Morgunblaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 11
NIÐURSTAÐA ENDURSKOÐUNARNEFNDAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2001 11 arútvegsins verður viðunandi og hann geti verið burðarás í atvinnu- og efna- hagslífi landsmanna. Ég tel að það sé athyglisvert í áliti meirihlutans að þar er enn einu sinni staðfest að það skipulag sem er í sjáv- arútveginum er ein helsta ástæðan fyrir stöðugleika í efnahagslífinu og þar með einn helsti grundvöllur fyrir aukinni velmegun þjóðarinnar síðasta áratuginn. Þessu megum við ekki glata jafnvel þó að ýmis vandamál séu við þetta kerfi. Þar er líka staðfest að vandi byggðanna tengist ekki fyrst og fremst skipulagi sjávarútvegsins heldur sé hann miklu flóknari. Starfið innan Framsóknarflokks- ins hefur gengið vel og því er ekki að neita að fyrningarleiðin hefur mætt verulegri andstöðu í starfi nefndar- innar og jafnvel meiri andstöðu en ég hafði gert ráð fyrir. Það verður líka að hafa í huga þegar talað er um fyrning- arleið að þá skiptir miklu máli hvað menn eru að tala um háar prósentur í þeim efnum. Í sumum tilvikum getur hún virkað mjög líkt og veiðigjalds- leið. Við komum til með að ljúka þessu nefndarstarfi innan Framsóknar- flokksins í næsta mánuði og síðan tökum við afstöðu til þess eins og aðr- ir flokkar. Ég geng út frá því að það sé eins með aðra flokka og Fram- sóknarflokkinn, að hin mismunandi álit verði tekin til umfjöllunar og af- staða mótuð. Það er rétt að minna á að allt þetta starf hófst vegna þingsályktunartil- lögu sem stjórnarandstaðan flutti á Alþingi. Okkur í stjórnarflokkunum þótti rétt að koma til móts við þessi sjónarmið með því að setja af stað starf auðlindanefndar og síðan starf þessarar endurskoðunarnefndar. Starfið var hafið að frumkvæði stjórnarandstöðunnar með það í huga að skapa meiri sátt um sjávarútveg- inn. Vonandi tekst það. Því er ekki að neita að það er heilmikil prófraun fyr- ir flokka, þar á meðal Framsóknar- flokkinn, að ganga í gegn um þessa erfiðu umræðu. Í þessu máli eins og öðrum verða hin lýðræðislegu vinnu- brögð að eiga síðasta orðið.“ Halldór sagðist ekki taka undir það sjónarmið stjórnarandstöðunnar að starf endurskoðunarnefndarinnar hefði engu skilað. Þvert á móti hefðu nefndarmenn unnið gott starf. SVERRIR Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir niður- stöðu endurskoðunarnefndar sjávar- útvegsráðherra ekki koma sér á óvart. Aldrei hafi neitt verið að marka þau loforð eða vilyrði sem stjórnvöld hafa gefið fyrir því að breyta stjórn fiskveiða. „Allt er þetta pantað af málalið- um þeirra og mútuþýi. Um þetta mál verður harðari óeining en nokkru sinni fyrr, enda er óréttlætið og ólög- in, sem þarna er að finna, með þeim hætti að aldrei verður um það nein sátt. Þeir eru að leggja til auðlinda- gjald og ætla að fella niður gjöld nokkurn veginn jafnhá. Þau verða aldrei af útgerðarmönnum tekin. Svo ætla þeir að taka eitthvað af þessu til að rétta landsbyggðinni svo þar sé hægt að stunda sölvatekju og berja- tínslu. Þetta álit er alveg með ólík- indum,“ segir Sverrir. Hann segir aðeins eina skýringu vera á niðurstöðu meirihluta nefnd- arinnar. Auðvaldið hafi náð öllum undirtökum á Íslandi. Það