Morgunblaðið - 06.09.2001, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 9
Ný sending
Léttir jakkar, síðbuxur
og peysubolir
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
á horni Laugavegs og Klapparstígs,
sími 552 2515
Sprengitilboð á sófum
2 fyrir 1
Verð áður 280.000 kr.
Verð nú 140.000 kr.
Litir: Steingrár,
rauður, ljósbeige
Takmarkað magn
Sígild verslun
H A U S T F E R Ð T I L U N G V E R J A L A N D S
BUDAPEST Í VIKU
– saga og mannlíf
Brottför þriðjudaginn 16. október
Frá þriðjudegi til þriðjudags
Flogið með Flugleiðum til Kaupmannahafnar
og þaðan áfram með SAS til Búdapest.
Fararstjórn og leiðsögn
Fararstjóri verður Emil Örn Kristjánsson,
sem er vel kunnugur sögu og staðháttum.
Að morgni fyrsta dags er farið í skoðunar-
og kynnisferð um Budapest til að farþegar
kynnist borginni og því sem þar er eftirtektar-
verðast. Einnig verður í boði dagsferð til
Szentendre og Visegrad auk ferðar út á
sléttuna miklu.
Matur og veigar
Ungversk matargerð er heimskunn
og í Budapest er fjöldi veitingahúsa
með góðan mat og þjónustu
– ekki spillir verðið!
Drottning Dónár, litla París
Glæsilegar breiðgötur, fagrar byggingar og
fallegir garðar setja svip sinn á borgina sem stór-
fljótið Dóná skiptir í borgarhlutana Buda og Pest.
VERÐ Á MANN 75.600 KRÓNUR
Innifalið: Flug um Kaupmannahöfn til og frá
Budapest, flugvallaskattar, akstur til og frá flugvelli
erlendis, gisting á Hótel Liget (rétt við Hetjutorgið í
Pest) í 2ja manna herbergi í 7 nætur, morgunverður,
skoðunarferð um Budapest og íslensk fararstjórn.
Aukagjald fyrir eins manns herb. er 12.100 krónur.
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www.gjtravel.is
netfang: outgoing@gjtravel.is
75.600
Laugavegi 56, sími 552 2201
www.englabornin.com
Útsala
10-40% afsláttur
Verslunin Palazzi, Faxafeni 9,
sími 562 4040.
Dragtir kr. 15.800
Stærðir 36—56. Litir: Svart og camel
VATNSDALSÁ hefur verið nokkuð
lífleg síðsumars og er komin með
mun hærri tölu en allt síðasta sumar.
Þá veiddust aðeins tæpir 300 laxar,
en eru nú orðnir um eða yfir 500.
Þær upplýsingar fengust í Flóð-
vangi, veiðihúsinu við Vatnsdalsá, í
gærdag, að hollið sem lýkur veiðum
á hádegi í dag hefði fengið að með-
altali 5–6 laxa á dag. Hollunum á
undan gekk betur, þriggja daga holl
Íslendinga var t.d. með um þrjátíu
fiska og útlendingar sem veiddu í sex
daga voru með 56 laxa. Þó nokkur
50–60 laxa holl hafa verið í ánni um
og eftir hásumar. Síðustu daga hafa
að auki þó nokkrir stórlaxar verið
dregnir á land, 20 til 22 punda fiskar.
Kropp í Laxá á Ásum
Peta Jakobsdóttir, íhlaupaveiði-
vörður við Laxá á Ásum, sagði í sam-
tali í gærdag að um 560 laxar væru
komnir á land úr ánni og hefði geng-
ið bærilega síðustu daga. Nýlega
hefðu veiðst níu laxar í tveggja daga
holli og menn sem voru einn dag þar
á undan voru með sex laxa, þar af
einn 16 punda.
Veiði lýkur í ánni á hádegi nk.
sunnudag. Alls veiddust 760 laxar í
ánni í fyrra og verður að teljast ólík-
legt að áin nái þeirri tölu nú.
Skot hér, skot þar
Enn eru að veiðast laxar og sil-
ungar vítt og breitt um landið. Veiði-
maður nokkur fékk t.d. sjö laxa einn
daginn í Korpu fyrir skemmstu og
taldi mikinn lax á ferðinni. Korpa
verður slöpp í langvarandi bjartviðri,
en gefur oft vel í misjöfnum veðrum.
Þá voru nýverið menn í Soginu
fyrir landi Alviðru og settu í sjö laxa
og náðu þar af fjórum. Var talsverð-
ur lax, en tók illa að mati umræddra
veiðimanna. Sitt sýnist hverjum, ein-
hverjum þætti laxinn taka bara vel
eftir að hafa sett í sjö á einum degi.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Vatnsdalsá
braggast
Morgunblaðið/gg
Sjóbirtingur úr Laxá í Kjós.