Morgunblaðið - 06.09.2001, Síða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 19
Húðsjúkdómalæknar staðfesta einstaka virkni Retinols gegn
hrukkum, fínum línum, ójöfnum litarhætti og töpuðum
húðljóma…Í Power A er notuð einstök tækni til að varðveita
óskertan hreinleika Retinols og skapa 100 % ferskt hreint
Retinol á húðinni. Einstök samsetning tryggir hámarks þolgæði.
Nú fæst einnig Power A krem fyrir augun. Íslenskir bæklingar.
DREGUR ÚR HRUKKUM
HÚÐIN FYLLIST NÝJU LÍFI
POWER A
ww
w.
he
le
na
ru
bi
ns
te
in
.c
om
Kynning fimmtud.,
föstud. og laugard.
Kynning fimmtud. og
föstud.
Bankastræti 8
sími 551 3140
Þönglabakka 6,
sími 587 0203
TILBOÐ
Nú bjóðum við glæsilega stóra
svarta tösku* í kaupbæti þegar
keypt er Power A 50 ml krem.
* Meðan birgðir endast
VIÐBYGGING við Grunnskóla Borg-
arness var tekin í notkun þegar skól-
inn byrjaði í haust. Markmiðið með
byggingunni var að verða viðkröfum
um einsetningu skólans og mæta nú
allir nemendur á sama tíma til náms.
Það var byggingarfyrirtækið Sól-
fell sem byggði og hófust fram-
kvæmdir við verkið um síðustu ára-
mót og var
byggingin tilbúin
á rúmum átta
mánuðum. Und-
irverktakar Sól-
fells voru Loft-
orka, sem sá um
uppsteypu húss-
ins, Glitnir hf.,
sem sá um raf-
lagnir, og Sig-
mar Gunnarson
sá um pípulagnir.
Um málun sá Híbýlamálun Garðars
og ýmsir smærri undirverktakar sáu
um afmarkaða þætti. VST sá um
hönnun burðarvirkis og lagna. Bygg-
ingarnefnd hafði umsjón með hönnun
og byggingu ásamt Kristjáni Gísla-
syni skólastjóra, Sigurði Páli Harð-
arsyni bæjarverkfræðingi og Einari
Ingimarssyni arkitekt. Auk þess var
skipaður hliðarhópur við byggingar-
nefndina, svo kallaður þarfagrein-
ingahópur sem var nefndinni og
hönnuði til ráðgjafar. Í þeim hópi
voru fulltrúar kennara og starfs-
manna skólans, fulltrúar foreldra-
félagsins og fulltrúar Tónlistarskóla
Borgarfjarðar.
Með bættri aðstöðu vex
og dafnar starfið
Þar sem þrisvar áður hafði verið
byggt við grunnskólann var ljóst að ef
vel ætti til að takast við stækkun hans
þyrfti að skoða allan skólann sem eina
heild og ennfremur að gera ráð fyrir
frekari stækkun síðar. Það var því eitt
af fyrstu verkefnum nefndarinnar og
hönnuða að fara yfir viðmiðunartölur
um húsrými grunnskóla og bera sam-
an við það sem fyrir var. Ýmsir mögu-
leikar voru skoðaðir þegar verið var
að ákveða hvar skyldi byggt við. Fyrir
valinu varðað byggja við austurenda
skólabyggingarinnar og unnið út frá
þeim hugmyndum að skólastigin
mynduðu heild hvert fyrir sig.
Stækkun og endurbótum við skól-
ann var skipt í áfanga. Áður en fram-
kvæmdir við bygginguna hófust var
vinnuaðstaða kennara lagfærð, skrif-
stofuhluti skólans endurnýjaður, sett
upp lyfta milli
hæða og anddyri í
vesturenda skól-
ans lagfært. Ann-
ar áfangi var sá að
fjölga kennslustof-
um um sex og eru
þar af tvær opnar
sem gefa færi á
samkennslu
bekkja, samnýt-
ingu gagna o.þ.h.
Þriðji áfangi end-
urbóta er lagfæring á skólalóðinni og
stendur vinna við hönnun þeirra
framkvæmda nú yfir. Kostnaðaráætl-
un fyrsta og annars áfanga hljóðaði
upp á 120 milljónir og er verkiðvel
innan áætlunar. Í þessari upphæð fel-
ast m.a. húsgagnakaup, hluti af hönn-
unarkostnaði við lóð, símalagnir,
verðbætur á byggingartímanum o.fl.
Kristmar Ólafsson, formaður
bygginganefndar, afhenti Stefáni
Kalmanssyni bæjarstjóra lyklana að
skólabyggingunni við athöfn sem
haldin var í skólanum skömmu fyrir
skólabyrjun. Kristmar lét þess getið
,,að bygging sem þessi væri nauðsyn-
legur hluti þess að halda úti öflugu og
árangursríku skólastarfi. Byggingar
og steinsteypa eru hins vegar aðeins
rammi utan um það starf sem unnið
er í skólanum. Forsenda fyrir öflugu
starfi er starfsfólk skólans, kennarar
og aðrir starfsmenn. Flestir eru sam-
mála um að skólastarf hafi staðið með
miklum blóma í þessum skóla hingað
til. Með bættri aðstöðu vex og dafnar
það starf enn frekar,“ sagði Kristmar.
Stefán bæjarstjóri afhenti síðan
skólastjóra lyklana á skólasetning-
unni.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Kristinn Ólafsson tekur í hönd-
ina á Sigurði Guðmundssyni.
Viðbygging
grunnskólans tekin
í notkun
Borgarnes