megi merkja af mörgum öðrum dæmum. Sverrir segir Árna Steinar hjá Vinstri grænum stefna í rétta átt með sínum tillögum um fyrn- ingarleið en þær taki allt of langan tíma. Einnig stígi Jóhann Ársælsson í Samfylkingunni ölduna með Frjáls- lynda flokknum. „Ég tek hins vegar ekkert mark á þessum vikapilti Halldórs Ásgríms- syni sem Kristinn H. Gunnarsson er. Hann er með einhverja atkvæða- hræðslu í sínum meiningum. Það sem máli skiptir eru orð sjávarút- vegsráðherra um að hann ætli að bera fram frumvarp til laga sem byggir á tillögum meirihlutans. Enda eru þar þingmaður Samherja, þingmaður Skagstrendings og svo málaliðar og mútuþý ofan úr háskóla sem þeir kalla jafnan á sér til full- tyngis. Þarna er einnig embættis- maður, svínbeygður undir vilja þess- ara herra,“ segir Sverrir. Sverrir Hermannsson Allt pantað af málaliðum og mútuþýi Sverrir Hermannsson ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir það út af fyrir sig jákvætt að grundvallarat- riðið um auðlind- argjald skuli vera viðurkennt í áliti meirihluta endur- skoðunarnefndar sjávarútvegsráð- herra. Hann væntir þess að í framhaldinu verði gjaldið fært yfir á aðrar auð- lindir í landinu. „Þetta auðlindagjald er hins vegar ákaflega takmarkað og á móti falla niður önnur gjöld eins og þróunar- sjóðsgjaldið. Það sem skiptir mestu um að ekki er hægt að fallast á þess- ar tillögur meirihlutans er að ekkert skref er stigið í þá átt að afnema gjafakvótann og opna greinina fyrir nýju blóði. Í tillögum auðlindanefnd- ar var jafnan gert ráð fyrir að með einhverju móti yrði komið til móts við það sjónarmið. Ég er einnig and- vígur því að fiskvinnslustöðvum sé heimilað að fara með aflaheimildir. Með því er í reynd stigið skref til að gera alla sjómenn að leiguliðum, það er með engu móti þolandi. Ég dreg líka í efa að mikil stemmning sé fyrir því í landinu að rýmka framsals- heimildir og hækka þakið á há- markskvótaeign útgerðarfyrir- tækja,“ segir Össur. Formanni Samfylkingarinnar finnst það sömuleiðis athyglisvert að þrír nefndarmenn vilja afnema gjafakvótann og að fulltrúar stjórn- arflokkanna í endurskoðunarnefnd- inni klofni í afstöðu sinni. Valdamik- ill stjórnarliði í sjávarútvegsmálum og formaður þingflokks Framsókn- arflokksins, Kristinn H. Gunnars- son, skili séráliti þar sem í ýmsum grundvallaratriðum sé farið mjög nálægt sjónarmiðum Samfylkingar- innar. „Engin sátt verður um sjávarút- veg nema að stigin verði marktæk skref til að afnema gjafakvótann og fullnægja þannig réttlætinu. Sam- fylkingin mun ekki una sér hvíldar fyrr en það hefur tekist,“ segir Öss- ur. Össur Skarphéðinsson Ekkert gert til að afnema gjafakvótann Össur Skarphéðinsson ARTHUR Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir niðurstöður meirihluta nefnd- arinnar vera al- ger vonbrigði og að ekkert sé kom- ið til móts við hagsmuni smá- bátaeigenda í til- lögum nefndar- innar. „Ég er ekkert undrandi á því að samstaða náist ekki um hlutina, því mér sýnist ljóst að stjórnvöld hafi ekkert ætlað sér að hlusta á neitt annað en þau ætla sér sjálf. Varðandi málefni okkar smábátaeigenda er þessi nið- urstaða auðvitað alger vonbrigði og það virðist enginn vilji hjá ráðandi öflum innan