Morgunblaðið - 04.09.2001, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
KARLMAÐUR í íbúð við Tómasar-
haga í Reykjavík var handtekinn
upp úr kl. 20 í gærkvöldi eftir um-
sátursástand við götuna. Maðurinn
hafði gengið berserksgang fyrir ut-
an húsið og þegar lögreglan var
kvödd á vettvang á sjötta tímanum
lokaði hann sig þar inni.
Talið var að maðurinn hefði vopn
undir höndum og var götunni lokað
um tíma til þess að tryggja öryggi
íbúa og vegfarenda. Fjöldi lögreglu-
manna var sendur á vettvang en
maðurinn, sem var einn í húsinu,
gafst upp eftir tilmæli lögreglu í
gegnum síma á níunda tímanum og
lagði vopn sín fyrir utan húsið.
Hann var í kjölfarið færður til lækn-
is.
Umsáturs-
ástand
í vestur-
bænum
Morgunblaðið/Ásdís
Sigurður segir nýja svæðið tví-
mælalaust meira aðlaðandi fyrir
slíka tæknigarða en marga aðra
staði.
tengist þessum hlutum. Þarna er
verið að viðra það að ef Tækniháskóli
Íslands verður að veruleika fyrir ut-
an Háskólann þá er hann boðinn vel-
kominn inn á þetta svæði og þá væru
möguleikar á að hafa tæknigarða þar
líka,“ segir hann.
Aðspurður segir Sigurður að lík-
lega sé ekki rými fyrir marga há-
tæknigarða á höfuðborgarsvæðinu
þó að það sé vissulega háð at-
vinnuþróun á næstu áratugum.
„Þetta er fyrst og fremst hugsað fyr-
ir skrifstofubyggingar. Eins mætti
jafnvel bjóða Orkustofnun að vista
hana hér í nágrenni við þá miklu
orkuuppbyggingu sem gæti átt sér
stað því þær boranir sem er verið að
gera í Trölladyngju hér rétt fyrir ut-
an lofa mjög góðu. Eins erum við
með iðnaðarsvæðismöguleika tengda
álverssvæðinu.“
BÆJARYFIRVÖLD í Hafnarfirði
kanna nú möguleika á uppbyggingu
tæknigarðs og Tækniháskóla á því
landi sem nú er verið að skipuleggja
á Vallar-, Selhrauns- og Hellna-
hraunssvæði. Um er að ræða tölu-
vert víðfeðmt svæði suðvestur af Ás-
völlum og suður með Krísuvíkurvegi.
Formaður skipulagsnefndar, Sig-
urður Einarsson, segir að tengsl við
Hitaveitu Suðurnesja og framþróun í
orkugeiranum geri svæðið hentugt
fyrir starfsemi af þessum toga.
Að sögn Sigurðar tengjast hug-
myndir um tæknigarða í Hafnarfirði
fyrst og fremst hugmyndum um að
koma höfuðstöðvum Hitaveitu Suð-
urnesja fyrir í Hafnarfjarðarbæ.
„Þessi hugmynd er komin frá ráð-
gjöfum sem telja að það mætti tengja
þessar höfuðstöðvar einhverri há-
skólastofnun eða öðrum skóla sem
Vilja tæknigarða og
háskóla í Hafnarfjörð
Danaprins
til Íslands
JÓAKIM Danaprins og Alexandra,
eiginkona hans, koma til Íslands síðar
í mánuðinum. Þau verða hér í einka-
erindum en forsetaembættið skipu-
leggur dagskrána að nokkru leyti.
Ekki fengust upplýsingar um
heimsóknina hjá forsetaembættinu
en samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu Jóakim og Alexandra
m.a. skoða sig um bæði sunnanlands
og norðan.
EYÞÓR Sigmundsson póstkortaút-
gefandi veiddi 27 punda hæng í
Símastreng í Laxá í Aðaldal í gær-
morgun og er það stærsti laxinn
sem frést hefur af úr íslenskri á það
sem af er vertíð.
„Ég veiddi laxinn á tveggja
tommu Skrögg, túpuflugu sem ég
hnýtti sjálfur. Laxinn var hrikalega
þungur, lagðist og hafði sína henti-
semi. Ég var um hálftíma að ná
honum. Ég er með 15 kg taum, það
er nú þannig að maður kemur hing-
að norður gagngert til að veiða
stóra laxa. Það er nóg af litlum og
meira að segja pínulitlum löxum í
ánum fyrir sunnan. Ég er löngu bú-
inn að sjá að laxinn er ekkert að
velta taumnum fyrir sér, það er því
óhætt að hafa sterkt undir,“ sagði
Eyþór Sigmundsson.
