Morgunblaðið - 04.09.2001, Page 18
SUÐURNES
18 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TILRAUNAVERKSMIÐJA Bio-
Process Ísland hf. verður formlega
gangsett í Höfnum í Reykjanesbæ í
dag. Í verksmiðjunni er áformað að
vinna náttúruefnið astaxanthin úr
smáþörungum með tækni, sem
byggist á notkun rafljósa. Fram-
leiðslan er mjög orkufrek og var
staðsetningin að hluta valin með ná-
lægðina við Svartsengi í huga en
henni réð einnig stór eignarhlutur
Keflavíkurverktaka í fyrirtækinu.
Danska fyrirtækið Novi A/S er
stærsti hluthafi í BioProcess með
45,69% hlutafjár en næststærsti
hluthafinn er Keflavíkurverktakar
með 21,72%. Aðrir hluthafar eiga
innan við tíunda hluta hlutafjár
hver en þeir stærstu meðal þeirra
eru Nýsköpunarsjóður, Kaupþing
hf. og Bank of Scotland Trust
Company Ltd.
Byrjuðu í Danmörku
Að sögn Davíðs Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra fyrirtækisins, á
fyrirtækið rætur að rekja til þess,
að árið 1991 stofnaði Niels-
Henrik Norsker, sem er rannsókn-
arstjóri verksmiðjunnar, fyrirtæki í
Hirtshals í Danmörku til að fram-
leiða og selja vélbúnað, sem hann
hannaði, til að rækta smáþörunga.
Smáþörungar eru frumframleið-
endur í lífkeðjunni, bæði í sjó og í
vötnum, og afar næringarríkir. Þeir
eru mikið notaðir sem fóður í fisk-
eldi og fyrirtækið seldi fyrst og
fremst fiskeldisstöðvum tækin til að
byrja með.
Árið 1996 vakti ráðgjafarfyrir-
tæki athygli á mögulegum markaði
fyrir vörur, sem hægt væri að fram-
leiða með tækni þeirri, sem Norsk-
er hafði hannað og í júlí 1997 var
BioProcess A/S stofnað, með fyr-
irtækið Novi A/S sem aðaleiganda.
Í ágúst sama ár voru rannsóknar-
stofur opnaðar í Stirling í Skotlandi
og í október 1997 komu íslenskir
fjárfestar að fyrirtækinu.
Í september 1999 var rannsókn-
arstarfsemi flutt til Íslands og í
mars árið 2000 voru samningar um
tilraunaverksmiðju undirritaðir. Er
áformað að framleiðsla geti hafist af
fullum krafti í desember 2004,
gangi starfsemi tilraunaverksmiðj-
unnar að óskum.
Kröftugasta
andoxunarefni heims
Astaxanthin er afar verðmætt
efni og eftirsótt, til að mynda í fiski-
fóður og til manneldis sem fæðubót-
arefni. Rannsóknir hafa einnig sýnt
að það hefur til að bera ýmsa ein-
stæða eiginleika, sem gefa góð fyr-
irheit um nýtingu þess í lyfjaiðnaði,
snyrti- og heilsuvöruframleiðslu, að
sögn Ragnheiðar Á. Magnúsdóttur
rannsóknarstofustjóra. Það hefur
sýnt sig, að sögn Ragnheiðar, að
náttúrulegt astaxanthin eykur lífs-
líkur fiska og kjúklinga í eldi og
frjósemi eldisdýra. Það styrki
ónæmiskerfið og sé öflugasta
andoxunarefni, sem þekkt er, eða
a.m.k. 100 sinnum öflugra en E-vít-
amín. Andoxunarefni vinna gegn
ýmsum frumuskemmdum í líkam-
anum, sem súrefni getur orsakað.
Ragnheiður segir að þetta sé sá
eiginleiki efnisins, sem hvað mik-
ilvægastur gæti orðið með tilliti til
lyfjaframleiðslu, sem og sá eigin-
leiki þess, að komast í gegnum
heila-mænu þröskuldinn svonefnda,
en það er varnarkerfi líkamans,
sem kemur í veg fyrir að efni berist
í heila og mænu með blóðrásinni.
Astaxanthin kemst hins vegar í
gegnum þessar varnir. Efnið hefur,
að sögn Ragnheiðar, reynst vel í
rannsóknum á magasári, heilablóð-
falli, of háu kólesteróli, hrörnun
augnbotna, gigtarsjúkdómum og
asthma. Það eykur styrk vövða og
hefur auk þess sýnt jákvæða virkni
á 60 tegundir af krabbameini.
Astaxanthin er hægt að framleiða
efnafræðilega en þá er efnaformúl-
an önnur og efnið hefur ekki sömu
eiginleika og hið náttúrulega. Í
náttúrunni er það að finna í ýmsum
jurtum, í gersvepp og fjölmörgum
fuglategundum en hvergi þó í sama
mæli og í þörungnum Haematococc-
us pluvialis, en það er hann sem
verður ræktaður í tilraunaverk-
smiðju BioProcess.
Gefur laxi og silungi
rauða litinn
Haematococcus pluvialis, eða
„blóðþörungur“, eins og hann kall-
ast á íslensku, er einfrumu græn-
þörungur, sem finnst um allan
heim. Hann vex svo hægt að hann
ógnar ekki náttúrunni á nokkurn
hátt, eins og hraðvaxta þörungar
geta gert, þegar þeir fjölga sér um
of. Líf hans einkennist af tvenns
konar ástandi. Á sundstigi fjölgar
hann sér; þá er hann grænn á lit,
umlukinn mjúkri hulu og með tvær
svipur, sem hann syndir með. Ef
hann verður fyrir áreiti – sem getur
verið af ýmsum toga, svo sem að
vatnið sé of salt, eða birtan mjög
mikil – fer hann yfir á gróstig. Þá
leggst hann í dvala, missir svipurn-
ar og hörð skel myndast utan um
hann. Í þessu ástandi myndar hann
astaxanthin og verður rauður á lit.
Að sögn Ragnheiðar er ekki vitað,
af hverju þörungurinn myndar efn-
ið, en þess hefur verið getið til, að
það verndi hann gegn sólarljósinu.
Það er hinn rauði litur astaxanth-
ins, sem litar lax, silung og rækju
rauða og einnig flamingófugla.
Fullkomin stjórn
á framleiðslunni
Markmið reksturs tilraunaverk-
smiðjunnar er að staðfesta að hægt
sé og hagkvæmt að framleiða astax-
anthin úr blóðþörungum með bún-
aði, sem byggist á hönnun Niels-
Henrik Norsker og hefur verið þró-
aður frekar af Novo Nordisk
Engineering.
Ræktun blóðþörunganna fer
fram í þar til gerðum tönkum af
mismunandi stærð og byggist á
notkun orku, í formi rafmagnsljóss,
ætis, lofts, vatns og koltvísýrlings í
réttum hlutföllum. Þegar þörung-
arnir eru fullvaxnir eru þeir settir í
sérstakan tank, þar sem þeir eru
lýstir með rafljósi og þvingaðir til
að fara yfir á gróstig og mynda ast-
axanthin. Síðan eru þeir þurrkaðir
og malaðir.
Blóðþörungur er þegar ræktað-
ur, t.d. á Hawaii, þar sem hann er
ræktaður í stórum tjörnum, eða þá
að hann er ræktaður í smáum stíl í
plastpokum eða litlum plasttönkum
við frumstæðar aðstæður. Davíð
Guðmundsson segir BioProcess
hafa það fram yfir keppinauta á
þessu sviði að framleiðslukerfið er
algjörlega lokað og dauðhreinsað og
hægt að stýra öllum þáttum fram-
leiðsluferlisins nákvæmlega, hvort
sem það er birta, fæðumagn eða
annað. Framleiðslutæknin er ein-
stök og bundin einkaleyfi, og nýtist
við framleiðslu á öðrum tegundum
smáþörunga.
Fjölnota verksmiðja
Astaxanthin er afar dýrt en kílóið
selst á þrjú til fimm þúsund Banda-
ríkjadali. Mikil eftirspurn er þó eft-
ir því og álitið að markaðurinn fyrir
efnið í fiskafóður árið 1999 hafi
numið 13 milljörðum í krónum tal-
inn. Áætlað er að astaxanthin hafi
verið selt á Bandaríkjamarkað til
manneldis fyrir 60 milljarða króna á
síðasta ári og búist er við að mark-
aðurinn fyrir efnið muni stækka um
6–8% á ári næstu ár.
Davíð og Ragnheiður segja smá-
þörungaverksmiðju bjóða upp á
ýmsa möguleika aðra en framleiðslu
á astaxanthini. Ýmsar tegundir
smáþörunga er hægt að framleiða í
verksmiðjunni en alls finnast um
30.000 tegundir smáþörunga í heim-
inum. Smáþörungar eyða cadmium
og öðrum þungmálmum úr um-
hverfinu og líkamanum, og þeir
mynda Omega-3 fitusýrur og lutein,
sem er efni, með ýmsa jákvæða eig-
inleika líkt og astaxanthin.
Það er ekki síst athyglivert að til
þörungaræktunarinnar þarfnast
verksmiðjan koltvísýrlings, sem til
að mynda gæti verið úrgangur frá
annarri stóriðju og gæti því verk-
smiðja sem þessi orðið til þess að
minnka mengun.
Tilraunaverksmiðja BioProcess Ísland ehf. í Höfnum verður formlega gangsett í dag
Grænþörungar í glösum. Í glösunum sem eru næst ljósinu sést að þörungarnir eru komnir á gróstig og búnir að mynda astaxanthin, sem gerir þá rauða.
Framleiða verðmætt
efni úr blóðþörungi
Morgunblaðið/RAX
Ragnheiður Á. Magnúsdóttir, rannsóknarstofustjóri tilraunaverksmiðju BioProcess, og Davíð Guðmundsson
framkvæmdastjóri við 200 l tank til að rækta grænþörunga í. Stærsti ræktunartankurinn er 10.000 lítra.
Í verksmiðju í Höfnun
eru ræktaðir smáþör-
ungar og tilraunir gerð-
ar til að fá þá til að
framleiða astaxanthin
sem er verðmætt efni og
eftirsótt, meðal annars
sem fæðubótarefni í
fiskifóður og lyf. Jón Ás-
geir Sigurvinsson
kynnti sér starfsemina
með samtölum við fram-
kvæmdastjóra og rann-
sóknarstjóra.
Hafnir
jonsigur@mbl.is