Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 21
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 21
RÍO og Buenos Aires
á verði sólarlandaferðar í Evrópu í sumarsól á suðurhveli í nóv. 2001
RIÓ de Janeiro - fegursta borg heims – höfuðborg hins ljúfa lífs!
Iguazu-fossar - kannski fegursta náttúruundur heimsins?
Buenos Aires - Ein mesta glæsiborg heimsins höfuðborg
S.Am. lista- og menningar
Veldu aðra eða báðar skemmti-
legustu borgir heims á ótrúlegri
kjörum en heyrst hafa og stíl
Heimsklúbbsins með Ingólfi og
völdum farar-stj. 14./15. nóv. -
10 ógleymanlegir dagar beint
um London (1 millilending), frá-
bært flug með BA/VARIG.
Fá sæti laus á tilboði - frá kr.
149.900 + flugvsk., gildir aðeins
til 12. sept!
PÖNTUNARSÍMI 562 0400
GRÍPTU EINSTAKT TÆKIFÆRI!
Bætum nú við 20 sætum í:
Suður-Ameríkuævintýri
MEÐ nýjum lögum um lausafjár-
kaup, sem tóku gildi í júní sl., var al-
mennur ábyrgðartími lengdur úr
einu ári í tvö ár. Með þessum breyt-
ingum hefur réttarstaða íslenskra
neytenda stóraukist
og er nú orðin sam-
bærileg við stöðu neyt-
enda á Norðurlöndum.
Geir Marelsson, lög-
fræðingur Neytenda-
samtakanna, segir
samtökin hafa haft
samband við ákveðnar
verslanir eftir að lögin
tóku gildi til að kanna hvort kvitt-
unum hefði verið breytt þannig að
ábyrgð væri í samræmi við lögin og
kom í ljós að svo var ekki í sumum
tilvikum. Að sögn Geirs kvörtuðu
margir undan því að þessi löggjöf
hafi ekki verið nægilega kynnt.
Lögin kynnt ítarlega í haust
Atli Freyr Guðmundsson, skrif-
stofustjóri viðskiptaráðuneytisins,
sagði aðspurður að vegna anna
starfsmanna ráðuneytisins hefðu
nýju fjárkaupalögin og þær réttar-
bætur sem þeim fylgja enn ekki ver-
ið kynnt. „Í byrjun vetrar verður þó
haldin ráðstefna þar sem lögin verða
ítarlega kynnt og til þess fengnir
ýmsir sérfræðingar á þessu sviði,“
sagði Atli. Auk þess verður von bráð-
ar gefið út kynningarefni þar sem
lögin verða kynnt fyrir neytendum.
Morgunblaðið kannaði hvernig
gengið hefði hjá tölvufyrirtækjum að
tileinka sér þessi ákvæði í nýju lög-
unum.
Pétur Bauer, heildsölustjóri Op-
inna kerfa hf., segir nýju lausafjár-
kaupalögin mikinn
sigur fyrir neytendur
„en samt er enginn að
tala um þetta,“ segir
hann. „Þessi lög
læddust í gegn hér á
Íslandi og við fengum
engan fyrirvara um
þetta,“ bætir hann
við. „Hjá okkur eru
allar þær vörur sem ekki voru með
þriggja ára ábyrgð fyrir komnar
með tveggja ára ábyrgð, við breytt-
um þessu um leið og lögin tóku
gildi.“
Valdimar Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hugvers ehf., tekur í sama
streng og segir að hjá verslun hans
hafi regla um tveggja ára ábyrgð á
vörum verið tekin upp um leið og
lögin tóku gildi. „Ég tel þó að þetta
hafi verið kynnt minna en efni
standa til,“ sagði hann.
Hjá EJS hf. fengust þau svör að
þessi mál væru í skoðun í verslun-
inni. „Við höfum leitað álits lögfræð-
inga um málið en erum ekki komin
að endanlegri niðurstöðu,“ sagði
Snorri Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri sölusviðs. Hann sagðist þó
vonast til þess að nýjar reglur um
ábyrgðartíma kæmust til fram-
kvæmda fljótlega.
Minnst tveggja ára ábyrgð með
nýjum lögum um lausafjárkaup
Neytendur
kvarta vegna lé-
legrar kynningar
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is