Morgunblaðið - 23.10.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.10.2001, Blaðsíða 12
Sumarbústað- ur brann til kaldra kola Hellu. Morgunblaðið. SUMARBÚSTAÐUR í landi Bala í Þykkvabæ brann til kaldra kola á tólfta tímanum síðastliðið laugar- dagskvöld. Að sögn Gils Jóhannssonar, lög- regluþjóns á Hvolsvelli, barst til- kynning um brunann klukkan rúm- lega hálftólf og var lögregluliðið mætt á staðinn 7-8 mínútum síðar. Strax var ljóst að ekki yrði við neitt ráðið og þegar slökkviliðið kom á staðinn litlu síðar var ein- ungis í glæðum að slökkva. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða og er málið til rannsóknar hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Elín Jónsdóttir, eigandi bústað- arins, sagði engin sérstök verð- mæti hafa verið innanstokks önnur en þau áhöld og búnað sem al- mennt séu notuð í sumarbústöðum. Húsið hafi verið mikið notað á sumrin en búið hafi verið að ganga frá fyrir veturinn. Elín er fædd og uppalin í Bala og sagðist hún vilja dvelja þarna en engin ákvörðun hafi enn verið tekin um hvort reisa eigi nýjan bústað á þessum stað. Bústaðurinn var 5-6 ára og tryggður samkvæmt venju um slík hús. FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ OPINBER heimsókn Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra og eig- inkonu hans, Sigurjónu Sigurðardótt- ur, til Japans hófst í gær. Átti utanríkisráðherra þá m.a. fund með Makiko Tanaka, utanríkisráðherra Japans, og kvöldverðarfund með varautanríkisráðherra Japans, en sendiráð Íslands í Tókýó verður form- lega opnað á fimmtudag. Halldór mun einnig sækja Kína og Rússland heim í för sinni og m.a. hitta að máli kín- verska forsætisráðherrann, Zhu Rongji. Halldór Ásgrímsson sagði í samtali við Morgunblaðið að samskipti Ís- lands og Japans hefðu verið efst á baugi í viðræðum ráðherranna, þar á meðal opnun sendiráðsins. Jafnframt hefðu ráðherrarnir rætt leiðir til að efla viðskipti ríkjanna og möguleika á frekari tollaívilnunum í því skyni. „Ég lýsti miklum áhuga Íslands og annarra ríkja EFTA á því að gera frí- verslunarsamning við Japan og fannst því tekið vel á fundinum. Það hafa verið ákveðnar hindranir í veg- inum í útflutningi fiskafurða frá Ís- landi til Japans og ég tel afar brýnt að styrkja þennan mikilvæga markað,“ sagði Halldór. Utanríkisráðherrarnir ræddu um hvalveiðimál og gagn- kvæman stuðning og samstarf þjóð- anna innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. Þá fjölluðu þeir um baráttuna gegn hryðjuverkum og voru sammála um mikilvægi alþjóðlegrar samstöðu í því efni. Heimsóknin fer vel af stað Halldór sagðist telja að þjóðir heims hefðu nú meiri áhuga á sam- vinnu í vörnum gegn hryðjuverkum og aþjóðlegri glæpastarfsemi. Þar fléttaðist hlutverk Sameinuðu þjóð- anna mjög inn og sagði hann hina jap- önsku starfssystur sína hafa verið sér sammála um aukið mikilvægi Sam- einuðu þjóðanna í sókninni gegn hryðjuverkum. Halldór sagðist hafa lýst stuðningi við óskir Japana um fast sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, en þeir sækjast nú mjög eftir auknum áhrifum á þeim vett- vangi. „Ég tel að þessi heimsókn fari einkar vel af stað. Með í för eru um 50 fulltrúar íslenskra fyrirtækja og við finnum nú þegar fyrir miklum áhuga á því sem þeir hafa upp á að bjóða. Ég held að óhætt sé að segja að með þessari heimsókn sé hafinn nýr kafli í samskiptum þjóðanna,“ sagði Hall- dór. Heimsókn utanríkisráðherra til Japans hófst með opnun íslenskra viðskiptadaga að viðstöddu fjölmenni. Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneyt- isins og Útflutningsráð Íslands stóðu að undirbúningi íslenskra viðskipta- daga ásamt japönskum samstarfsaðil- um. Þar verður meðal annars efnt til þriggja málþinga þar sem fjallað verður um hátækni, ferðaþjónustu og sjávarútveg á Íslandi. Auk þess sótti ráðherrann í gær húsnæði íslenska sendiráðsins í Tók- ýó og sagðist hann vera afskaplega ánægður með það hvernig til hefði tekist. „Ég tel að þar hafi mjög vel verið staðið að málum. Ég er alveg sann- færður um að það var á sínum tíma rétt ákvörðun hjá okkur að fjárfesta í húsnæði undir sendiráðið. Enda þótt það hafi kostað mikla fjármuni, þá verður þetta miklu ódýrari ráðstöfun til lengri tíma litið. Þróun húsnæðis- verðs hér í borginni til hækkunar sýn- ir að við höfum gert mjög góð kaup,“ sagði Halldór enn fremur. 30 ára formlegs stjórnmála- sambands við Kína minnst Utanríkisráðherra mun eiga fundi með ráðamönnum í Japan, Kína og Rússlandi í opinberri heimsókn sinni um löndin þrjú. Á mánudag mun hann eiga fund með Zhu Rongji, forsætis- ráðherra Kína, og Tang Jiaxuan, ut- anríkisráðherra Kína. Seinna í næstu viku hittir hann Ígor Ívanov, utanrík- isráðherra Rússlands, að máli í Moskvu. Samkvæmt upplýsingum frá utan- ríkisráðuneytinu verður þess m.a. minnst í heimsókn ráðherrans til Kína að á þessu ári eru liðin 30 ár frá því að Ísland og Kína tóku upp form- leg stjórnmálasamskipti. Utanríkisráðherra á fyrsta degi opinberrar heimsóknar til Japans Nýr kafli í samskiptum Morgunblaðið/Lárus Karl Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Ingimundur Sigfússon sendiherra settu ásamt fleirum íslenska viðskiptadaga í Tókýó. Mun hitta forsætisráðherra Kína eftir helgi SÉRSTÖK messa var í Dómkirkj- unni að morgni síðasta sunnudags þegar fimm prestar minntust þess að 25 ár voru liðin frá því að þeir vígðust saman frá sömu kirkju. Hinn 3. október árið 1976 vígði þáverandi biskup Íslands, dr. Sig- urbjörn Einarsson, til prestsstarfa þá Hjálmar Jónsson, nú dóm- kirkjuprest, Vigfús Þór Árnason, prest í Grafarvogi, Pétur Þór- arinsson, prófast í Laufási í Eyja- firði, Gunnþór Ingason, sem þjónar í Hafnarfirði, og Vigfús Ingvar Ingvarsson, prest á Egilsstöðum. Sjötti klerkurinn sem Sigurbjörn vígði á sínum tíma, sr. Sighvatur B. Emilsson, gat ekki verið viðstaddur messuna þar sem hann þjónar hjá norsku kirkjunni. Þetta var stærsti hópur presta sem Sigurbjörn vígði í einu lagi í sinni biskupstíð. Áður en sjálf messan hófst sagði sr. Hjálmar kirkjugestum frá tilefni hennar. Hann sagði prestana lítið hafa breyst á þessum 25 árum og dr. Sigurbjörn, sem er níræður að aldri, sínu minnst. Sigurbjörn pre- dikaði í messunni og prestarnir þjónuðu fyrir altari. Í upphafi pre- dikunar sinnar sagði hann athöfn- ina vera einstæða í sögu Dómkirkj- unnar. Prestarnir hefðu líka reynst sér og þjóðkirkjunni mjög vel með dyggri þjónustu og þeir notið mik- illar tiltrúar söfnuða