Morgunblaðið - 06.09.2001, Page 47

Morgunblaðið - 06.09.2001, Page 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 47 intýradaga, hjá frænku minni meðan mamma var að eignast barn, og nú vorum við á leiðinni til að sjá ný- fædda barnið, sem var systir, sú fjórða í röð okkar systkinanna. Allir eru samankomnir og ánægjan er óskipt yfir yndislegu barni. Skyndi- lega er hátíðleiki dagsins rofinn,um sig grípur órói og óvissa. Litla barn- ið er tekið upp úr vöggunni, því hafði svelgst á, það náði ekki andanum. Næst man ég að ég horfði upp og sá Duddu, þar sem hún hélt á litla barninu, saug upp úr því og hætti ekki fyrr en óhuggulegur bláminn hvarf af andliti barnsins. Síðan heitir systir okkar Guðríður. Minningarn- ar hrannast upp bjartar og hlýjar. Þegar við systkinin uxum úr grasi og leið okkar fór að liggja til höf- uðborgarinnar stóð heimilið á Reynimelnum ætíð opið, þar mætti manni gestrisni og hlýja, sem Duddu og Steina var einum lagið að gefa. Árin líða og fyrr en varir eru náms- árin liðin og við tekur vinna og upp- eldi barna. Það varð svo úr að við settumst að vestur í bæ. Amma og afi voru í Hveragerði og norður í Ólafsfirði og fyrir dætur okkar tvær voru þau alltof langt í burtu. Þá var stundum gott að vita af frændfólkinu á Reyni- melnum, Duddu frænku sem geisl- aði af gjafmildi og hlýju, og lét sér ávallt svo annt um okkur. Þakklát er ég fyrir þær spjall- stundir sem ég hef átt síðari árin, hvort sem er í eldhúsinu eða í stof- unni á Reynimelnum, yfir kaffi eða te og bakkelsi. Auk þess að láta sig varða um hvernig okkur gekk í lífinu bjó frænka mín yfir hafsjó af minning- um og frásögnum frá gömlum dög- um. Duddu lét sérstaklega vel að lýsa atburðum og andrúmslofti þessa liðna tíma vegna þess hve hún var vel máli farin. Móðir mín og systkini hennar urðu fyrir þeirri erfiðu reynslu að missa föður sinn í bernsku en hann afi okkar, Steindór Sigurbergsson, lézt fyrir aldur fram, árið 1930, að- eins 40 ára, en þá var mamma okkar, sem er yngst, aðeins þriggja ára. Sveinn, elstur systkinanna, dó líka langt um aldur fram, var aðeins um þrítugt er hann fórst í eldsvoða. Árið 1945 lézt svo amma, Þorkelína Sig- urbjörg Þorkelsdóttir. Það má ljóst vera að missirinn var sár og mikill. Ég veit að Dudda bar yngri systkini sín sérstaklega fyrir brjósti, hún hugsaði mjög vel um litlu systur sína þegar erfitt var og reyndist henni eins og besta móðir og svo hefur ver- ið alla tíð. Þetta hefur móðir mín oft rifjað upp og er óumræðilega þakk- lát fyrir. Það hefur verið ómetanlegt að hafa Duddu frænku til að svara spurningum sem hafa leitað á, hún gat sagt manni frá dögunum þegar allir voru til staðar. Sérstaklega var gott að heyra hana segja frá afa, þessum hlýja og sterka manni og harðduglega bónda sem er svo fal- legur á myndinni og ekki eru þau síðri, amma og Sveinn, á myndunum sem við erum svo oft búin að virða fyrir okkur og ég er þakklát henni frænku minni fyrir hafa fært okkur nær þeim, það hefur verið mér og fjölskyldu minni mikils virði. Guðríður Steindórsdóttir var glæsileg kona með mikla og sterka nærveru, gædd blíðu og festu sem við fengum öll að njóta og erum