Morgunblaðið - 08.09.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Danskennsla í skólum
Þroskandi
íþrótt
DANS er nú orðinnskyldufag ígrunnskólum
landsins. En skortur er á
danskennurum sem veld-
ur því að færri fá dans-
kennslu en vilja. Heiðar
Ástvaldsson danskennari
var einn af frumkvöðlum
þess að dansinn yrði
skyldunámsgrein. Hann
var spurður um hvernig
ástandið væri í þessum
efnum á höfuðborgar-
svæðinu.
„Við getum sagt að
flestir skólar í Reykjavík
og nágrenni fái einhverja
kennslu. Eini grunnskól-
inn sem er með dans-
kennslu allan veturinn
fyrir alla sína bekki er
Mýrarhúsaskóli á Sel-
tjarnarnesi. Aðrir skólar verða að
skammta þetta, Landakotsskóli
er t.d. með helminginn af sínum
nemendum í dansi fyrir jól og
hinn helminginn eftir jól.“
– Hvernig gengur að fá dans-
kennslu í skólum landsbyggðar-
innar?
„Ég veit að á Ísafirði er dans-
kennari sem kennir þar og í ná-
grenninu. Í Neskaupstað er
danskennari sem kennir í grunn-
skólum á svæðinu og einnig er
danskennsla í grunnskólum á Ak-
ureyri. Víðast fá þó nemendur
aðeins stutt námskeið þar sem
ekki eru danskennarar fyrir
hendi.“
– Eigum við ekki nægilega
marga menntaða danskennara til
að koma til móts við eftirspurn?
„Nei, það vantar þónokkuð
mikið upp á það og ég vil hvetja
þá sem hafa áhuga á dansi að
fara í danskennaranám þar sem
danskennarar fá nú fastráðningu
í grunnskólum.“
– Hvaða menntun þurfa dans-
kennarar að hafa til þess að fá
fastráðningu?
„Danskennarar þurfa að vera
viðurkenndir meðlimir af Dans-
ráði Íslands en til þess að verða
það þarf fólk að ljúka fjögurra
ára námi.
Mín skoðun er aftur á móti að
miða eigi við að þeir sem vilja
verða danskennarar geti lokið
námi á þremur árum eins og
íþróttakennarar, taki þá sömu
bóklegu fög og íþróttakennarar
og dansinn komi í stað
íþróttanna. Þá sé ég framtíðina
fyrir mér þannig að fólk geti tek-
ið það sem við getum kallað
grunnskóladanskennarapróf,
bætt síðan við menntun sína og
tekið próf inn í Dansráð Íslands.
Til þess að taka meirapróf í
dansi, ef svo má segja, þurfa Ís-
lendingar nú að taka svokallað
member-próf erlendis
og þannig yrði það
áfram.“
– Hvers konar dans
er kenndur í grunn-
skólunum?
„Við kennum tíu al-
þjóðlegu dansana en
það eru rúmba,
samba, djæf, cha-cha-
cha og paso doble. Svo
er það enskur vals, vínarvals,
foxtrot, kvikstepp og tangó. Þess-
ir tíu dansar eru kenndir ná-
kvæmlega eins um víða veröld.
Auk þess eigum við að kynna fyr-
ir nemendum aðrar tegundir af
dönsum, við eigum t.d. að kenna
þeim eitthvað í gömlu dönsunum
íslensku, kynna nútímaballett, sí-
gildan ballett, þjóðdansa og
fleira. Þetta eigum við að gera
með því t.d. að fara með nem-
endur á danskeppnir, danssýn-
ingar eða sýna þeim kvikmyndir.
„Þetta hefur vakið heimsat-
hygli og t.d. vil ég benda á að
núna í næsta mánuði mun aðstoð-
armaður forseta Alþjóðasam-
bands danskennara koma hingað
til lands og kynna sér það sem
við erum að gera. Eins erum við
búin að fara fram á styrk frá
menntamálaráðuneytinu til þess
að búa til myndband til að kynna
danskennslumál Íslendinga en
þjóðir heimsins vilja gjarnan fá
upplýsingar um það sem við er-
um að gera. Nefna má að Bretar
hafa sérstaklega beðið um að fá
myndband til þess að leggja fyrir
sinn menntamálaráðherra. Þetta
myndband verður sent um víða
veröld.“
– Er þetta sem sé óvenjulegt
framtak?