Veiddi 27
punda hæng
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
SAMÞYKKT var á stjórnarfundi
Landsvirkjunar í gær að fela for-
stjóra fyrirtækisins að leggja fram
kæru til umhverfisráðherra vegna
úrskurðar Skipulagsstofnunar um
mat á umhverfisáhrifum vegna
Kárahnjúkavirkjunar. Tillagan var
samþykkt samhljóða með fjórum
atkvæðum en tveir stjórnarmanna
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir stjórnar-
menn hafa farið afar ítarlega yfir
fyrirliggjandi drög að mjög efnis-
mikilli kæru og niðurstaðan orðið
sú að stjórnin samþykkti að kæra
til umhverfisráðherra úrskurð
Skipulagsstofnunar. Hann segir að
nú verði lögð lokahönd á kæruna
og henni skilað í dag eða á morg-
un, en þá rennur kærufrestur út.
Að sögn Friðriks byggist kæran
annars vegar á lagalegum ástæð-
um þar sem Landsvirkjun leggi
annan skilning í lögin en skipu-
lagsstjóri hafi gert í úrskurði sín-
um. „Við viljum láta reyna á þann
skilning því það hefur auðvitað
ákaflega mikla þýðingu að lögin
séu skýr. Ekki eingöngu vegna
þessa máls sem hér er verið að
fjalla um, heldur vegna mats á um-
hverfisáhrifum annarra stórra
framkvæmda á næstu árum.“
Ítarlegri upplýsingar um af-
leiðingar virkjunarinnar
Þá segir Friðrik að hins vegar
komi fram í kærunni ítarlegri upp-
lýsingar um einstök atriði fram-
kvæmdarinnar og efnahagslegar
afleiðingar virkjanaframkvæmd-
anna. „Ítarlegri upplýsingar munu
fylgja kærunni en þær sem voru í
matsskýrslunni. Nú leggjum við
fram ítarlegri upplýsingar um
vissa þætti málsins og komum
þannig til móts við þær forsendur
sem úrskurður Skipulagsstofnunar
virðist byggjast á. En aðalatriði
málsins er það að úrskurður
Skipulagsstofnunar standist ekki
lög,“ segir Friðrik og segist hann
telja kæruna byggjast á mjög
sterkum málefnalegum forsendum,
bæði lögfræðilegum og efnislegum.
Miðað við framkvæmdir við
byggingu álvers í Reyðarfirði og
að fyrirhugaðar stækkanir Norð-
uráls og ÍSAL gangi eftir er ljóst
að nýta þarf alla tiltæka virkj-
unarmöguleika á næstu árum, en
framleiðsla á áli gæti aukist um
770 þúsund tonn á ári fram til árs-
ins 2012 gangi þær fyrirætlanir
eftir.
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnar-
formaður Reyðaráls hf., segir
Kárahnjúkavirkjun eina raunhæfa
kostinn í stöðunni vegna álvers í
Reyðarfirði. Hann segist jafnframt
bjartsýnn á að kæra Landsvirkj-
unar muni skýra frekar umhverfis-
áhrif Kárahnjúkavirkjunar, þannig
að hægt verði að sýna með fagleg-
um hætti fram á að mögulegt sé að
byggja virkjunina í viðunandi sátt
við umhverfið.
Landsvirkjun kærir úrskurð Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra
Byggt verður á lög-
fræðilegum forsendum
Framleiðsla gæti/10
TENGIVAGN flutningabifreiðar
valt norðanmegin í Hvalfjarðar-
göngunum í gærkvöldi og þurfti að
loka göngunum í nokkrar klukku-
stundir. Ekki urðu slys á fólki og
voru ekki aðrir bílar nálægir.
Flutningabíllinn var á leið upp úr
botni ganganna á leið til Akureyrar
þegar bilun varð í gírkassa bílsins
og hann rann afturábak með fyrr-
greindum afleiðingum.
Vagninn var fullur af matvælum
sem dreifðust um göngin og þurfti
að handflytja farminn upp úr göng-
unum áður en hægt var að koma að
tækjum til að losa bílinn og reisa
vagninn við og voru aðstæður erf-
iðar vegna lítillar lofthæðar.
Morgunblaðið/Ásdís
Tengivagn valt í
Hvalfjarðargöngunum
♦ ♦ ♦
LÍTIL skúta strandaði við
Engey á ellefta tímanum í gær-
kvöldi. Einn maður var um
borð og gerði hann Tilkynn-
ingaskyldunni viðvart um
strandið. Félagar í Björgunar-
sveitinni Ársæli sigldu strax út
að strandstaðnum og björguðu
manninum, sem hafði ekki orð-
ið meint af.
Skúta
strandaði