Morgunblaðið - 08.09.2001, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2001 53
TILKYNNINGAR
Frá Öldungasveit
Smáraskóla
Smáraskóli verður 7 ára 9. september!
Við sem útskrifuðumst vorið 2000 og 2001 ætl-
um að hittast á sal skólans á sunnudaginn
kemur kl. 18.00—20.00.
Allir koma með góðgæti á hlaðborðið.
Tobba og Kolli.
TIL SÖLU
Upplýsingar í símum 896 3130 og 557 9006.
S M Á A U G L Ý S I N G A RI
EINKAMÁL
TVÍBURARBRÆÐUR
Franskir tvíburabræður, 30 ára,
óska eftir að kynnast tvíbura-
systrum 18-28 ára. Sendið bréf
með mynd til: J.C. et J.S. Tram-
ier, La Grange Rouge, 30150
Roquemaure, Frakklandi.
FÉLAGSLÍF
Háaleitisbraut 58—60.
Munið haustmarkað kristni-
boðsins í dag á Holtavegi 28.
Hefst kl. 14. Grænmeti,
ávextir, niðursuðuvara o.fl.
Sunnudagur 9. September.
Selvogsgata.
Um 5 - 7 klst ganga. Fararstjóri
Trausti Pálsson. Brottför frá BSÍ
(austan megin) kl 10.30 með við-
komu í Mörkinni 6 og austan við
kirkjugarðinn í Hafnarfirði.
21.-23. September.
Landmannalaugar - Jökulgil
Spennandi ferð á fallegar slóðir.
Nánari uppl. í síma 568 2533 eða
á www.fi.is .
Haustdagskrá
þjóðgarðsins á
Þingvöllum
Laugardagur 8. september.
Kl.13.00 Á Þingvöllum urðu
Íslendingar þjóð. Í göngunni
verður fjallað um hlutverk Þing-
valla í þjóðlífi Íslendinga. Rakin
verður saga þingsins og fjallað
um hlutverk Þingvalla í sjálf-
stæðisbaráttu Íslendinga. Safn-
ast verður saman í kirkju klukkan
13.00 og gengið þaðan um Þing-
völlinn að Öxarárfossi í Stekkj-
argjá. Gangan endar á fallegum
útsýnisstað við Langastíg. Gang-
an tekur um tvo tíma.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins á
Þingvöllum er ókeypis og allir eru
velkomnir. Nánari upplýsingar
má fá í þjónustumiðstöð í síma
482 2660 og á heimasíðu þjóð-
garðsins www.thingvellir.is
Sunnudagsferð 9. sept.
kl. 10.30
Reykjavegur 8. ferð:
Lambafell - Marardalur - Dyr
Missið ekki af síðustu áföngum
Reykjavegarins.
Margt áhugavert á leiðinni. Um
6 klst. ganga. Verð. 1.500 kr f. fé-
laga og 1.700 kr f. aðra. Brottför
frá BSÍ. Miðar í farmiðasölu.
Stansað við Select. Helgarferð
14.—16. sept.
Grill- og haustlitaferð í Bása
Fjölmennið í þessa vinsælu ferð
sem er sannkölluð uppskeruhá-
tíð sumarsins. Gönguferðir, grill,
kvöldvaka, varðeldur.
Góð gisting í skála eða tjöldum.
Takið miða strax.
Minnum á hraðferðina um
Laugaveginn 13.—16. sept.
sem er að fyllast og nýja
haustlitaferð Lónsöræfi 20.—
23. sept.
Sjá heimasíðu: utivist.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNA
mbl.is
STÓRMEISTARINN Hannes
Hlífar Stefánsson teflir af miklu ör-
yggi í landsliðsflokki á Skákþingi
Íslands og er kominn með eins
vinnings forystu þegar tvær um-
ferðir eru eftir. Hann er taplaus,
hefur unnið fjórar
skákir og gert þrjú
jafntefli og er því með
5½ vinning. Í sjöundu
umferð lagði hann Jón
Viktor Gunnarsson að
velli. Það virðist fátt
geta komið í veg fyrir
að Hannes tryggi sér
Íslandsmeistaratitil-
inn, sérstaklega í ljósi
þess að hans helsti
keppinautur, Þröstur
Þórhallsson, tapaði í
sjöundu umferð. Það
var einn okkar efnileg-
asti skákmaður, Bragi
Þorfinnsson, sem náði
að leggja stórmeistar-
ann í góðri skák. Bragi hefur teflt
af feiknakrafti í síðustu tveimur
umferðunum og uppskorið tvo
vinninga, eftir fremur slaka byrjun
á mótinu. Þessi umskipti hafa orðið
til þess að hann á nú möguleika á
AM-áfanga í mótinu, en til þess
þarf hann að sigra Stefán og Lenku
í síðustu umferðunum. Bróðir
Braga, Björn Þorfinnsson, vakti
enn á ný athygli fyrir gríðarlega
áhættusama taflmennsku, sem þó
enn á ný skilaði árangri. Andstæð-
ingur hans var Lenka Ptacnikova,
sem tefldi vel að vanda og náði
gjörunninni stöðu gegn áhættu-
sömum sóknartilburðum Björns.
