Morgunblaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isFylkismenn eru fallnir úr
Evrópukeppninni / B4
Afturelding byrjaði á góðum
sigri í Kaplakrika / B3
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
HLAUP hófst í gær í Súlu og Núps-
vötnum vestast á Skeiðarársandi í
Vestur-Skaftafellssýslu. Mun þetta
vera stærsta hlaup í ánni frá árinu
1986. Eftir flug jarðvísindamanna
með vél Flugmálastjórnar yfir
svæðið síðdegis í gær varð ljóst að
vatnið kemur úr Grænalóni við
Skeiðarárjökul.
Áin hefur verið mjög vatnsmikil
að undanförnu og hveralykt lagt
frá henni, sem þykir óvanalegt um
hlaup úr þessu lóni. Af þeim sökum
þótti vísindamönnum ástæða til að
kanna aðstæður nánar. Að sögn
Magnúsar Tuma Guðmundssonar
jarðeðlisfræðings, sem fór í flugið
ásamt Helga Björnssyni, starfs-
bróður sínum á Raunvísindastofnun
Háskóla Íslands, er ekki talin hætta
á hlaupi úr Grímsvötnum í Vatna-
jökli þar sem ekki hefur orðið vart
við neina hreyfingu þar. Lögreglan
og Vegagerðin höfðu sérstakt eft-
irlit við Núpsvatnabrúna á Skeið-
arársandi í nótt án þess að vera
með stöðuga vakt en seint í gær-
kvöldi var að mati Almannavarna
ríkisins ekki talið að brýr eða önn-
ur vegamannvirki væru í hættu.
Lögreglumaður á Kirkubæj-
arklaustri, sem staddur var við
Núpsvatnabrúna, sagði við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að hlaupið
virtist vera í rénun. Til að hafa var-
ann á þótti mönnum ástæða til að
fylgjast vel með þróun hlaupsins í
nótt.
Hegðar sér öðruvísi en
síðustu hlaup hafa gert
„Hlaupið úr Grænalóni hegðar
sér öðruvísi en síðustu hlaup á
þessu svæði. Við höfum í sjálfu sér
engar skýringar á því. Vatn hefur
sigið um fimm metra í lóninu en við
vitum ekki af hverju jarðhitalykt
leggur af vatninu. Slíkt hefur ekki
gerst áður þegar Grænalón er ann-
ars vegar. Vatnið rennur úr lóninu
meðfram Skeiðarárjökli um kíló-
metra leið, fer síðan undir jökulinn
og kemur þaðan út og fram í Súlu.
Vatn liggur undir allri Núps-
vatnabrúnni og einnig er eitthvað
farið að aukast rennslið í farvegi
Gígjukvíslar,“ sagði Magnús Tumi
við Morgunblaðið, skömmu eftir að
hann var lentur með flugvél Flug-
málastjórnar í Reykjavík í gær-
kvöldi. Talið er að vatn hafi byrjað
að renna úr Grænalóni á sunnudag
en eiginlegt hlaup ekki hafist fyrr
en í gær.
Hlaup hófst í Súlu og Núpsvötnum í gær
!
"
#
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Umfang Súlu og Núpsvatna margfaldaðist í hlaupinu úr Grænalóni í gær en ekki var talið að Núpsvatnabrúin hefði verið í hættu eða þjóðvegurinn að
henni. Lögreglan á Kirkjubæjarklaustri og vegagerðarmenn höfðu sérstakt eftirlit með brúnni og veginum um sandinn í nótt.