stjórnarliðsins að ná einhverri sátt um þau málefni er varða smábátana. Það er alveg ljóst að þar verður áfram ófriður og hann mun magnast mjög nú á næstunni,“ segir Arthur. Hann segir staðreyndir málsins varðandi smábátasjómenn blasa við í höfnum landsins og að ekkert sé ver- ið að vinna í þeirra málum. „Stað- reyndin liggur á borðinu, þessi floti er einfaldlega bundinn við bryggju vegna þess að það er ekki hægt að vinna eftir þessu kerfi. Á meðan svo er og á meðan stjórnvöld skella skollaeyrunum við þessum stað- reyndum er manni eiginlega öllum lokið í þessu.“ Að sögn Arthurs hefði hann viljað sjá það veiðikerfi fest í sessi sem smábátaeigendur sömdu um við stjórnvöld árið 1996. Til þess hefur stjórnvöld fullt leyfi samkvæmt stjórnarskrá. „Það var okkar fróma ósk og það er ekkert of seint að verða við því. Ef stjórnvöld myndu nú sjá að sér í þessum málum myndi eitthvað sem kallast gæti sátt eða friður vera mun nær en er í dag. Þessar tillögur skapa enga sátt og ófriðurinn mun magnast. Þetta eru mikil vonbrigði þótt niðurstaðan veki ekki mikla undrun en samt hefði ég haldið að þeim hefði verið meira keppikefli að komast að einhverri skárri niðurstöðu í sambandi við mál okkar,“ segir Arthur. Arthur Bogason Niðurstaðan al- ger vonbrigði Arthur Bogason SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambandsins, segir það auðsjáanlega rangnefni að líta á nefnd um endur- skoðun laga um stjórn fiskveiða sem sáttanefnd. „Því hafi menn lagt sig fram um að fara þvert á skoðanir ein- hverra, þá hafa meirihlutamenn í þessari nefnd far- ið þvert á skoðan- ir sjómanna í flestum aðalmálum sem þarna koma fram.“ Að sögn Sævar vill meirihluti nefndarinnar auka framsalsréttinn þvert á vilja sjómanna. „Við viljum auka veiðiskylduna og höfum náð ör- litlum árangri undangengin ár en það á að taka það til baka og miklu meira. Þeir vilja láta fiskvinnsluna hafa þetta og það er alveg þvert á okkar skoðanir. Við höfum hingað til talið að það væru skipin sem veiddu aflann og aðrir ættu ekki að fá veiði- heimildir.“ Sævar segir tillögur um auðlinda- gjald ekki koma á óvart enda hafi stjórn Landssamands útgerðar- manna ályktað um það fyrir ári síðan að aðhyllast slíka leið, að því til- skyldu að sjómenn yrðu látnir greiða sinn hlut í gjaldinu. Að sögn Sævars er alveg ljóst að þarna sé ekki um neina sáttaleið að ræða fyrir sjó- menn. „Mín skoðun er sú að verði farið að tillögum meirihluta nefndarinnar sé það alfærasta leiðin til þess að aldrei verði sátt um þessi mál. Það er alveg ljóst að tillögur meiri- hluta nefndarinnar eru skref aftur á bak. Þetta er ekkert annað en ögr- un,“ segir Sævar. Hann segist hafa tekið eftir því að minnihluti nefndarinnar hafi verið sammála um að betra væri að fara hina svokölluðu fyrningaleið í stað þess að taka upp auðlindagjald. Sæv- ar segir þá leið ekki góða en af tvennu illu myndi þó fyrningaleiðin leiða til meiri möguleika á nýliðun í greininni. „Er það nákvæmlega það sem meirihluti nefndarinnar og flestir útgerðarmenn vilja ekki að gerist. Þess vegna fara þeir ekki þá leið.“ Sævar Gunnarsson Gengur þvert á hagsmuni sjómanna Sævar Gunnarsson ÖGMUNDUR Jónasson, formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir það mikið skipbrot fyrir rík- isstjórnina að ekki skuli hafa tekist að ná sam- an heildstæðu nefndaráliti um endurskoðun laga um stjórn fisk- veiða. „Þetta er mjög alvarlegt fyrir þjóðina. Fólk ger- ir þá kröfu að hægt sé að ná saman um fiskveiðistjórnunarkerfi til fram- búðar, ekki síst í ljósi þeirra miklu og harðvítugu deilna sem risið hafa um þetta mál á liðnum árum og skekið okkar þjóðfélag. Engin sátt verður um þær tillögur sem meirihluti nefndarinnar fylkir sér um. Það er hagsmunamál allra Íslendinga að leiða þessa mestu deilu þjóðarinnar í tvo áratugi til lykta á farsælan hátt. Ég hvet til þess að menn gaumgæfi rækilega minnihlutaálitin og kanni þar hvort grundvöllur sé til sátta. Menn eiga að vanda sig mjög í fram- haldinu og forðast að hlaupa inn í öngstrætin,“ segir Ögmundur. Hann segist hafa tröllatrú á þeim hugmyndum sem fulltrúi Vinstri grænna í nefndinni, Árni Steinar Jó- hannsson, tefli fram. Þær byggi á ít- arlegri vinnu þar sem tekið sé tillit til sjónarmiða sem komið hafa frá báð- um deiluaðilum. Þar sé gert ráð fyrir fyrningu veiðiheimilda á löngum tíma, þannig að ekki skapist koll- steypur í kerfinu. Ögmundur Jónasson Mjög alvarlegt fyrir þjóðina Ögmundur Jónasson FRIÐRIK J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útgerðarmanna, segist telja álit meirihluta endurskoðunar- nefndar góðan grundvöll til sátta um stjórn fisk- veiða. „Frá mín- um bæjardyrum séð er þetta góður gundvöllur til sátta við alla þá sem vilja á annað borð ná sátt. Við erum hins vegar búnir að átta okkur á því fyrir löngu að það er hluti t.d. stjórnmálamanna eins og minnihlutans, sem ætlar ekk- ert að ná sátt og vill bara hafa þetta svona og telur sig geta náð einhverj- um pólitískum árangri þannig. Og það sýnir sig nú kannski vel á því að þeir þrír sem mynduðu minnihluta nefndarinnar gátu ekki einu sinni komið sér saman um leið. Það er kannski mjög lýsandi fyrir stöðuna.“ Að sögn Friðriks ættu tillögurnar að stuðla að sátt við alla þá sem vilja ná sátt enda sé það einsdæmi í heim- inum að farin sé leið sem þessi. Víð- ast hvar í heiminum njóti sjávarút- vegur styrkja og auðlindagjald sé því einsdæmi. Friðrik segir auðlindagjaldið auð- vitað byggja á áliti auðlindanefndar- innar og skoðun meirihluta endur- skoðunarnefndarinnar sé í fullu samræmi við tillögur allra nefndar- manna auðlindanefndar. „Við mótuðum afstöðu til álits auð- lindanefndar á sínum tíma og auðvit- að er þetta bara í takt við það, en það er alveg ljóst að grundvallarafstaða útvegsmanna er sú að það beri ekki að innheimta auðlindagjald vegna nýtingar á náttúruauðlindum. Það hefur í sjálfu sér ekkert breyst. En við samþykktum í fyrra, þrátt fyrir þessa andstöðu, að útvegsmenn væru tilbúnir að greiða hóflegt auð- lindagjald í takt við tillögur auðlinda- nefndar, enda verði það til að skapa stöðugleika og við fáum reglur sem gilda til langs tíma. Það er auðvitað grundvallaratriði,“ segir Friðrik. Friðrik J. Arngrímsson Góður grund- völlur til sátta Friðrik J. Arngrímsson KRISTINN H. Gunnarsson, for- maður þingflokks framsóknar- manna, segist líta svo á að meirihluti sjávarútvegsnefndar hafi í áliti sínu í nokkrum atriðum vikið frá niður- stöðum auðlinda- nefndar. Kristinn stendur ekki að meirihlutaálitinu og segir að það verði bara að koma í ljós hvort tillögurnar njóti stuðnings meiri- hluta Alþingis. „Það er verður bara að koma í ljós. Það er ljóst að innan stjórnarflokk- anna eru skiptar skoðanir um þetta meginágreiningsefni í sjávarútvegs- umræðunni, hvort fara ber fyrning- arleið eða veiðigjaldsleið. Ég þykist vita að það sé ekki síður mikill stuðn- ingur við fyrningarleið innan raða Sjálfstæðisflokksins. Þetta er hlutur sem flokkarnir þurfa báðir að glíma við og komast að sameiginlegri nið- urstöðu. Ég spái því að það muni menn gera,“ sagði Kristinn þegar hann var spurður hvort hann teldi að tillögurnar nytu stuðnings meiri- hluta Alþingis. Njóta þínar hugmyndir stuðnings meirihluta þingflokks Framsóknar- flokksins? „Ég lagði þetta álit fyrir þing- flokkinn og tók tillit til þeirra at- hugasemda og ábendinga sem þar komu fram. Þetta er hins vegar mitt álit en ekki þingflokksins, alveg eins og meirihlutaálitið er álit meirihlut- ans en ekki þingflokksins. Þingflokk- urinn hefur þessi álit bæði til athug- unar og við munum vinna að því ásamt samstarfsflokknum, að ná sameiginlegri niðurstöðu til að leggja fyrir þingið.“ Auðlindanefnd lagði til 3,3 milljarða auðlindagjald Kristinn sagðist telja að í áliti meirihluta nefndarinnar væri vikið í nokkrum atriðum frá áliti auðlinda- nefndar. Auðlindanefnd hefði lagt til að breytingar yrðu gerðar á stjórn- arskrá þar sem náttúruauðlindir yrðu lýstar þjóðareign. Þessa tillögu væri ekki að finna í áliti sjávarút- vegsnefndar. Þar væri heldur ekki að finna tillögu auðlindanefndar um hlut sveitarfélaga í gjaldtökunni. Auðlindanefnd hefði ennfremur lagst gegn hugmyndum um að fisk- vinnslustöðvar fengju kvóta. Þá hefði auðlindanefnd ekki lagt til að breytingar yrðu gerðar á stærðar- hlutföllum einstakra fyrirtækja í fiskistofnunum. „Í nokkrum atriðum er vikið frá áherslum auðlindanefndar. Það er líka greinilegt að auðlindanefnd lagði til mun hærra auðlindagjald en þessi nefnd gerir. Auðlindanefndin lagði til að greinin borgaði allan kostnað við eftirlit og rannsóknir, en það vantar verulega mikið upp á það að tillaga sjávarútvegsnefndar geri það.“ Kristinn sagði að rannsóknir og eftirlit í sjávarútvegi hefðu kostað um 3,3 milljarða árið 1996, en tillaga nefndarinnar fæli í sér að gjaldið yrði innan við 2 milljarðar sem væri hækkun um 400–500 milljónir. Krist- inn sagðist ekki vera viss um að til- laga nefndarinnar um afkomutengt gjald skilaði neinu í ár. Að vísu væru tölurnar frá Verðbréfaþinginu nokk- uð góðar fyrir fyrri hluta ársins. Þá ætti hins vegar eftir að taka tillit til annarra útgerðarfyrirtækja sem ekki væru á Verðbréfaþinginu og eins ætti eftir að taka tillit til fisk- vinnslunnar sem væri með minni framlegð. Krafan um 20% framlegð væri nokkuð há því að aðeins einu sinni á síðustu 20 árum hefði sjávar- útvegurinn náð svo hárri framlegð. Meðaltalið væri 16–18%. Ef afkoman í sjávarútvegi yrði svipuð næstu tvo áratugi myndi afkomutengingin verða til þess að lækka fastagjaldið. Vikið frá tillögum auð- lindanefndar Kristinn H. Gunnarsson Kristinn H. Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.