Morgunblaðið - 23.10.2001, Blaðsíða 11
virkjanir sem samþykkt var sam-
hljóða í lok fundarins segir m.a. að
Kárahnjúkavirkjun hafi fengið al-
gera falleinkunn hjá Skipulags-
stofnun og ef svo fer gegn öllum
efnislegum rökum að umhverfis-
ráðherra úrskurði Landsvirkjun í
vil og gangi þvert gegn niðurstöðu
Skipulagsstofnunar og einróma af-
stöðu náttúruverndarsamtaka í
landinu, „myndi það leiða til ófyr-
irsjáanlegra átaka í landinu“, segir
í ályktuninni.
Í ályktun landsfundarins um ut-
anríkismál, þar sem vikið er að
varnarliðinu og Atlantshafsbanda-
laginu, segir: ,,Vinstrihreyfingin –
grænt framboð hefur þá stefnu að
Ísland eigi ekki að hafa her, hvorki
innlendan né erlendan, og þjóðinni
sé fyrir bestu að standa utan allra
hernaðarbandalaga. Ísland á að
vera boðberi friðar og mannrétt-
inda, afvopnunar og friðsamlegra
lausna í deilumálum.“
Átta landsfundarfulltrúar lögðu
svo fram sérstaka ályktunartillögu
um herlaust Ísland og var hún
samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðum en þar segir að íslenskum
stjórnvöldum beri að ganga þegar
til samninga við Bandaríkin um
brottför setuliðsins á Miðnesheiði
og jafnframt eigi Ísland að ganga
úr NATO.
Tvíhliða samningar við ESB
um viðskipti og samvinnu
„Núverandi kvótakerfi ber að
fyrna með byggðatengingu og vist-
vænni nýtingu fiskimiðanna,“ segir
í kafla um sjávarútvegsmál í
stjórnmálaályktuninni. Í ályktun-
inni er lögð áhersla á að fiskimiðin
séu sameign þjóðarinnar. Var
setningunni um að fara beri fyrn-
ingarleið í stjórn fiskveiða bætt
inn í upphafleg drög í meðferð
starfshóps sem gekk frá endan-
legri ályktun á landsfundinum.
Í sjávarútvegskaflanum segir
ennfremur: „Við viljum efla vist-
vænar strandveiðar, tryggja stöðu
sjávarbyggðanna, vinnslunnar í
landi og fólksins sem þar býr með
byggðatengingu ákveðinna grunn-
réttinda til auðlindanýtingar.
Þannig er stuðlað að fjölbreytni og
betra jafnvægi og þróunarmögu-
leikum innan greinarinnar í senn.“
Lýst er andstöðu við aðild að
Evrópusambandinu í ályktun
landsfundar um utanríkismál.
„Sjálfstæð og óháð staða landsins
verði nýtt til að treysta samskiptin
við ríki og markaði beggja vegna
Atlantshafsins og við aðra heims-
hluta. Vegna EES samningsins og
annarra framtíðarsamskipta við
Evrópusambandið verði af Íslands
hálfu leitast við að þróa þau í átt
til tvíhliða samninga um viðskipti
og samvinnu,“ segir þar.
Á fundinum kom fram tillaga um
að mótmælt yrði hugmyndum um
flutning Rásar 2 til Akureyrar.
Ekki náðist samstaða um orðalag
og var hún tekin til meðferðar í
starfshópi sem lagði til að orðalag-
inu yrði breytt á eftirfarandi hátt:
,,Landsfundurinn lýsir eindreginni
andstöðu við fram komnar hug-
myndir um að leggja niður Rás 2
undir því yfirskini að hún skuli
flutt til Akureyrar.“ Var þessi til-
laga samþykkt samhljóða.
