Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VEGAGERÐIN hefur auglýst út-
boð nýs vegar frá Bangastöðum á
Tjörnesi um Fjallahöfn að Víkinga-
vatni í Kelduhverfi og er vegarlagn-
ingin áfangi í endurbótum á vegi fyr-
ir Tjörnes og liður í bættum
vegasamgöngum í Norður-Þingeyj-
arsýslu, að því er fram kemur í
Framkvæmdafréttum Vegagerðar-
innar. Nýja veglínan mun liggja mun
austar en núverandi vegur og er 2,5
km styttri. Vegurinn mun liggja
lægra í landi og brekkur verða
styttri og umferðaröryggi mun
betra en á núverandi vegi. Veður-
skilyrði eru talin hagstæðari og
snjóflóðahætta á fyrirhuguðum vegi
engin.
Eitt af meginmarkmiðum með
byggingu vegarins er að tryggja
öruggar samgöngur við byggðirnar
austan Húsavíkur allt árið. Auð-
bjargarstaðabrekka hefur alla tíð
verið helsti farartálminn á leiðinni
en með tilkomu nýja vegarins færist
leiðin nær sjó á sléttlendi og brekk-
an því ekki lengur farartálmi vegfar-
enda.
Skipulagsstofnun féllst á lagningu
vegarins í desember á síðasta ári en
umhverfisáhrif fyrirhugaðs vegar-
stæðis lúta einkum að því að raska
ósnortnu landi. Skorið verður í
hamra og það ásamt fyllingum og
brú yfir Lónsós munu breyta veru-
lega ásýnd og yfirbragði strand-
svæðisins. Í umsögn Náttúruvernd-
ar ríksins kemur fram að stofnunin
telji að náttúruspjöll verði umtals-
verð vegna áhrifa á landslag.
Ekki verið sýnt fram á
aðra viðunandi kosti
Að mati Skipulagsstofnunar hefur
þó ekki verið sýnt fram á að aðrir
viðunandi kostir séu á vegstæðum á
svæðinu sem uppfylla kröfur um
vegtæknileg atriði umferðaröryggis,
m.a. með tilliti til snjóflóðahættu.
Uppbyggingu vegarins austan
Lónsóss á að vera lokið 1. apríl 2002,
1. nóvember 2002 á allur vegurinn að
vera orðinn vetrarfær og 1. ágúst
2003 á að allri slitlagslögn að vera
lokið. Verkinu á öllu að ljúka fyrir 1.
október 2003. Steypt verður 100
metra löng brú yfir Lónsós og á hún
að vera tilbúin fyrir umferð 1. ágúst
á næsta ári.
Ljósmynd/Helga Aðalgeirsdóttir.
Yfirlitsmynd yfir strandsvæðið sem nýr vegur frá Bangastöðum að Víkingavatni við Öxarfjörð mun liggja yfir.
Fyrir innan sandfjörurnar er Lónið og fjær sést Lónsós en byggð verður 100 metra löng brú yfir ósinn.
Vegagerðin auglýsir útboð í nýtt vegarstæði í Öxarfirði
Nýr vegur lagður
yfir ósnortið land
Ráðstefna um ESB og evruna
Áform og reynsla
nágrannaþjóða
HINN 10. septembernk. verður haldinráðstefna um ESB
og evruaðild á vegum Sam-
taka iðnaðarins á Grand
Hóteli í Reykjavík. Ráð-
stefnan hefst kl. 8.30 ár-
degis. Þorsteinn Þorgeirs-
son, hagfræðingur hjá
Samtökum iðnaðarins, er
skipuleggjandi ráðstefn-
unnar og fundarstjóri.
Hann var spurður hvert
væri meginþema ráðstefn-
unnar.
„Við ætlum að fjalla um
reynslu og áform Breta og
Norðurlandaþjóðanna í
málefnum varðandi ESB
og evruaðild.“
– Verður fjallað um þetta
efni fyrst og fremst út frá
sjónarhóli Íslendinga?
„Samtök iðnaðarins tóku þá
ákvörðun í sumar að halda ráð-
stefnu um þetta efni til þess að
bæta úr tilfinnanlegum skorti á
upplýstri umræðu um þessi mál.
Það er fyrirsjáanlegt að aðild að
ESB og upptaka evrunar eru mál
sem eiga sér langan aðdraganda og
því mikilvægt að undirbúa alla val-
kosti tímanlega ef við viljum eiga
raunverulegan kost á þeim. Erfið
efnahagsstjórn hefur sett þrýsting
á fyrirtæki í alþjóðlegri samkeppni
og þeim finnst mikilvægt að skoða
aðrar leiðir til að starfsskilyrði
þeirra séu jafngóð og þeirra fyr-
irtækja sem þau keppa mest við.“
– Yrði upptaka evrunnar ís-
lenskum fyrirtækjum erfið?
„Þegar við fjöllum um evruna
verðum við að horfa til langs tíma.
Það er ótvírætt að upptaka evr-
unnar hér á landi mundi auka hag-
vöxt umtalsvert og fyrir því eru
margvíslegar ástæður. Fjár-
magnskostnaður yrði varanlega
minni fyrir fyrirtæki, heimili og hið
opinbera. Verðsamanburður við
Evrópu yrði skýrari, gengiskostn-
aður og áhætta hyrfu í evruvið-
skiptum, hæfileiki fyrirtækja til að
laða erlent fjármagn í starfsemi
sína myndi stórbatna og að lokum;
með því að stuðla að fjölbreyttari
og samkeppnishæfari atvinnu-
starfsemi myndi tilkoma evrunnar
jafna viðskiptasveifluna hérlendis
enn frekar. Það eru því miklir
hagsmunir í húfi.“
– Hvað mælir á móti því að við
tökum upp evruna?
„Það er orðið deginum ljósara að
til þess að fá evruna er eina raun-
hæfa leiðin full aðild að ESB. Þess
vegna held ég að það sé mikilvægt
að Íslendingar kynni sér eins vel
og kostur er hvað slík aðild felur í
sér. Því evran er jú einn stærsti
kosturinn við aðild. Við höfum
núna fengið mjög virta sérfræð-
inga frá Bretlandi og Norðurlönd-
um til að koma til Íslands og miðla
af reynslu sinni, hvort sem er utan
ESB eða innan – sem og utan og
innan evrusamstarfs. Þessir ræðu-
menn munu jafnframt leggja sitt
mat á líklega þróun í sínum löndum
en það vegur mjög þungt fyrir okk-
ur hvað þessar þjóðir munu gera í
þessum málum. Allir
þessir aðilar hafa langa
og djúpstæða þekkingu
á þessu málefni. Þeir
sem tala eru Johnny
Akerholm, aðstoðar-
ráðuneytisstjóri hjá
finnska fjármálaráðu-
neytinu, Arne Jon Is-
akchen, hagfræðiprófessor í Nor-
egi, Ulf Jacobsson, forstöðumaður
Efnahagsstofnunar iðnaðarins í
Svíþjóð, og Graham Bishop, ráð-
gjafi um EMU-málefni í bresku
viðskiptalífi. Að auki höfum við
fengið Sixten Korkman, fram-
kvæmdastjóra um EMU-málefni
hjá Ráðherraráði ESB, til að segja
okkur frá þeirri reynslu sem komin
er af efnahags- og myntbandalagi
Evrópu og sérstaklega hvað varð-
ar minni þjóðirnar sem taka þátt,
svo sem Írland, Holland, Lúxem-
borg, Finnland, Belgíu og Portú-
gal. Við getum örugglega dregið
lærdóm af reynslu þeirra. Síðan
verður reifað hvernig gengissam-
starfi ESB verður háttað við þau
lönd sem sækja um aðild í framtíð-
inni.“
– Verða íslenskir fyrirlesarar?
„Vilmundur Jósefsson, formað-
ur stjórnar Samtaka iðnaðarins,
mun reifa niðurstöður í nýrri könn-
un Gallup um viðhorf Íslendinga til
aðildar að ESB og upptöku evr-
unnar.“
– Er notkun íslensku krónunnar
mikill áhrifavaldur í gengi fyrir-
tækja okkar?
„Já vissulega er hún það. Ég
held að það sé viðurkennt að á
meðan við byggjum okkar efna-
hagsstarfssemi á henni þá eigum
við tvo valkosti – hærri verðbólgu
en annars staðar eða hærri vexti. Á
slíkum grundvelli getur fjölbreytt
atvinnustarfsemi ekki þrifist til
langframa. Við getum ímyndað
okkur að það að taka upp evruna sé
nokkuð áþekkt því að nota Netið á
grundvelli enskunnar. Það sæi
hver maður hvernig
færi ef við ætluðum að
nota íslenskuna.“
– Hvað þarf langan
tíma til undirbúnings
upptöku evrunnar hér?
„Þetta er spurning
sem ætti að koma fram
á ráðstefnunni þar sem
þessir sérfræðingar geta gefið sitt
álit, en líklega er um að ræða nokk-
uð mörg ár. Vissulega þurfum við
að kynna okkur alla þessa valkosti
vel til þess að geta nýtt okkur þá ef
það reynist það sem við viljum. Við
telum að upplýst umræða sé nauð-
synleg.“
Þorsteinn Þorgeirsson
Þorsteinn Þorgeirsson fæddist
í Reykjavík 17. september 1955.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1976 og fór svo til náms í Banda-
ríkjunum og lauk BA-prófi í hag-
fræði frá The American Univers-
ity í Washington D.C. og
mastersprófi frá Vanderbilt Uni-
versity í Nashville í hagfræði.
Hann er nú að vinna að dokt-
orsritgerð um sama efni við New
School for Social Reseach í New
York. Hann hefur starfað sem
hagfræðingur víða, m.a. hjá
DRI/McGraw-Hill í San Franc-
isco í Kaliforníu, hjá EFTA í
Genf og OECD í París. Nú er
hann hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins. Þorsteinn er kvænt-
ur Ástu Karen Rafnsdóttur kenn-
ara og eiga þau þrjú börn.
Tilkoma
evrunnar mun
jafna við-
skiptasveiflur
hérlendis
enn frekar
HARALDUR Örn Ólafsson og þrír
félagar hans komust í gær í 4.600
metra hæð í hlíðum Kilimanjaro,
hæsta fjalls Afríku, en þeir hyggj-
ast ná tindi fjallsins í 5.895 metra
hæð á morgun, föstudag.
Þeir komu á svokallaðan Hraun-
tind upp úr hádegi að íslenskum
tíma eftir fimm tíma göngu og eftir
að hafa hækkað sig um 660 metra.
Leiðangursmennirnir fjórir, Har-
aldur, Garðar Forberg, Ingþór
Bjarnason og Steinar Þór Sveins-
son, eru við góða heilsu, en þó sum-
ir með smáhöfuðverk í þunna loft-
inu.
Komust í
4.600 m
hæð á Kili-
manjaro
FLUGVALLARDEILD Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins var kölluð að
Hótel Loftleiðum um klukkan 11 í
gærmorgun vegna elds í kjallara
hússins.
Upptök eldsins voru í rafmagns-
töflu í húsinu og var hann slökktur
með kolsýrutæki á skömmum tíma.
Ekki urðu meiðsl á fólki.
Eldur í raf-
magnstöflu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