Morgunblaðið - 04.09.2001, Page 52
DAGBÓK
52 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÁGRANNI minn og
kunningi er einn af þeim
sem keypt hefur sér lítið
sumarhús á Suður-Spáni.
Á hverju hausti fara þau
hjónin út til Spánar og
eyða íslenska vetrinum í
hlýjunni þarna suður frá.
Nágranninn, sem er iðn-
aðarmaður og kominn á
efri ár, gerir nokkuð
bráðsnjallt áður en hann
fer utan.
Það eru tvær bifreiðar
á heimilinu. Þegar þau
hjónin yfirgefa landið í
nóvember þá leggur hann
númeraplötur bílanna til
geymslu inní næstu skoð-
unarstöð og tekur þær
svo út þegar þau koma
aftur, sem er að öllu jöfnu
í byrjun apríl. Þau eru er-
lendis að jafnaði fimm
mánuði á ári. Með þessari
fyrirhyggju spara þau sér
á annað hundrað þúsund
krónur á ári.
Eftir að hafa skoðað
þetta mál nánar þá er
mjög einfalt að gera þetta
fyrir þann sem ekki
hyggst nota bílinn sinn í
mánuð eða lengur. Bif-
reiðinni er komið fyrir í
bílskúrnum eða á planinu,
númerin skrúfuð af og
farið með þau til næstu
skoðunarstöðvar. Skoð-
unarstöðin gefur kvittun
og er geymslugjald á
númerum aðeins 600 kr.
Skoðunarstöðin tilkynnir
bæði skattinum og trygg-
ingafélaginu. Falla þá
niður allar bifreiðatrygg-
ingar, svo og bifreiða-
gjöld þann tíma sem núm-
erin liggja inni.
Algengt er að á heimili
séu tveir bílar, sumarbíll
og jeppi. Mætti hugsa sér
að sumarbílnum sé lagt
þá mánuði meðan göturn-
ar eru vaðandi í tjöru og
slabbi og jeppinn þá not-
aður. Þetta er ekki bara
sparnaður í beinhörðum
peningum, það eru líka
helmingi minni þrif og
umstang við bílana.
Hvað þá með alla
gömlu bílana sem liggja
ónotaðir á bílasölunum
svo mánuðum skiptir?
Garðbæingur.
Góð þjónusta
ÉG varð fyrir því óhappi
að brjóta gleraugun mín
og rétt á eftir átti ég mið-
næturflug til Kaup-
mannahafnar. Mér hafði
verið tjáð að unnt væri að
velja sér gleraugu í gler-
augnaversluninni í Mjódd
og sækja þau í verslun
þeirra í fríhöfninni. Fyrr
um daginn valdi ég mér
gleraugu og eftir sím-
hringingar suður á völl
var ég fullvissuð um að
gleraugun yrðu tilbúin
þegar ég sækti þau um
miðnættið sama dag. Ég
var hæstánægð með þetta
enda bagalegt að vera
gleraugnalaus. Þegar
komið var upp á völl kom
hins vegar í ljós að pönt-
un mín hafði farist fyrir
og engin gleraugu til. Ég
var ansi svekkt enda gert
mér vonir að geta lesið í
vélinni. Afgreiðslustúlk-
unni þótti þetta mjög
miður og lofaði að senda
gleraugun út. Ég var síð-
an aðeins búin að vera
rétt rúman sólarhring í
veldi Þórhildar Dana-
drottningar þegar kom
hraðsending með gler-
augun, afsökunarbeiðni,
auk nokkurra fallegra
smágjafa. Þetta kalla ég
góða og snögga þjónustu
enda geta mannleg mis-
tök alltaf átt sér stað.
Takk fyrir góða þjónustu.
Guðrún Gyða
Árnadóttir.
Tapað/fundið
Kvenúr í óskilum
KVENARMBANDSÚR
fannst í Mjóddinni í byrj-
un ágúst. Eigandi getur
vitjað þess í afgreiðslu
Heilsugæslustöðvarinnar
í Mjódd. Síminn þar er
567-0440.
Lesgleraugu í óskilum
LESGLERAUGU í
gylltri umgjörð eru í
óskilum í Rauða kross
búðinni Hverfisgötu 39.
Upplýsingar í búðinni, en
þar er opið þri.-fös. frá kl.
13:30-17:30. eða í síma
551-1414.
