Morgunblaðið - 04.09.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 04.09.2001, Síða 19
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 19 Ný önn er að hefjast - leiti ð upplýsinga MJÓDD Álfabakka 14a Sími: 587 9030. Netfang: gudbjorg@ballet.is Veffang: ballet.is KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN LÍTIL auglýsing frá R.B. íbúðagist- ingu í Vestmannaeyjum birtist í dagblaði síðsumars og hófst á þess- um orðum: Láttu drauminn rætast, komið til Eyja og bjargið lunda- pysjunum. Varð til þess að mikill fjöldi fólks hafði samband og pant- aði gistingu fyrir sig og börnin til að koma til Eyja og bjarga nokkr- um lundapysjum þegar þær hleyptu heimdraganum og flugu á ljósin í bænum í byrjun ágúst. Lundapysjutíminn fór rólega af stað og telja helstu lundapysju- sérfræðingar í Eyjum að pysjurnar muni láta sjá sig í bænum fram undir miðjan september svo nægur tími er eftir. Það hefur færst í vöxt á um- liðnum árum að fólk af fastaland- inu kemur til Eyja með börnin sín til að bjarga lundapysjum og sleppa þeim í sjóinn eins og gert hefur verið í Eyjum svo lengi sem elstu menn muna. Sérstaklega hefur ver- ið til þess tekið hvað margir her- menn af Keflavíkurflugvelli koma til Eyja með fjölskyldur sínar til að taka þátt í lundapysjuævintýrinu. R.B. íbúðagisting hefur sér- útbúið aðstöðu hjá sér til þess að taka á móti fólki á lundapysjuveið- um. Sérstakir kassar fylgja íbúðum hjá þeim sem börnin safna pysj- unum í, og eins er stór hólfuð tunna til að geyma pysjurnar í ef veiðin verður mikil . Þá fylgir hverjum kassa eyðublað þar sem börnin færa inn hvað margar pysjur þau fanga og hvað mörgum er sleppt og hvar. Að sögn Braga Ingibergs Ólafssonar er hugmyndin á næsta ári að verðlauna það barn sem best- um árangri hefur náð. Bragi Ingi- berg sagði að pysjuveiðarnar í haust hefðu gengið ágætlega og gerir hann ráð fyrir því að pysjur sjáist á stjái fram í september. Þá hafi börnin einnig í ríkara mæli bjargað rituungum, einstaka skrofu og þeir alhörðustu taka fýls- unga þó svo þeir lykti illa. Morgunblaðið/Sigurgeir Lundapysjudraumur margra rætist Vestmannaeyjar GÖMLUM landbúnaðartækjum, sem hætt er að nota við bústörfin, er flestum ekið burt úr sveitunum sem brotajárni eða þau grotna nið- ur þar sem þeim var lagt. Forartunnan í Reykjahverfi fór ekki sömu leið og önnur tæki held- ur fékk hún uppreisn æru þegar Esther Tryggvadóttir á Litlu- Reykjum tók hana að sér þar sem hún var að fúna niður og ryðga. Færði hún tunnuna heim að húsi þar sem hún var öll lagfærð og skreytt með blómum. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Blómum prýdd forartunna Laxamýri MIKIÐ fjölmenni var við messu í Hlíðarendakirkju í Fljótshlíð sl. sunnudag. Voru þar samankomnir margir af afkomendum hjónanna í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð, auk eldri borgara úr Árbæjarsókn. Séra Halldór Gunnarsson í Holti messaði og séra Gunnar Björnsson á Bergþórshvoli prédikaði en hann hafði fyrr um daginn farið með fólkið úr Árbænum í ferð um Njáluslóðir. Í messunni var vígður fagur hátíð- arhökull sem afkomendur hjónanna í Nikulásarhúsum, þeirra