Stærsta hlaup frá 1986
og hveralykt óvanaleg
STJÓRNVÖLD Maryland-ríkis í
Bandaríkjunum hafa boðið Flugleið-
um 40 milljónir króna í markaðs-
styrk og niðurfellingu lendingar-
gjalda til að tryggja flug frá Íslandi
til Baltimore. Þrjú evrópsk flugfélög,
Flugleiðir, Aer Lingus og British
Airways, hafa flogið yfir hafið til
Baltimore en nú hafa stjórnendur
Aer Lingus tilkynnt að félagið muni
hætta að fljúga til Baltimore og
óvissa ríkir varðandi flug British
Airways til borgarinnar.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir að samstarf
hafi verið milli Flugleiða og Mary-
land-ríkis árum saman varðandi
ferðamál, ekki síst vegna þess að rík-
ið sjálft sé eigandi flugvallarins í
Baltimore. „Þetta er markaðssam-
starf sem felst fyrst og fremst í því
að Flugleiðir hafa með starfsemi
sinni og fluginu þangað kynnt bæði
Baltimore-borg og Maryland-ríki
sem áfangastað. Síðan má bæta því
við að höfuðstöðvar Flugleiða í
Bandaríkjunum eru í Columbia í
Maryland þar rétt hjá.“
Að sögn Guðjóns hafa stjórnvöld
Maryland-ríkis haft áhyggjur af
ástandinu og stöðunni sem upp er
komin eftir hryðjuverkin í New York
11. september sl. „Síðan gerðist það
á mánudaginn að aðstoðarríkisstjóri
Maryland, Kathleen Townsend-
Kennedy, sem er dóttir Robert
Kennedy, hafði samband við svæð-
isstjóra Flugleiða í Bandaríkjunum,
Gunnar Eklund, og bauð Flugleiðum
400.000 dollara, eða um 40 milljóna
króna, markaðsstyrk gegn því að fé-
lagið héldi áfram fluginu til og frá
flugvellinum í Baltimore. Einnig
bauð hún til viðræðna um niðurfell-
ingu lendingargjalda á flugvellinum,
sem nema tæpri milljón á mánuði,“
segir Guðjón.
Hann segir Flugleiðir gera ráð
fyrir að fljúga áfram til Baltimore og
því sé ætlunin að setjast niður með
ríkisstjórn Maryland á næstu dögum
til að ræða áframhaldandi samstarf
varðandi flug til og frá Baltimore.
Guðjón segist telja að svona boð
hefði verið nánast óhugsandi fyrir at-
burðina 11. september og dæmi um
hvernig stjórnvöld í Bandaríkjunum,
bæði á lands- og héraðsvísu, séu að
breyta um stefnu og vilji greinilega
leggja sitt af mörkum til þess að
halda uppi ferðamennsku og sam-
göngum til og frá Bandaríkjunum.
Bjóða Flugleið-
um 40 milljónir
í markaðsstyrk
FARÞEGAFLUGVÉL breska flug-
félagsins British Airways lenti á
Keflavíkurflugvelli um kl. 15 í gær-
dag sökum þess að fimm ára barn
var talið hafa látist í vélinni. Vélin
var á leið frá Lundúnum til Toronto í
Kanada en þegar hún lenti hér á
landi var barnið úrskurðað látið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var barnið á ferð með móður
sinni sem er kanadískur ríkisborgari
en dánarorsök er ókunn. Þau voru
flutt á sjúkrahúsið í Keflavík en vélin
hélt nokkrum tímum síðar áleiðis til
Kanada. Lögreglan á Keflavíkur-
flugvelli varðist allra fregna af mál-
inu þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við hana í gær.
Flugvél
lenti með
látið barn
♦ ♦ ♦
ALLS bárust 9.336 athugasemdir
við nýtt brunabótamat sem tók gildi
15. september sl. og 903 athuga-
semdir bárust vegna nýs fasteigna-
mats. Við brunabótamat og fast-
eignamat bárust 3.184 athugasemdir
og þarf Fasteignamat ríkisins því að
taka afstöðu til 13.423 athugasemda
en nær tveir þriðju hlutar athuga-
semda bárust stofnuninni þrjá síð-
ustu daga tímafrestsins.
9.336 athuga-
semdir bárust