Morgunblaðið - 08.09.2001, Blaðsíða 37
PENINGAMARKAÐURINN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 37
VÍSITÖLUR
Eldri Neysluv. Byggingar Launa-
lánskj. til verðtr vísitala vísitala
Maí ’00 3,902 197,6 244,1 194,5
Júní ’00 3,917 198,4 244,4 195,7
Júlí ’00 3.931 199,1 244,8 196,4
Ágúst ’00 3.951 200,1 244,9 196,6
Sept. ’00 3.931 199,1 244,6 196,8
Okt. ’00 3.939 199,5 244,7 197,2
Nóv. ’00 3.979 201,5 245,5 197,4
Des. ’00 3.990 202,1 245,8 198,0
Jan. ’01 3.990 202,1 245,1 204,2
Febr. ’01 3.996 202,4 249,0 204,8
Mar. ’01 4.004 202,8 251,6 207,0
Apríl ’01 4.028 204,0 253,7 208,7
Maí ’01 4.077 206,5 254,3 210,0
Júní ’01 4.135 209,4 258,4 211,7
Júlí ’01 4.198 212,6 259,3 212,4
Ágúst ’01 4,229 214,2 261,3
Sept. ’01 4.243 214,9 261,4
Eldri lkjv., júní ‘79=100; byggingarv., júlí ‘87=100
m.v gildist. launavísit. des. ‘88=100. Neysluv. til
verðtrygg
LOKAGILDI HELSTU HLUTABRÉFAVÍSITALNA
Evrópa Lokagildi breyt.%
Úrvalsvísitala aðallista ................................................ 1.049,63 1,03
FTSE 100 ...................................................................... 5.070,30 -2,57
DAX í Frankfurt .............................................................. 4.727,11 -3,04
CAC 40 í París .............................................................. 4.413,51 -1,50
KFX Kaupmannahöfn 279,79 0,21
OMX í Stokkhólmi ......................................................... 734,54 -2,07
FTSE NOREX 30 samnorræn ...................................... 1.011,81 -0,32
Bandaríkin
Dow Jones .................................................................... 9.602,95 -2,42
Nasdaq ......................................................................... 1.687,23 -1,08
S&P 500 ....................................................................... 1.085,86 -1,86
Asía
Nikkei 225 í Tókýó ........................................................ 10.516,80 -1,25
Hang Seng í Hong Kong ............................................... 10.384,20 -2,63
Viðskipti með hlutabréf
deCODE á Nasdaq ....................................................... 6,44 -8,91
Arcadia á London Stock Exchange ............................. 238,00 -2,45
MEÐALVEXTIR
SKULDABRÉFA OG
DRÁTTARVEXTIR
Dráttar Vxt. alm. Vísitölub.
vextir skbr. lán
Mars ’00 21,0 16,1 9,0
Apríl ’00 21,5 16,2 9,0
Maí ‘00 21,5 16,2 9,0
Júní ’00 22,0 16,2 9,1
Júlí ’00 22,5 16,8 9,8
Ágúst ’00 23,0 17,0 9,8
Sept. ’00 23,0 17,1 9,9
Okt. ’00 23,0 17,1 10,0
Nóv. ’00 23,0 18,0 10,2
Des. ’00 24,0 18,0 10,2
Janúar ’01 24,0 18,0 10,2
Febrúar ’01 24,0 18,1 10,2
Mars ’01 24,0 18,1 10,2
Apríl ’01 24,0 18,1 10,2
Maí ’01 23,5 17,7 10,2
Júní ’01 23,5 17,9 10,2
Júlí ’01 23,5 18,0 10,3
SKAMMTÍMASJÓÐIR
Nafnávöxtun 1. september síðustu
(%)
Kaupg. 3 mán. 6 mán. 12 mán.
Kaupþing hf.
Skamm-
tímabréf
4,164 11,4 10,2 7,5
Skyndibréf 3,376 17,3 19,5 13,2
Landsbankinn-Landsbréf
Reiðubréf 2,499 16,8 17,3 13,2
Búnaðarbanki Íslands
Veltubréf 1,503 15,1 16,9 13,5
PENINGAMARKAÐSSJÓÐIR
Kaupg. í gær 1 mán. 2 mán. 3 mán.
Kaupþing hf.
Einingabréf 7 15,107 12,3 12,3 11,3
Íslandsbanki eignastýring
Sjóður 9 15,400 10,9
Landsbankinn-Landsbréf
Peningabréf* 15,821 12,5 11,5 11,5
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
SEPTEMBER 2001 Mán.gr.
Elli-/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) .................................................. 18.424
Tekjutrygging ellilífeyrisþega óskert ........................................... 31.679
Tekjutrygging örorkulífeyrisþega, óskert .................................... 32.566
Heimilisuppbót, óskert ................................................................ 15.147
Tekjutryggingarauki, hærri ...........................................................
Tekjutryggingarauki, lægri ...........................................................
