Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STÓRMEISTARINN og stiga-
hæsti keppandinn í landsliðsflokki
á Skákþingi Íslands, Hannes Hlíf-
ar Stefánsson, náði forystunni á
mótinu með öruggum sigri gegn
Braga Þorfinnssyni í fimmtu um-
ferð. Að öðru leyti jafnaðist
keppnin nokkuð í þessari umferð
þar sem þrír neðstu skákmenn-
irnir náðu 2½ vinningi. Úrslit um-
ferðarinnar urðu þessi:
Hannes - Bragi Þorfinnss. 1-0
Jón G. Viðarss. - Lenka Ptacn-
ikova 1-0
Arnar Gunnarss. - Þröstur Þór-
hallss. ½-½
Björn Þorfinnss. - Jón V. Gunn-
arss. ½-½
Sigurbjörn Björnss. - Stefán
Kristjánss. 1-0
Það má segja, að eftir þessa um-
ferð sé það einungis Björn Þor-
finnsson sem eigi raunhæfan
möguleika á að næla sér í áfanga
að alþjóðlegum meist-
aratitli, en til þess
þarf hann að fá 2½
vinning úr síðustu
fjórum umferðunum.
Ef svo fer fram sem
horfir þá þarf hann
reyndar tvo vinninga
úr næstu þremur um-
ferðum og gæti svo
treyst á jafntefli gegn
Hannesi sem hann
mætir í lokaumferð-
inni, a.m.k. ef það
dugir Hannesi til að
tryggja sér Íslands-
meistaratitilinn. Stað-
an á mótinu eftir 5
umferðir:
1. Hannes H. Stefánsson 4 v.
2. Þröstur Þórhallsson 3½ v.
3.-4. Jón Viktor Gunnarsson,
Björn Þorfinnsson 3 v.
5. Stefán Kristjánsson 2½ v.
6.-8. Bragi Þorfinnsson, Lenka
Ptacnikova, Jón Garðar Viðarsson
2 v.
9.-10. Arnar Gunnarsson og Sig-
urbjörn Björnsson 1½ v
Sjötta umferð var tefld í gær-
kvöldi, en í dag kl. 17 hefst sjö-
unda umferð og þá mætast m.a.
Hannes og Jón Viktor, Þröstur og
Bragi og Björn og Lenka. Það má
því búast við spennandi umferð og
vel þess virði að leggja leið sína í
íþróttahúsið við Strandgötu til
þess að fylgjast með skemmtileg-
um baráttuskákum.
Í kvennaflokki er Harpa Ingólfs-
dóttir efst með fullt hús, en Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir er í öðru
sæti með 2½ vinning. Fjórða um-
ferð í kvennaflokki verður tefld í
dag.
Að frátaldri sigurskák Hannesar
þá vakti viðureign þeirra Björns
Þorfinnssonar og Jóns Viktors
Gunnarssonar mesta athygli í
fimmtu umferð landsliðsflokks.
Fyrir utan leikinn 2. Bg5 má það
einnig heita vörumerki Björns að
geta bjargað sér út úr hinum
verstu klípum með því að flækja
stöðuna og efna til kóngssóknar
þar sem engar forsendur virðast
til slíks. Það er því jafnan dágóð
skemmtun að fylgjast með skákum
hans. Eftirfarandi skák er t.d.
stórskemmtileg og ekki vantar
sviptingarnar.
Hvítt: Björn Þorfinnsson
Svart: Jón V. Gunnarsson
Kóngsindversk byrjun
1.d4 Rf6 2.Bg5 g6 3.e3 --
Önnur leið er 3.Bxf6 exf6 4.e3,
t.d. 4...Bg7 5.Re2 f5 6.Rf4 d6
7.Rd2 Rd7 8.h4 Rf6 9.c3 c6 10.Bd3
De7 11.Dc2 Bd7 12.g3 d5 13.c4!?
dxc4 14.Rxc4 c5 15.0–0 Hc8 16.a4
cxd4 17.exd4 0–0 18.Db3 Re4
19.Hfe1 Bxd4 20.Bxe4 fxe4
21.Had1 Dc5 22.Hxe4 Bxf2+
23.Kh2 Bf5 24.Rd3 Dc7 25.Hf4 Bc5
26.Rxc5 Dxc5 27.Dxb7 Be6 28.b3
með vandtefldri stöðu (Alburt-Sav-
on, 1974)
3...Bg7 4.Rd2 d6 5.Bd3 c5 6.c3
Rc6 7.h4!? h5 8.Rgf3 0–0 9.Rh2!?
