Morgunblaðið - 04.09.2001, Síða 28

Morgunblaðið - 04.09.2001, Síða 28
LISTIR 28 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipholti 35  sími 588 1955 King Koil Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með King Koil heilsudýnunum. Amerískar lúxus heilsudýnur Tilboð! Verðdæmi: King áður kr. 184.350 nú kr. 136.420 Queen áður kr. 134.900 nú kr. 99.840 STARFSMENN Þjóðleikhússins komu saman í gær við hefðbundna setningu leikársins er Stefán Bald- ursson kynnti væntanlega verkefna- skrá og bauð nýja starfsmenn vel- komna til starfa í húsið. Þrjár konur bætast í leikstjórahóp hússins í vetur, þær María Reyndal og Vigdís Jakobsdóttir auk þýska leikstjórans Saskia Kuhlmann. „Þetta er kannski til marks um áherslurnar í verkefnum vetrarins þar sem sterkar kvenpersónur setja svip sinn á mörg af leikritunum,“ segir Stefán Baldursson. Fimm íslensk verk og meist- araverk um ástir og hetjudáðir Meðal þess sem verður á dag- skránni í vetur eru fimm íslensk verk, þar af þrjú ný, Vatn lífsins eftir Benóní Ægisson í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar, Victoria og George eftir Ólaf Hauk Símonarson í leik- stjórn Hlínar Agnarsdóttur og Rakstur eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í leikstjórn Viðars Eggertssonar. Þá verður frumsýnd ný leikgerð eftir sögum Guðrúnar Helgadóttur um tvíburana Jón Odd og Jón Bjarna og Strompleikur Halldórs Laxness verður frumsýndur á aldarafmæli skáldsins 23. apríl 2002. Að sögn Stefáns Baldurssonar er það í fyrsta sinn sem leikhús í Reykjavík sýnir Strompleikinn frá því hann var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu 1963. Jólaverkefnið verður Cyrano (de Bergerac) – skoplegur hetjuleikur eftir Edmond Rostand. Þetta þekkta franska leikrit um ástir og hetjudáð- ir skáldsins og skylmingakappans nefstóra er í leikstjórn Hilmars Jónssonar sem leikstýrir nú í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu. Stefán Karl Stefánsson, Rúnar Freyr Gíslason og Nanna Kristín Magnúsdóttir verða í aðalhlutverkum. Annað meistaraverk heimsbók- menntanna, Anna Karenina, í leik- gerð Helen Edmundsson í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar verður frumsýnt í lok janúar. Í helstu hlut- verkum verða Margrét Vilhjálms- dóttir, Stefán Jónsson og Jóhann Sigurðarson. Kjartan leikstýrir einnig einu þekktasta leikriti tuttug- ustu aldarinnar, Hver er hræddur við Virginíu Woolf? sem frumsýnt verður 20. september. Leikarar eru Pálmi Gestsson, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason og Inga María Valdimarsdóttir. Veislan, nýtt leikrit sem byggt er á dönsku kvikmyndinni Festen, verð- ur frumsýnt í mars í leikstjórn Stef- áns Baldurssonar. Á Smíðaverkstæðinu er boðið upp á margverðlaunað verk sem notið hefur mikilla vinsælda beggja vegna Atlantshafsins, Vilja Emmu eftir David Hare, eitt virtasta samtíma- leikskáld Breta. Leikstjóri er Vigdís Jakobsdóttir, en þetta er fyrsta leik- stjórnarverkefni hennar hjá Þjóð- leikhúsinu. Frumsýning verður 15. september. Hollendingurinn fljúgandi í vor „Fjórar sýningar verða teknar upp frá fyrra leikári, Syngjandi í rigningunni, Laufin í Toscana, Með fulla vasa af grjóti og Blái hnöttur- inn, en öll þessi verk hættu fyrir fullu húsi áhorfenda sl. vor,“ segir Stefán. „Þá er ótalinn Hollendingurinn fljúgandi, eitt af stórvirkjum Wagn- ers, en þessi fræga ópera verður flutt á Listahátíð í samstarfi við Sin- fóníuhljómsveit Íslands, Íslensku óperuna og Listahátíð í Reykjavík,“ segir Stefán. Listrænir stjórnendur koma frá Þýskalandi, leikstjórinn Saskia Kuhlmann, hljómsveitar- stjórinn Gregor Bühl og leikmynda- hönnuðurinn Heinz Hauser. Að sögn Stefáns standa nú yfir samningavið- ræður við þekktan erlendan söngv- ara um titilhlutverkið en aðrir söngvarar verða íslenskir. „Ef tími vinnst til þá verður frumsýnt nýtt verk í vor eftir Yasmina Reza, Lífið þrisvar sinnum, en líklegra er þó að það bíði frumsýningar til næsta hausts,“ segir Stefán. Karíus og Baktus, leiksmiðja og verðlaunadansverk Auk leiksýninganna verður ýmis- legt annað um að vera í Þjóðleikhús- inu í vetur. Má þar nefna danssýn- ingu með dansverkum eftir Láru Stefánsdóttur þar sem frumsýnt verður verðlaunaverkið Elsa ásamt 2–3 öðrum dansverkum við tónlist Guðna Franssonar. María Reyndal leikstýrir farandsýningu á barna- leikriti Thorbjörns Egners, Karíusi og Baktusi, en sýningar verða á Leikhúsloftinu auk þess sem leik- skólum og grunnskólum verður boð- in sýningin til heimsóknar. Loks nefnir Stefán nýjung í starfi leik- hússins sem er leiksmiðja, „...sem verður tilraunavettvangur og suðu- pottur fyrir leikhúsfólk og höfunda. Hlín Agnarsdóttir stýrir leik- smiðjunni og starfið verður haft eins opið og mögulegt er til að gefa öllum hugmyndum svigrúm til að fæðast og þróast. Þetta er fyrst og fremst hugsað sem innanhússvettvangur fyrir listamennina en þó gerum við ráð fyrir að eitthvað af starfi leik- smiðjunnar verði opið almenningi.