svo innilega þakklát fyrir. Eftir lifa góð- ar minningar og hlýjar tilfinningar. Það var tómlegra að aka vestur Hringbrautina seinnipart sunnu- dagsins 26. ágúst, hugurinn dvaldi hjá Ellu, Sveinbjörgu, Denna, Eika og eiginkonum þeirra, sem hafa vak- að yfir móður sinni, gætt hennar og sinnt af mikilli umhyggju og ást. Þeirra missir og söknuður hlýtur að vera mikill. Við biðjum góðan Guð að styrkja þau, einnig ömmu og lang- ömmubörnin, þau sem áttu heimsins bestu ömmu. Með þakklæti og samúðarkveðj- um. Sigrún Valgerður Gestsdóttir. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. (23. Davíðssálmur.) Þegar ég frétti andlát Guðríðar olli það mér sárum trega. Ég átti þá ánægju að kynnast henni vel í gegn- um árin og á margar góðar minn- ingar um hana. Dóttir hennar, Elín og ég, höfum verið vinkonur yfir 40 ár og kom ég því oft á Reynimel 24 á mínum unglingsárum. Guðríður átti fyrirmyndar heimili og var ákaflega gestrisin, það fylgdi henni mikil virð- ing, var hrókur alls fagnaðar, frá- sagnargóð og hafði góða kímnigáfu. Guðríður missti eiginmann sinn, Steinþór Eiríksson, 1994 eftir tæp- lega 50 ára farsælt hjónaband. Á heimili þeirra ríkti mikill kærleikur og var hagur fjölskyldunnar ætíð í fyrirrúmi. Ég flutti til Bandaríkjanna fyrir meira en 30 árum og margar heim- sóknir hef ég farið til Íslands síðan. Man ég sérstaklega eftir einni af þessum heimsóknum mínum, að ég varð þeirrar ánægju njótandi að þau hjónin buðu mér að gista hjá sér ásamt 3ja ára dóttur minni á heimili sínu. Nutum við alúðar og gestrisni þeirra, sem ég mun alltaf meta mik- ils, þá fann ég innilega hvað gott er að eiga kærleiksríka vini og mikið á ég eftir að sakna þeirra skemmti- legu samverustunda, sem við áttum í fallegu stofunni þeirra. Ég er æv- inlega þakklát fyrir þann kærleik og vináttu, sem Guðríður og hennar heimilisfólk sýndu systur minni Guðrúnu, og var heimilið á Reyni- melnum henni ætíð opið, þar þótti henni gott að koma. Elsku Ella mín og systkini, ég veit að söknuðurinn er mikill og kveðju- stundin erfið. Ég er ævinlega þakk- lát fyrir að hafa kynnst móður ykk- ar, hún var heilsteypt og göfug kona. Að leiðarlokum sendum við hjónin innilegar samúðarkveðjur yfir hafið til fjölskyldunnar og biðjum Guðríði Guðs blessunar á nýju tilverustigi. Elísabet Dinsmore, Albany, Oregon. Ég valdi fallegt ljóð úr einni af þeim ljóðabókum sem þú gafst mér, dýrmætar eignir. Við tvær áttum það sameiginlegt að hafa mikla ánægju af ljóðlist og voru þar í upp- áhaldi hin eldri, hefðbundnu skáld þjóðarinnar. Þessar fallegu línur eiga vel við kveðjustundina þegar þú fékkst hvíldina og friðinn sem þú varst far- in að þrá svo mikið: Að lokum eftir langan, þungan dag, er leið þín öll. Þú sest á stein við veginn og horfir skyggndum augum yfir sviðið, eitt andartak. Og þú munt minnast þess, að eitt sinn, eitt sinn, endur fyrir löngu lagðir þú upp frá þessum sama stað. (Steinn Steinarr.) Elsku amma mín, einnig langar mig til að láta fylgja hér þá bæn sem þú kenndir mér þegar ég var lítil stelpa og gisti hjá þér og afa á Hof- inu góða. Aldrei leið mér eins vel og þegar við horfðum saman á sjón- varpið, ég lá á