Makabætur ................................................................................... 40.792
Örorkustyrkur................................................................................ 13.818
Bensínstyrkur................................................................................ 6.909
Barnalífeyrir v/eins barns............................................................ 13.895
Meðlag v/eins barns.................................................................... 13.895
Mæðralaun/feðralaun v/tveggja barna ..................................... 4.047
Mæðralaun/feðralaun v/þriggja barna eða fleiri ...................... 10.523
Dánarbætur – 6 mánaða ............................................................. 20.844
Dánarbætur – 12 mánaða........................................................... 15.628
Framlengdar dánarbætur ............................................................ 15.628
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)......................................................... 20.844
Fæðingarstyrkur mæðra.............................................................. 35.037
Fæðingarstyrkur feðra, 2 vikur.................................................... 17.514
Umönnunargreiðslur/barna, 25-100% ..................... 18.386 – 73.546
Vasapeningar vistmanna............................................................. 18.424
Vasapeningar vegna sjúkratrygginga.......................................... 18.424
Daggreiðslur
Fæðingardagpeningar, óskertir...................................................... 1.468
Sjúkradagpeningar einstaklinga, óskertir..................................... 734
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ............................. 200
Fullir slysadagpeningar einstaklinga............................................. 900
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ............................... 193
Vasapeningar utan stofnunar ......................................................... 1.468
6,6% hækkun allra frítekjumarka frá 1. sept. 2001.
!"# $"
%
&'"
!"
FRÉTTIR
KVIKMYNDASKÓLI Íslands og
SkjárEinn hafa gert með sér sam-
starfssamning. Hann felur í sér víð-
tækt samstarf í starfsmanna- og
markaðsmálum, endurmenntun,
þróun og gerð íslenskra sjónvarps-
þátta.
„Kvikmyndaskólinn mun verða
SkjáEinum innan handar með þróun
á íslenskri þáttagerð og gerð prufu-
þátta. Nemendur munu þannig fá
dýrmæta reynslu við lausn raun-
verulegra verkefna og SkjárEinn
fær góðs notið af hugmyndaríki
nemenda. Þeir nemendur sem sýna
góða frammistöðu munu fá tækifæri
til að starfa við gerð íslensks sjón-
varpsefnis á SkjáEinum. Enn frem-
ur mun Kvikmyndaskólinn sjá um
endurmenntun og tilfallandi nám-
skeið fyrir starfsmenn SkjásEins,“
segir í fréttatilkynningu.
Böðvar Bjarki Pétursson, framkvæmdastjóri Kvikmyndaskólans, og
Árni Þór Vigfússon, sjónvarpsstjóri SkjásEins.
Samstarf um gerð
sjónvarpsþátta
HINN árlegi haustmarkaður
Kristniboðssambandsins verður
haldinn í dag laugardaginn 8. sept-
ember í húsi KFUM og K, Holtavegi
28 Reykjavík. Markaðurinn hefst kl.
14. Það eru konur í Kristniboðsfélagi
kvenna sem einkum standa fyrir
markaðinum. Þarna verður væntan-
lega ýmiss konar grænmeti á boð-
stólum, ávextir, ber o.s.frv., allt eftir
því hvað kristniboðsvinir og aðrir
vilja leggja fram af uppskeru sum-
arsins. Allt er vel þegið, kál, kart-
öflur, gulrætur, sultur, kökur og
hvað sem er matarkyns, einnig blóm.
Um þetta leyti eru tveir fulltrúar
Kristniboðssambandsins að verki í
Kenýu og einn í Eþíópíu. Árangur af
starfinu hefur orðið mikill og taka
heimamenn æ meir við stjórn verk-
efnanna. Kristniboðssambandið
styður einnig sendingu kristilegra
útvarpsþátta á kínversku og er mikið
hlustað á þá í Kína. Hér heima eru
starfsmenn fjórir. Gert er ráð fyrir
að safna þurfi um 20 millj. króna til
starfsins á þessu ári. Sambandið er
sem fyrr algjörlega háð stuðningi
vina og velunnara, segir í fréttatil-
kynningu. Markaðurinn hefst eins
og áður segir kl. 14 í dag.
Haustmark-
aður kristni-
boðsins
HAFIN er fundaherferð um landið á
vegum Félags tónlistarskólakennara
og Félags íslenskra hjómlistarmanna
til að kynna félagsmönnum stöðuna í
viðræðum við samninganefnd launa-
nefndar sveitarfélaga og þá ákvörðun
samninganefnda FT og FÍH að efna
til atkvæðagreiðslu um boðun verk-
falls. Verði hún samþykkt gæti verk-
fall hafist í tónlistarskólum um miðj-
an október hafi samningar ekki tekist
fyrir þann tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá
Kennarasambandi Íslands var fyrsti
fundurinn í fundaherferðinni haldinn
á Dalvík á fimmtudag og sóttu hann
tónlistarskólakennarar víðs vegar að
af Norðurlandi. Á fundinum var sam-
þykkt ályktun þar sem lýst er megnri
óánægju með framgöngu launa-
nefndar sveitarfélaga gagnvart tón-
listarskólakennurum í yfirstandandi
samningaviðræðum og fullum stuðn-
ingi við samninganefnd tónlistar-
skólakennara. Er skorað á launa-
nefnd sveitarfélaga að viðhafa fagleg
vinnubrögð og ganga til samninga nú
þegar.
