Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 22

Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 22
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF 22 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ TAP Plastprents hf. á fyrstu sex mánuðum ársins 2001 nam 88 millj- ónum króna en 6 milljóna tap var á sama tímabili í fyrra. Rekstrar- tekjur jukust milli ára um 38% og námu 731 milljón króna. Í tilkynn- ingu frá félaginu segir að meg- inskýringin á auknum tekjum sé kaup á meirihluta í Akoplastos hf. í lok síðastliðins árs. Rekstrargjöld hækkuðu um 39% milli ára og námu 704 milljónum í ár. Rekstr- arhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 27 milljónir í ár en 26 milljónir árið áður. Í tilkynningu Plastprents segir að svipaður hagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnsliði, þrátt fyr- ir nærri 40% veltuaukningu, skýr- ist m.a. af verulegri hækkun hráefnis vegna gengisfalls íslensku krónunnar. Samsvarandi hækkun söluverðs komi ekki til fram- kvæmda fyrr en undir lok tímabils- ins. Þá hafi gengisfall íslensku krónunnar valdið því að gengistap erlendra skulda aukist um rúmlega 100 milljónir milli ára. Fjármagnsgjöld Plastprents um- fram fjármunatekjur námu 124 milljónum, sem er nettó aukning um 91 milljón frá fyrra ári. Heildareignir í lok júní 2001 voru 1.289 milljónir og hafa hækk- að um 144 milljónir frá áramótum. Vegur þar þyngst 110 milljóna króna hækkun viðskiptakrafna. Skuldir hækkuðu um 230 milljónir frá áramótum. Eigið fé var 130 milljónir og eiginfjárhlutfall 10% en 19% á áramótum. Samkvæmt tilkynningunni er gert ráð fyrir að afkoman batni á seinni hluta ársins. Tap Plast- prents hf. 88 milljónir TAP af rekstri SR-mjöls nam tæp- um 306 milljónum króna á fyrri árs- hluta en tap af sama tímabili í fyrra nam 186 milljónum króna. Fjár- magnsliðir voru neikvæðir 513 millj- ónir. Hagnaður var því af rekstrin- um fyrir afskriftir og fjármagns- kostnað og nam hann 551 milljón króna en á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 205 milljónum króna. Tekjur félagsins námu 2,3 millj- örðum króna á fyrstu sex mánuðun- um og rekstrargjöld án afskrifta og fjármagnskostnaðar námu 1,8 millj- örðum króna. Gjaldfært gengistap tímabilsins, að frádregnum gengis- hagnaði af verðbréfum, nemur 491 milljón króna. Veltufé frá rekstri var 450 milljónir króna en á sama tíma- bili í fyrra 106 milljónir króna. Eigið fé félagins er nú 2,8 millj- arðar króna og eiginfjárhlutfallið er 39,4%. Í tilkynningu segir að félagið hafi ekki notað lýsi til brennslu í verk- smiðjum félagins að undanförnu vegna hækkandi verðs en hins vegar farið út í innflutning á jurtaolíum í þeim tilgangi. Þá segir að gengi krónunnar og hátt olíuverð hafi haft mikil áhrif á afkomu félagsins. Uppgjör SR-mjöls er í takt við væntingar og kemur ekki á óvart í ljósi gengisþróunar, að því er segir í Morgunpunkum Kaupþings. Jafn- framt segir að þróun framlegðar félagsins og veltufjár frá rekstri sé mjög jákvæð. Afkoma félagsins á síðari hluta árs gæti því orðið vel við- unandi að því tilskildu að veiðar og vinnsla gangi vel á haustmánuðum og afurðaverð verði áfram hagstætt. Tap SR-mjöls nam 306 milljónum fyrstu sex mánuði ársins Hagnaður fyrir af- skriftir jókst verulega ÞRÓUNARFÉLAG Íslands hf. skil- aði 1.409 milljóna króna tapi á fyrri helmingi ársins 2001, samkvæmt upp- gjöri félagsins. Þá hefur verið tekið tillit til tekjufærslu tekjuskatts að fjárhæð 588 milljónir króna vegna