Morgunblaðið - 23.10.2001, Blaðsíða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 27
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, gaf í gær í skyn að hann
vildi að jafnaðarmenn (SPD) í Berlín
mynduðu meirihluta með öðrum en
arftökum kommúnista, PDS. Jafnað-
armenn unnu mikinn sigur í kosning-
um á sunnudag og fengu 29,7% at-
kvæða en PDS kom mest á óvart og
hlaut 22,6%.
Árið 1999 var SPD
með 22,4% atkvæða.
Kristilegir demókrat-
ar, CDU, sem misstu
embætti borgarstjóra í
júní vegna fjármála-
hneykslis og óhóflegr-
ar skuldasöfnunar
borgarinnar hröpuðu
að þessu sinni og fengu
aðeins 23,7% stuðning sem er versta
niðurstaða þeirra frá 1948. Fyrir
tveim árum fengu þeir nær 41% at-
kvæða.
Jafnaðarmaðurinn Klaus Wowereit
á úr vöndu að ráða þrátt fyrir góðan
sigur. Hann getur myndað meirihluta
með PDS sem hefur lagst eindregið
gegn stuðningi ríkisstjórnar jafnaðar-
manna og græningja við Bandaríkja-
menn í baráttunni gegn talibana-
stjórninni í Afganistan og Osama bin
Laden. En framkvæmdastjóri flokks
jafnaðarmanna, Franz Münterfering,
sagði á hinn bóginn í gær að einstök
sambandsríki eins og Berlín tækju
ekki ákvarðanir um utanríkisstefn-
una og þess vegna væri flokkurinn
ekki í grundvallaratriðum á móti sam-
komulagi við arftaka kommúnista.
Hinir síðarnefndu fengu nær helming
atkvæða í austurhluta borgarinnar
sem fyrir rúmum tíu árum var hand-
an járntjaldsins gamla.
Wowereit hélt öllum tækifærum
opnum en ákvað að ræða fyrst við full-
trúa græningja. Ef hann fær stuðning
þeirra og Frjálslyndra demókrata
getur hann myndað meirihluta.
Schröder kanslari vitnaði til könnun-
ar meðal flokksmanna SPD sem
sýndi að þorri þeirra kýs fremur slíkt
samstarf en meirihluta með kommún-
istum. Wowereit mun á hinn bóginn
ekki velta fyrir sér samstarf við CDU.
Staða leiðtoga CDU, Angelu Merk-
el, þykir enn hafa veikst við niður-
stöðuna í Berlín að sögn blaðsins
Handelsblatt og auknar líkur á að hún
verði ekki kanslaraefni flokksins í
næstu kosningum. Aðrir benda á að
flokksdeildin í Berlín hafi ákveðið að
Frank Steffel yrði borgarstjóraefni
þrátt fyrir andmæli hennar. Süd-
deutsche Zeitung sagði fáránlegt að
kenna Merkel um ósigurinn og söku-
dólgurinn væri Helmut Kohl, fyrrver-
andi kanslari sem lét á sínum tíma
CDU taka við ólöglegum greiðslum í
flokkssjóði. Hefur CDU átt erfitt með
að ávinna sér traust eftir hneykslið.
SPD sigraði
í Berlín
Berlín. AFP, AP.
Schröder andvígur samstarfi við kommúnista
Klaus
Wowereit
HEIMASTJÓRN Palestínumanna
hefur lýst vopnaðan arm samtakanna
Frelsisfylking Palestínu (PLFP) út-
lægan, en samtökin hafa sagst ábyrg
fyrir morðinu á ísraelskum ráðherra,
Rehavam Zeevi, í síðustu viku.
Æðstaráð Palestínumanna kom
saman til fundar í Gazaborg á sunnu-
dagskvöldið, og stjórnaði Yasser Ara-
fat fundinum. Að fundinum loknum
gaf ráðið út tilkynningu þar sem lýst-
ur var útlægur „sá hópur sem stóð að
aðgerðum … sem hafa skaðað hags-
muni þjóðar okkar og gefið Ísrael til-
efni til að herða kúgun sína á þjóð
okkar“.
Vopnaður armur PLFP lýsti sig
ábyrgan fyrir tilræðinu og sagði það
hafa verið hefnd fyrir það þegar Ísr-
aelar felldu leiðtoga hópsins í ágúst.
Talsmaður PLFP sagði að liðsmenn
vopnaðs arms fylkingarinnar berðust
fyrir því að binda enda á hersetu Ísr-
aela og væru að „verja palestínsku
þjóðina fyrir hryðjuverkum Síonista“.
Frá því að Zeevi var felldur hafa
Ísraelar sent skriðdreka inn í 6 bæi á
sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna
og fellt að minnsta kosti 24 menn.
Arafat bannar
herská samtök
Gazaborg, Damaskus. AFP.
♦ ♦ ♦
LAGERSALA - RÝMINGARSALA
Verðdæmi:
Buxur áður 4.980 nú 2.490
Sportlegar skyrtur áður 6.990 nú 3.990
Úlpur áður 8.900 nú 4.900
Laugavegi 55,
sími 561 8414
Laugavegi 55,
sími 561 3377
Veitum 20-50% afslátt í nokkra daga í viðbót
Glæsilegar danskar og hollenskar vörur í stærðum 36 til 46 (10 til 20)
Komið og gerið frábær kaup!