Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 28
LISTIR
28 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipholti 35 sími 588 1955
King
Koil
Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Tilboð!
Verðdæmi:
King áður kr. 184.350 nú kr. 136.420
Queen áður kr. 134.900 nú kr. 99.840
STARFSMENN Þjóðleikhússins
komu saman í gær við hefðbundna
setningu leikársins er Stefán Bald-
ursson kynnti væntanlega verkefna-
skrá og bauð nýja starfsmenn vel-
komna til starfa í húsið.
Þrjár konur bætast í leikstjórahóp
hússins í vetur, þær María Reyndal
og Vigdís Jakobsdóttir auk þýska
leikstjórans Saskia Kuhlmann.
„Þetta er kannski til marks um
áherslurnar í verkefnum vetrarins
þar sem sterkar kvenpersónur setja
svip sinn á mörg af leikritunum,“
segir Stefán Baldursson.
Fimm íslensk verk og meist-
araverk um ástir og hetjudáðir
Meðal þess sem verður á dag-
skránni í vetur eru fimm íslensk
verk, þar af þrjú ný, Vatn lífsins eftir
Benóní Ægisson í leikstjórn Þórhalls
Sigurðssonar, Victoria og George
eftir Ólaf Hauk Símonarson í leik-
stjórn Hlínar Agnarsdóttur og
Rakstur eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í
leikstjórn Viðars Eggertssonar. Þá
verður frumsýnd ný leikgerð eftir
sögum Guðrúnar Helgadóttur um
tvíburana Jón Odd og Jón Bjarna og
Strompleikur Halldórs Laxness
verður frumsýndur á aldarafmæli
skáldsins 23. apríl 2002. Að sögn
Stefáns Baldurssonar er það í fyrsta
sinn sem leikhús í Reykjavík sýnir
Strompleikinn frá því hann var
frumsýndur í Þjóðleikhúsinu 1963.
Jólaverkefnið verður Cyrano (de
Bergerac) – skoplegur hetjuleikur
eftir Edmond Rostand. Þetta þekkta
franska leikrit um ástir og hetjudáð-
ir skáldsins og skylmingakappans
nefstóra er í leikstjórn Hilmars
Jónssonar sem leikstýrir nú í fyrsta
sinn í Þjóðleikhúsinu. Stefán Karl
Stefánsson, Rúnar Freyr Gíslason
og Nanna Kristín Magnúsdóttir
verða í aðalhlutverkum.
Annað meistaraverk heimsbók-
menntanna, Anna Karenina, í leik-
gerð Helen Edmundsson í leikstjórn
Kjartans Ragnarssonar verður
frumsýnt í lok janúar. Í helstu hlut-
verkum verða Margrét Vilhjálms-
dóttir, Stefán Jónsson og Jóhann
Sigurðarson. Kjartan leikstýrir
einnig einu þekktasta leikriti tuttug-
ustu aldarinnar, Hver er hræddur
við Virginíu Woolf? sem frumsýnt
verður 20. september. Leikarar eru
Pálmi Gestsson, Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason
og Inga María Valdimarsdóttir.
Veislan, nýtt leikrit sem byggt er á
dönsku kvikmyndinni Festen, verð-
ur frumsýnt í mars í leikstjórn Stef-
áns Baldurssonar.
Á Smíðaverkstæðinu er boðið upp
á margverðlaunað verk sem notið
hefur mikilla vinsælda beggja vegna
Atlantshafsins, Vilja Emmu eftir
David Hare, eitt virtasta samtíma-
leikskáld Breta. Leikstjóri er Vigdís
Jakobsdóttir, en þetta er fyrsta leik-
stjórnarverkefni hennar hjá Þjóð-
leikhúsinu. Frumsýning verður 15.
september.
Hollendingurinn
fljúgandi í vor
„Fjórar sýningar verða teknar
upp frá fyrra leikári, Syngjandi í
rigningunni, Laufin í Toscana, Með
fulla vasa af grjóti og Blái hnöttur-
inn, en öll þessi verk hættu fyrir
fullu húsi áhorfenda sl. vor,“ segir
Stefán.