Hann lætur hins vegar seint bugast
og finnur sífellt nýjar leiðir til að
flækja taflið þar til andstæðingar
hans misstíga sig. Það henti Lenku
að þessu sinni þegar fór að saxast á
umhugsunartíma hennar og hún
lék illa af sér. Björn beið ekki boð-
anna og innbyrti vinninginn sam-
stundis. Þetta var ánægjulegur sig-
ur fyrir Björn, en að sama skapa
vonbrigði fyrir Lenku eftir að hafa
haft vinninginn í hendi sér.
Þessi úrslit þýða, að Björn þarf
einn vinning úr síðustu tveimur
umferðunum. Í áttundu umferð
sem tefld var í gærkvöldi mætti
hann Sigurbirni Björnssyni og í
lokaumferðinni mætir hann Hann-
esi Hlífari. Skynsamlegasta leiðin
fyrir Björn er vafalaust að leita eft-
ir jafntefli í þessum tveimur skák-
um. Staða þeirra Sigurbjörns og
Hannesar er slík að þeir eru báðir
líklegir til að taka jafntefli fegins
hendi. Það verður því að teljast
nánast formsatriði fyrir Björn að
ná sínum fyrsta áfanga að alþjóð-
legum áfanga og bætast þannig í
framvarðarsveit ungra íslenskra
skákmanna sem ætla sér fljótlega
alþjóðlegan meistaratitil.
Úrslit sjöundu umferðar urðu
þessi:
Hannes H. Stefánss. - Jón V. Gunnarss. 1-0
Arnar Gunnarss. - Stefán Kristjánss. ½-½
Sigurbjörn Björnss. - Jón
G. Viðarss. 0-1
Þröstur Þórhallss. - Bragi
Þorfinnss. 0-1
Björn Þorfinnss. - Lenka
Ptacnikova 1-0
Lokaumferðin verð-
ur tefld á laugardag
kl. 13 í íþróttahúsinu
við Strandgötu. Þá
mætast:
Arnar Gunnarss. - Jón G.
Viðarss.
Þröstur Þórhallss. - Jón V.
Gunnarss.
Hannes H. Stefánss. -
Björn Þorfinnss.
Sigurbj. Björnss. - Lenka
Ptacnikova
Bragi Þorfinnss. - Stefán Kristjánss.
Lokaumferðin í kvennaflokki
verður einnig tefld á laugardaginn.
Svo skemmtilega vill til, að þær
Harpa Ingólfsdóttir og Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir mætast í loka-
umferðinni, en þær berjast um sig-
ur á mótinu. Lilja þarf að sigra í
skákinni til að tryggja sér titilinn.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Bragi Þorfinnsson
Sikileyjarvörn
1.e4 c5 2.Rf3 d6 3.d4 cxd4
4.Rxd4 Rf6 5.Rc3 Rc6 6.f3 e6
7.Be3 a6 8.g4 Dc7
Önnur leið er 8...Be7, t.d. 9.Dd2
Rxd4 10.Bxd4 e5 11.Be3 Be6 12.0–
0–0 Hc8 13.g5 Rd7 14.h4 Da5 15.a3
Rb6 16.Kb1 Rc4 17.Bxc4 Hxc4
18.Rd5 Dxd2 19.Hxd2 Bxd5
20.Hxd5 Kd7 21.Hhd1 Ke6 22.Bd2
f6, með þægilegu tafli fyrir svart
(Har Zvi-Oll, Antwerpen 1993).
