Morgunblaðið - 08.09.2001, Side 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 13
HELDUR færri gestir heimsóttu
tjaldsvæðin í innanverðum Eyjafirði
og í Vaglaskógi í sumar en í fyrra. Þó
voru gistinæturnar í sumar fleiri á
Hömrum á Akureyri og á Hrafnagili
en sl. sumar. Hins vegar fækkaði
gistinóttum milli ára á tjaldsvæðun-
um við Þórunnarstræti á Akureyri, í
Húsabrekku og Vaglaskógi.
Skátafélagið Klakkur rekur tjald-
svæðin tvö á Akureyri og var heild-
arfjöldi gistinátta í sumar um 20.000
en þær voru rúmlega 22.000 í fyrra.
Gistinætur á tjaldsvæðinu við Þór-
unnarstræti voru í sumar um 16.000
og ríflega 4.000 á Hömrum og fjölg-
aði þar um 1.000 milli ára.
Ásgeir Hreiðarsson, fram-
kvæmdastjóri tjaldsvæðanna á Ak-
ureyri, sagði að sumarið hefði verið
frekar lélegt og veðrið haft töluverð
áhrif á ferðamannastrauminn. Þá
var minni umferð í bænum um versl-
unarmannahelgina í ár en í fyrra og
mun minni en árið 1999. Svæðinu á
Hömrum hefur verið lokað en enn
eru örfáir útlendingar á tjaldsvæð-
inu við Þórunnarstræti og sagði Ás-
geir að svæðið yrði opið fram í miðj-
an mánuðinn, á meðan verið væri að
ganga frá fyrir veturinn.
Umferðin fór seint af stað
Á tjaldsvæðinu Húsabrekku gegnt
Akureyri fækkaði gestum heldur
milli ára. Gistinætur í sumar voru
rétt um 4.000 „og það finnst okkur
ekki merkilegt“, sagði Haraldur
Guðmundsson staðarhaldari.
„Sumarið var kalt og þá sérstak-
lega á næturnar og það fannst fólki
lítið spennandi. Umferðin fór seint af
stað og ekki að neinu marki fyrr en í
lok júní. Þá hefur nýtt tjaldsvæði á
Hömrum vafalaust einnig haft áhrif
hér,“ sagði Haraldur.
Um 9.000 gistinætur voru skráðir
á tjaldsvæðunum í Vaglaskógi í sum-
ar, sem er um 4.000 gistinóttum
færra en sl. sumar. Sumarið í ár var
jafnframt það þriðja lélegasta frá
árinu 1988. Kristján Jóhannesson,
einn af rekstraraðilum tjaldsvæð-
anna í Vaglaskógi, sagði að þrjár
helgar í kringum mánaðamótin júní-
júlí hefðu verið mjög stórar „en eftir
miðjan júlí fjaraði þetta út og versl-
unarmannahelgin var léleg“, sagði
Kristján. Hann sagði að veðrið hefði
átt stóran þátt í því og þá kannski að-
allega veðurspáin því að oft hefði
veðrið verið mun betra en gert var
ráð fyrir í veðurspám.
Fjölgun á tjaldsvæðinu – fækk-
un á hótelinu í Hrafnagili
Hreiðar Hreiðarsson, umsjónar-
maður tjaldsvæðisins í Hrafnagili,
sagði að þrátt fyrir minni umferð
ferðamanna í sumar hefði gistinótt-
um á tjaldsvæðinu fjölgað um 25–
30% milli ára. Aftur á móti hefði orð-
ið töluverður samdráttur á Hótel
Vin, sem rekið er í Hrafnagilsskóla.
Hreiðar sagði tjaldsvæðið vera í
sókn enda væri þar gott pláss og góð
aðstaða fyrir gesti.
Heldur færri gestir á tjaldsvæðunum en í fyrrasumar
Leiðinlegt veður setti
strik í reikninginn
Morgunblaðið/Kristján
Tjaldsvæðið á Hömrum nýtur vaxandi vinsælda en þar hefur Skátafé-
lagið Klakkur byggt upp skemmtilega aðstöðu.
INGÞÓR Ásgeirsson formaður Mið-
bæjarsamtakanna sagði að kaup-
menn í göngugötunni á Akureyri
væru allt annað en hressir með að
framkvæmdum við endurbætur á
götunni hefði verið frestað. Um 30
aðilar við götuna hafa skrifað undir
skjal þar sem ákvörðuninni er harð-
lega mótmælt.
Til stóð að hefja framkvæmdir nú í
haust en eftir að bæjarráð hafnaði
enn og aftur báðum tilboðunum sem
bárust í verkið er ljóst að töf verður á
framkvæmdum.