beddanum og á meðan straukstu alltaf hönd mína. Ég mun ávallt minnast þessa tíma og bænarinnar sem mun ávallt til- heyra minningunni um yndislega persónu, þig amma mín. Ég veit að nú líður þér vel. Þú ert á þeim stað sem þú varst farin að þrá svo mikið að komast til, nú ertu hjá afa í hvíldinni saman. Ég sam- gleðst þér, elsku amma mín. Vertu, guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) Með ástarkveðju. Þín Margrét Lind. Guð komi sjálfur nú með náð, nú sjái Guð mitt efni og ráð, nú er mér Jesú, þörf á þér, þér hef ég treyst í heimi hér. Ástkæra þá ég eftir skil, afhenda sjálfum Guði vil, andvarpið sér hann sárt og heitt, segja þarf honum ekki neitt. Láttu mig, Drottinn, lofa þig, með lofi þínu hvíla mig, ljósið í þínu ljósi sjá, lofa þig strax sem vakna má. (Hallgr. Pét.) Þegar við kveðjum Guðríði Stein- dórsdóttur eða Duddu eins og hún var kölluð af vinum og vandamönn- um, rifjast upp minningar liðinna áratuga. Ég kynntist Duddu fyrir þrjátíu og fjórum árum þegar ég trúlofaðist systursyni hennar. Dudda var stórbrotin persóna, virðuleg í fasi en jafnframt svo hjartahlý, hún fylgdist vel með fjöl- skyldunni hvort sem það voru henn- ar afkomendur eða systkini og þeirra niðjar. Hún hafði þetta allt á hreinu. Jólagjafir hennar til systk- inabarna og síðar systkinabarna- barna yljuðu og veittu ánægju þeim er við tóku. Það er vart hægt að hugsa sér Duddu nema að hugsa um Steina manninn hennar um leið, svo sam- hent voru þau hjón og höfðingjar heim að sækja hvort heldur var á Reynimelinn eða í Hof í Hveragerði þar sem þau áttu sumarbústað. Dudda rifjaði þá gjarnan upp liðna tíma, hún hafði góða frásagnarhæfi- leika og maður lifði sig inn í frásagn- ir af barnæsku hennar í Ósgerði í Ölfusi og unglingsár hennar þegar hún vann í Hótel Hveragerði og nóg var að gera við að leggja á borð, baka og ganga frá við töluvert aðrar aðstæður en eru í dag. Dudda og Steini höfðu oft leigj- endur á veturna í forstofuherberg- inu á Reynimelnum og í sumarbú- staðnum í Hveragerði. Var þetta oftast skólafólk og með mörgu af þessu fólki tókst ævarandi vinátta við þau og þegar bárust til þeirra myndir af börnum þessa fólks eða fjölskyldu skein gleði úr augum Duddu eins og um fjölskyldu hennar væri að ræða. Nú þegar komið er að leiðarlokum viljum við þakka henni, þakka henni fyrir að vera sú frænka sem hún var og biðjum henni Guðs blessunar í nýjum heimkynnum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Börnum hennar, tengdabörnum, barnabörnum, barnabarnabörnum og systkinum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Magnea Ásdís og fjölskylda. ✝ Heba Stefáns-dóttir fæddist á Akureyri hinn 24. janúar 1938. Hún lést á Landspítalan- um hinn 29. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Agnes Lísbet Stef- ánsdóttir, f. 29.11. 1908, d. 27.6. 1999, og Stefán Stefáns- son, f. 11.10. 1879, d. 1966. Heba flutt- ist til Hríseyjar um tveggja ára aldur og ólst þar upp. Árið 1956 fluttist hún á Akranes og bjó þar til ársins 1990 en fluttist þá til Reykjavíkur ásamt manni sínum og bjuggu þau þar síðan. Hinn 25. júlí 1958 giftist Heba eftirlifandi eigin- manni sínum Sig- urði Þorleifssyni, f. 30.9. 