lækkunar á tekjuskattsskuldbindingu félagsins sem myndaðist af miklum hagnaði síðustu ára. Verðlækkun hlutabréfa í eigu félagsins var 30% á tímabilinu. Verðlækkun hlutabréfa Þróunarfélagsins sem skráð eru á Að- allista Verðbréfaþingsins var 39,5% á tímabilinu. Að því er fram kemur í tillkynningu til Verðbréfaþings nam gengistap hlutabréfa alls 1.610 milljónum króna, þar af er innleystur hagnaður vegna sölu hlutabréfa 59 milljónir króna og óinnleyst gengistap 1.669 milljónir króna. Þar veldur mestu að markaðs- virði hlutabréfaeignar félagsins í Opnum kerfum hf. lækkaði um 62%, eða um 1.437 milljónir króna. Á tíma- bilinu voru keypt hlutabréf fyrir 230 milljónir króna og seld fyrir 283 millj- ónir. Gengistap félagsins vegna er- lendra lána nam 253 milljónum króna. Eign félagsins í óskráðum erlend- um hlutabréfum og hlutdeildarskír- teinum er skráð á meðalkaupverði í íslenskum krónum og kemur því gengishækkun þessara eigna vegna lækkunar krónunnar ekki fram í reikningnum. Bókfært virði eigna Þróunarfélagsins í erlendum gjald- eyri er 212 millj. kr. lægra en skuldir félagsins í erlendum gjaldeyri og varð félagið því í reynd fyrir óverulegu tjóni af völdum lækkunar krónunnar. Í lok tímabilsins nema eignir Þró- unarfélagsins 5.012 milljónum króna. Þar af er hlutabréfaeign 3.726 millj- ónir króna og skuldabréfaeign 1.161 milljónir króna. Eigið fé félagsins nemur 1.827 milljónum króna, eða um 36,4% af heildareignum. Langtíma- skuldir félagsins nema 2.205 milljón- um króna. Hlutafé félagsins er 1.100 milljónir króna og eru hluthafar í félaginu 462. Þróunarfélagið skilaði 1,4 milljarða króna tapi GRIPIÐ hefur verið til harðra að- haldsaðgerða hjá fyrirtækinu Strax á undanförnum mánuðum, að sögn Ingva Tómassonar, forstjóra, stofn- anda og stjórnarmanns félagsins. Hann sagði á kynningarfundi sem haldinn var fyrir hluthafa í félaginu á fimmtudag, að reynst hafi nauðsyn- legt að taka til í rekstrinum, meðal annars með fækkun starfsfólks. Strax framleiðir og dreifir farsím- um og fylgihlutum í þá og er með skrifstofur á Miami, í Hong Kong og Lundúnum og er fjöldi starfsmanna um 45. Skrifstofa fyrirtækisins í Sao Polo hefur verið lögð niður. Fram kom í máli Hakan Wretsell, framkvæmdastjóra Strax, að ekkert hefði orðið úr sameiningu Strax og fyrirtækisins Mobilestop, en greint var frá því í byrjun þessa árs að Strax, stærsti hluthafinn í Mobile- stop, hefði boðist til að kaupa öll hlutabréf þess félags. Hakan sagði að í ljós hefði komið að samlegðar- áhrif sameiningar fyrirtækjanna tveggja hefðu ekki verið eins mikil og búist hafði verið við. Gert ráð fyrir að sala tvöfaldist milli ára Hakon Wretsell, sem tók við starfi framkvæmdastjóra Strax fyrir sex mánuðum, gerði á fundinum grein fyrir helstu markmiðum Strax og af- komu fyrirtækisins. Hann sagði að áætlað væri að sala fyrirtækisins myndi verða tvöfalt meiri á þessu ári en á því síðasta, um 40 milljónir Bandaríkjadala í ár, um 4 milljarðar íslenskra króna, samanborið við um 20 milljónir dala í fyrra. Þá væri gert ráð fyrir að salan myndi verða tvö- falt meiri á næsta ári en á þessu og að fyrirtækið færi þá að skila hagn- aði. Markmiðið væri að Strax yrði leiðandi á sviði fylgihluta fyrir far- síma í heiminum. Morgunblaðið/Þorkell Hakan Wretsell, framkvæmdastjóri Strax, var framkvæmdastjóri Ericsson Mobile Phones í Ameríku áður en hann réðst til starfa hjá fyrirtækinu. Aðhaldsaðgerð- ir hjá Strax ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.