Morgunblaðið - 23.10.2001, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 57
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10. Vit 281
Sýnd kl. 4, 6, 8
og 10. Vit 283Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Vit 285
Smellin gamanmynd
frá leikstjóra
Sleepless in Seattle
og You've Got Mail.
JOHN TRAVOLTA LISA KUDROW
SWORDFISH FRIENDS
Sýnd kl. 3.55. Ísl. tal. Vit 265. Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit 245
Óborganlega
fyndin grínmynd frá
Farrelly bræðrum með
þeim Bill Murray, Chris Rock
og Laurence Fishburne
í aðalhlutverki.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 278
Allir vilja
þeir sneið af
„glæpakökunni“
Sýnd kl. 5.40 og 8.15.
B. i. 12. Vit 270
Radíó X
HK DV
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Mbl
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 16. Vit 284
Glæpsamleg góð og kraftmikil upplifun. Óskarsverðlaunaleikarinn, Ben Kingsley (Gandhi) leikur
algjöran óþokka og skíthæl á eftirminnilegan hátt. Sexy Beast hefur allstaðar fengið skothelda
dóma. Það væri glæpur að missa af henni.
Stundun er
erfitt að
segja nei.
OPNUNARTILBOÐ
Kynning á nýju haust- og vetrarlitunum í dag og á morgun
frá kl. 13-17. Einnig verður kynntur nýr maskari „COUP DE
THEATRE“ ásamt „LIPSTIC DUO“ varablýanti og varalit í
einum og sama blýantinum.
Glæsilegar gjafir fylgja kaupum,
rauð snyrtibudda og hjartaspegill. í Smáralind
www.skifan.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Tvíhöfði/Hugleikur
Hausverk.is
USA TODAY
1/2 NY POST
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10.
Hollywood í hættu
Sýnd kl. 5.50, 8
og 10.10.
Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal,
Catherine Zeta-Jones og John Cusack fara hér
á kostum í stórskemmtilegri rómantískri
gamanmynd sem
fjallar um fræga fólkið, ástina og önnur
skemmtileg vandamál.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
SV Mbl
MARGAR frægustu stjörnur rokk-
heimsins stigu á svið í Madison
Square Garden á laugardagskvöld.
Þar fóru fram fjáröflunartón-
leikar til styrktar aðstandendum
þeirra sem fórust í World Trade
Center 11. september sl. og náðist
að afla 1,3 milljarða króna. Tón-
leikarnir voru haldnir að undirlagi
fyrrverandi Bítilsins Pauls Mc-
Cartneys og Harveys Weinsteins,
eiganda Miramax-kvikmyndafyr-
irtækisins í New York.
McCartney steig sjálfur á svið
undir lok tónleikanna og söng m.a.
gamla bítlalagið „Yesterday“ við
undirleik strengjakvartetts, sem ís-
lenski víóluleikarinn Margrét
Hjaltested átti sæti í. Segir hún tón-
leikana hafa undirstrikað þann
mikla samhug sem nú ríki í borg-
inni. Tilgangurinn með tónleik-
unum hafi ekki síst verið sá að sýna
umheiminum að New York stæði
sterk fyrir og hefði ekki látið bug-
ast af ógnarverkum síðasta mán-
aðar.
Það var mikill hugur í tónleika-
gestum en um 5 þúsund lögreglu-og
slökkviliðsmönnum borgarinnar
ásamt fjölskyldum þeirra sem fór-
ust höfðu verið boðnir miðar í bestu
sæti hússins. Talið er að 20 þúsund
gestir hafi verið í Madison Square
Garden auk þess sem tónleikunum
var sjónvarpað beint um Bandarík-
in og víða um Evrópu.
Tónleikarnir, sem stóðu yfir í 5
klukkustundir, hófust á flutningi
David Bowie á lögunum „America“
eftir Paul Simon og á eigin lagi,
„Heroes“. Allir listamennirnir gáfu
vinnu sína og á meðal þeirra sem
stigu á svið voru Mick Jagger og
Keith Richards, hljómsvetin Who,
Eric Clapton, Bono og Edge úr U2,
Elton John og Billy Joel. Sýndar
voru stuttmyndir eftir Woody All-
en, Martin Scorsese og Spike Lee.
Borgarstjórinn Rudolph Giuliani
ávarpaði tónleikagesti, sem og Bill
Clinton, fyrrverandi forseti Banda-
ríkjanna. Nokkrar Hollywood-
stjörnur kynntu tónlistarmennina;
m.a. Harrison Ford, Jim Carrey,
Richard Gere, Meg Ryan og Gwyn-
eth Palthrow en mestu fagn-
aðarlætin brutust þó út þegar
fulltrúar slökkviliðs- og lögreglu-
manna í New York stigu á svið og
minntust látinna félaga sinna.
Það var greinilegt að málstað-
urinn stóð Paul McCartney nærri
þegar hann steig á svið undir lok
tónleikanna og frumflutti lagið
„Freedom“, eða Frelsi, sem hann
sagðist hafa samið í tilefni hryðu-
verkanna 11. september. Tvö nýrri
laga sinni lék hann einnig en síðan
tóku við gömlu bítlalögin „Yest-
erday“ og „Let it Be“.
Margrét Hjaltested, víóluleikari
sem lék undir í „Yesterday“, hefur
búið í borginni í fjölda ára. Segir
hún það hafa verið sér sérstakur
heiður að fá að taka þátt í þessu
framtaki tónlistarmannanna og
sýna þar með hug sinn til borg-
arinnar í verki. „Þetta var mögnuð
og tilfinningaþrungin upplifun fyr-
ir þá sem þarna voru,“ segir Mar-
grét. „Húsfyllir var á tónleikunum
og fremst við sviðið mátti sjá fjöl-
margar fjölskyldur halda uppi
myndum af látnum ættingjum, að
ógleymdum slökkviliðs,- og lög-
reglumönnunum, hetjunum okkar
sem heiðraðar voru þetta kvöld.“
Íslenskur víóluleikari spilaði undir hjá Paul McCartney í New York
Tilfinn-
inga-
þrungnir
tónleikar
New York. Morgunblaðið.
AP
Slökkviliðs- og lögreglumenn voru Sir Paul McCartney innilega
þakklátir fyrir að hafa skipulagt tónleikana.
AP
Harrison Ford leiddi fram á sviðið ungan lögreglumann sem
slasaðist í árásinni á World Trade Center.
AP
Mick Jagger og Keith Richards
fluttu m.a. „Salt of the Earth“
og „Miss You“ og Jagger kallaði
fram mikil viðbrögð er hann
hrópaði: „Maður abbast ekki
upp á New York.“