--
Björn undirbýr kóngssókn, enda
virðist staða hans ekki bjóða upp á
mikla möguleika, eftir rólegri leiki,
t.d. 9.Dc2 cxd4 10.exd4 He8 11.0–0
Dc7 12.Hae1 Bg4 o.s.frv.
9...cxd4 10.cxd4 e5 11.d5 Rb4
12.Be4 Db6 13.Bxf6 Bxf6 14.g4!?
--
Til greina kemur 14.a3 Ra6
15.Rc4 Dc7 16.Hc1 Rc5, t.d.
17.Bb1 b5 18.Rd2 Dd7 19.b4 Ra4
20.Df3 Bg7 21.Re4 f5 22.Rg5 með
betra tafli fyrir svart.
14...Bxh4 15.De2 hxg4
Svartur hefði getað leikið 15...f5,
sem leiðir til flókinnar stöðu, eftir
16.gxf5 Bxf5 17.Rhf3 Bxe4
18.Rxe4 Hac8 19. Rxh4 (19.Rc3
Hxf3 20.Hxh4 Hcf8) 19. -- Rc2+
20. Kd1 Dxb2 21. Hc1 Dxc1+ 22.
Kxc1 Rd4+ 23. Kd2 Rxe2 24. Kxe2
(24. Rxg6 Rc3) 24. -- Hc2+ 25.
Kd3 Hxa2 26. Rxg6 og hvítur
stendur betur.
16.a3 Ra6 17.Rxg4 Bg5 18.Df3
Kg7
19.Bxg6!? fxg6 20.Dh3 Hg8
21.Re4 Bxg4 22.Dxg4 Be7 23.Rg5!
Bxg5 24.Dd7+ Kf8?
Eftir 24...Kf6 verður hvítur að
taka þráskákina: 25.De6+ (25.Hh7
Bxe3 26.f3 Da5+ 27.b4 Dxd5
28.De7+ Kf5 29.Dd7+ Kg5
30.De7+) 25...Kg7 26.Dd7+
o.s.frv.
25.Hh7 Da5+ 26.b4 Dxd5
27.Hd1? --
Eftir 27.Hc1! vinnur hvítur létt,
t.d. 27...Bd8 28.Hc8 Hxc8 29.Dxc8
Hg7 30.Dxd8+ Kf7 31.Dd7+ Kf6
32.Dxg7+ Kf5 33.f3! Dxf3 34.Df7+
Ke4 35.Hh4+ Kxe3 36.Db3+ mát.
27...Hd8 28.Hxd5? --
Eftir 28.Dg4 Df7 (28...Dc6
29.Dxg5 Hd7 30.Df6+ Ke8
31.De6+ Kd8 32.Dxg8+ Kc7
33.Hxd7+ Kxd7 34.Df7+ Kd8
35.b5 Dc7 36.Dg8+ Kd7 37.bxa6)
29.Hxf7+ Kxf7 30.Dxg5 á hvítur
góðar vinningshorfur.
28...Hxd7 29.Hxd7 Hg7
30.H5xd6 Rb8 31.Hd8+ Bxd8
Eftir 31...Ke7 32.Hd1 Rc6
33.H8d7+ Kf8 34.Hxg7 Kxg7
35.Hd7+ Kf6 36.Hxb7 , ásamt 37.
b5 og Hxa7 stendur hvítur betur.
32.Hxd8+ Ke7 33.Hxb8 Kd6
og skákinni lauk með jafntefli 20
leikjum síðar.
Aðalfundur TR 13. sept.
Aðalfundur Taflfélags Reykja-
víkur 2001 verður haldinn fimmtu-
daginn 13. september í félagsheim-
ilinu Faxafeni 12, Reykjavík.
Fundurinn hefst kl. 20:00. Dag-
skrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf,
2. Önnur mál
SKÁK
H a f n a r f j ö r ð u r
SKÁKÞING ÍSLANDS
31.8.–8.9. 2001
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Harpa
Ingólfsdóttir
Hannes Hlífar
Stefánsson
Hannes Hlífar tekur forystuna
BROSTE - HAUST 2001
Sjafnarblóm, Selfossi
Huggulegt
heima....
er heitast
í dag
SÍÐASTI
DAGUR
ÚTSÖLUNNAR
Á MORGUN
Raðgreiðslur
Victoria Antik Síðumúla 34 Sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Opið mán.-fös. kl. 12-18,
lau. kl. 11-16.