1931. Synir þeirra eru: 1) Stef- án Þór, f. 9.11. 1958. Dætur hans eru: A) Heba Ag- neta, sonur hennar er Stefán Bjarki; 2) Eygló Hlín; 3) Ína Rut. 2) Sigurður Maríus, f. 29.9. 1961. 3) Þorleifur Geir, f. 4.9. 1962. Kona hans er Ást- hildur Benedikts- dóttir, f. 31.7. 1962. Börn þeirra eru: A) Anna María; B) Sigurður Már. Úför Hebu fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þegar við fréttum að þú værir að fara frá okkur var okkur mikið brugðið. Amma svona ung. Þegar við komum upp á sjúkrahús til þín síð- asta daginn trúðum við því ekki að þú værir að fara. Við kysstum þig, héld- um í hönd þína og spjölluðum við þig án þess að átta okkur á því að þú vær- ir að fara. Við trúum því að þú hafir verið að bíða eftir að við kæmum og kysstum þig bless. Takk, elsku amma. Þegar við hugsum til baka eru eingöngu góðar minningar um þig. Þegar við komum á Þangbakkann máttum við aldrei fara án þess að borða. Kári var alltaf í uppáhaldi og alltaf var gaman að koma og leika með hann, fara í Bingó og sækja Subway kafbáta eða KFC kjúkling og fara með heim. Það var endalaust hægt að spjalla við þig þegar þú hringdir bara til að spjalla. Ekkert símtal var styttra en 20 mín. og var bara talað um allt og ekkert. Alltaf var gaman að koma með Akraborg- inni og vera hjá þér og afa heilan laugardag og fara svo heim með stút- fullan maga af sælgæti. Elsku amma, við söknum þín meira en orð fá lýst en við vitum að þér líður vel þar sem þú ert nú og gerir það okkur ánægðar. Takk fyrir allt. Elsku afi, við skulum öll hjálpast að í gegnum þennan erfiða tíma. Og vit- um við að amma passar okkur þegar þörf er á. Ykkar ömmu- og afastelpur Eygló Hlín og Ína Rut Stefánsdætur. Elsku amma mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þótt svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þessar fallegu línur segja aðeins brot af því sem mig langar að segja en allar yndislegu minningarnar mín- ar um þig geymi ég í hjarta mínu um ókomna tíð. Ég kveð þig með trega, elsku amma, en allt sem við áttum saman, ég og þú og síðar ég, þú og Stefán Bjarki, langömmustrákurinn þinn, varðveiti ég sem gersemi. Ég vil bara þakka þér fyrir allt og fyrst og fremst þau forréttindi sem fylgja því að eiga þig fyrir ömmu. Elska þig. Elsku afi, pabbi, Sigurður, Þorleif- ur, Ásthildur, Eygló, Ína, Anna María og Sigurður Már, megi góður Guð styrkja okkur á þessum erfiðu tímum. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur af skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (Hallgr. J. Hallgr.) Þín alltaf Heba Agneta. Elsku Heba langamma, allar stundir þínar hér er svo ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. Þinn langömmustrákur, Stefán Bjarki. HEBA STEFÁNSDÓTTIR *    #+    3 4  5 0! 62  +    ,          ! "# "     -  .     )  / #    !   &  '! ( ')  (4!&7  ! !  "(  ! ! )"!  !&"  (4!& ! ! 1  )"3!! ! ! ! !&"  !. !&"  (!!(  ! !  20! "&"    !& !&' 0             )#8 ( 989 )+ *+,, 3    ::  #    1 '  ,   .  !   !  ! ! 0!5&"  + -  ! !  -!  &"   !  !&"     ! .  !&"   - !!  !&"    $5    ! 2!2.! 2!2!2.! 2!2!2!2.!'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.