Morgunblaðið - 06.09.2001, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001 53
OD
DI
HF
G4
21
7
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
Smith & Norland vill ráða rafeindavirkja til starfa í þjónustudeild
fyrirtækisins sem fyrst.
Starfið felur í sér viðgerðir og þjónustu á símabúnaði sem og öðrum
veikstraumsbúnaði, afgreiðslu varahluta, símsvörun og ýmis önnur
störf á þjónustuverkstæði okkar.
Leitað er að röskum rafeindavirkja eða manni með sambærilega
menntun með mikinn áhuga á þjónustu og mannlegum samskiptum.
Góð framkoma, snyrtimennska og reglusemi eru algjört skilyrði.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki á
rafmagnssviði sem selur gæðavörur, m.a. frá Siemens.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru vinsamlega beðnir að senda okkur
umsókn með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf fyrir miðviku-
daginn 12. september. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir
sem algjört trúnaðarmál.
Rafeindavirki
SLÖKKVILIÐS- OG
SJÚKRAFLUTNINGAMAÐUR
HJÁ SLÖKKVILIÐI HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
ERU NOKKRAR STÖÐUR LAUSAR TIL UMSÓKNAR
STARFIÐ
Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Í starfinu felst m.a. eftirfarandi:
Sjúkraflutningar úr heimahúsum, milli sjúkrahúsa o.s.frv.
Almennt slökkvistarf og reykköfun.
Björgun fólks og neyðarflutningar.
Reglulegar þrek- og starfsæfingar, starfsmenntun og
-þjálfun.
Þrekpróf og læknisskoðun einu sinni á ári.
Vaktavinna.
Möguleiki á starfsmenntun og starfsþjálfun erlendis.
Umhirða tækjabúnaðar slökkviliðsins.
Hægt er að sækja um í björgunarköfunarhóp og
landflokk eftir 2-3 ára þjónustualdur.
Umsækjandi þarf að skila læknis- og sakavottorðum með umsókn. Umsækjendur mega búast við að vera kallaðir í próf, viðtöl
og læknisskoðun trúnaðarlæknis. Ráðning er áætluð frá 1. október og verður þá um reynsluráðningu að ræða fyrst um sinn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi LSS og LS en nánari upplýsingar um byrjunarlaun er að finna á heimasíðu Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins, www.shs.is. Nær eingöngu karlar starfa í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og hvetjum við því konur
sérstaklega til að sækja um.
Upplýsingar gefa starfsmannastjóri (halldor.halldorsson@shs.is) og deildarstjóri útkallsdeildar (birgir.finnsson@shs.is)
í síma 570 2040 eða í tölvupósti, en umsóknareyðublöð er að finna á skrifstofu slökkviliðsins, Skógarhlíð 14,
105 Reykjavík. Umsóknum ásamt afritum prófskírteina skal skila þangað í seinasta lagi 20. september nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur SHS er að veita
fyrstu viðbrögð til að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir. Liðið annast sjúkraflutninga, bruna- og forvarnir og hefur
viðbúnað vegna umhverfisóhappa á þjónustusvæði sínu. Starfsmenn SHS gegna einnig mikilvægu hlutverki í skipulagi
Almannavarna ríkisins.
GRUNNKRÖFUR
Umsækjendur þurfa m.a. að:
Vera reglusamir og háttvísir, hafa góða líkamsburði, gott
andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn,
rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða inni-
lokunarkennd.
Hafa aukin réttindi til að stjórna:
a) vörubifreið og b) leigubifreið.
Nóg er að umsækjandi hafi öðlast aukin ökuréttindi við lok
reynsluráðningar ef til hennar kemur.
Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða
sambærilega menntun og reynslu. Með iðnmenntun er átt
við sveinspróf eða vélstjórapróf en stúdentspróf telst
sambærileg menntun.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuhúsnæði
Skrifstofuhúsnæði í glæsilegri nýrri byggingu
á góðum stað í borginni er laust til útleigu.
Um er að ræða samtals um 500 fm sem leigðir
verða til eins eða fleiri aðila.
Öll aðstaða er fyrsta flokks, auk þess sem aðgengi
er að ráðstefnusal og mötuneyti.
Lysthafendur vinsamlegast hafi samband við
Bjarka A. Brynjarsson í síma 569 7576.
Til leigu
1.500 fm húsnæði í litlum einingum.
Skrifstofur til leigu fyrir:
● Tæknimenn, arkitekta og aðra hönnuði á
sviði byggingar- og véliðnaðar, stóriðju
og orkuiðnaði.
● Menn í tölvuþjónustu.
● Verktaka.
● Sérhæfða söluaðila í véla- og byggingar-
iðnaði.
í boði er:
● Góð staðsetning á stór-Reykjavíkursvæðinu.
● Gott húsnæði.
● Næg bílastæði.
● Hagstæð leigukjör.
Hugmyndin er að tengja saman nokkra góða
aðila sem vinna í tækniþjónustu, verktöku
og sölu.
Upplýsingar veitir Erling Auðunsson í símum
898 2761 og 565 8822.
ÞJÓNUSTA
Heimaþrif
Get bætt við mig þrifum í heimahúsum.
Nánari upplýsingar í símum 557 4224 eða
821 4224.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Gagnheiði 20, sérhæfð bygging, Selfossi, fastanr. 218-6123, þingl.
eig. Prentsel ehf., gerðarbeiðendur Hljómtækni ehf., skrifst./
rafeindaþj., Íslandsbanki-FBA hf., Landsbanki Íslands hf., aðalbanki,
Prentsmiðjan Oddi hf. og sýslumaðurinn á Selfossi, fimmtudaginn
13. september 2001 kl. 9.30.
Gagnheiði 47, trésmíðaverkstæði, Selfossi, fastanr. 222-5322, þingl.
eig. G-Verk ehf., gerðarbeiðandi Sameinaði lífeyrissjóðurinn, fimmtu-
daginn 13. september 2001 kl. 10.00.
Jörðin Brautartunga (Syðsti Kökkur) — spildur, Stokkseyri, ehl. gþ.,
þingl. eig. Hörður Jóelsson, gerðarbeiðandi Ríkisútvarpið, fimmtu-
daginn 13. september 2001 kl. 11.00.
Lóð úr Stóra-Fljóti, Biskupstungnahr., „Víðigerði“, m/1 sekl. af heitu
vatni, þingl. eig. Ásrún Björgvinsdóttir og Ólafur Ásbjörnsson, gerð-
arbeiðendur Lánasjóður landbúnaðarins og sýslumaðurinn á Selfossi,
fimmtudaginn 13. september 2001 kl. 16.00.
Þórisstaðir, lóð 169864, sumarhús, Grímsness- og Grafningshreppi,
fastanr. 220-8443, þingl. eig. þb. Ólafur Ágúst Ægisson, gerðarbeið-
andi Íslandsbanki-FBA hf., fimmtudaginn 13. september 2001
kl. 15.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
5. september 2001.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Í kvöld kl. 20.00 Kvöldvaka
í Herkastalanum, Kirkjustræti 2,
í umsjón systranna.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Vitnisburðir. Ræðumaður:
Kristinn Birgisson.
Fjölbreyttur söngur. Kaffi að
lokinni samkomu. Allir velkomnir.
www.samhjalp.is .