„Þá er ótalinn Hollendingurinn
fljúgandi, eitt af stórvirkjum Wagn-
ers, en þessi fræga ópera verður
flutt á Listahátíð í samstarfi við Sin-
fóníuhljómsveit Íslands, Íslensku
óperuna og Listahátíð í Reykjavík,“
segir Stefán. Listrænir stjórnendur
koma frá Þýskalandi, leikstjórinn
Saskia Kuhlmann, hljómsveitar-
stjórinn Gregor Bühl og leikmynda-
hönnuðurinn Heinz Hauser. Að sögn
Stefáns standa nú yfir samningavið-
ræður við þekktan erlendan söngv-
ara um titilhlutverkið en aðrir
söngvarar verða íslenskir. „Ef tími
vinnst til þá verður frumsýnt nýtt
verk í vor eftir Yasmina Reza, Lífið
þrisvar sinnum, en líklegra er þó að
það bíði frumsýningar til næsta
hausts,“ segir Stefán.
Karíus og Baktus, leiksmiðja
og verðlaunadansverk
Auk leiksýninganna verður ýmis-
legt annað um að vera í Þjóðleikhús-
inu í vetur. Má þar nefna danssýn-
ingu með dansverkum eftir Láru
Stefánsdóttur þar sem frumsýnt
verður verðlaunaverkið Elsa ásamt
2–3 öðrum dansverkum við tónlist
Guðna Franssonar. María Reyndal
leikstýrir farandsýningu á barna-
leikriti Thorbjörns Egners, Karíusi
og Baktusi, en sýningar verða á
Leikhúsloftinu auk þess sem leik-
skólum og grunnskólum verður boð-
in sýningin til heimsóknar. Loks
nefnir Stefán nýjung í starfi leik-
hússins sem er leiksmiðja, „...sem
verður tilraunavettvangur og suðu-
pottur fyrir leikhúsfólk og höfunda.
Hlín Agnarsdóttir stýrir leik-
smiðjunni og starfið verður haft eins
opið og mögulegt er til að gefa öllum
hugmyndum svigrúm til að fæðast
og þróast. Þetta er fyrst og fremst
hugsað sem innanhússvettvangur
fyrir listamennina en þó gerum við
ráð fyrir að eitthvað af starfi leik-
smiðjunnar verði opið almenningi.“
Að sögn Stefáns eru tveir höfund-
ar nú á starfslaunum við leikhúsið,
þeir Birgir Sigurðsson og Bjarni
Jónsson, en Þjóðleikhúsið hefur
skuldbundið sig með samningi við
Leikskáldafélag Íslands til að ávallt
sé að minnsta kosti einn höfundur á
starfslaunum á hverjum tíma. „Þetta
er okkur ljúf skylda enda nauðsyn-
legt að stuðla að endurnýjun höf-
unda og veita eldri höfundum tæki-
færi til að sinna skriftum sínum,“
segir Stefán Baldursson þjóðleik-
hússtjóri.
Fjölbreytni
einkennir
leikárið
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Listamenn Þjóðleikhússins starfsárið 2001–2002 samankomnir á tröppum leikhússins.
Þjóðleikhúsið hefur nýtt leikár með
frumsýningu á Hver er hræddur við
Virginiu Woolf? hinn 15. september.
Áætlaðar eru 12 frumsýningar en fjögur
verk verða tekin upp frá fyrra leikári.
Stefán Baldursson kynnir verk-
efnaskrá vetrarins.
VERKIÐ 10–11 fyrir píanó og
strengjasveit eftir Stefán Arason
hreppir Evrópsku tónskáldaverð-
launin í ár en þau eru veitt í
tengslum við alþjóðlega hátíð æsku-
hljómsveita í Berlín. Stefán tekur við
verðlaununum, 10.000 mörkum, úr
hendi borgarstjórans í Berlín seinna
í mánuðinum.
