Morgunblaðið - 04.09.2001, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
DAGANA 16. til 30. júní var haldið
Evrópumót í bridge á eyjunni Ten-
erife. Að venju sendu Íslendingar lið
til keppni í opnum flokki. Liðið sam-
anstóð af 6 spilurum ásamt fyrirliða
og loks framkvæmdastjóra Bridge-
sambands Íslands (BSÍ), sem vænt-
anlega hefur verið fararstjóri. Kom-
ið hefur á daginn að í hópnum voru
einnig eiginkonur fjögurra landsliðs-
manna auk eiginmanns fararstjór-
ans. Ferðakostnaður eiginkvenn-
anna mun hafa verið greiddur af
BSÍ.
Nú er það svo að fundargerðir
stjórnarinnar, sem auglýstar eru á
heimasíðu sambandsins, eru ekki
uppfærðar nema endrum og eins.
Síðasta fundargerð, sem félagsmenn
hafa aðgang að, er frá 26. október
2000. Því liggur ekki fyrir sú um-
ræða sem fram fór um þessi mál inn-
an stjórnarinnar, einungis að
ákvörðun um hvort senda ætti
kvennalið til keppni var samkvæmt
fundargerð 26/10 2000 frestað til
næsta fundar. Þar virðist sú ákvörð-
un hafa verið tekin að senda ekki
kvennalið til keppni, væntanlega
vegna bágs fjárhags sambandsins?
Rekstur Bridgesambandsins er að
mestu leyti fjármagnaður af u.þ.b.
2.000 félagsmönnum annars vegar
og opinberum framlögum hins veg-
ar. Undirritaður fær ekki séð hvern-
ig útgjöld við að bjóða ofangreindum
konum í sólarferð geta heyrt undir
eðlilegan rekstur sambandsins. Ég
veit einnig að ég er ekki einn um það
viðhorf að þykja þessi ráðstöfun ein-
kennileg.
Af þeim sökum vænti ég þess að
stjórn BSÍ geri grein fyrir þessari
ákvörðun, þ.e.a.s. útskýri hvernig
kostnaður við ferðalag eiginkvenn-
anna tengist starfsemi sambandsins.
Hvert þeirra hlutverk var í ferðinni?
Jafnframt hvort það sé stefna stjórn-
arinnar að þessi nýbreytni verði til
frambúðar? Einnig væri æskilegt að
stjórnin legði fram sundurliðað upp-
gjör á kostnaði vegna þátttökunnar í
mótinu annars vegar og hins vegar
sundurliðun á kostnaði vegna boðs-
gestanna. Einnig spyr ég stjórn BSÍ
hvort þeir landsliðsmenn sem ekki
gátu þegið þetta boð vegna hjúskap-
arstöðu sinnar, hafi þegið framlög í
öðru formi frá Bridgesambandinu
vegna þátttöku sinnar í mótinu?
Ég fer fram á það að stjórn BSÍ
svari þessari fyrirspurn hér í
blaðinu. Hinn almenni félagsmaður
getur þá tekið afstöðu til þess hvort
um eðlilega ráðstöfun á fjármunum
hreyfingarinnar sé að ræða.
Virðingarfyllst,
SIGURÐUR VILHJÁLMSSON,
Bridgefélagi Selfoss.
Fyrirspurn til stjórnar
Bridgesambands Íslands
Frá Sigurði Vilhjálmssyni:
ÁFENGISAUGLÝSINGAR hafa
undanfarið verið birtar í sjónvarpi
þrátt fyrir að slíkar auglýsingar séu
bannaðar. Þar hafa hagsmunaaðilar
tekið sér frelsi til að auglýsa vöru sem
bannað er að auglýsa af því að þeim
finnst bannið ekki réttlátt. Það er í
raun ótrúlegt að í fyrsta lagi skuli
auglýsendur ganga á svig við þessar
reglur, í öðru lagi að auglýsingagerð-
arfólk skuli fást til að gera slíkar aug-
lýsingar og í þriðja lagi að fjölmiðl-
arnir skuli birta auglýsingarnar. Og í
fjórða lagi að þetta sé látið nánast
átölulaust af þar til bærum yfirvöld-
um. Reglurnar eru skýrar frá Alþingi,
en böndin berast að þeim sem á
ábyrgan hátt fjalla um þessi mál á op-
inberum vettvangi, t.d. SÍA – sam-
band íslenskra auglýsingastofa – á
heimasíðu sinni. Þar er tengill í áfeng-
islögin og þar blasir við fyrst og
fremst: ,,Hvers konar auglýsingar á
áfengi og einstökum áfengistegund-
um eru bannaðar. Enn fremur er
bannað að sýna neyslu eða hvers kon-
ar aðra meðferð áfengis í auglýsing-
um eða upplýsingum um annars kon-
ar vöru eða þjónustu.“ Og í siða-
reglum SÍA sem finna má á sömu
heimasíðu: ,,Auglýsendur, semjendur
auglýsinga og auglýsingastofur, svo
og útgefendur og eigendur fjölmiðla
skulu gæta þess að farið sé að lögum
er kveða á um auglýsingar á ein-
stökum vörutegundum og þjónustu,
hvort sem um er að ræða sérstakar
reglur um meðferð þeirra eða bann við
auglýsingum.“ Nú getur verið að
framleiðandi auglýsingarinnar sé alls
ekki í SÍA en ábyrgðin er hin sama.
Það má lesa út úr því að tilmæli eru frá
SÍA í þessum texta til auglýsenda, út-
gefenda og eigenda fjölmiðla sem
varla eru innan vébanda sambandsins.
Undirritaður leitast hér við að benda á
þær mótsagnir sem við leyfum okkur
sum hver en náum síðan ekki upp á
nefið á okkur þegar aðrir eiga í hlut
sem ekki geta farið eftir reglum. Það
er grundvallaratriði í samfélagi manna
að allir virði og fari eftir þeim leik-
reglum sem settar hafa verið – jafnvel
þótt ýmsum kunni að virðast þær fá-
ránlegar. Þá verða menn að beita sér
fyrir reglubreytingum með málefna-
legum hætti. Lög um bann við áfeng-
isauglýsingum eru fyrst og fremst
byggð á velferðarsjónarmiðum um
vernd barna og ungmenna. Mörg fyr-
irtæki svífast greinlega einskis í þess-
um efnum og beita sér þar með fyrir
aukinni áfengisneyslu ungmenna með
beinum og óbeinum auglýsingum sem
oftar en ekki er sérstaklega ætlað að
höfða til ungs fólks. Foreldrar og fólk
sem ber velferð ungu kynslóðarinnar
fyrir brjósti ætti að sýna hug sinn í
verki með að sniðganga með öllu við-
skipti við slíka aðila.
ÁRNI GUÐMUNDSSON,
æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðar,
Hjallabraut 84.
Áfengisauglýsingar
í mótsögn við
siðareglur og lög
Frá Árna Guðmundssyni: