Morgunblaðið - 23.10.2001, Blaðsíða 24
ERLENT
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
/0/'10 '20'314 / 5670318.0 491:;
! "#$
"% &
' " (
("#
)
( " (
! *
"
8<30810 :=;8.0
+#
$ ,,"#
-
. "( ". /
"% (
!
".
'
(
+
!
-' ' "
0
- ! ,
!"
"
" ##
1#
# #
.
- !
"
. 1"#$ "
!
($
$
!2
"
-
(
. 3
!! # . "
- *!## # ( "
" !
!
"
#
$
%
#
#
$
"
"
"
%
!
. BANDARÍSK sérsveit réðst í fyrsta
sinn beint gegn talibönum sl. laug-
ardag en þá var ráðist inn á heimili
Mohammeds Omars, leiðtoga talib-
ana, við Kandahar og á flugvöll
skammt frá.
Meira en 100 sérsveitarmenn tóku
þátt í árásinni og voru þeir látnir
svífa til jarðar skammt frá herstöð
og flugvelli fyrir utan Kandahar. Var
herstöðin eitt af heimilum Mohamm-
eds Omars en hann var þó ekki
staddur þar né aðrir leiðtoga talib-
ana. Í árásinni var eyðilagt vopna-
búr, þar á meðal sprengjuvörpur og
vélbyssur, og auk þess lagt hald á
mikið af skjölum. Til átaka kom við
hermenn talibana og voru einhverjir
þeirra felldir að því er fram kom hjá
talsmanni bandaríska hersins. Ekki
er vitað hvort einhverjir voru teknir
til fanga.
Bandarísku sérsveitarmennirnir
voru sóttir af þyrlum en þeir skildu
eftir ljósmyndir af slökkviliðsmönn-
um með bandaríska fánann í rústum
World Trade Center og Pentagon. Á
myndirnar var letrað „Frelsið lifir“.
Fyrsta
sérsveit-
arárásin
Washington. Los Angeles Times.
Á fréttamannafundi leiðtoganna
ítrekaði Pútín andstöðu sína við
breytingar á ABM-gagneldflauga-
samningnum frá 1972, en bætti við,
að mikilvægast væri þó að horfa til
framtíðar og bregðast með viðeig-
andi hætti við þeim ógnunum, sem
hún kynni að bera í skauti sér. Bush
endurtók hins vegar, að ABM-samn-
ingurinn væri úreltur, og sagði, að
hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11.
september sýndu það ljóslega.
Stórbætt samskipti
Vonast er til, að verulegur árang-
ur verði af fundi með fulltrúum
ríkjanna í Bandaríkjunum í næsta
mánuði, og búist er við, að þá muni
Bandaríkjamenn bjóðast til að
fækka verulega í kjarnavopnabúri
sínu. Tilgangurinn með því er að fá
Rússa til að samþykkja breytingar á
ABM-samningnum og leyfa eld-
flaugatilraunir, sem hann bannar
nú.
Samskipti Rússa og Bandaríkja-
manna hafa gjörbreyst eftir hryðju-
verkin í Bandaríkjunum og Bush
lagði á það áherslu, að Pútín hefði
fyrstur manna hringt í sig vegna
þeirra og að auki aflýst fyrirhug-
uðum heræfingum Rússa á Norður-
Atlantshafi. Minnti Bush á, að
Bandaríkjastjórn hefði skipað her-
afla sínum í viðbragðsstöðu vegna
hryðjuverkanna og áður fyrr hefði
það þýtt, að Rússar gerðu slíkt hið
sama. Pútín hefði hins vegar skipað
rússneska hernum að láta sem ekk-
ert væri.
Leiðtogar ríkjanna 19, sem aðild
eiga að APEC, fordæmdu hryðju-
verkin í Bandaríkjunum mjög harð-
lega en lýstu þó ekki yfir beinum
stuðningi við árásirnar á Afganistan.
Fengu múslímaríkin Indónesía og
Malasía ráðið því. Voru það nokkur
vonbrigði fyrir Bush, sem fagnaði þó
yfirlýsingu fundarins og sagði, að
hún sýndi einbeittan vilja APEC-
ríkjanna til að berjast gegn hryðju-
verkum.
George W. Bush og Vladímír Pútín á APEC-fundi í Shanghai í Kína
Nokkur árangur í við-
ræðum um kjarnavopn
Shanghai. AP.
AP
Vladímír Pútín Rússlandsforseti og George W. Bush Bandaríkjaforseti,
klæddir kínverskum silkiskyrtum, ræðast við fyrir myndatöku af leið-
togum APEC-ríkjanna í Shanghai á sunnudag.
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, hafa náð „nokkrum árangri“ í viðræðum sínum um
nýjan samningaramma um kjarnorkuvopn en í honum er gert
ráð fyrir takmörkuðum eldflaugavörnum. Kom það fram á
fréttamannafundi í Shanghai í Kína í gær en þar hafa þeir setið
fund APEC, Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsríkja.
AFGANSKUR læknir staðfestir,
að 10 ára gamall sonur Mohamm-
ads Omars, leiðtoga talibana, hafi
látið lífið í loftárásunum á Kandah-
ar, helstu stjórnsýslumiðstöð talib-
anastjórnarinnar. Kom það fram í
breska ríkisútvarpinu, BBC, en
óstaðfestar fregnir höfðu áður
hermt að sonur Mohammads Om-
ars hefði farist á fyrsta degi loft-
árásanna.
Læknirinn, Abdul Barri, segir,
að drengurinn hafi látist af sárum,
sem hann fékk í fyrstu árásinni á
Kandahar, og tilraunir til að
bjarga lífi hans hafi ekki tekist
þrátt fyrir áköf áköll föður hans í
þá veru. Segir læknirinn, að
frændi Omars hafi einnig slasast
en lifað af. Sé hann nú á sjúkra-
húsi í borginni.
Dr. Barri ræddi við fréttamann
BBC er hann kom yfir landamærin
til Pakistans. Sagði hann, að lyfja-
birgðir á sjúkrahúsinu í Kandahar
hefðu aðeins verið til fimm daga
og því hefðu margir, sem særst
hefðu í árásunum, farið til Pakist-
ans í von um aðstoð þar.
Talsmaður Bandaríkjahers seg-
ir, að ráðist hafi verið á aðsetur
talibanaleiðtogans vegna þess, að
þar hefði verið mikið um fjar-
skiptatæki.
Afganskur læknir
Sonur Om-
ars látinn
HAFNAR eru viðræður milli
forstjóra bandarískra kvik-
myndavera í Hollywood og full-
trúa bandarískra stjórnvalda
um það hvaða hlutverki afþrey-
ingariðnaðurinn geti gegnt í
baráttunni gegn hryðjuverka-
mönnum.
Meðal annars var rætt um
möguleika á gerð heimildar-
mynda um miltisbrand, hvernig
skuli fjalla um hryðjuverk í
sjónvarpskvikmyndum og
hvernig stuðla megi að auknum
skilningi á Bandaríkjunum er-
lendis. Sérstaklega var rætt
hvernig mætti bæta miðlun
upplýsinga til annarra landa
um forsendur hefndaraðgerða
Bandaríkjamanna fyrir hryðju-
verkin 11. september.
Ræða hlutverk
Hollywood
Los Angeles. AP.
♦ ♦ ♦