„Þetta mál er orðið að sápuóperu,
enda er búið að hætta við, hætta við
að hætta við og hætta svo við aftur,
auk þess sem verkið hefur verið tví-
vegis boðið út. Ég skil alveg þá af-
stöðu bæjaryfirvalda að vilja ekki
ráðast í verk þar sem tilboð eru út úr
kortinu. En það er nýtt hjá bæjaryf-
irvöldum að ráðast ekki í fram-
kvæmd sem ekki stenst kostnaðar-
áætlun. Ég vonast þá líka til að upp
sé komin slík ráðvendni hjá bæjar-
apparatinu að framkvæmdir standist
áætlanir í framtíðinni. Það verður því
fróðlegt að fylgjast með fyrirhuguð-
um framkvæmdum á vegum bæjar-
ins og þá hvort þær standast áætlun.
Gert ráð fyrir bílaumferð
um göngugötuna
Þessi niðurstaða sem nú liggur
fyrir er hins vegar vond fyrir miðbæ-
inn, þar sem við höfðum vonast til að
sjá líf í götunni í vetur,“ sagði Ingþór
en í tengslum við fyrirhugaðar fram-
kvæmdir er m.a. gert ráð fyrir bíla-
umferð um göngugötuna. „Með bíla-
umferð um götuna verður aðstaða til
að reka verslanir og önnur fyrirtæki
jöfn í bænum.“
Kaupmenn óhressir með frestun
framkvæmda í göngugötunni
„Málið er
orðið að
sápuóperu“
FYRSTI kynningarfundur í fundaröð
um einkavæðingu Landssíma Íslands
hf. verður haldinn á Akureyri í dag,
laugardaginn 8. september kl. 11 í sal
Fiðlarans á 4. hæð í Alþýðuhúsinu og
er hann öllum opinn.
Meðal framsögumanna á fundinum
á Akureyri verða Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra, Hreinn Loftsson,
formaður framkvæmdanefndar um
einkavæðingu, Friðrik Pálsson, for-
maður stjórnar Landssíma Íslands og
Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri
Símans. Munu þeir ræða sölu hluta-
fjár ríkisins í Símanum og sitja fyrir
svörum um áhrif einkavæðingarinn-
ar.
Meðal annars verður rætt um jafn-
an aðgang landsmanna að fjarskipta-
þjónustu, áhrif nýrra fjarskiptalaga
og áhrif tækniþróunar á kostnað við
gagnaflutninga. Framtíðarsýn Sím-
ans verður kynnt og ennfremur rætt
um fyrirkomulag hlutabréfasölunnar.
Alls verða haldnir tíu kynningar-
fundir um allt land um einkavæðingu
Símans. Næstu fundir í fundaröðinni
eru á Ísafirði, á morgun sunnudag,
Sauðárkróki á mánudag, Vestmanna-
eyjum á þriðjudag og í Borgarnesi,
miðvikudaginn 12. september. Einnig
verða haldnir fundir á Egilsstöðum,
Höfn í Hornafirði, Selfossi, í Keflavík
og Reykjavík.
Fundaröð um einka-
væðingu Símans
AKUREYRARKIRKJA:
Kvöldmessa annað kvöld, 9.
september kl. 20:30. Sr. Svavar
A. Jónsson messar. Félagar úr
kór Akureyrarkirkju. Organ-
isti: Björn Steinar Sólbergsson.
Eftir messu verður kaffisopi í
Safnaðarheimili. Þar verður
kynning á námskeiðum og
fræðslu sem boðið verður upp á
í Akureyrarkirkju í vetur.
Morgunsöngur kl. 9 á þriðju-
dag. Fyrsti mömmumorgunn
vetrarins kl. 10-12 á miðviku-
dag í Safnaðarheimili. Allir for-
eldrar velkomnir með börn sín.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl.
12 næstkomandi fimmtudag,
13. september. Bænaefnum má
koma til prestanna. Eftir
stundina er unnt að kaupa létt-
an hádegisverð í safnaðarheim-
ilinu.
GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðs-
þjónusta verður í kirkjunni kl.
21 annað kvöld, sunnudags-
kvöldið 9. september.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Al-
menn samkoma kl. 20 á sunnu-
dagskvöld.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund kl. 21 í kvöld, laug-
ardag. Vakningasamkoma kl.
16:30 á morgun, sunnudag.
Dögg Harðardóttir predikar.
Fjölbreytt lofgjörðartónlist og
fyrirbænaþjónusta.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa
í dag, laugardag kl. 18 og á
morgun, sunnudag kl. 11 í Pét-
urskirkju.
