Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 45 ist ég allra frábæru stundanna sem við höfum átt. Í dag gæfi ég mikið fyrir að fylgj- ast með þér mála eða hlusta á þig segja sögur frá því í gamla daga, það getur enginn sagt jafn margar sögur og þú, og síðast en alls ekki síst, haft þig hjá mér. Allar þessar stundir hafa verið frábærar. Ég vona að þú hafir það gott hjá mömmu þinni og pabba. Þótt líkami þinn sé hættur að starfa, veit ég að þú lifir áfram. Mér hefur alltaf þótt rosalega vænt um þig og þykir enn. Eins og þú sagðir alltaf við mig og fleiri og hlóst dátt, megi guð vera með þér því að ég má ekki vera að því. Takk fyrir allt sem þú hefur gert. Þitt barnabarnabarn, Dagur Snær. Alltaf er maður jafn óviðbúinn þegar kallið kemur. Mig óraði ekki fyrir því að það yrði síðasta samtalið okkar Hilmars þegar ég heimsótti hann á Landspítalann hinn 27. ágúst sl. Mig langar að setja á blað nokkur minningabrot af löngum og góðum kynnum mínum af þessum mæta manni. Það munu vera 70 ár síðan fund- um okkar bar fyrst saman. Það var sumar og sól þegar Jóhanna systir mín kom heim að Kirkjuskógi eftir vetrardvöl í Reykjavík, með kær- asta. Hann var aðeins 18 ára gamall, myndarlegur, hár og grannur, en ég var þá tíu ára. Það var mikill fengur fyrir mig í fábreytileikanum í sveit- inni að fá svona heimsókn, enda vor- um við orðnir perluvinir eftir hálfan mánuð. Þessi ungi maður var fljótur að kynnast fólkinu og vildi strax taka þátt í sveitastörfunum með því. Var það vel þegið því allt var unnið með handafli í þá daga. Hilmar var borg- arbarn sem hreifst af sveitalífinu og þetta var fyrsta ferðin hans í Dalina, en þær áttu eftir að verða fleiri og var hann þar ávallt aufúsugestur. Oft var hann ekki fyrr kominn úr rútunni en hann var kominn í vinnu- gallann og vildi fara að dytta að ein- hverju. Hilmar var sérstakur persónu- leiki. Ég held það hafi verið ytri að- stæður sem gerðu hann ungan að mjög ábyrgum manni. Hann varð að aðstoða móður sína sem varð ekkja ung og með stóran barnahóp. Hann lærði mikið í þeim lífsreynsluskóla og meðal annars það að fara vel með það litla sem úr var að spila. Fyrstu hjúskaparárin leigðu þau hjónin lengst af á Grettisgötu 71. Ár- ið 1945 keyptum við saman íbúð á Kárastíg 10, fjögur lítil herbergi undir súð með sameiginlegu eldhúsi. Þarna bjuggum við saman í rúm tvö ár, þau með tvö börn og við með eitt. Ég keypti síðan hans hlut í íbúðinni er þau fluttu að Öldugötu 52, en þar bjuggu þau þar til þau fluttu í smá- íbúðahverfið í Melgerði 6 og börnin þá orðin þrjú. Það var hans stóri draumur að byggja sér hús og það tókst með dugnaði og eljusemi og með hjálp góðra manna eins og hann sjálfur orðaði það. Þarna leið fjöl- skyldunni vel og sagðist hann ekki flytja þaðan meðan ævin entist. Sú varð raunin. Vinnan, heimilið og fjöl- skyldan var honum allt. Sýndi hann börnum sínum og barnabörnum al- veg sérstaka umhyggjusemi. Á Rafmagnsveitu Reykjavíkur unnum við saman í tæp 40 ár og vann hann lengst af sem innheimtugjald- keri eða til 67 ára aldurs. Hilmar þekkti vel og mundi sögu gamalla húsa í borginni og það hverj- ir hefðu búið í þeim og skráði hjá sér sumt af því. Hann las mikið í tóm- stundum og hafði mikinn áhuga á leiklist. Hann unni Íslandi og vildi ferðast um landið en sólarlandaferð- ir voru ekki á hans óskalista. Við Hilmar flugum eitt sinn saman til Vestmannaeyja eftir gosið 1973 til að skoða þær miklu náttúruhamfarir sem þar höfðu orðið. Við gengum á heitu landi sem þar hafði myndast og bæst við eyjarnar, það var stórkost- legt. Að leiðarlokum þökkum við Ragna og fjölskylda okkar vináttu og tryggð í gegnum árin. Víglundur Sigurjónsson. ✝ Gunnar Eyþórs-son fæddist í Reykjavík 23. júní 1940. Hann varð bráðkvaddur á heim- ili sínu, Seljavegi 27 í Reykjavík, 18. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru hjónin Valgerður Eva Vil- hjálmsdóttir, f. 23. júní 1912, d. október 1975, og Eyþór Gunnarsson, háls-, nef- og eyrnalæknir, f. 24. febrúar 1908, d. 12. ágúst 1969. Systkini Gunnars eru Jó- hanna, f. 1937, Vilhjálmur, f. 1944, og Sigurður, f. 1948. Fyrri eiginkona Gunnars var Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, f. 1941. Þau skildu árið 1972. Börn þeirra eru: 1) Pétur, f. 1960, blaðamaður, kvæntur Önnu Mar- gréti Ólafsdóttur, leikskólakenn- ara. Börn þeirra eru: Ragnheiður Ásta, f. 1980, Anna Lísa, f. 1983, og Pétur Axel, f. 1995. 2) Eyþór, f. 1961, hljómlistarmaður, sam- býliskona hans er Ellen R. Krist- jánsdóttir, söngkona. Börn þeirra eru: Sigríður, f. 1981, Elísabet, f. 1986, Elín, f. 1990, og Eyþór Ingi, f. 1997. 3) Birna Guðrún, f. 1965, fornleifafræðingur, starfsmaður Íslensku kvikmyndasamsteyp- unnar. Býr í Reykja- vík. Sambýliskona Gunnars frá 1976 til dauðadags var Hjör- dís Guðbjartsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur, f. 1933. Gunnar lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1960 og stundaði að því loknu nám við læknadeild og nám í þýsku og frönsku við heimspeki- deild Háskóla Íslands en hvarf frá námi. Frá 1964–1970 starfaði hann sem kennari við Vogaskóla, Kópavogsskóla og Matreiðslu- og veitingaþjónaskólann en réðst til starfa á fréttastofu Ríkisútvarps- ins árið 1970 og starfaði þar þangað til í árslok 1980. Þá starf- aði hann um nokkurra ára skeið hjá Menningarsjóði meðan unnið var að útgáfu Orðabókar menn- ingarsjóðs. Síðustu ár stundaði hann ýmiss konar ritstörf og textagerð á eigin vegum, auk þess að skrifa reglulega um er- lend málefni í DV. Að ósk Gunnars var útför hans gerð í kyrrþey. Bálför fór fram frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 29. ágúst. Auðtrúa þú aldrei sért, aldrei tala um hug þinn þvert. Það má kalla hyggins hátt að heyra margt, en skrafa fátt. Svo orti Hallgrímur Pétursson (1614–1674) mönnum til varúðar og tel ég að orðvarir fréttamenn hafi tek- ið þau sér að hjarta. Gunnar Eyþórs- son var einn þeirra mætu frétta- manna af gamla skólanum sem nú hefur sagt sitt síðasta og er mikill sjónarsviptir að þeim manni. „Undarlega útdeilir guð sínum gáf- um,“ segir máltækið, en gáfa þýðir gjöf. Gunnar var mörgum góðum gáf- um gæddur. Honum var gefið að skilja, skýra og skilgreina fréttir og fróðleik og þótti mjög rökfastur mað- ur. Hann gerði greinarmun á aðalat- riðum og aukaatriðum og virti þagn- arskyldu fréttamannsins svo vel að hann lét hjá líða að ympra á ýmsu um einkahagi fólks sem hefði verið að skaðlausu. En Gunnar hafði varann á og lét ekkert uppi þó hann vissi allt um alla eins og góðum fréttamanni sæmir og flíkaði því ekki. Þetta kom mér á óvart verð ég að játa. Flestir láta sér í léttu rúmi liggja að afhjúpa aðra en ekki Gunnar. Einhverju sinni lét ég móðan mása um kynni mín af Pétri og Páli en Gunnar dempaði um- ræðuna með því að segjast hafa vitað allt um það en bara ekki viljað tala um það samanber vísu Hallgríms Péturs- sonar og seinna orð Einars Bene- diktssonar skálds: Láttu smátt en hyggðu hátt. Þarf að segja meira? Varla. Þó vil ég bæta við að þó fólki sé flest til lista lagt þá getur feimni, hlédrægni og hógværð hamlað því svo og heft á alla lund að það fái ekki notið sín sem