sinna í gegn- um tíðina. Messan var líka sérstök fyrir þá sök að flestir sálmanna, sem Dóm- kórinn söng við undirspil Marteins Friðrikssonar organista, voru eftir þrjá af prestunum, þá Hjálmar, Gunnþór og Pétur. Að auki var einn sálmur eftir Sigurbjörn sunginn af Önnu Sigríði Helgadóttur. Vígsluafmælis minnst í Dómkirkjunni Morgunblaðið/Ásdís Prestarnir fimm í fullum skrúða fyrir utan Dómkirkjuna á sunnudaginn ásamt dr. Sigurbirni Einarssyni. Frá vinstri eru Pétur Þórarinsson, Vigfús Þór Árnason, Vigfús Ingvar Ingvarsson, Gunnþór Ingason, Hjálmar Jóns- son og loks Sigurbjörn. Sjötti presturinn sem vígðist fyrir 25 árum, Sighvatur B. Emilsson, starfar í Noregi. Flestir jákvæðir gagnvart framboði eldri borgara Í KÖNNUN sem Pricewaterhouse- Coopers gerði á viðhorfum Íslend- inga til framboðs samtaka eldri borgara í bæjar- og sveitastjórn- arkosningum, kom í ljós að 61,8% þeirra sem tóku afstöðu segjast frekar eða mjög jákvæð gagnvart möguleikanum. Ef svör eru skoðuð eftir aldri kemur í ljós að svarendur á aldr- inum 30-49 ára eru sá hópur sem tekur hvað best í hugmyndir um framboð samtaka eldri borgara. Hins vegar eru 27,6% svarenda í aldurshópnum 50-89 ára mjög eða frekar neikvæð gagnvart hugsan- legu framboði. GRÍMUKLÆDDUR og vopnaður maður rændi á milli 80–90.000 krónum úr verslun 10–11 á Selja- vegi á laugardagskvöld. Sigurður Arnar Einarsson var á vakt í versluninni þegar ránið var framið. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að maðurinn hefði komið inn í verslunina á tíunda tímanum með lambhúshettu á höfði og með einhvers konar sleggju í hendi. Maðurinn lamdi með sleggjunni í örbylgjuofn og gjöreyðilagði hann. Hann sagði ekki eitt aukatekið orð en Sigurður Arnar segir að sér og öðrum afgreiðslumanni sem var við störf hafi verið ljóst að mað- urinn hugðist ræna verslunina og honum væri full alvara. Þeir hafi vikið frá afgreiðslukössunum en maðurinn hafi sjálfur opnað þá, tekið peningana úr þeim og að því búnu farið út úr versluninni. Sigurður Arnar segir að sjálfur hafi hann ekki orðið var við að maðurinn hefði haft vitorðsmann. Aftur á móti hafi viðskiptavinir verslunarinnar tjáð sér að dökk- hærð kona hafi beðið eftir honum í dyrum verslunarinnar á meðan á ráninu stóð. Framdi rán með sleggju að vopni Yfir 4 milljónir til styrktar Afgönum HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar og Rauði kross Íslands stóðu fyrir útifundi við Hallgrímskirkju á sunnudag til að minnast íbúa Afg- anistans sem nú þjást vegna stríðs- átaka og uppskerubrests. KK og Ellen Kristjánsdóttir tóku lagið, lesið var ljóð eftir afganskan dreng og framkvæmdastjórar RKÍ og Hjálparstarfs kirkjunnar ávörp- uðu fundinn. Jónas Þórisson hjá Hjálparstofn- un kirkjunnar segir að samkoman hafi farið vel fram. Samkomunni var einnig ætlað að minna á söfnun Rauða kross Íslands og Hjálpar- starfs kirkjunnar sem lauk á sunnu- dag með formlegum hætti. Að sögn Jónasar hafa landsmenn nú gefið á fjórðu milljón króna. Söfnunarsím- inn, 907 2003, verður opinn út þessa viku en með símtali skuldfærast þúsund krónur á næsta símreikn- ing. Þá verður bankareikningur númer 21000 í SPRON opinn áfram. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.