„Það er víða í heiminum sem
dans er kenndur sem skyldufag
en þá er venjulega miðað við
þjóðlega dansa. Við Íslendingar
erum hins vegar að fara af stað
með kennslu í umræddum tíu al-
þjóðlegu dönsum.“
– Hvað er langt síðan þessi
hugmynd kom fram?
„Nú er ég búinn að starfa við
danskennslu í 45 ár og æði oft á
gengnum árum hef ég heyrt
þessari hugmynd varpað fram.
Einkum hafa grunnskólakennar-
ar komið að máli við mig um
þetta og bent á að
þeim sem voru í dansi
gengi almennt betur í
námi.
Það eru aftur á
móti ekki nema fjögur
til fimm ár liðin síðan
verulegur skriður
komst á þetta mál og í
dag er mér óhætt að
fullyrða að alls staðar
þar sem dans hefur verið kennd-
ur eru bæði kennarar og foreldr-
ar sammála um að danskennslan
sé þýðingarmikil. Ég persónulega
á mjög auðvelt með sjá fyrir mér
að eftir svona 30 ár verði hafðir
tveir til þrír danstímar í viku. Þá
verða allir grunnskólakennarar
fólk sem hefur lært að dansa sem
börn í grunnskólum og allir for-
eldrar líka og því allir sammála
um hve þýðingarmikið það sé að
læra að dansa. Þetta er andlega
og líkamlega þroskandi íþrótt.“
Heiðar Ástvaldsson
Heiðar Ástvaldsson fæddist á
Siglufirði 4. október 1936. Hann
lauk stúdentsprófi frá Verzl-
unarskóla Íslands og hóf lög-
fræðinám við Háskóla Íslands.
Hann hafði tekið próf í almennri
lögfræði en tók sér frí frá námi
til að kenna dans og hefur ílengst
í því starfi fram á þennan dag.
Heiðar er kvæntur Hönnu Frí-
mannsdóttur og eiga þau soninn
Ástvald Frímann Heiðarsson.
Þjóðir heims
vilja gjarnan
fá upplýsingar
um dans-
kennslu
í grunnskól-
um hér
LÆKKUN brunabótamats mun
jafnframt lækka iðgjöld til trygg-
ingafélaga vegna brunatrygginga
og er nú til skoðunar hjá félögun-
um hvernig brugðist verður við.
Að sögn Einars Sveinssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjóvár-Almennra
og formanns Sambands íslenskra
tryggingafélaga, er þetta vanda-
mál sem ekki sé ennþó ljóst hver
áhrifin verða af. Hann segir ljóst
að tjón muni ekki endilega lækka í
sama hlutfalli og brunabótamatið.
„Það er til skoðunar hjá okkur
hvernig við munum taka á þessu
máli og við þurfum að skoða fyrst
og fremst afkomu greinarinnar áð-
ur en við tökum ákvarðanir í því
efni. Stórbrunar undanfarin ár
hafa verið að valda okkur erfið-
leikum og afkoma greinarinnar
hefur verið að þyngjast, þannig að
við verðum að skoða þetta á fag-
legum grunni.“
Að sögn Einars munu væntan-
lega ekki liggja fyrir niðurstöður
næstu vikurnar til hvaða aðgerða
verði gripið. „Við erum fyrst og
fremst að vinna úr þeim breyt-
ingum sem verða um miðjan mán-
uðinn. Þessa dagana er verið að
vinna í því að færa okkar skrár til
samræmis við þessi nýju möt.
Hvaða áhrif það hefur á iðgjöldin
verður tíminn að fá að leiða í ljós,“
segir Einar.
Tryggingafélög í vanda
vegna lækkunar iðgjalda
SEX stór auglýsingaskilti hafa verið sett upp utan á
Kringlunni. Markar uppsetning þeirra upphaf víð-
tækrar kynningarherferðar fyrir Kringluna í sjón-
varpi, útvarpi, blöðum og veltiskiltum um alla borg,
sem ætlað er að styrkja markaðsstöðu Kringlunnar.
Þrettán Íslendingar á ýmsum aldri koma fram á
auglýsingaskiltunum.
Rekstrarfélag Kringlunnar stendur að kynningar-
herferðinni í samvinnu við eigendur verslana og
þjónustufyrirtækja í Kringlunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kringlan byrjar auglýsingaherferð