Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 25
EITUREFNI og þungmálmar
eru út um allt í sjónum við
bandarísku herstöðina í Thule í
Grænlandi. Óttast er, að í upp-
siglingu sé mikið umhverfisslys
á þessum slóðum, sem koma
muni í veg fyrir veiðar. Í danska
vikublaðinu Weekend-Nu er því
haldið fram, að danska utanrík-
isráðuneytið hafi stimplað viða-
mikla, bandaríska skýrslu um
mengunina sem leyndarmál og
hefur það verið harðlega gagn-
rýnt af umhverfisverndarsam-
tökum og stjórnmálamönnum á
Grænlandi. Margt af því fólki,
sem flutt var nauðugt frá Thule
1952, vill snúa þangað aftur en
óttast er, að mengunin muni
koma í veg fyrir það.
Aukið
atvinnu-
leysi vestra
ATVINNULEYSI í Bandaríkj-
unum var 4,9% í ágúst og hefur
ekki verið meira í fjögur ár. Var
það 4,5% í júlí en í ágúst sögðu
bandarísk fyrirtæki upp alls
254.000 manns. Hagfræðingar
óttast, að versni atvinnu-
ástandið enn, muni neytendur
kippa að sér hendinni af ótta við
þróunina. Það muni þá gera
ástandið enn verra og ýta af
stað raunverulegum samdrætti.
Vodafone
í vanda
BRESKA símafyrirtækið
Vodafone hefur viðurkennt, að
nýja farsímakerfið, þriðja kyn-
slóðin svokall-
aða, sé ekki
nógu hrað-
virkt fyrir þá
fjölmiðlun eða
þjónustu, sem
að var stefnt.
Flutningur
tónlistar og
mynda verður
því bæði hæg-
ur og dýr eða þar til bætt hefur
verið úr tækninni hvað það
varðar. Vodafone hefur keypt
10 farsímarásir í Evrópu fyrir
um 1.300 milljarða ísl. kr. en alls
hafa evrópsku leyfin verið seld
fyrir 10.200 milljarða kr. Eru
þau nú skuldunum vafin og
gengi hlutabréfa í þeim hefur
lækkað mikið. Lækkuðu hlut-
irnir í Vodafone í gær og óttast
er, að yfirlýsing fyrirtækisins
geti leitt til enn frekari lækk-
unar hjá því og öðrum símafyr-
irtækjum.
STUTT
Mikil
mengun
við Thule
k
la
p
p
a
ð
&
k
lá
rt
-
ij
Símenntunarmiðstöð
Eyjafjarðar
Glerárgötu 36
600 Akureyri
Sími: 460 5720
Fræðslumiðstöð
Þingeyinga
Duggugerði 7
670 Kópaskeri
Sími: 465 2161
FSNV-Mðstöð
símenntunar
v/Sauðárhlíð
550 Sauðárkróki
Sími: 453 6800
Fræðslumiðstöð
Vestfjarða
Árnagötu 2 – 4
400 Ísafjörður
Sími: 450 3000
Símenntunarmiðstöð
Vesturlands
Bjarnarbraut 8
310 Borgarnesi
Sími: 437 2390
Miðstöð símenntunar
á Suðurnesjum
Skólavegi 1
230 Keflavík
Sími: 421 7500
Tölvuskóli
Vestmannaeyja
Strandvegi 54
900 Vestmannaeyjar
Sími: 481 1122
Verið er að semja
um námskeið á
Austurlandi og
verða þau auglýst
um leið og gengið
hefur verið frá því.
Nýi tölvu- og
viðskiptaskólinn
Eyrarvegi 37
800 Selfossi
Sími: 482 3937
Enn er hægt að skrá sig á námskeið
á höfuðborgarsvæðinu hjá:
Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði
Sími: 5554980
Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum
Hlíðarsmára 9 - 200 Kópavogi
Sími 544 4500
Skrifstofa BSRB veitir einnig
upplýsingar í síma 525 8300
og á heimasíðu BSRB:
www.bsrb.is
Fjarnám
Skráning í fjarnám er hjá
Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum
á Selfossi. Sími: 482 3937
Starfrsmenn BSRB og NTV
veita upplýsingar um
námskeiðin í Kringlunni
í dag frá kl. 10-16