skyldi. Þetta vill oft gleymast. Hlé- drægir njóta sín vissulega vel að tjaldabaki og eru alltaf boðnir og bún- ir að hjálpa öðrum sem eru mislagðar hendur og jafnvel getulausir með öllu en vilja gjarnan hirða hrósið og sviðs- ljósið. Gunnar hafði sig lítt í frammi. Margir þáðu þó margan greiðann af honum enda bóngóður til bjargar og greiddi líka fyrir bræðrum sínum þegar mikið lá við. Það mátti hann eiga. Hann stóri bróðir. Gunnar Eyþórsson útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1960. Á námsárum sínum gerði hann skopmyndir af nemendum og kenn- urum í Fánu. Þóttu þær sérlega vel heppnaðar. Seinna var svo leitað til hans með að myndskreyta Gaman- semi Egluhöfundar sem hanngerði af stakri prýði eins og annað sem hann fékkst við. Engum blöðum er um það að fletta að skrif Gunnars um erlend málefni fyrir DV báru af öðrum sem reyndu fyrir sér á þeim vettvangi. Það stirndi á falleg vinnubrögð, afbragðs tök á ís- lensku máli juku á samanþjappaðan fróðleik svo ekki varð betur gert. Gunnar Eyþórsson var stoltur og vandur að virðingu sinni eins og hann átti kyn til. Hann lætur eftir sig vel uppalin, öguð og mannvænleg börn, þau Pétur fréttastjóra, Eyþór píanóleikara og Birnu fornleifafræðing sem með heiðri og sóma bera harm sinn í hljóði. Ég sendi þeim öllum og Hjör- dísi, eftirlifandi sambýliskonu Gunn- ars, innilegar samúðarkveðjur. Jó- hanna, Vilhjálmur og Sigurður Eyþórsbörn sakna bróður í stað. Ég samhryggist. Hvíl í friði. Ingibjörg Elín Sigurbjörnsdóttir. Við Gunnar vorum vinir í næstum hálfa öld, og sannarlega finnst mér tilveran fátæklegri nú þegar hann er genginn. Aldrei framar mun ég hringja í hann til að „slá upp í hon- um“, til dæmis um íslenzkt eða erlent orð, sögu, eða utanríkismál. Aldrei framar munum við rabba rólega sam- an um lífið og tilveruna. Og ómetan- leg hjálparhella reyndist Gunnar Helgu, konu minni, þegar hún var að vinna flettur um sögu ýmissa landa í Alfræðibók Arnar og Örlygs. Gunnar var ákaflega vel að sér, stálminnugur, víðlesinn og fróður. Og það var gott að tala við hann, því honum lá ekkert á seinni árin – hann hafði snúið baki við brölti heims- ins og streitu fréttastofunnar nema sem áhorfandi. Hann sat lengstum heima, las erlend tímarit eða horfði á erlendar fréttastöðvar í sjónvarpinu. Ávaxta af þessu áhugamáli hans fengu lesendur DV að njóta annað veifið í greindarlegum og upplýstum pistlum hans um utanríkismál, þar sem hann varpaði í örstuttu máli skýru ljósi á málefni sem áður virtust þoku hulin þrátt fyrir linnulausan fréttaflaum. Auk þessa tók hann að sér ýmis verkefni við ritstörf og þýð- ingar. Vafalaust var Gunnar langfremst- ur þeirra að kunnáttu og skarpleik sem um utanríkismál hafa fjallað hér á landi á síðari árum. Fréttaflutning- ur, ekki sízt um utanríkismál, er eins og kunnugt er að stórum hluta áróð- ursstríð, og flestir fjölmiðlar og fjöl- miðlamenn hér á landi gera sér að góðu að gleypa hrátt það sem stóru (áróðurs)fréttastofurnar rétta að þeim. Í þeirri sýndarveröld takast á hið góða og illa, hvíta og svarta, Við (NATÓ) og Þeir (makt myrkranna), og venjulega man enginn neitt deg- inum lengur – frétt dagsins í dag skákar frétt gærdagsins út í horn. Pistlar Gunnars voru af allt öðru tagi, sýn hans á málin miklu víðari, því hann þekkti sögu og framvindu hvers máls. Ekki veit ég hversu mikil áhrif greinar Gunnars höfðu – ein rödd í hrópandi kór „upplýsingabyltingar- innar“ – en ólíklegt þykir mér að ráða- eða áhrifamenn vorir hafi látið svo lítið að lesa þær. „Ignorance is strength“ eins og svínin á Dýrabæ sögðu. Gunnar Eyþórsson var maður mik- illa hæfileika, góður námsmaður, prýðilegur málamaður, afburða teiknari. Ungur ætlaði hann, eða var ætlað, að verða læknir eins og faðir hans, en heyktist á því eftir fá ár í læknadeild. Hann var þá orðinn fjöl- skyldumaður, gerðist kennari í ára- tug eða svo og síðan fréttamaður hjá útvarpinu. Þar nutu hæfileikar hans sín vel og meðal hápunkta í ferli sín- um taldi hann vera fréttamannsferðir sínar til útlanda með utanríkisráð- herrum á tímum þorskastríðanna. En Gunnar átti drösul að draga sem var Bakkus sjóli, og um hríð virtist svo sem uppþurrkunarkúrar hrinu ekki á honum. Vafalaust olli það því að lífs- hlaup hans varð krókóttara en ella hefði orðið, hann hætti á fréttastof- unni og hvarf loks af vinnumarkaðn- um. En svo birtist nýtt ljós í tilveru Gunnars, hann hóf sambúð með Hjör- dísi Guðbjörnsdóttur og að eigin sögn voru síðustu tólf ár ævinnar hin ham- ingjusömustu í lífi hans. Þau Hjördís voru vinir og félagar, ferðuðust tals- vert utanlands og innan, ró og öryggi einkenndi heimilishaldið. Auk þess hélt Gunnar góðu sambandi við myndarbörn sín þrjú og barnabörn. Að leiðarlokum er mér efst í huga hve góður maður og mildur Gunnar var. Hann var heljarmenni að burðum og eins og margir sem ekki vita krafta sinna tal var hann ákaflega meinlaus og óáreitinn. Kannski var hann of mildur fyrir þennan heim, of auð- særður. Við Helga kveðjum Gunnar með djúpum söknuði og vottum ást- vinum hans samúð. Sigurður Steinþórsson. Hann var fimm ára gamall þegar ég kynntist honum fyrst. Við vorum jafnaldrar og áttum heima í Holtun- um, nánar tiltekið í Stórholtinu. Þá var byggðin þar umkringd auðum svæðum og nokkurs konar þorp í borginni. Allir þekktu alla. Hann varð snemma stærri vexti, sterkari og þreknari en aðrir og honum var strítt fyrir það. Vitundin um eðli og skað- semi eineltis ekki eins almenn þá og nú og hefði vafalaust verið betra fyrir Gunnar ef hann hefði notið meiri skilnings og tillitssemi jafnaldra sinna. Á þessum erfiðu árum hans hygg ég þó að hafi mótast það hug- rekki og sú einbeitni, sem einkenndi hann alla tíð; að láta ekki deigan síga, heldur takast á við umhverfið, vera hann sjálfur og óragur við að leita þekkingar og staðreynda og miðla þeim, en láta ekki aðra stjórna skoð- unum sínum. Hann fór snemma sínar eigin leiðir ef nauðsynlegt reyndist að synda gegn straumnum og efldi styrk sinn í stað þess að bogna. Enn er mér í minni eitt dæmi um það. Faðir hans var læknir og einn af fáum Íslend- ingum á þeim árum sem fengu leyfi til að kaupa sér bíl. Eitt sinn ók Gunnar læknisbílnum, löngu fyrir bílprófsald- ur, með vindil í munni niður Stórholt- ið. Það var stutt ökuferð en áhrifa- mikil. Ég fann fljótlega, að á bak við þann varnarmúr, sem hann neyddist stundum til að reisa í kringum sig, var góður drengur og sannur vinur. Hann var fljótur að læra erlend tungumál og byrjaði snemma að lesa erlend blöð. Við vorum ekki saman í skóla fyrr en í Gaggó Lind en þá tókst með okkur vinátta sem entist æ síðan. Í M.R. urðum við sessunautar í 3ja bekk og dunduðum okkur við að teikna í tímum. Ég teiknaði bíla en hann kennarana. Myndir hans voru frumstæðar til að byrja með. En hann teiknaði kennarana aftur og aftur í hverjum tíma allan veturinn og ég undraðist framfarirnar. Með þessari áköfu ástundun varð hann snilldar karikatúrteiknari, einn sá besti sem Íslendingar hafa eignast. Einn kenn- arinn átti til að tárast þegar nemend- ur voru kvikindislegir við hann. Gunnari var falið að teikna mynd af kennaranum í Faunu. Hann brá á það ráð að