Varðveita þarf skilyrði
til að njóta náttmyrkurs
og skoða himintungl
Umræður og ályktanir um um-
hverfismál voru áberandi á lands-
fundinum. Samþykktu landsfund-
arfulltrúar m.a. sérstaka ályktun
um umhverfismál í þéttbýli, þar
sem segir: ,,Snúa þarf frá út-
hverfastefnu og samsöfnun við-
skipta- og þjónustu í risamiðstöðv-
ar en hlúa þess í stað að smærri
skipulagsheildum í hverfum sem
verði sjálfbærar einingar á sem
flestum sviðum. Þannig má draga
úr bílaumferð, hljóðmengun og
orkusóun og skapa bætt skilyrði
fyrir gangandi umferð og hjólreið-
ar.“
,,Svæði til útivistar og náttúru-
skoðunar þarf að tengja við
byggðahverfi og skóla- og uppeld-
isstarf. Eins þarf sérstaklega að
huga að varðveislu strandsvæða og
lífríkis fjörunnar og tryggja þarf
aðgang almennings að þessum
svæðum til útivistar og náttúru-
skoðunar. Draga þarf úr mengun
frá atvinnurekstri og umferð og
koma sorpförgun og fráveitumál-
um í viðunandi horf. Eðlilegt er að
krefjast aukinnar þátttöku ríkisins
í kostnaði við umbætur í sorpförg-
un og fráveitumálum til að hraða
framkvæmdum á þessu sviði.
Varðveita þarf skilyrði til að
njóta náttmyrkurs og skoða him-
intungl og stjörnur í grennd þétt-
býlisstaða. Stórátaks er þörf til að
draga úr loftmengun og losun
gróðurhúsalofts, ekki síst á höfuð-
borgarsvæðinu, meðal annars með
vistvænum lausnum í samgöngu-
málum á lengri og skemmri leið-
um.“
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2001 11
Jólahlaðborð
Pantanir í s. 586 8300 - 566 6456,
fax 566 7403
fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki
frá 22 nóv. - 22. des.
fimmtudaga,föstudaga,
laugardaga og sunnudaga
útilokaði alla hina rammana sem
til væru. Það væri ekki fjölmenn-
ingarlegt samfélag sem einfald-
lega leyfði ólíkum römmum að lifa
hlið við hlið heldur þegar ramm-
arnir reyndust gagnvirkir.
Lét hún þess getið að a.m.k. eitt
hundrað tungumál væru töluð á
Íslandi og að á Íslandi væru 20 til
30 þúsund manns sem ekki töluðu
íslensku að móðurmáli.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
aðstoðarritstjóri DV, vék að mik-
ilvægi fjölbreytninnar. Sagði hann
andstöðu hennar, einhæfnina, eitt
það leiðinlegasta í lífinu. Fjöl-
miðlamenn hefðu að atvinnu að
hlusta eftir ólíkum skoðunum og
sagði hann það forréttindi að fá
að kynnast þeim. Sömuleiðis að fá
að kynnast ólíku fólki þó svo að
við værum öll lík hvað það varðaði
að við værum gjarnan að gera það
sama, hvar sem við byggjum í ver-
öldinni, þ.e. að undirbúa næstu
máltíð eða við það að fara að sofa.
Sigmundur Ernir sagði að fjöl-
breytni í mannlífi skreytti hvert
samfélag, væri fjölbreytnin ekki
fyrir hendi í samfélaginu þá væri
landið fátækt. Íslendingar væru
forréttindafólk að því leyti til að
landið okkar væri svo fjölbreytt
að gerð.
Kvaðst Sigmundur hafa misst
trúna eftir að hann eignaðist fatl-
aða dóttur. Hann hefði síðan leit-
að fanga víða og kvaðst telja það
afar mikilvægt að kynna sér hin
ólíku trúarbrögð og þann kærleik
sem þar byggi. Það væri þrosk-
andi ferðalag.
Eigum ekki auðvelt með
að umbera þá sem eru
mikið öðruvísi
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
ráðgjafi í umhverfismálum ræddi
um sjálfbæra þróun. Hún nefndi
að fjölbreytt landslag væri nú tal-
ið meðal verðmæta. Það væri já-
kvætt en að við yrðum að fara
varlega þegar við settum á það
verðmiða. Hún kvaðst telja að fjöl-
breytnin byggi í okkur sjálfum, í
sköpunargleði okkar.
Að loknum framsöguerindum
ræddu fundarmenn m.a. um mik-
ilvægi þess að hlusta eftir óhefð-
bundnum skoðunum, ólíkum rödd-
um úr samfélaginu. Var m.a. rætt
um þau siðferðilegu álitaefni er
tengjast þróun í líftækni og um
mikilvægi þess á Íslandi að tala ís-
lensku. Voru fundarmenn sam-
mála um það mat að við ættum oft
auðvelt með að umbera og þola þá
sem væru ofurlítið öðruvísi en við
hin, þ.e. Evrópubúa sem hingað
hefðu flutt og lítið fatlað fólk, en
að við ættum erfiðara með fólk
sem væri verulega mikið öðruvísi,
s.s. Japana, Ghanabúa og mikið
fatlaða einstaklinga.
