Morgunblaðið - 06.09.2001, Qupperneq 14
AKUREYRI
14 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ í endurbætur á Hafnar-
stræti/göngugötu á Akureyri, sem
opnuð voru í gær, voru enn vel yfir
kostnaðaráætlun. Verkið var boðið
út í annað sinn, nú í lokuðu útboði
milli þeirra tveggja aðila sem buðu í
verkið í byrjun síðasta mánaðar.
G. Hjálmarsson hf. átti enn lægra
tilboðið í verkið, bauð sömu tölu og
síðast, tæpar 49 milljónir króna, eða
133% af kostnaðaráætlun.
GV-gröfur ehf. lækkuðu sitt fyrra
tilboð um tvær milljónir, í rúmar 62
milljónir króna, sem er um 168% af
kostnaðaráætlun en fyrra tilboð fyr-
irtækisins var um 175% af kostnað-
aráætlun. GV-gröfur sendu nú einn-
ig inn þrjú frávikstilboð, sem voru
frá rúmum 43 milljónum króna, upp í
tæpar 48 milljónir króna.
Með ólíkindum hvernig að
málinu hefur verið staðið
Guðmundur Hjálmarsson verk-
taki sagðist hafa farið yfir sitt fyrra
tilboð og ekki séð ástæðu til að
breyta því nú. „Ég vil standa við mitt
tilboð og kem til með að gera það.
Menn verða að vera trúverðugir og
ég ætla ekki að vera að flökta með
tölur. Það er hins vegar með ólík-
indum hvernig að þessu máli hefur
verið staðið,“ sagði Guðmundur.
Framkvæmdaráð Akureyrarbæj-
ar hafnaði báðum tilboðunum, sem
bárust í verkið, á fundi sínum 13.
ágúst sl. Þá var jafnframt ákveðið að
fara yfir hönnun götunnar á nýjaleik
og bjóða verkið út aftur. Hálfum
mánuði síðar samþykkti fram-
kvæmdaráð að leggja til við bæjar-
ráð að gengið yrði til samninga við
lægstbjóðanda, G. Hjálmarsson hf.,
á grundvelli tilboðs fyrirtækisins og
þá með tilliti til þeirra breytinga sem
nauðsynlegt væri að gera á hönnun
verksins.
Málið fyrir bæjarráð í dag
Þessu hafnaði bæjarráð á fundi
sínum í síðustu viku og samþykkti að
bjóða verkið út að nýju í lokuðu út-
boði milli þeirra tveggja aðila sem
buðu í verkið.
Ármann Jóhannesson sviðsstjóri á
tækni- og umhverfissviði sagði að
mál þetta yrði á dagskrá bæjarráðs í
dag, fimmtudag, og að stefnt væri að
því hefja framkvæmdir við götuna
nú í haust.
Endurtekið útboð í Hafnarstræti/
göngugötu á Akureyri
G. Hjálmars-
son enn með
lægra tilboðið
„ÞETTA var svolítið
áfall, svona rétt eftir
sumarfrí. Þetta kom mér
á óvart, ég átti ekki von á
þessu,“ sagði Bára Waag
Rúnarsdóttir einn þeirra
starfsmanna Skinnaiðn-
aðar hf. á Akureyri sem
sagt var upp störfum um
nýliðin mánaðamót.
Alls var 37 starfs-
mönnum fyrirtækisins
sagt upp störfum en þeir
voru í 34 stöðugildum. Þá
hefur verklagi verið
breytt á þann veg að sem
mest er unnið á dagvakt,
en kvöldvaktin hefur þó
ekki að öllu leyti verið lögð niður.
Uppsagnarfrestur er frá einum og
upp í þrjá mánuði. Til uppsagna var
gripið vegna óvissu sem ríkir á helstu
mörkuðum fyrir fullunnin skinn sem
og einnig óvissu um hráefnisöflun nú
á haustdögum.
Sér eftir að hafa ekki
farið í skóla í haust
Halldór Ásmundsson hefur unnið
hjá Skinnaiðnaði í þrjú og hálft ár, en
fékk uppsagnarbréf nú. „Mér hefur
líkað vel að vinna hérna, andinn er
góður og starfið fínt, þannig að maður
hættir hér með nokkurri eftirsjá,“
sagði Halldór.