9.Dd2 --
Eða 9.g5 Rd7 10.Dd2 b5 11.0–
0–0, t.d. 11. -- b4 12.Rce2 Hb8
13.Rxc6 Dxc6 14.Rd4 Da4 15.Kb1
Rc5 16.h4 Be7 17.h5 Bd7 18.Bh3
Da5 19.b3 Dc7 20.Bg4 a5 21.g6 Bf6
22.Bg5 Dd8 23.h6 fxg6 24.hxg7 Hg8
25.Bxf6 Dxf6 26.Hxh7 Kf7 27.Re2
Hb6 28.Rf4 Hxg7 29.Hdh1 a4
30.Rxg6 og svartur gafst upp,
(Kurenkov-Jatautis, Artek 2000).
9...Re5!?
Önnur leið er 9...b5 10.0–0–0 Bb7
11.Kb1 Rxd4 12.Bxd4 h6 13.h4 e5
14.Be3 d5 15.Rxd5 Rxd5 16.exd5
Hd8 17.Df2 Hxd5 18.Be2 Be7
19.Hxd5 Bxd5 20.Hd1 Bb7 21.g5
hxg5 22.hxg5 g6 23.Bb6 Dc6 24.De3
og hvítur á gott tafl (Fedórov-
Gadjilij, Nikolajev 1993),
10.0–0–0 b5
Eftir 10...Be7 11.g5 getur svart-
ur lent í vandræðum, t.d. 11.-- Rfd7
12.f4 Rc4 13.Bxc4 Dxc4 14.f5 Re5
15.f6 gxf6 16.gxf6 Bxf6 17.Hhf1
Be7 18.Bg5 Db4 19.Df4 Bxg5
20.Dxg5 Rc4 21.Rb3 Db6 22.Hd4
Dc7 23.Df6 Hf8 24.Hfd1 b5 25.e5 d5
26.Hxd5 Bb7 27.Hd7 Dxd7 28.Hxd7
Kxd7 29.Rc5+ Kc6 30.b4 Kb6
31.Rd7+ Kc6 32.Rxf8 Hxf8 33.Dg7
Hd8 34.a4 bxa4 35.Dxf7 og svartur
gafst upp (Ristoja-Nei, Helsinki
1989).
11.g5 Rfd7 12.f4 Rc4 13.Bxc4
Dxc4 14.Kb1 --
Hvítur getur einnig leikið 14.b3 í
þessari stöðu, t.d. 14. -- Dc7 15.f5
Rb6 16.fxe6 fxe6 17.Hhf1 Bd7
18.Df2 0–0–0 19.Hd3 Kb7 20.Rce2
b4 21.Rf4 He8 22.Rde2 Be7 23.h4
Hhf8 24.De1 a5 25.Kb1 e5 26.Bxb6
Dxb6 27.Rd5 Dd8 28.Hdf3 Hxf3
29.Hxf3 Hf8 30.Df2 Hxf3 31.Dxf3
Df8 32.Dxf8 Bxf8 og biskuparnir
verða sterkari en riddararnir í
endataflinu (Dukaczewski-Kaczor-
owski, Varsjá 1997).
14...Bb7 15.a3 --
Til greina kemur 15.b3 Dc7 (15.
-- Db4!?) 16.f5! Rc5 17.fxe6 fxe6
18.b4 Rxe4 19.Rxe4 Bxe4 20.Rxe6
Dc4 21.Rxf8 Hxf8 22.Hhe1 Kf7
23.Bd4 Bf5 24.Bb2 Hac8 25.Dxd6
Kg8 26.He7 Kh8 27.Bxg7+ Kg8
28.Bb2 og svartur gafst upp (Mar-
cussi-Szmetan, Buenos Aires 1994).
15...Hc8 16.Hhe1 Rc5
17.e5? --
Afleikur, sem byggist á mis-
reikningi. Nauðsynlegt var að leika
17.Bf2, t.d. 17. -- b4 18.axb4 Dxb4
19.Rf3 Ra4 20.Rxa4 Dxa4 21.De2
Be7 22.Hd4 Da5 23.Dd2 Dxd2
24.Hxd2 d5 25.exd5 Bxd5 26.Re5
Bb4 27.c3 og svartur hefur góða
stöðu.
17...Re4!
Vafasamt er að leika 17. --
dxe5?!, vegna 18. b3 Re4 19. Rxe4
Dc7, þótt svartur vinni manninn til
baka í framhaldinu.
18.Rxe4 Bxe4 19.exd6 Bxd6
20.Bg1 Bxf4!
