Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 37
UMRÆÐAN
ÉG HEF eins og
margir sem lásu
Reykjavíkurbréfið í
Morgunblaðinu sl.
sunnudag 19. ágúst
verið að velta fyrir
mér hinni nýju áfeng-
isstefnu sem blaðið
boðar. Í greininni
kemur fram sú skoðun
að núverandi stefna
hafi ekki skilað ár-
angri og því sé þörf á
breytingum. Þær
breytingar sem
Reykjavíkurbréfið
boðar helst eru aukið
aðgengi að áfengi, t.d.
í matvöruverslunum.
Lækka verð á bjór og léttum vín-
um, ríkiseinokun verði afnumin og
síðast en ekki síst stórauka for-
varnastarfið, ekki síst þann þátt
sem hvetur til hófdrykkju og eflir
vínmenningu.
Í greininni er vitnað í fremsta
vínframleiðanda Spánar og hann
spurður hvernig hann teldi best að
koma í vega fyrir að áfengi væri
misnotað. Svaraði hann því að það
væri með því að fyrstu kynni barna
af áfengi væri vínflaska á matar-
borði. Vínframleiðandinn (sölumað-
urinn) segir síðan: „Börnin eiga að
sjá foreldra sína neyta víns undir
eðlilegum kringumstæðum og þeg-
ar þau eru orðin þrettán eða fjórtán
ára má byrja að gefa þeim smám
saman að smakka. Þau eiga að sjá
að þetta er hlutur sem maður á að
meta og njóta.“
Það er við þennan hluta forvarna-
starfsins sem ég staldra við. Ég á
tvær ungar dætur, tólf og níu ára.
Ég hef fylgt þeirri stefnu að hafa
ekki áfengi nálægt þeim. Reynt að
uppfræða þær um skaðsemi áfengis
og reyndar tóbaks líka. Þær hafa
hvorki alist upp við að
hafa vín með mat né
horft á fólk nálægt sér
neyta áfengis.
Samkvæmt áður-
nefndum sölumanni og
blaðamanni er ég að
setja dætur mínar í
mikla hættu. Þær fá
ekki rétt forvarnaupp-
eldi! Ég get ekki
kennt þeim neina vín-
menningu. Ef ég vildi
gefa þeim áfengi lendi
ég strax í vondum
málum. Samkvæmt
lögum er bannað að
neyta áfengis fyrr en
fólk er orðið 20 ára. Á
ég að brjóta lög eða verður rík-
isstjórnin að bregðast við og gefa
allt frjálst í sambandi við áfengi?
Það er í mínum huga nokkuð
ljóst að áfengis- og vímuefnavand-
inn verður ekki leystur með skyndi-
lausnum á borð við það sem kemur
fram í þessu Reykjavíkurbréfi
Morgunblaðsins.
Þjóðfélagið hefur breyst mikið sl.
30 ár. Heimurinn hefur skroppið
saman. Það er til dæmis auðveldara
að fara til útlanda en norður á
Strandir. Fjölgun á vínveitingastöð-
um, fleiri útsölur ÁTVR og lengri
afgreiðslutími. Allt hefur þetta gert
það að verkum að það er auðveld-
ara að nálgast áfengi. Sölutölur
ÁTVR segja að aukning á sölu
áfengis frá 1994 og til ársins 2000
hafi verið um það bil átta milljónir
lítra. Á sex árum hefur áfengis-
neysla Íslendinga aukist um rúm-
lega eina milljón lítra á ári.
Samkvæmt ársskýrslu SÁÁ 2000
hafa komur á sjúkrahúsið Vog hald-
ist í hendur við aukna áfengis-
neyslu. Árið 1994 innrituðust 152
unglingar 15-19 ára. Sex árum síðar
voru þeir orðnir 456. Það er 304
fleiri.
Það ber að taka það alvarlega
þegar stærsta blað landsmanna set-
ur fram skoðanir eins og þær sem
koma fram í Reykjavíkurbréfi 19.