ýkja andlitsdrættina ekkert, heldur náði snilldarlega þeim svip, sem þessi kennari hafði, rétt áður en hann táraðist. Sagt er að þegar kenn- arinn hafi séð myndina hafi hann tár- ast. Hjá Gunnari varð lestur blaða, tímarita og bóka að jafnvel enn meiri ástríðu en teiknunin. Það bar ávöxt þegar hann tók að fjalla um erlend málefni í fjölmiðlum. Hann lét ekki hina hefðbundnu erlendu fjölmiðla og fréttastofur mata sig eingöngu heldur leitaði sjálfstætt að staðreyndum víða um lönd. Nú eru þeir tímar sem við ís- lenskir fjölmiðlamenn verðum að sæta því að mega okkar oft lítils við mötun öflugra fyrirtækja, sem stunda auglýsingar og almanna- tengsl, enda margir hinna færustu í okkar hópi gengnir þeim á hönd. Þá eru það harmatíðindi að einn hinna fáu, sem höfðu þekkingu, þor og kjark til að synda á móti þessum straumi, skuli vera burt kallaður um aldur fram. Ég hygg að síðar meir muni margt það, sem Gunnar Eyþórsson lét frá sér fara verða talið meðal þess besta sem íslensk blaðamannastétt hefur gert. Ekki fann hann alltaf hinn endanlega sannleika fremur en aðrir dauðlegir menn, en mig grunar að stundum mættum við kollegar hans taka okkur til fyrirmyndar ástríðu- fulla leit hans að því sem sannast reyndist og kjarkinn til koma því á framfæri. Ég færi ættingjum og ást- vinum Gunnars samúðarkveðjur og sakna sáran eins af fyrstu æskuvinum mínum. Ómar Þ. Ragnarsson, fréttamaður. Örfáum orðum langar mig að kveðja skólabróður minn og vin, Gunnar Eyþórsson, og þakka honum einkar trausta og góða samfylgd. Gunnar var fríður sýnum, sterkleg- ur og vörpulegur, prýðilegum gáfum gæddur, margfróður og skýr í hugs- un. Sterkur persónuleiki með virð- ingu og reisn, hógvær, tjáningar- formið meitlað og sparneytið. Svipmótið gat verið hvasst og gefið um stundarsakir villandi hugboð um manninn sjálfan. Í raun var Gunnar góðvildin og hjálpsemin holdi klædd, en jafnframt viðkvæmur, hlédrægur og dulur. Hygg ég að hið innra með Gunnari hafi leynst allsár og djúprættur tregi frá unga aldri, sem sorfið hafi af sjálfsímyndinni og hamlað því að hæfileikar hans fengju notið sín sem skyldi. Samt vöktu þeir mikla athygli. Gunnar var teiknari í bestu merk- ingu þess orðs. Klassískar eru sumar kímnimyndir hans (karíkatúr), og hefði hann lagt listgrein þessa fyrir sig, hefði hann án vafa orðið yfir- burðamaður á þessu sviði. Kunnastur er Gunnar fyrir umfjöllun sína um er- lend málefni í útvarpi og blöðum. Hún einkenndist af söguþekkingu og heildarsýn, en jafnframt af hæfni til sundurgreiningar (analýsu) og fag- legu innsæi. Jafnframt þorði hann að skýra og túlka efnið frá víðu persónu- legu sjónarhorni svo menn fengu skil- ið og lögðu við hlustir. Þetta eru eng- ar vinarýkjur, heldur staðreynd sem fjölmargir dómbærir menn hafa haft á orði gegnum tíðina. Formskyn, söguskilningur, mál- kennd, allt var það í sínum stað. Gunnar þýddi á og úr íslensku og veitti ýmsum dýrmæta aðstoð við samningu og textagerð. Sem auðvitað fór lágt. Nú myndi Gunnar hafa beðið mig að fara að hætta. „Ekki meir, ekki meir …“ Sjálfur var hann gagnorður og agaði mál sitt eins og áður segir. Óþarfadrættir voru hvorki í myndum hans né skrifum. Hvergi pírumpár. Hið innra var hann næmur og fín- gerður, unni tónlist og skáldskap, ekki síst Einars og Steins sem og dýrt kveðnum vísum. Minningunni um Gunnar vil ég til- einka hringhendu Péturs Jónssonar frá Nautabúi: Fjör og máttur fjara brátt, feigð í gáttum kvikar. Lyftum hátt við lokaþátt lífsins sáttabikar. Magnús Skúlason. GUNNAR EYÞÓRSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.