21.Df2 --
Eða 21.Dxf4 Bxc2+ 22.Ka1 Bxd1
23.Hxd1 Da4 24.Hf1 0–0 og hvítur
er í erfiðleikum, því að menn hans
vinna illa saman.
21...Bg6 22.h4 Dc7!
Eftir 22...0–0 23.h5 Bxh5 24.Dxf4
Bxd1 25.Hxd1 Hfd8 26.Hc1 Hd5
27.Hf1 Hd7 á svartur gott tafl.
23.h5 Bxh5 24.Rxe6 fxe6
25.Hxe6+ Kf7 26.Hde1 Hhe8
27.H6e4 --
Þröstur reynir að flækja taflið.
Honum virðist hafa orðið nokkuð
ágengt, en einfaldur svarleikur
Braga gerir vonir hans um björgun
að engu.
27...Kg8! 28.Hxf4 Hxe1+
29.Dxe1 Dxc2+ 30.Ka2 Bf7+
31.Hxf7 Kxf7 32.De5 Dc4+ 33.Ka1
De6 34.Df4+ Kg8 35.Bd4 Hf8
36.Dc1 Dd5 37.Bc3 Dd3 38.Be1
Db3 39.Bc3 Dc4 40.Dd1?--
Tapar strax, en eftir 40.De3
Hf1+ 41.Be1 b4 42.axb4 Dxb4
43.De8+ Df8 44.De6+ Kh8 45.De2
Hf4 46.Dd3 De7 47.Bc3 Ha4+
48.Kb1 De4 hefur svartur einnig
vinningsstöðu, þótt það taki marga
leiki að innbyrða vinninginn.
40...Hf1 41.Be1 De6 42.Dd8+
Kf7 43.Dc7+ De7
og hvítur gafst upp, því að hann
tapar biskupnum á e1, án þess að fá
fyrir hann neinar bætur.
Hannes efstur en Björn og Bragi
með möguleika á AM-áfanga
SKÁK
H a f n a r f j ö r ð u r
SKÁKÞING ÍSLANDS
31.8.–8.9. 2001
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Bragi Þorfinnsson
Gullsmárabrids
Bridsdeild eldri borgara í Gull-
smára hóf nýja starfsönn, eftir sum-
arhlé, með tvímenningi mánudaginn
3. september sl. Spilað er í Fé-
lagsheimilinu í Gullsmára 13. Spilað
var á ellefu borðum og beztum ár-
angri náðu:
N/S
Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 289
Kristinn Guðmss. – Auðunn Bergsveinss.262
Helga Ámundad. – Hermann Finnbogas. 242
AV
Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbj. 261
Hinrik Láruss. – Gísli Rafn Guðmundss. 249
Dóra Friðleifsd. – Guðjón Ottóss. 232
Þá var spilaður tvímenningur á
níu borðum að Gullsmára 13 fimmtu-
daginn 6. september. sl. Miðlungur
var 168.
Efst í N/S vóru:
Aðalst.Guðbrandss. og Leó Guðbrandss.200
Hinrik Lárusson og Gísli R. Guðmunds. 197
Óla Jónsdóttir og Anna Jónsdóttir 181
A/V:
Kristján Guðmss. og Sigurður Jóhannss. 193
Björn Bjarnason og Valdimar Lárusson 187
Sigurþór Halldórsson og Viðar Jónsson 184
Eldri borgarar spila brids að Gull-
smára 13 alla mánu- og fimmtudag.
Mæting kl. 12,45. Eldri borgarar
spila í Gullsmára 13 alla mánudaga
og fimmtudaga. Skráning kl. 12:45.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Bridsfélag Hafnarfjarðar hefur
vetrarstarf sitt mánudaginn 10. sept-
ember með eins kvölds tvímenningi.
Byrjað verður að spila kl. 19:30 í
Álfafelli, félagssal Íþróttahússins við
Strandgötu.
Aðalfundur félagsins er svo fyrir-
hugaður föstudaginn 14. september,
en hann verður nánar kynntur á
fyrsta spilakvöldinu. Spilarar eru
eindregið hvattir til að láta sjá sig
fyrsta kvöldið til að auðvelda stjórn-
inni að skipuleggja vetrarstarfið.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Vetrarstarfið hefst mánudaginn 10.
sept. nk. með eins kvölds tvímenningi.
Mánudaginn 17. sept. hefst svo fjögra
kvölda tvímenningur.
Spilað verður í Félagsheimili
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu
Hátúni 12. Spilamennskan hefst kl.
19.
www.leir.is