MÖÐRUVALLAKIRKJA:
Fjölskylduguðsþjónusta verð-
ur fyrir allt prestakallið í
Möðruvallakirkju sunnudaginn
9. september kl. 11:00 f.h. Barn
verður borið til skírnar. Léttir
söngvar fyrir alla fjölskylduna.
Guðsþjónustan markar upphaf
vetrarstarfs kirkjunnar.
Allir velkomnir ungir sem
aldnir.
Kirkju-
starf
VIGDÍS Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti Íslands, tók við heið-
ursviðurkenningu frá Zonta Inter-
national í upphafi umdæmisþings
13. umdæmis hreyfingarinnar sem
sett var á Hótel KEA á Akureyri í
gær.
Vigdís var tilnefnd heiðursfélagi
hreyfingarinnar árið 1999.
Dögg Pálsdóttir, fulltrúi í al-
þjóðastjórn Zonta og fyrrverandi
umdæmisstjóri 13. umdæmis,
sagði það stóra stund þegar nú
loks gæfist tækifæri til að afhenda
Vigdísi heiðursviðurkenninguna.
Zontakonur hefðu verið sammála
um að Vigdís væri vel til þess fall-
in að vera í hópi heiðursfélaga
hreyfingarinnar, fyrsta konan sem
lýðræðislega hefði verið kjörin
forseti lands.
Tebbie Clift, fulltrúi í al-
þjóðastjórn Zonta, afhenti Vigdísi
heiðursviðurkenninguna og nefndi
að hún hefði getið sér gott orð
fyrir störf sín víða um heim og
Zontakonur mætu störf hennar
mikils.
Vigdís þakkaði þá sæmd sem
viðurkenningunni fylgdi. Í þakkar-
ávarpi sínu nefndi hún m.a. þau
áhrif sem kvennafrídagurinn 1975
hefði haft á kvennabaráttuna og
þá hugarfarsbreytingu sem honum
fylgdi. Við forsetakjör fimm árum
síðar hefði til að mynda verið
óhugsandi annað en að kona byði
sig fram til forseta. Stjórn-
málaþátttaka kvenna hefði ekki
aukist mikið hin síðari ár né held-
ur þátttaka þeirra á sviðum sem
þær áður hefðu ekki haslað sér
völl á.
Þinginu lýkur á morgun, sunnu-
dag, en þema þess er sjálfsstyrk-
ing kvenna. Þátttakendur eru um
150 talsins og koma frá 8 þjóð-
löndum.
Morgunblaðið/Kristján
Tebbie Clift, Vigdís Finnbogadóttir og Dögg Pálsdóttir.
Umdæmisþing 13. umdæmis Zonta haldið á Akureyri um helgina
Vigdís Finnboga-
dóttir hlaut heiðurs-
viðurkenningu Zonta
GIGTIN hefur hagað sér þannig
hjá félögum í Veðurklúbbnum á
Dalvík að undanförnu að þeir vilja
ekki vera svartsýnir á haustveðrið.
Segjast félagarnir enn ætla að
rembast eins og rjúpan við staur-
inn og spá góðum haustkafla „og
bestum um og eftir miðjan mán-
uðinn“ eins og segir í spá þeirra.
Auk háttalags gigtarinnar nefna
þeir að septembertunglið kvikni á
góðum stað eða í suðaustri 17.
september kl. 10.27 og ættu menn
að vænta breytinga á veðri um það
bil tveimur dögum eftir tungl-
kviknunina.
Þannig eru allir félagar klúbbs-
ins sammála um að haustið verði
gott en vissulega sé spurning um
hversu hátt hitastigið verður. Fé-
lagarnir hafa það eftir flugmönnum
að kalt sé í háloftunum og frost í
fjallahæð.
Komi hörð íhlaup í september og
október með frosti og snjókomu
kallast þau „haustkálfar“ og boða
gott veður framan af vetri og allt
til jóla.
Veðurklúbburinn á Dalvík
Rembast við að spá
góðu haustveðri
FORSALA á leik Akureyrarliðanna
KA og Þórs sem verður á morgun,
sunnudaginn 9. september er hafin,
en búist er við miklu fjölmenni á leik-
inn. Miða á leikinn er hægt að kaupa
í félagsheimilum liðanna, KA-heim-
ilinu og Hamri í dag, laugardag og
einnig á morgun, sunnudag. Miða-
sala hefst á Akureyrarvelli kl. 13 á
morgun. Miðaverð er 1000 krónur
fyrir fullorðna og 300 fyrir börn.
Forsala á leik
KA og Þórs
♦ ♦ ♦