Allir hópar kennara í Kennarasam-
bandi Íslands, nema tónlistarskóla-
kennarar, hafa lokið gerð nýs kjara-
samnings. Hvorki hefur gengið né
rekið í samningaviðræðum tónlistar-
skólakennara og viðsemjenda þeirra.
Þær hafa staðið yfir með hléum allt
frá hausti 2000 án árangurs en kjara-
samningur tónlistarskólakennara
rann út 30. nóvember á síðasta ári.
Um síðustu áramót var gerður
skammtímasamningur um 5% hækk-
un á þágildandi launatöflu og fram-
lengingu kjarasamningsins til 31. júlí
2001. Þá var því jafnframt lýst yfir að
svigrúm sem þá skapaðist yrði notað
til þess að ljúka heildarendurskoðun
kjarasamningsins og að stefnt væri
að því að henni yrði að fullu lokið 31.
maí 2001. Það hefur ekki gengið eftir.
Verkfall tónlistarkennara
gæti hafist í október
Á SUNNUDAGINN 9. sept. kl.
10.30 verður farinn 8. áfangi í rað-
göngu Útivistar um Reykjaveginn,
en byrjað var á Reykjanestá þann
22. apríl í vor, og raðgöngunni lýk-
ur með 10. áfanga á Þingvöllum
þann 7. október í haust.
Í sunnudagsgöngunni verður
gengið frá Lambafelli undir Hús-
múla um Engidal og Marardal að
Dyr undir Hengli og er það áætluð
um 6 klst. ganga. Þetta er fjöl-
breytt gönguleið þar sem hamra-
dalurinn Marardalur vekur mesta
athygli, en göngunni lýkur við
skarð í fjallið er nefnist Dyr en
þar um lá gamla þjóðleiðin Dyra-
vegur.
Brottför er frá BSÍ kl.10.30 og
eru farmiðar seldir í farmiðasölu,
en verð er 1.500 kr f. félaga og
1.700 kr f. aðra.
Gönguferð með Útivist
Með þjónustusamning
– ekki einkarekinn
Ranghermt var í blaðinu í gær að
leikskólinn Tjarnarás í Hafnarfirði
væri einkarekinn. Hið rétta er að
skólinn er rekinn samkvæmt þjón-
ustusamningi við Hafnarfjarðarbæ.
Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðing-
ar á þessu.
Leiðrétt
NÚ í haust hefur Dansskóli Jóns
Péturs og Köru sitt 13. starfsár. Í
vetur verður sem fyrr boðið upp á
námskeið í barnadönsum, sam-
kvæmisdönsum, gömlu dönsunum,
Tjútti, Mambói og Salsa fyrir fólk á
öllum aldri, jafnt byrjendur sem
lengra komna. Einnig verða kenndir
nýjustu tískudansarnir s.s. dans
ársins, „Foringinn“, segir í frétta-
tilkynningu.
„Fyrir yngstu nemendurna 4 til 5
ára er boðið upp á dans, söng og
leik og þessu fléttað saman við tón-
list. Hjá eldri börnum og unglingum
er boðið upp á námskeið í sam-
kvæmisdönsum og nýjustu tísku-
dönsunum.
Fyrir fullorðna verður boðið upp
á námskeið í samkvæmisdönsum. Á
námskeiðinu fyrir byrjendur eru
kenndir suður-amerískir dansar
sem nýtast á dansleikjum s.s. jive,
cha cha cha, mambó og salsa ásamt
tjútti og fleiri dönsum. Í haust verð-
ur boðið upp á þá nýjung að vera
með sér dansnámskeið fyrir ein-
staklinga í suður-amerískum döns-
um. Í framhaldshópum barna, ung-
linga og fullorðinna er haldið áfram
að byggja upp dansinn á þeim
grunni sem fyrir er og bætt inn
fleiri dönsum og sporum. Einnig
verður farið af stað með merkjapróf
Dansráðs Íslands sem eflaust mun
verða mörgum hvatning í dansin-
um,“ segir jafnframt. Innritun á
dansnámskeið skólans stendur yfir
daglega frá kl. 12-19. Kennsla hefst
mánudaginn 10. september.
13. starfsár Dansskóla
Jóns Péturs og Köru
♦ ♦ ♦
ENGAR upplýsingar um sölu á
fiskmörkuðum og verð á þeim
eru í Morgunblaðinu í dag.
Skýringin er bilun í tölvukerfi
Íslandsmarkaðar, en þaðan
berast blaðinu að öllu jöfnu um-
ræddar upplýsingar.
Bilun í
tölvukerfi
Íslands-
markaðar