gönguferð á vegum Minja- safnsins, Davíðshús verður skoðað og lummukaffi verður í gamla bæn- um í Laufási. Þá verður leiðsögn um byggðasafnið Hvol á Dalvík og fræðsla um Jóhann Pétursson Svarfdæling. Einnig verður leiðsögn um náttúrugripasafnið í Ólafsfirði. Vikunni lýkur með kvöldmessu í Akureyrarkirkju en að henni lokinni verður fræðsla á vegum kirkjunnar á komandi vetri kynnt og þau nám- skeið sem í boði verða. Fjölbreytt dagskrá á viku símenntunar við Eyjafjörð Kynning á námskeiðum, ráðstefna og safnadagur Morgunblaðið/Kristján Svanfríður Jónasdóttir alþingis- maður setur viku símenntunar í Eyjafirði í gær. HÚSMÓÐIRIN á Miðgörðum í Grímsey, Jórunn Magnúsdóttir, var að kíkja eftir kartöflunum sínum þegar ferðamaður vatt sér að henni og spurði hvort hún gæfi hvönninni sem stæði þarna í garðinum horm- óna, svo risavaxin væri hún. Hvönnina, sem er orðin þriggja metra há, fékk Jórunn sem pínulít- inn afleggjara hjá vinkonu á Ak- ureyri fyrir 4 eða 5 árum. Ekkert hefur þurft sérstaklega að nostra við hvönnina, hún hefur bara sprottið og dafnað, ólíkt öðrum gróðri sem yfirleitt á erfitt upp- dráttar í Grímsey. Og nú er svo komið sagði Jórunn, „að saga verð- ur af hvönninni ef ég á að hafa nokkurn svefnfrið í næstu vest- anátt“. Risahvönn vex norður við heimskautsbaug Ekki svefn- friður í vestanátt Grímsey Morgunblaðið/Helga Mattína Jórunn Magnúsdóttir við risahvönnina í garði sínum í Grímsey. AMTSBÓKASAFNIÐ og Bókasafn Háskólans á Akureyri bjóða upp á dagskrá í dag, 4. september. Á Amtsbókasafnu verða kynnt forrit á vefnum sem þýða vefsíður kl. 17 til 19 í dag og á morgun. Kynning verð- ur á gagnasöfnum og stafrænum tímaritum í Bókasafni háskólans kl. 14 til 16 í stofu K203. Kynnt verður kennsluefni í tungumálum í bóka- safninu kl. 15 til 16 í dag. Kynna forrit og gagnasöfn ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Tríós Sig- urður Flosasonar á geisladiskinum Djúpið verða haldnir í Deiglunni þriðjudagskvöldið 4. september kl. 21:00 og nefnast „Djúpið í Deigl- unni“. Tónleikarnir eru unnir í sam- starfi Jazzklúbbs Akureyrar og Tríós Sigurður Flosasonar, sem sendir frá sér þennan nýja geisla- disk. Miðlunar- og útgáfufyrirtækið Edda gefur geisladiskinn út, en Edda, Gistiheimili Akureyrar, og Café Karolína styrkja tónleikanna. Djúpið er fjórði geisladiskur Sig- urðar Flosasonar, og er nokkurs konar sjálfstætt framhald Himna- stigans, en sá diskur kom út árið 1999. Himnastiginn hlaut frábærar við- tökur og seldist langt umfram það sem almennt gerist með djassdiska. Þá léku þeir Sigurður Flosason, Eyþór Gunnarsson og Lennart Gin- man misvelþekkta kunningja. Á nýja diskinum, Djúpinu, leikur sama tríó og hljóðritaði Himnastig- ann fyrir tveimur árum. Hún inni- heldur m.a.sígild lög eins og Don’t Explain og Skating in Central Park. Aðgangseyrir er kr. 1000. Tríóið heldur svo tónleika í Vík- urbæ í Bolungarvík á miðvikudags- kvöld og hefjast þeir kl. 21. Djúpið á útgáfutón- leikum í Deiglunni UNDIRBÚNINGUR að bygg- ingu íþróttahúss við Síðuskóla var til umræðu í stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar í vikunni. Hér var um fyrstu skref að ræða í því máli og ekki liggur enn fyrir hversu stórt hús verður byggt né hvenær framkvæmdir hefjast. Samkvæmt þriggja ára áætlun bæjarins er gert ráð fyrir 10 milljónum króna í verkefnið á þessu ári og 120 milljónum króna til viðbótar á næstu tveimur ár- um. Hugmyndin er að íþrótta- húsið verði jafnframt samkomu- salur skólans. Guðríður Friðriksdóttir, fram- kvæmdastjóri Fasteigna Akur- eyrarbæjar, sagði að deildar meiningar væru um stærð húss- ins, þ.e. hvort sníða eigi bygg- inguna eingöngu að þörfum skól- ans eða hvort byggja eigi hús með löglegum handboltavelli. Þetta sé hins vegar mál sem eigi eftir að ræða á hinum pólitíska vettvangi. Guðríður sagði engar tíma- setningar liggja fyrir en að æski- legast væri út frá sjónarmiðum skólans að hlutirnir gerðust sem hraðast. Skólanefnd samþykkti á fundi sínum sl. haust að leggja til við bæjarráð að byggt verði íþrótta- hús ásamt samkomusal við Síðu- skóla auk þess sem byggt verði íþróttahús við Giljaskóla. Guðríð- ur sagði að út frá hagsmunum skólanna væri æskilegast að byggja íþróttahús við báða skólana. Hins vegar væri sparn- aður í því að komast af með eitt hús fyrir þá báða en Guðríður sagðist ekki geta sagt til um hver niðurstaðan verði. Síðuskóli á Akureyri Hreyfing á bygg- ingu íþróttahúss

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.