takmörk
omfr@mbl.is
ÞAÐ fór vel á með stúdentum,
börnum og foreldrum þeirra í
Laugarneskirkju sl. sunnudag þeg-
ar sk. Mentor-verkefni var hrundið
af stað hér á landi. Um er að ræða
alþjóðlegt verkefni sem breiðst hef-
ur hratt út frá því gerð var tilraun
með það í Háskólanum í Malmö í
Svíþjóð fyrir fjórum árum. Upp-
haflega er hugmyndin þó komin frá
Ísrael, þar sem slíku verkefni var
hrundið af stað fyrir þremur ára-
tugum. Hér á landi standa þær Þór-
dís Þórðardóttir og Valgerður
Ólafsdóttir fyrir verkefninu.
Mentor-verkefnið gengur út á að
skapa persónulegt samband milli
barns og ábyrgs, þroskaðs fullorð-
ins einstaklings. Þar sem ljóst sé að
ekki njóti öll börn náinna tengsla
við fullorðna er hugmyndin að efla
nemendur úr Kennaraháskólanum
og félagsvísinda-, guðfræði- og
hjúkrunarfræðideildum Háskóla Ís-
lands til að þeir fái tækifæri til þess
að kynnast börnum, foreldrum
þeirra og nánasta umhverfi og geti
þannig bætt þekkingu sína og
reynslu af samskiptum við mismun-
andi fólk.
Hér á landi var upphaflega lagt
upp með að ná 30 „pörum“ í fyrstu
umferð tilraunarinnar, en þegar er
ljóst að áhuginn er mun meiri.
Munu mentor og barn koma saman
einu sinni í viku, þrjá tíma í senn og
gera eitthvað saman í samráði við
foreldra barnsins og í samræmi við
áhugamál þess. Þurfa sam-
verustundirnar ekki að vera út-
hugsaðar og skipulagðar, því oftast
er návistin mikilvægust. Nánari
upplýsingar um verkefnið má nálg-
ast á slóðinni http://vinatta.is/ á
Netinu.
Morgunblaðið/Ásdís
Samvera stúdenta og barna
ALDA innbrota reið yfir Húna-
vatnssýslur um helgina og fékk lög-
reglan á Blönduósi fjórar tilkynn-
ingar um innbrot í gær og eru þau
mál óupplýst. Aðfaranótt sunnu-
dags var brotist inn í félagsheimilið
á Hvammstanga og stolið hljóm-
tækjum en það innbrot hefur verið
upplýst og reyndust þar að verki
ungir menn, að sögn lögreglunnar.
Tilkynnt var í gærmorgun um
innbrot í bæjarskrifstofurnar á
Blönduósi, ljósmyndavöruverslun í
bænum og sundlaug bæjarins. Um
hádegisbil var síðan tilkynnt um
innbrot í söluskála á Laugarbakka.
Að sögn lögreglu virðast þjófarnir
einkum hafa verið að sækjast eftir
peningum og er nokkurra tuga þús-
unda króna saknað úr peningaköss-
um, en enga peninga var þó að hafa
í sundlauginni. Þá voru gluggar og
hurðir skemmdar. Lögreglan segir
líklegt að þessi innbrot hafi verið
framin af sama hópnum, en þau
tengist ekki innbrotinu á Hvamms-
tanga.
Alda innbrota
í Húnaþingi
SÍÐDEGIS á sunnudag var lögregl-
unni í Reykjavík tilkynnt um mann
með skotvopn fyrir utan Perluna.
Maðurinn fór inn í Perluna og þar yf-
irbugaði lögreglan hann en áður
hafði Perlan verið rýmd að hluta og
sérsveit lögreglunnar kölluð út.
Sá sem tilkynnti um manninn
sagði skotvopnið helst líkjast kinda-
byssu en við athugun kom í ljós að
hann var með tvær eftirlíkingar af
gömlum skammbyssum, oft nefndar
sjóræningjabyssur, á sér. Byssunum
hafði hann stolið ásamt tveimur far-
símum og gamalli íslenskri mynt.
Maðurinn var handtekinn og vist-
aður í fangageymslum en samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni hefur
hann alloft komist í kast við lögin.
Með eftirlík-
ingar af byssum
í Perlunni
♦ ♦ ♦