Morgunblaðið - 23.10.2001, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 25
UNGIR, afganskir flóttamenn í
búðum við Peshawar Pakistan
leita í hrúgu af laukafgöngum í
von um að finna eitthvað ætilegt.
Alls eru um 3,7 milljónir afg-
anskra flóttamanan í Pakistan og
Íran og tugþúsundir annars stað-
ar í heiminum. Að auki eru millj-
ónir manna á vergangi víða í
Afganistan sjálfu en þar hafa
herjað miklir þurrkar undanfarin
þrjú ár eins og í fleiri löndum
Mið-Asíu og því lítið um mat.
Frjósamir dalir eru í landinu
en aðeins um 5% af Afganistan
eru ræktað land. Aðrir hlutar
þess eru heiðar og gróðurlaus
fjöll. Breska tímaritið The Eco-
nomist hefur eftir fulltrúum Sam-
einuðu þjóðanna að ein af orsök-
um matarskortsins núna sé að
talibanar hafi í upphafi valda-
skeiðs síns 1996 ýtt undir ópíum-
rækt til að fá peninga fyrir vopn-
um.
Talibanar bönnuðu skyndilega
ópíumrækt í fyrra en munu nú
hafa leyft hana á ný.
Reuters
Leitað að mat í rusli
við Peshawar
MEÐ hryðjuverkunum í Banda-
ríkjunum 11. september urðu mikil
tímamót í alþjóðamálum. Gömul
bandalög stokkuðust upp og gaml-
ir fjandmenn féllust í faðma í stríði
sem hugsanlega mun skipta fylk-
ingunum með jafn afgerandi hætti
og kalda stríðið á sínum tíma.
„Upp er runninn nýr tími í her-
málum,“ sagði John Chipman, for-
stöðumaður Herfræðistofnunar-
innar (IISS) í London í fyrradag.
Bandaríkin hafa eignast nýjan
óvin, sem er hvorki Rússland né
Kína, heldur alþjóðleg hryðju-
verkastarfsemi. Ný tengsl, ný
bandalög eru að fæðast og þau
munu hugsanlega standa lengi.“
„Að því mun koma að þessi bar-
átta verður eins og daglegt brauð,
ein af grundvallarreglunum í al-
þjóðlegum samskiptum. Eins og í
kalda stríðinu mun á ýmsu ganga
en hún mun einkennast af því ófrá-
víkjanlega markmiði að vinna full-
an sigur,“ sagði Chipman og bætti
við að þetta nýja stríð yrði að því
leyti erfiðara en kalda stríðið að
óvinurinn er ekki jafn sýnilegur.
Tækifæri fyrir Rússa
Segja má að samskipti Banda-
ríkjanna við Rússland og Kína hafi
tekið gagngerum breytingum að-
eins á rúmum mánuði og það sama
má segja um viðhorf Bandaríkja-
stjórnar til deilna Ísraela og Pal-
estínumanna. Oksana Antonenko,
sem starfar við Herfræðistofn-
unina, segir að í fyrsta sinn frá lok-
um kalda stríðsins hafi Rússar
„eitthvað að bjóða“ Vesturlöndum
og með því gefist þeim tækifæri til
að standa með Bandaríkjunum og
Evrópu á jafnréttisgrundvelli.
Chipman telur að ein af afleið-
ingum hryðjuverkanna verði sú að
stefna margra ríkja verði íhalds-
samari en áður, einkum hvað varð-
ar innflytjendamál og borgararétt-
indi. „Þeir tímar eru liðnir þegar
efnahagslegir hagsmunir höfðu all-
an forgang í samskiptum ríkja.“
Chipman segir hins vegar að
þrátt fyrir tilraunir George W.
Bush, forseta Bandaríkjanna, til að
koma á alþjóðlegri breiðfylkingu
gegn hryðjuverkum þá hafi einsýni
hans á umheiminn ekki breyst.
„Bush-stjórnin hefur ekki tekið
samráðsstefnuna upp á sína arma
og hún er engu hlynntari alþjóð-
legum samningum en áður,“ segir
Chipman. Að hans mati verða Evr-
ópuríkin að vanda vel til þeirra
mála, sem þau vilja hafa áhrif á, og
hann nefnir sérstaklega sem for-
gangsmál að fá Bandaríkin til að
halda áfram afskiptum af þeim
svæðum þar sem baráttan gegn
hryðjuverkum er mikilvægust.
Áfram einhliða stefna
Philip Gordon, sem starfar við
Brookings-stofnunina í Wash-
ington, er sammála Chipman í því
að líkja megi baráttunni gegn
hryðjuverkum við kalda stríðið en
hann telur að of snemmt sé að full-
yrða að hún verði jafn víðtæk. Og
hann er sammála um einstreng-
ingshátt Bandaríkjastjórnar í sam-
skiptunum við umheiminn.
„Það er ekki við því að búast að
hún undirriti neina þá samninga
sem hún hafði hafnað fyrir 11.
september,“ segir Gordon.
Hryðjuverkin hafa valdið þáttaskilum í alþjóðasamskiptum
Fjandmenn fallast í
faðma í nýju bandalagi
London. AP.
Reuters
Bush Bandaríkjaforseti ræðir
við Jiang Zemin Kínaforseta.
Nú býðst
þér ótrúlegt tækifæri til þessarar heillandi borgar. Þú bókar tvö sæti til
Prag, en greiðir bara fyrir eitt, og kemst til einnar fegurstu borgar Evr-
ópu á frábærum kjörum. Allar ferðir í október eru nú uppseldar og þér
bjóðast nú síðustu sætin þann 28. október á einstökum kjörum. Hjá
Heimsferðum getur þú valið um gott úrval 3ja og 4 stjörnu hótela og
fararstjórar Heimsferða bjóða þér spennandi kynnisferðir meðan á
dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 16.850
Flugsæti á mann, m.v. 2 fyrir 1.
33.700/2 = 16.850.-
Skattar kr. 3.350, ekki innifaldir.
Gildir eingöngu 28. okt., 4 nætur.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Forfallagjald, kr. 1.800.
Verð hótela:
Verð á mann
Hotel Korunek – 3 stjörnur,
kr. 3.890 nóttin
í tveggja manna herbergi.
Quality Hotel
kr. 3.900 nóttin
í tveggja manna herbergi.
Expo – 4 stjörnur,
kr. 4.900 nóttin
í tveggja manna herbergi.
Síðustu sætin til Prag í október - 4 nætur
2 fyrir 1 til
Prag
28. október
frá kr. 16.850