“ Að sögn Stefáns eru tveir höfund- ar nú á starfslaunum við leikhúsið, þeir Birgir Sigurðsson og Bjarni Jónsson, en Þjóðleikhúsið hefur skuldbundið sig með samningi við Leikskáldafélag Íslands til að ávallt sé að minnsta kosti einn höfundur á starfslaunum á hverjum tíma. „Þetta er okkur ljúf skylda enda nauðsyn- legt að stuðla að endurnýjun höf- unda og veita eldri höfundum tæki- færi til að sinna skriftum sínum,“ segir Stefán Baldursson þjóðleik- hússtjóri. Fjölbreytni einkennir leikárið Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Listamenn Þjóðleikhússins starfsárið 2001–2002 samankomnir á tröppum leikhússins. Þjóðleikhúsið hefur nýtt leikár með frumsýningu á Hver er hræddur við Virginiu Woolf? hinn 15. september. Áætlaðar eru 12 frumsýningar en fjögur verk verða tekin upp frá fyrra leikári. Stefán Baldursson kynnir verk- efnaskrá vetrarins. VERKIÐ 10–11 fyrir píanó og strengjasveit eftir Stefán Arason hreppir Evrópsku tónskáldaverð- launin í ár en þau eru veitt í tengslum við alþjóðlega hátíð æsku- hljómsveita í Berlín. Stefán tekur við verðlaununum, 10.000 mörkum, úr hendi borgarstjórans í Berlín seinna í mánuðinum. Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík tók þátt í alþjóðlegri hátíð æskuhljómsveita, young.euro.clas- sic, í Berlín ágústmánuði og flutti þar verkið. Hátíðin fór fram í tón- leikasal Konzerthaus am Gendar- menmarkt og voru tónleikar Strengjasveitar Tónlistarskólans 17. ágúst vel sóttir. Hátíðin er jafnframt tónsmíðakeppni, því Berlínarborg veitir um 460 þúsund króna verðlaun fyrir besta tónverk núlifandi tón- skálds sem flutt er á hátíðinni, og hafa verðlaunin verið nefnd Evr- ópsku tónskáldaverðlaunin. Stefán Arason lauk prófi úr tón- fræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík í vor. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að það hefði komið honum mjög á óvart að vinna til þessara verðlauna. „Ég vissi ekki einu sinni að tónleikarnir væru jafn- framt tónsmíðakeppni fyrr en ég las um það í viðtali við hljómsveitarfólk- ið í Morgunblaðinu í sumar. En þetta var mjög gaman. Verkinu var vel tekið; mér var þakkað fyrir og það var jafnvel ókunnugt fólk að senda mér tölvupóst og þakka fyr- ir.“ Stefán segir verkið ekki endilega sniðið að þörfum nútímamanns- ins, en þó sé það hnit- miðað, lítið og stutt. „Það er kannski það sem virkar. Löngu sin- fóníurnar og stóru verkin eru að minnsta kosti ekki alveg „inn“ núna.“ Félagar Stefáns hrifnir af verkinu Stefán segist ekki vita hvað verðlaunin gætu þýtt fyrir hann, það eigi eftir að koma í ljós. Þetta sé þó góð hvatning til að halda áfram. Verðlaunin verða afhent með viðhöfn af borgarstjóranum í Berlín, að viðstöddum gestum úr þýska menningarheiminum og tónlistar- fólki. Í viðtalinu við Morgunblaðið 24. júlí sögðu þrír nemendur í hljóm- sveitinni og skólafélagar Stefáns í Tónlistarskólanum; þau Ari Þór Vil- hjálmsson, Ólöf Kristjánsdóttir og Stefanía Ólafsdóttir, frá verki Stef- áns. „Þetta er rosalega flott verk,“ sagði Ólöf, og Ari bætti við: „Hann leikur sér mjög mikið með effekta og áhrif; ekki mikið um laglínur – kannski þó ein, sem gengur í gegn- um verkið;“ og Stef- anía sagði: „Kaflarnir eru stuttir og mjög grípandi og ég get ímyndað mér að áheyr- endur hlusti vel allan tímann.“ Það var sam- dóma álit þeirra þriggja, að mikið væri spunnið í verk Stefáns. Ólöf sagði það minna hana svolítið á verk Hafliða Hallgrímsson- ar, Poemi, sem einnig var flutt á tónleikunum og Stefanía bætti við að hún heyrði þar líka áhrif frá Arvo Pärt. Ari Þór átti síðustu athuga- semdina um verkið: „Mér finnst þetta bara eitt af flottari verkum sem hafa komið úr tónfræðideildinni á síðustu árum.“ Tryggvi M. Baldvinsson og Hilm- ar Þórðarson voru tónsmíðakennar- ar Stefáns í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann stundar nú fram- haldsnám í tónsmíðum í Árósum í Danmörku. Verðlaunaverk hans heitir 10–11 en nafnið hefur ekkert með verslanir með sama nafni að gera heldur helgast nafngiftin af lengd verksins – það tekur um 10 til 11 mínútur í flutningi. Stefán Arason hreppir Evrópsku tónskáldaverðlaunin „Óvænt hvatning“ Stefán Arason tónskáld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.