Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 59
60 og 70 ÁRA afmæli. Í dag fimmtudaginn 6. septemberer sextug Borghildur H. Flórentsdóttir. Eiginmaður hennar, Björgvin Hofs Gunnarsson verður 70 ára 23. nóv- ember nk. Í tilefni þessa halda þau sameiginlega upp á af- mælin og taka á móti gestum laugardaginn 8. september frá kl. 20 í samkomusal Drangeyjar, Stakkahlíð 17, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 59 DAGBÓK Árnað heilla LJÓÐABROT LÓAN (Gömul saga) Einn um haust í húmi bar hal að kletta sprungu, úti kalt þá orðið var, öngvir fuglar sungu. Sá hann lóur sitja þar sjö í kletta sprungu, lauf í nefi lítið var og lá þeim undir tungu. Og hann sá, að sváfu þær svefnamóki þungu; læddist inn og einni nær inn’ í kletta sprungu. – – – Gísli Brynjúlfsson. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert þolinmóður og lætur ýmislegt yfir þig ganga. Samt kanntu að draga mörkin, þegar þú vilt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú þarft umfram allt að gera þér grein fyrir tilfinningum þínum í garð annarra. Gættu þess að leyfa ekki öðrum að ganga um of á rétt þinn. Naut (20. apríl - 20. maí)  Drífðu nú í að laga það sem úrskeiðis hefur farið á heim- ilinu. Það þarf ekki að taka svo langan tíma ef þú bara gengur rösklega til verks. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Stundum er betra að láta kyrrt liggja heldur en að sækja of langt til þess að reyna að bæta sambandið við vini sína. Allt lagast með tím- anum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Eyddu ekki peningum í hluti sem þú hefur enga tryggingu fyrir að komi þér að gagni. Þótt tækifærið virðist freist- andi skaltu athuga þinn gang. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú þarft að hafa hemil á til- finningum þínum og sérstak- lega þarftu að gæta þess að loka að þér þegar aðrir ætla að vaða yfir þig á skítugum skónum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Stundum er allt í lagi að fara eftir fyrstu tilfinningu þótt yfirleitt sé skynsamlegt að tékka hana af til öryggis. Sýndu staðfestu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Notaðu hvert tækifæri til þess að ræða hugðarefni þín við vini þína. Leitaðu að feg- urðinni í lífinu því fagurt um- hverfi er raunveruleg heilsu- bót. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur lagt hart að þér og ættir því að uppskera laun erfiðis þíns fyrr eða síðar. Láttu samt ekki biðina eftir viðurkenningu halda aftur af þér. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það væri freistandi fyrir þig að auka menntun þína með einhverju móti. Nú eru tæki- færin svo margvísleg að þú hlýtur að finna eitthvað við þitt hæfi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það eru allskonar tækifæri á sveimi í kringum þig. Málið er bara að vera á verði og grípa réttu tækifærin þegar þau bjóðast. Vertu vandlátur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Stundum er eins og hlutirnir séu engin tilviljun heldur hafi þeir verið löngu ákveðnir og beðið þess eins að réttur mað- ur kæmi á réttri stundu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú átt auðvelt með að starfa með öðrum og leggur glaður þitt af mörkum til þess að raunverulegur árangur náist. Þinn tími mun þess vegna koma. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÍSLENSKIR skákmenn fengu aðeins að kynnast sér- stökum töktum tékkneska undrabarnsins David Nav- arra (2491) í ferðum sínum til Tékklands í sumar. Hann tók þátt í HM 20 ára og yngri í Aþenu og þurfti í stöðunni að lúta í lægra haldi gegn Sergey Asarov (2461). Sá síðarnefndi hafði hvítt og splundraði kóngsstöðu svarts. 21. Bxf7! Hxf7 22. Dg6+ Kf8 23. Hxd6 Db8 23... De7 var einnig slæmt sökum 24. Hxh6 Bxh6 25. Dxh6+ Hg7 26. f6 og hvítur vinnur. 24. Hxh6! Bxh6 25. Dxh6+ Ke7 26. De6+ Kf8 27. Dh6+ Ke7 28. Hxc6 Bb7 29. He6+ Kd8 30. Dg5+! og svartur gafst upp enda verð- ur hann mát eftir t.d. 30... Kd7 31. Dd2+ Kc7 32. Rb5+ Kc8 33. He8#. Skákin tefld- ist í heild sinni: 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Be3 Rc6 7. Bc4 Be7 8. f4 O-O 9. Df3 e5 10. Rxc6 bxc6 11. f5 Rd7 12. O-O-O Rb6 13. Bb3 Ba6 14. h4 Rc4 15. Kb1 Rxe3 16. Dxe3 h6 17. Dh3 Kh7 18. g4 g5 19. hxg5 Bxg5 20. Dh5 Kg7 o.s.frv. 7. umferð Skákþing Íslands, landsliðsflokki, fer fram 6. september kl. 17.00 í íþrótta- húsinu við Strandgötu. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. SVEIT Karls Sigurhjartar- sonar – Iceland Express – er komin í átta liða úrslit í heimskeppni OK-Bridge á Netinu. Heiminum er skipt upp í átta svæði og fara fyrst fram útsláttarleikir innan svæðanna. Iceland Express sat yfir í fyrstu umferð, en hefur síðan lagt að velli þrjár sterkar sveitir, nú síðast sveit frá Danmörku undir forystu Thorvalds Aaga- ards. Íslenska sveitin hefur þar með unnið Norður-Evr- ópuriðilinn. Við skulum skoða nokkur spil frá leikn- um við Danina: Suður gefur; allir á hættu. Áttum breytt. Norður ♠ K875 ♥ 97532 ♦ D3 ♣ 86 Vestur Austur ♠ G4 ♠ 32 ♥ DG104 ♥ – ♦ K9642 ♦ ÁG1087 ♣D2 ♣KG7543 Suður ♠ ÁD1096 ♥ ÁK86 ♦ 5 ♣Á109 Ásamt Karli eru í sveit Iceland Express þeir Jón Baldursson, Þorlákur Jóns- son, Matthías Þorvaldsson, Þröstur Ingimarsson og Magnús E. Magnússon, en þeir tveir síðastnefndu sátu yfir í leiknum gegn Dönum. Karl og Jón spiluðu gegn Hans Christian Graversen og Paul Clemmensen í fyrri hálfleik: Vestur Norður Austur Suður Karl H.C. Jón Paul – – – 1 spaði Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass 4 grönd Pass 5 tíglar Pass Pass 5 spaðar Pass Pass Dobl Allir pass Stökk norðurs í þrjá spaða er veik hækkun (Bergen), en suður á mjög góð spil og hækkar í geim. Jón passar fyrst þrjá spaða, en kemur síðan inn á fjórum gröndum til að sýna láglitina. Paul tók skakkan pól í hæðina að reyna við fimm spaða yfir fimm tíglum. Jón doblaði í viðleitni til að fá hjarta út, en Karl átti nógu sterkt hjarta til að bíða rólegur með þann lit og kom út með tígul. Vörnin fékk fjóra slagi, einn á tígul, einn á lauf og tvo á hjarta: 500 til Íslands. Á hinu borðinu mættu Þorlákur og Matthías þeim Morten Jepsen og Thorvald Aagaard: Vestur Norður Austur Suður Thorvald Þorlákur Morten Matthías – – – 1 spaði Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass 4 grönd Dobl 5 tíglar Dobl Allir pass Sama þróun í byrjun, en Þorlákur og Matthías voru ekki á því að hætta sér upp á fimmta þrep og tóku 200 í fimm tíglum dobluðum. Tólf IMPar til Iceland Express. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 6. september, verður fimmtug- ur Andrés Ólafsson, Dal- braut 25, Akranesi. Eigin- kona hans er G. Rósa Pétursdóttir. Þau eru að heiman í dag. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. ágúst sl. í Þor- geirskirkju í Ljósavatns- hreppi af sr. Arnaldi Bárð- arsyni Berta Súsanna Hreinsdóttir og Þórhallur Ingason. Heimili þeirra er á Suðurgötu 42 í Keflavík. Ljósm./Myndr. ehf., Rúnar Þór Ge Qing, sem er 14 ára kín- verskur strákur, óskar eftir pennavinum á Íslandi. Áhugamál hans eru blak og hann langar að verða lækn- ir. Hann skrifar á ensku. Ge Qing, 1# 603 458 Tong Pan Road, Fuzhou, Fujina, China. Lovedbes@21cn.com Rahiel óskar eftir íslensk- um pennavini. Hún hefur áhuga á að skiptast á póst- kortum og frímerkjum. Ms. Rahiel Elaine Housey, 109 Meadow Lane, GPF, MI 48236, U.S.A. Pennavinir ATVINNA mbl.is Tilboð Barnamyndatökur verð frá kr. 5.000 Innifalið 1 stækkun 30x40 cm í ramma, aðrar stækkanir að eigin vali, með allt að 50% afslætti Ljósmyndastofan Mynd, sími: 565 4207 Ljósmyndastofa Kópavogs, sími: 554 3020 Ný sending af yfirhöfnum frá v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. Kringlunni, sími 588 1680, opið í Kringlunni til kl. 21.00 á fimmtudagskvöldum. iðunn tískuverslun Losaðu þig við rafbylgjur og ryk í íbúðinni. Árangurinn gæti komið þér á óvart. Ertu haldin... Upplýsingar í síma 581 1008 eða 862 6464, Hreiðar Jónsson.  síþreytu  svefntruflunum  sjúkdómum sem læknavísindin og lyf ráða illa við? Þá eru rafbylgjur vandinn! Fer einnig út á land. Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433. Dragtir frá kr. 7.900 Bolir á 500 og 1.000 kr. á meðan birgðir endast HAUST Í FLASH Flauelisjakkar með og án hettu 6.990 Litir: Svart og ljóst Stærðir 10-16 Laugavegi 54, sími 552 5201
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.