Hann sagðist hafa orðið var við
samdrátt fyrir sumarfrí og grunaði
hvað í vændum var. „Ég veit ekki
hvað tekur nú við, ætli maður skoði
ekki byggingarvinnu eða eitthvað
svoleiðis, en langbest væri að komast
á sjó,“ sagði Halldór. Hann kvaðst
hafa velt því fyrir sér í haust að hefja
nám að nýju í framhaldsskóla þar sem
hann hefur lokið tveimur árum, en
hætti við. „Ég sé eftir því núna að
hafa ekki látið slag standa og byrjað í
skólanum, en við því er ekkert að
gera.“
Halldór hefur farið á nokkra staði í
atvinnuleit, en ekkert er enn komið út
úr því. „Það er möguleiki á Strýtu, en
ekkert að hafa í slippnum eða hjá Vik-
ing og svo vantar bara kvenfólk hjá
ÚA. Ég er nú samt vongóður og geri
ráð fyrir að fá eitthvað að gera,“ sagði
Halldór.
Byrjuð að leita að annarri vinnu
Bára hefur unnið hjá Skinnaiðnaði í
eitt og hálft ár, hún hefur gengið í
flest öll störf í verksmiðjunni og sagði
að sér hefði líkað vel. „Það er gott að
vinna hérna, fólkið ágætt og andinn
góður, en vissulega er vinnan erfið og
maður er lúinn eftir vinnudaginn,“
sagði Bára.
Hún á 5 ára gamlan son og sagði að
uppsögnin kæmi sér illa. „En ég vona
að ég fái aðra vinnu og er þegar byrj-
uð að leita,“ sagði Bára en uppsagn-
arfrestur hennar er tveir mánuðir.
„Þeir sem ég hef þegar talað við um
atvinnu hafa verið jákvæðir, þannig
að ég er alls ekki svartsýn. Maður er
ungur og hlýtur að finna eitthvað,“
sagði Bára.
„Bjartsýn þó ég sé
í eldri kantinum“
Guðbjörg Kortsdóttir hefur unnið
hjá Skinnaiðnaði í eitt ár og er upp-
sagnarfrestur hennar einn mánuður.
Hún hefur aðallega unnið við að
pressa mokkaskinn. „Mér hefur líkað
vel að vinna hérna, þetta er hlýr og
notalegur vinnustaður og fólkið er
ágætt,“ sagði Guðbjörg. „Það er svo-
lítið dapurt yfir okkur núna eftir þess-
ar uppsagnir, menn eru slegnir, ekki
bara þeir sem fengu uppsagnarbréfið,
hinir líka,“ sagði hún.
Guðbjörg sagðist ekki hafa ógur-
legar áhyggjur af því að fá ekki vinnu.
„Ég fæ eitthvað, ég er auðvitað í eldri
kantinum, það eru ekki mörg ár þang-
að til ég fer í úreldingu. Ég er samt
bjartsýn og er farin að leita að ein-
hverju öðru,“ sagði Guðbjörg.
Uppsagnir hjá Skinnaiðnaði vegna óvissu á mörkuðum
Áfall að fá upp-
sögn en bjart-
sýni á aðra vinnu
Morgunblaðið/Kristján
Bára Rúnarsdóttir við vinnu
sína hjá Skinnaiðnaði.
Halldór
Ásmundsson
Guðbjörg
Kortsdóttir
GUÐRÚN Inga Hannesdóttir er
hress og kraftmikil ung kona sem
lauk vélgæslumannsprófi í vor en
hún lét ekki þar við sitja. Frá því í
byrjun júní hefur hún stýrt og
stjórnað smábátnum Trausta sem
er í eigu „Ólanna“ í Grímsey og er
fyrsta konan í áratugi ef ekki sú
fyrsta hér sem tekur að sér skip-
stjórn. Guðrún Inga sagði að sjó-
mennskan hefði verið strembin í
sumar en aflinn fínn. Um fram-
haldið sagði hún og brosti: „Ég fer
að hætta næstu daga eins og hinir.“
Trausti er dagróðrabátur með 40
daga og 30 tonn.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Guðrún Inga
stjórnar Trausta
UMDÆMISÞING 13. umdæmis
Zonta International verður haldið
á Hótel KEA á Akureyri dagana 6.
til 9. september. Zontaklúbbur Ak-
ureyrar og Zontaklúbburinn Þór-
unn hyrna sjá um þingið, sem um
150 konur sækja en þær koma frá
Íslandi, Noregi, Danmörku, Lithá-
en, Svíþjóð, Englandi, Frakklandi
og Bandaríkjunum. Á Íslandi eru
starfandi 6 Zontaklúbbar með um
200 félaga, tveir á Akureyri, tveir í
Reykjavík og þá eru einnig starf-
andi klúbbar á Selfossi og Ísafirði.