Sæmundar Guðmundssonar og Þórunnar Gunn- laugsdóttur, hafa gefið kirkjunni. Að sögn Ríkeyjar Ríkharðsdóttur, sem ættuð er frá Nikulásarhúsum, vildu afkomendur með gjöfinni færa kirkjunni þakkir fyrir það hversu hún var stór þáttur og mikils virði fyrir hjónin í Nikulásarhúsum. Þau hjónin voru fátæk og áttu 15 börn og var listakonan Nína Sæmundsson yngsta barnið á bænum. Á síðasta sumri var vígður Nínu- lundur til minningar um listakonuna á svipuðum stað og Nikulásarhús stóðu áður. Í minningarlundinum er styttan Ung móðir en sú stytta fékk fyrstu verðlaun í samkeppni sem Nína tók þátt í í Hollywood en þar bjó hún og starfaði í þrjá áratugi. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Séra Halldór Gunnarsson í Holti vígði nýja hökulinn í Hlíðarendakirkju. Nýr hökull vígður í Hlíðarendakirkju Hvolsvöllur SKEMMTIFERÐASKIPIÐ Evrópa kom inn á Skjálfandaflóa fyrir skömmu og létti akkerum skammt fyrir utan höfnina á Húsavík. Skipið sem skráð er í Nassau á Bahamaeyj- um er það stórt að það kemst ekki að bryggju í Húsavíkurhöfn. Skipið var annað tveggja skemmtiferðaskipa sem boðað höfðu komu sína til Húsa- víkur í sumar. Fljótlega hófu léttabátar skipsins að flytja farþegana í land þar sem far- ið var með þá í skoðunarferðir. Um sjötíu manna hópur farþega af skip- inu fór þó ekki í þessar hefðbundnu skoðunarferðir og reyndar ekki strax í land. Þegar að flotbryggjunni kom fór það beint um borð í Náttfara og haldið var til hafs á ný í þeim tilgangi nú að skima eftir hvölum. Það var því töluverð umferð báta um höfnina því auk léttabátanna og hvalaskoðunar- bátanna voru fiskibátar af ýmsum stærðum á ferðinni. Þeir voru margir sem nýttu sér góða veðrið þennan dag og sigldu fram fyrir höfnina á bátum sínum og skoðuðu skemmtiferðaskipið. Í leið- inni reyndu sumir hverjir að ná sér í ýsu í soðið en hún hefur verið að gefa sig á stöngina að undanförnu. Frétta- ritari brá sér út á flóann til mynda- töku, farið var með Sigurgeir Smára Harðarsyni, skipstjóra á Náttfara ÞH 6. Þess ber að geta að Náttfari ÞH 6 er ekki sá Náttfari sem getið var um hér að framan og notaður er til sigl- inga með fólk á hvalaslóðir heldur smábátur sem notaður er lítillega til veiða í tómstundaskyni. Skemmtiferðaskipið Evrópa við Húsavík Morgunblaðið/Hafþór Börkur Kjartansson var að reyna við ýsuna ásamt syni sínum. Evrópa virtist trufla hann minna við veiðarnar en farsíminn. Húsavík LAUGARDAGINN 1. september opnaði Hildur Margrétardóttir myndlistarsýningu í Fjöruhúsinu á Hellnum sem hún kallar Minni Hellna. Myndirnar eru allar frá Hellnum, en Hildur á ættir að rekja þangað. Er hún lauk prófi frá Mynd- lista- og handíðaskólanum skrifaði hún ritgerð um hagleiksmanninn Jó- hannes Helgason, sem m.a. skar út rammann um altaristöfluna í Hellna- kirkju. Auk náms við MHÍ stundaði Hildur nám við Utrecht School of Arts. Hún hefur haldið 7 einkasýn- ingar og tekið þátt í fjölda samsýn- inga. Myndir Hildar verða til sýnis í Fjöruhúsinu næstu vikurnar. Morgunblaðið/Guðrún Bergmann Hildur Margrét við myndir sínar. Minni Hellna Hellnar/Snæfellsbær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.