Nike-úlpa týndist
HVÍT, þunn Nike-úlpa
með hettu tapaðist á leið-
inni frá Melaskóla að
Tómasarhaga. Úlpan er
merkt H.F. að innan-
verðu. Í erminni var grá
húfa og grænir vettlingar
í vasa. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 561-
2125.
GSM-sími týndist
NOKIA 3330 hvarf úr
gryfjunni í Fellaskóla
föstudaginn 31. ágúst sl.
Upplýsingar í síma 698-
3473 eða 567-0764.
Dýrahald
Kanína í óskilum
HVÍT kanína fannst í
Drápuhlíð 31. ágúst sl.
Hún er með grátt á eyr-
um og ljósbrúna bletti á
neðanverðu baki. Uppl. í
síma 561-0652.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Maður sem kann
að spara Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Bjarni Sæmundsson og
Arnarfell koma í dag.
Saturn fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss, Drangvík og
Kyndill komu í gær.
Rán, Mango og Ocean
Tiger koma í dag, Ýmir
fer í dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bókband og öskjugerð,
kl. 13–16.30 opin smíða-
stofa, kl. 10–16 pútt-
völlur opinn. Allar upp-
lýsingar í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 tré-
skurður, kl. 9–16 handa-
vinna og fótaaðgerð, kl.
10–11.30 sund, kl. 13–16
leirlist.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 10–11
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Leikfimin
byrjar fimmtudaginn 6.
september kl. 11.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Saumar og bridge kl.
13.30. Innritun á mynd-
listarnámskeið hjá
Rebekku. Dagsferð 13.
sept. Innritun í Hraun-
seli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu frá
Glæsibæ kl. 10. Dags-
ferð á Njáluslóðir 5.
september. Sögusetrið á
Hvolsvelli skoðað. Farið
verður með Arthúri
Björgvini Bollasyni á
Njáluslóðir. Brottför frá
Glæsibæ kl. 9. Leiðsögn
Pálína Jónsdóttir. Þeir
sem eiga pantað vinsam-
legast sækið farmiðann
sem fyrst. Opið hús
verður laugardaginn 8.
september kl. 13.30 í Ás-
garði Glæsibæ þar sem
félagsstarfið verður
kynnt. Söngur, danssýn-
ing, leikstarfsemi o.fl.
Haustfagnaður FEB og
ferðakynning Heims-
ferða verða haldin föstu-
daginn 14. september.
Húsið opnað kl. 18.30,
veislustjóri Sigurður
Guðmundsson, matur,
Ekkókórinn syngur,
leikarar úr Snúð og
Snældu skemmta, ferða-
kynningar, happdrætti,
Hjördís Geirs og Guð-
mundur Haukur sjá um
dansinn. Farið verður til
Kanaríeyja 20. nóv-
ember á sérstökum
vildarkjörum. Upplýs-
ingar og skráning á
skrifstofunni. Silf-
urlínan er opin á mánu-
dögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
fh. Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10–16 í
síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 hár-
greiðsla, sjúkraböðun,
kl. 12.45 Bónusferð.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, m.a. perlusaum-
ur, frá hádegi spila-
mennska, kl. 13 boccia.
Föstudaginn 7. sept. kl.
14 hefjast kóræfingar
hjá Gerðubergskórnum,
stjórn Kári Friðriksson,
nýir félagar velkomnir.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 handa-
vinnustofa opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 10–17, kl. 9.05 og 9.59
leikfimi, þriðjudags-
ganga fer frá Gjábakka
kl. 14. Fyrirhugað er að
kenna kínverska leik-
fimi í Gjábakka í vetur.
Áhugasamir skrái þátt-
töku sem fyrst. Kynning
á starfsemi í félagsheim-
ilinu Gjábakkrá frá sept.
til des. verður fimmtu-
daginn 6. september kl.
14. Þar munu FEBK,
Hana-nú og ýmsir
áhugamannahópar
kynna sína starfsemi
auk þess sem skráning
og kynning á fyrirhug-
uðum námskeiðum fer
þar fram. Meðal nýj-
unga er kínversk leik-
fimi undir stjórn Guð-
nýjar Helgadóttur og
skapandi skrif. Allir vel-
komnir.
Gullsmári Gullsmára 13.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir og
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna og hárgreiðsla.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 10–
11 boccia, kl. 11–12 leik-
fimi, kl. 12.15 verslunar-
ferð í Bónus, kl. 13–17
hárgreiðsla, kl. 13
myndlist.