Meginmarkmið Zontaklúbbanna
er að efla stöðu kvenna. Á síðustu
árum hafa þeir lagt aukna áhersla
á að fyrirbyggja ofbeldi á konum
og börnum. Meðal annars hafa
þeir styrkt verkefni í Afríkuríkinu
Burkina Faso og sendu þangað
eina milljón króna síðasta vor og
aðra til Kvennaathvarfsins í
Reykjavík.
Vigdís heiðruð
Vigdís Finnbogadóttir verður
heiðursgestur umdæmisþingsins á
Akureyri en þar verður henni
formlega veitt heiðursviðurkenn-
ing Zonta International. Vigdís var
tilnefndur heiðurfélagi hreyfingar-
innar árið 1999. Þema þingsins er
sjálfsstyrking kvenna og munu
þær Valgerður Bjarnadóttir fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisstofu og
Karólína Stefánsdóttir fjölskyldu-
ráðgjafi flytja erindi sem þær
nefna: Styrkur kvenna: Að láta
drauminn rætast.
Um 150
konur á
Zonta-þingi
GUÐNI Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segir að forsvarsmenn
Verkalýðsfélags Húsavíkur hefðu
ef til vill átt að byrja á því að óska
eftir fundi með sér áður en þeir
sendu frá sér kveðju í formi álykt-
unar um framtíð Skógræktar rík-
isins á Vöglum í Fnjóskadal.
Verkalýðsfélagið mótmælti fyrr í
vikunni ákvörðun landbúnaðarráðu-
neytisins um að hætta skógar-
plöntuframleiðslu hjá Skógrækt
ríkisins á Vöglum, en ákveðið hefur
verið að henni verði hætt 1. október
næstkomandi.
Guðni sagði málið afar einfalt. Al-
þingi Íslendinga hefði samþykkt ár-
ið 1994 að ríkið ætti ekki að stunda
framleiðslu sem væri í samkeppni
við einstaklinga. Þó svo að liðin
væru 7 ár frá samþykktinni væri
ekki búið að breyta rekstrarformi á
skógarplöntuframleiðslunni. „Það
er óheimilt lögum samkvæmt að
framleiða skógarplöntur fyrir fé
ríkisins, okkur er óheimilt að taka
þátt í samkeppni á þessu sviði við
einstaklinga eða félagasamtök,“
sagði Guðni.
Hann sagði að sér væri skylt að
fylgja eftir því sem ákveðið væri á
Alþingi og það væri hann að gera
með umræddri ákvörðun. Ákvörð-
unin hefði legið fyrir í 7 ár og Sam-
keppnisstofnun hefði oftar en einu
sinni krafið Skógrækt ríkisins um
að breyta rekstrarformi sínu á
þessu sviði.
„Mín hugsjón er sú að áfram
verði á Vöglum og Tumastöðum
metnaðarfullur rekstur til hagsbóta
fyrir skógræktina í landinu. Menn
verða svo að gera upp við sig hvort
það verða einstaklingar eða hluta-
félög sem stofnuð verða til þess að
halda skógarplöntuframleiðslunni
áfram,“ sagði landbúnaðarráð-
herra. Hann vísaði því á bug að með
þessu væri hann að koma atvinnu á
landsbyggðinni í uppnám, svo sem
Verkalýðsfélag Húsavíkur hélt
fram.
Óheimilt að fram-
leiða skógarplöntur
fyrir fé ríkisins
Landbúnaðarráðherra um ályktun
Verkalýðsfélags Húsavíkur
EISTNESKUR djass mun hljóma í
Deiglunni í kvöld, fimmtudagskvöld-
ið 6. september, og hefst hann kl.
21.30. Tafenau & Vind Dou leika en
það eru Raivo Tafenau á barítón-
saxófón og Meelis Vind á bassa-
klarínett sem leika.
Eistneskur djass
FULLTRÚAR á aðalfundi Eyþings,
samtaka sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum tóku undir erindi
Svalbarðshrepps um að stytta
rjúpnaveiðitímabilið um tvær vikur.
Lagt er til að veiðitímabilið hefjist
1. nóvember í stað 15. október. Þá
má búast við að landið þoli frekar
ágang veiðimanna eftir að frysta tek-
ur og veiðin verði meiri íþrótt vegna
þess að möguleiki rjúpunnar til lífs
eykst.
Á aðalfundinum sem haldinn var í
Hrísey nýlega var því beint til
stjórnar samtakanna að vinna áfram
að málinu.
Veiðitíminn
styttist um
tvær vikur
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