Morgunblaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 FYRIR 1250 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ www.sambioin.is  kvikmyndir.com  kvikmyndir.is Þegar þú veist lykilorðið, geturðu gert allt! Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B i. 16. Vit 251  strik.is  strik.is Mögnuð stuðmynd í nánast alla staði!  kvikmyndir.is  Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Vit 258. Sýnd kl. 8.Enskt. tal. Vit 265.Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 268 Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit 245  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 10. B.i. 12. Vit 256 Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12. Vit 270 Steven Spielberg leikstyrir hér Haley Joel Osment (Sixth Sense, Pay it Forward) og Jude Law (Enemy at the Gates) í einni stór- kostlegustu sögu og sjónarspili sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Í leikstjórn Steven Spielberg  Rás 2  Mbl  Radíó X  Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com HÁSKÓLABÍÓ þar sem allir salir eru stórir Sýnd kl. 6Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl. 5.15, 8 og 10. B. i. 12 ára. Himnasending i i Frá leikstjórum American Pie. Líf og dauði hef- ur sínar góðu og slæmu hliðar. Með „fyndn- asta manni“ í Ameríku, Chris Rock (Let- hal Weapon 4, Dogma), Mark Addy (The Full Monty), Eugene Levy (American Pie), Regina King (Jerry Maguire, Enemy of the State) og Chazz Pal- menteri (Analyze This). 1/2 Kvikmyndir.com  H.L. Mbl.  H.K. DV  Strik.is  ÓHT Rás 2 TILLSAMMANS Sýnd kl. 10. B.i.10.Sýnd kl. 8. B.i. 12. Skriðdýrin eru mætt aftur til leiks Sýnd kl. 6, 8 og 10. Kvikmyndir.com Hugleikur DV  strik.is Stærsta mynd ársins yfir 50.000 áhorfendur Steven Spielberg leikstyrir hér Haley Joel Osment (Sixth Sense, Pay it Forward) og Jude Law (Enemy at the Gates) í einni stórkostlegustu sögu og sjónarspili sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Í leikstjórn Steven Spielberg Hagatorgi www.haskolabio.is sími 530 1919 Sýnd kl.6. Ísl tal  Radíó X  Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com HINN kunni trommuleikari og hljómlistarmaður Gunnar Jökull Há- konarson lést á Landspítalanum síð- astliðinn laugardag, hinn 22. septem- ber, 52 ára að aldri. Gunnar er af mörgum talinn færasti trommuleik- ari landsins fyrr og síðar og frægt er orðið þegar honum var boðið korn- ungum að ganga í framsæknu sveit- ina Yes en hún átti eftir að verða eitt stærsta nafn rokksögunnar. Gunnar hafði þá leikið um hríð með forvera þeirrar sveitar, The Syn, og segir sagan að Chris Squire, bassaleikari Yes og fyrrverandi félagi Gunnars í Syn, hafi nauðað í honum lengi vel að ganga til liðs við þá félaga en Gunnar hafi svarað því til að hann nennti ekki því hjakki lengur; var þá kom- inn í Flowers sem var að gera það gott hér heima fyrir. Gunnar hóf annars feril sinn með skólahljómsveitinni Geislum en átti síðar eftir að starfa með Tónum, Syn, Tempó, Flowers, Trúbroti og Mán- um ásamt því að taka að sér umboðs- mennsku fyrir Eik. Upp úr 1973 sagði Gunnar skilið við tónlist að mestu en sneri óvænt aftur árið 1995 með einherjaplötu, hið einlæga verk Hamfarir, sem vakti mikla eftirtekt þegar það kom út. Sprúðlandi músíkant Finnur Torfi Stefánsson tónskáld var félagi Gunnars í hljómsveitinni Tónum. „Þá var hann...eða við báðir að hefja ferilinn,“ rifjar Finnur upp. „Ég á bara mjög góðar minningar um Gunnar. Þetta var sérstaklega hreinskipt- inn strákur, alveg sprúðlandi músíkant og hinn besti félagi. Hann var afar hæfileikaríkur og það var mjög gaman að spila með honum. Ofsalega næmur á tón- listina og hann var fljót- ur að skilja alla hluti í sambandi við tónlist. Það þurfti ekki neinar langar útskýringar gagnvart honum.