Háteigskirkja – eldri
borgarar. Á morgun,
miðvikudag, fyrirbæna-
stund kl. 11, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13–15.
Mosfellingar – Kjalnes-
ingar og Kjósverjar, 60
ára og eldri. Halldóra
Björnsdóttir íþrótta-
kennari er með göngu-
ferðir á miðvikudögum,
lagt af stað frá Hlað-
hömrum: Ganga 1: létt
ganga kl. 16 til 16.30.
Gönguhópur 2: kl. 16.30.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
morgunstund og hand-
mennt, kl. 10 fótaað-
gerðir og almenn leik-
fimi, kl. 11 boccia, kl. 14
félagsvist. Öll starfsemi
í stöðinni er hafin og
skráning í eftirfarandi
námskeið stendur yfir,
bókband, bútasaumur,
glerbræðsla, glerskurð-
ur, körfugerð, leirmótun
og smíði. Vitatorgskór-
inn byrjar æfingar 5.
september kl. 15.30, ný-
ir félagar velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 11 leikfimi, kl.
13 spilamennska. Búta-
saumur hefst þriðjudag-
inn 4. sept. Myndmennt
og postulínsmálun hefst
miðvikud. 5. sept. Kór-
æfingar hefjast mánud.
17. sept. Dagsferð um
Snæfellsnes verður
fimmtudaginn 6. sept-
ember. Lagt af stað frá
Vesturgötu 7 kl. 9. Ekið
vestur Kerlingaskarð.
Tekið hús á Hildibrandi
Bjarnasyni í Bjarn-
arhöfn, þar sem boðið er
upp á hákarl og með-
læti. Kirkjan skoðuð.
Ekið um Grundarfjörð
og Ólafsvík til Hellis-
sands þar sem snæddur
verður hádegisverður á
Hótel Eddu. Síðan verð-
ur ekið fyrir jökul að
Hellnum. Hellnakirkja
skoðuð, og komið við í
Fjöruhúsinu. Ekið
heimleiðis. Leið-
sögumaður: Nanna
Kaaber. Takmarkaður
sætafjöldi. Upplýsingar
og skráning í síma 562-
7077. Vinsamlega sækið
farmiða fyrir 4. sept.
Ferðakynning til Kýpur.
Föstudaginn 7. sept. kl.
15 kynnir Árni Norð-
fjörð skemmtanastjóri
og fleiri haust- og
vetrarferðir á vegum
ferðaskrifstofunnar
Sólar. Árni mun einnig
spila nokkur lög á
harmonikku.
Happdrætti gildir sem
innborgun í ferð. Dans-
að við lagaval Sigvalda.
Pönnukökur með rjóma
í kaffitímanum
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á miðviku-
dögum kl. 20, svarað í
síma 552 6644 á fundar-
tíma.
Eineltissamtökin.
Fundir á Túngötu 7, á
þriðjudögum kl. 20.
Kvenfélag Seljasóknar
Farið verður í haust-
ferðalagið laugardaginn
8. september. Lagt af
stað frá Seljakirkju kl
10. Vinsamlega til-
kynnið þátttöku til Öldu
5573442, Ágústu
5572399 eða Sædísar
5573702. Fyrir miðviku-
daginn 5. september.
Hallgrímskirkja, starf
eldri borgara hefst í dag
á leikfimi kl. 13. Verið
velkomin.
ITC-deildin Fífa. Fyrsti
fundur deildarinnar
verður haldinn miðviku-
daginn 5. september kl.
20.15–22.15 í safnaðar-
heimili Hjallakirkju.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Í dag er þriðjudagur 4. september,
247. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Ég hef barist góðu baráttunni, hef
fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna.
(II. Tím. 4, 7.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 blökkumaður, 8 hrós-
um, 9 lipurð, 10 eldiviður,
11 vísa, 13 ákveð, 15 mjög
hallandi, 18 stjórna, 21
fag, 22 kátt, 23 uxinn, 24
steins.
LÓÐRÉTT:
2 loftrella, 3 hæsi, 4
reiðra, 5 tröllkona, 6
óhapp, 7 drótt, 12 hold,
14 fum, 15 flói, 16 flýtinn,
17 nafnbót, 18 bands, 19
úði, 20 geta gert.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 gumar, 4 drepa, 7 lýgur, 8 kofar, 9 tík, 11 aðra,
13 áður, 14 sukks, 15 kusk, 17 tjón, 20 fró, 22 tunna, 23
liðnu, 24 raust, 25 rúman.