Strengjasveit Tónlistarskólans í
Reykjavík tók þátt í alþjóðlegri hátíð
æskuhljómsveita, young.euro.clas-
sic, í Berlín ágústmánuði og flutti
þar verkið. Hátíðin fór fram í tón-
leikasal Konzerthaus am Gendar-
menmarkt og voru tónleikar
Strengjasveitar Tónlistarskólans 17.
ágúst vel sóttir. Hátíðin er jafnframt
tónsmíðakeppni, því Berlínarborg
veitir um 460 þúsund króna verðlaun
fyrir besta tónverk núlifandi tón-
skálds sem flutt er á hátíðinni, og
hafa verðlaunin verið nefnd Evr-
ópsku tónskáldaverðlaunin.
Stefán Arason lauk prófi úr tón-
fræðideild Tónlistarskólans í
Reykjavík í vor. Hann sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að það hefði
komið honum mjög á óvart að vinna
til þessara verðlauna. „Ég vissi ekki
einu sinni að tónleikarnir væru jafn-
framt tónsmíðakeppni fyrr en ég las
um það í viðtali við hljómsveitarfólk-
ið í Morgunblaðinu í sumar. En þetta
var mjög gaman. Verkinu var vel
tekið; mér var þakkað fyrir og það
var jafnvel ókunnugt
fólk að senda mér
tölvupóst og þakka fyr-
ir.“
Stefán segir verkið
ekki endilega sniðið að
þörfum nútímamanns-
ins, en þó sé það hnit-
miðað, lítið og stutt.
„Það er kannski það
sem virkar. Löngu sin-
fóníurnar og stóru
verkin eru að minnsta
kosti ekki alveg „inn“
núna.“
Félagar Stefáns
hrifnir af verkinu
Stefán segist ekki
vita hvað verðlaunin gætu þýtt fyrir
hann, það eigi eftir að koma í ljós.
Þetta sé þó góð hvatning til að halda
áfram. Verðlaunin verða afhent með
viðhöfn af borgarstjóranum í Berlín,
að viðstöddum gestum úr þýska
menningarheiminum og tónlistar-
fólki.
Í viðtalinu við Morgunblaðið 24.
júlí sögðu þrír nemendur í hljóm-
sveitinni og skólafélagar Stefáns í
Tónlistarskólanum; þau Ari Þór Vil-
hjálmsson, Ólöf Kristjánsdóttir og
Stefanía Ólafsdóttir, frá verki Stef-
áns. „Þetta er rosalega flott verk,“
sagði Ólöf, og Ari bætti við: „Hann
leikur sér mjög mikið með effekta og
áhrif; ekki mikið um
laglínur – kannski þó
ein, sem gengur í gegn-
um verkið;“ og Stef-
anía sagði: „Kaflarnir
eru stuttir og mjög
grípandi og ég get
ímyndað mér að áheyr-
endur hlusti vel allan
tímann.“ Það var sam-
dóma álit þeirra
þriggja, að mikið væri
spunnið í verk Stefáns.
Ólöf sagði það minna
hana svolítið á verk
Hafliða Hallgrímsson-
ar, Poemi, sem einnig
var flutt á tónleikunum
og Stefanía bætti við að
hún heyrði þar líka áhrif frá Arvo
Pärt. Ari Þór átti síðustu athuga-
semdina um verkið: „Mér finnst
þetta bara eitt af flottari verkum
sem hafa komið úr tónfræðideildinni
á síðustu árum.“
Tryggvi M. Baldvinsson og Hilm-
ar Þórðarson voru tónsmíðakennar-
ar Stefáns í Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Hann stundar nú fram-
haldsnám í tónsmíðum í Árósum í
Danmörku. Verðlaunaverk hans
heitir 10–11 en nafnið hefur ekkert
með verslanir með sama nafni að
gera heldur helgast nafngiftin af
lengd verksins – það tekur um 10 til
11 mínútur í flutningi.
Stefán Arason hreppir Evrópsku tónskáldaverðlaunin
„Óvænt hvatning“
Stefán Arason
tónskáld.