“ Gunnar Þórðarson var með nafna sínum Jökli í Trúbroti á sínum tíma, en sveitin sú þótti bera höfuð og herðar yfir aðrar rokksveitir „hippatímans“ og gaf m.a. annars út hinna mærðu plötu ... lifun. „Það var mjög skemmtilegt að starfa með Gunnari,“ segir Gunnar. „Hann var alveg einstakur trommari og ekki bara trommari heldur líka stílisti. Hann var algert náttúrubarn í þessu.“ Hann segir að Gunnar hafi átt sér stóra drauma og hafi verið metnað- arfullur. „Honum leiddist t.d. mikið að hjakka á böllunum hérna á Ís- landi. En þegar maður fékk hann til að skapa með sér var hann alveg frá- bær. Og það var alveg ofboðslega gaman að spila með honum þegar hann var í formi.“ Gunnar telur nafna sinn vera með allra bestu rokktrommurum sem hann hafi kynnst. „Mjög takfastur og tæknilegur og spila- mennskan mjög hrein. Hann tók þessa bassa- leikara sem hann var að spila með í gegn. Ef hann var búinn að finna út einhvern bassa- trommutakt þá samdi hann bara bassalínurn- ar fyrir þá.“ Lárus H. Grímsson tónskáld starfaði með Gunnari skömmu áður en hann sagði skilið við tónlistina í fyrsta sinn. Þá starfaði Gunnar sem umboðsmaður Eikar. „Það sem einkenndi Gunnar sem umboðsmann,“ segir Lárus „fremur en aðra umboðsmenn á þessum tíma og í raun allar götur síðan, er hvað hann var strangheiðarlegur. Þetta er í eina skiptið sem ég hef kynnst hljómsveitarumboðsmanni sem hef- ur verið heiðarlegur (hlær).“ Hann segir Gunnar hafa verið góð- an gæja og viðkunnanlegan. „Og ég hef sennilega aldrei verið eins tekju- hár í bransanum og þegar Gunnar starfaði með okkur. Við vorum alltaf spilandi og einatt fyrir stórar upp- hæðir.“ Að lokum má geta þess að Gunnar Hjálmarsson, Dr. Gunni, hyggst rekja feril Gunnars Jökuls í þætti sínum Alætunni á Rás 2, næstkom- andi fimmtudagskvöld. Hefst hann kl. 22:10. „Alveg einstakur trommari“ Gunnar Jökull Gunnar Jökull látinn ÞAÐ VAR banastuð á Broadway á föstudagskvöldið þegar sýning helg- uð tónlist Rolling Stones var frum- sýnd. Að öðrum ólöstuðum er Helgi Björnsson, söngvari SSSólar, stjarna sýningarinnar en hann er í vanda- sömu hlutverki Micks karlsins Jagg- ers. Gunnar Þórðarson stjórnar hljómsveitinni en engum sögum fer þó af því hvort hann sé búinn að æfa gömlu Keith Richard- stellingarnar. Af viðtökunum á frumsýning- unni að dæma virðast listamenn- irnir leysa verkefnið með sóma og tók salurinn vel undir með þeim í hressari rokkslögurunum. Helgi Björns er stjarnan í Rolling Stones-sýningu á Broadway Steinunum er rúllað Morgunblaðið/Jim Smart Það var náttúrlega miklu frekar spurning um hvenær heldur en hvort Helgi færi einhvern tím- ann í jakkann hans „Jaggers“. Hanna, Dagur, Sindri, Halldór, Þráinn og Þór (hallandi) voru í svaka- legu Steina-stuði, sérstaklega Sindri. Hluti „Steinanna“ sem leika undir með Helga „Jagger“: Þórir Úlfarsson, Kristinn Svavarsson, Haraldur Þorsteinsson og Vilhjálmur Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.