Lóðrétt: 1 gúlpa, 2 magur, 3 rýrt, 4 dekk, 5 erfið, 6 arr-
ar, 10 ískur, 12 ask, 13 ást, 15 kætir, 16 sunnu, 18 Júð-
um, 19 nautn, 20 falt, 21 ólar.
Víkverji skrifar...
SIGUR íslenska landsliðsins íknattspyrnu í leiknum gegn
Tékkum síðastliðinn laugardag gef-
ur liðinu óvænta möguleika á að
komast í lokakeppni HM í fyrsta
skipti. Frábær frammistaða liðsins
kom sennilega flestum á óvart en þó
líklega engum eins og tékkneska lið-
inu sem fékk það óþvegið í fjölmiðl-
um í heimalandinu í kjölfar leiksins.
Þar er talað um ósigurinn sem mestu
niðurlægingu tékkneskrar knatt-
spyrnu frá upphafi. Þetta er hins
vegar ein af glæsilegustu stundun-
um í íslenskri knattspyrnusögu og
Víkverji óskar landsliðinu og þjálf-
ara þess til hamingju með árangur-
inn. Þjálfarinn átti undir högg að
sækja fyrir leikinn þar sem spjótin
stóðu á honum úr öllum áttum, en
ásamt liðinu stendur hann nú uppi
sem sannkallaður sigurvegari.
x x x
NÚ er rétt rúmlega mánuðurþangað til Smáralindin verður
opnuð en bygging þessarar risa-
vöxnu verslunarmiðstöðvar (á ís-
lenskan mælikvarða) er nú á loka-
stigi. Húsnæðið er hvorki meira né
minna en 63 þúsund fermetrar og
auk verslana af öllu tagi verða í því
fimm kvikmynda- og ráðstefnusalir
sem samtals taka í sæti rúmlega eitt
þúsund manns. Áætlaður heildar-
kostnaður við þetta stórhýsi er um
tíu milljarðar króna og spá þeirra
sem að Smáralindinni standa gerir
ráð fyrir að ársveltan verði 12-14
milljarðar króna, en eftir opnun
verða starfsmenn í Smáralindinni
800 til 1.200 talsins. Þá er gert ráð
fyrir að fjöldi gesta sem heimsækja
Smáralindina árlega verði um fimm
milljónir, en það þýðir að hver ein-
asti einstaklingur hér á landi komi
þangað tuttugu sinnum á ári.
x x x
MARGIR velta því eflaust fyrirsér hvort markaður sé fyrir
allar þær verslanir sem verða á
höfuðborgarsvæðinu eftir opnun
Smáralindar, en þeir sem að henni
standa reikna með að markaðshlut-
deild Smáralindar á höfuðborgar-
svæðinu verði 10-12%. Svo stór biti
af kökunni kemur eflaust til með að
rýra hlut þeirra sem fyrir eru á
markaðnum og fróðlegt verður að
sjá hverjar afleiðingarnar verða.
Helsti keppinautur Smáralindar um
hylli viðskiptavina verður vafalaust
Kringlan, sem þegar hefur boðað
ýmsar breytingar til að standast bet-
ur samkeppnina. Þar vegur senni-
lega einna þyngst að Bónus mun
opna matvöruverslun í Kringlunni,
en lágvöruverslun af því tagi mun
vafalítið laða fleiri viðskiptavini á
staðinn en hingað til. Þá er það stór
spurning hvaða áhrif Smáralindin
kemur til með að hafa á verslanir við
Laugaveginn og aðra verslunar-
kjarna á höfuðborgarsvæðinu.
x x x
LOKS vaknar sú spurning hvaðaáhrif þessi viðbót í verslun hef-
ur á verðlag. Fyrirfram verður að
gera ráð fyrir að þessi aukna sam-
keppni í verslun muni leiða til lægra
vöruverðs og þannig koma neytend-
um til góða, en einhverjir verða
væntanlega að greiða þann fórnar-
kostnað sem óhjákvæmilegur er. Sú
kjarabót sem þetta gæti þýtt fyrir
neytendur er að sjálfsögðu kærkom-
in og þá ekki síst nú þegar almennur
samdráttur er víða farinn að gera
vart við sig og gamli verðbólgu-
draugurinn er á ný farinn að gera
mönnum nokkra skráveifu.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.