ágúst. Í áðurnefndri grein var ekk-
ert talað um ólögleg vímuefni. Ég
get ekki að því gert að velta því fyr-
ir mér hvaða stefnu blaðið hefur
varðandi frjálsa sölu á t.d. hassi.
Ólöglegu vímuefni sem er mikið í
umræðunni síðustu mánuðina.
Þrátt fyrir boðskap Morgun-
blaðsins hef ég ákveðið að halda
áfram að kenna dætrum mínum
góða siði við matarborðið og í leik
án áfengis. Vona ég að aðrir for-
eldrar taki sömu ákvörðun fyrir sín
börn, þrátt fyrir varúðarorð vín-
framleiðandans.
Morgunblaðið hvetur
til lögbrota
Ólafur
Sveinsson
Áfengi
Komur á sjúkrahúsið
Vog, segir Ólafur
Sveinsson, hafa haldist
í hendur við aukna
áfengisneyslu.
Höfundur er starfsmaður SÁÁ
og rekstrar- og dagskrárstjóri á
Staðarfelli.
Haustveisla
Heimsferða
til Benidorm
frá kr. 29.985
El Faro
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú síðustu
sætin í haust til Benidorm á
hreint ótrúlegum kjörum, en á þessum vinsælasta áfanga-
stað Íslendinga í sólinni nýtur þú 28 stiga hita í september,
frábærra aðstæðna fyrir ferðamanninn og traustrar þjónustu
fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Síðustu 38 sætin
í haust
Verðdæmi
Verð kr 29.985
Hjón með 2 börn, 2 – 11 ára, flug,
gisting, skattar, vikuferð 14. sept.
Verð kr. 39.930
Verð á mann miðað við 2 í íbúð,
vikuferð, El Faro.
Verð kr 49.930
Verð á mann miðað við 2 í íbúð,
2 vikur, 14. sept, El Faro.
B ú s e t i h s f . S k e i f u n n i 1 9 s í m i 5 2 0 - 5 7 8 8
w ww . b u s e t i . i s
Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði!
umsóknarfrestur til 11. september
Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Búseta hsf. Opið virka daga frá
8:30 til 16:00. Með umsóknum um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að
skila: síðustu skattskýrslu og launaseðlum síðustu sex mánaða.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 12. september
kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19.
Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta
úthlutun sína að öðrum kosti geta þeir misst réttindi sín
og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns.
3ja herb.
Nýtt hús - 6 íbúðir - Alm.lán
Kristnibraut 65-67, Reykjavík
84-94m2 íb. 205,206,306,401,402,406
Búseturéttur:
frá 1.654.577 til 1.847.840
Búsetugjald:
frá 68.904 til 76.646
Afhending í maí 2002
2ja herb. 4ra herb.
Berjarimi 3, Reykjavík
66m2 íbúð 101 Leiguíb.lán
Búseturéttur: kr. 1.196.575
Búsetugjald: kr. 42.297
Afhending í janúar 2002
Blikaás 21, Hafnarfirði
110/114m2 íb.101,102 Alm.lán
Búseturéttur:
kr. 1.470.371/1.524.974
Búsetugjald:
kr. 74.201/76.880
Afhending fljótlega
Nýtt hús - 3 íbúðir - Alm.lán
Kristnibraut 65-67, Reykjavík
110-111m2 íbúð 203,303,404
Búseturéttur:
frá 2.173.234 til 2.183.095
Búsetugjald:
frá 89.680 til 90.076
Afhending í maí 2002
Trönuhjalli 15, Kópavogi
95m2 íbúð 102 Leiguíb.lán
Búseturéttur: kr. 1.770.097
Búsetugjald: kr. 49.302
Afhending í nóvember
Athugið
Breytt tekju- og eignamörk
Íbúð með almennum lánum
veitir rétt til vaxtabóta.
Íbúð með leiguíbúðalánum
veitir rétt til húsaleigubóta.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
textil.is
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 37