Morgunblaðið - 09.11.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SVÆÐISSKRIFSTOFA málefna
fatlaðra á Reykjanesi hlýtur Ís-
lensku gæðaverðlaunin 2001. Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, afhenti verð-
launin í Ásmundarsafni í gær, en
þau eru samstarfsverkefni for-
sætisráðuneytisins, Háskóla Ís-
lands, Samtaka atvinnulífsins,
Stjórnvísi, Verzlunarmannafélags
Íslands og Viðskiptablaðsins.
Svæðisskrifstofa málefna fatl-
aðra á Reykjanesi vinnur að
framgangi laga um málefni fatl-
aðra á starfssvæðinu. Hún býður
fólki með fötlun margvíslega
þjónustu svo sem langtímabúsetu,
skammtímadvöl, hæfingu, starfs-
þjálfun og atvinnu með stuðning
á almennum vinnumarkaði. Svæð-
isskrifstofan annast einnig víð-
tæka upplýsingamiðlun og ráð-
gjöf fyrir fólk með fötlun og
aðstandendur þeirra.
Verðugur
vinningshafi
Í umsögn matsnefndar segir
m.a. að Svæðisskrifstofa Reykja-
ness hafi unnið staðfastlega að
gæðamálum sínum á und-
anförnum árum og sé að dómi
matsnefndar verðugur vinnings-
hafi Íslensku gæðaverðlaunanna.
Stofnunin hafi á metnaðarfullan
hátt ofið saman stefnumótun og
gæðakerfi þar sem virðing og
umhyggja fyrir þjónustuþegum sé
í fyrirrúmi.
Stofnunin hafi ekki látið þar
við sitja, heldur unnið að stöð-
ugum umbótum og uppbyggingu
gæðastarfsins.
Íslensku gæðaverðlaunin eru
veitt fyrir framúrskarandi gæði á
sviði reksturs og stjórnunar.
Stjórn verðlaunanna skipa Guð-
rún Högnadóttir, ráðgjafi hjá
Deloitte & Touche sem formaður
stjórnar f.h. Stjórnvísi, Ari Ed-
wald, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, Gunnar Páll Páls-
son, hagfræðingur VR, Ari Arn-
alds ráðgjafi, f.h. Stjórnvísi, Ingj-
aldur Hannibalsson, prófessor við
Háskóla Íslands, Ólafur Dav-
íðsson, ráðuneytisstjóri forsæt-
isráðuneytisins, og Örn Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri
Viðskiptablaðsins.
Íslensku gæðaverðlaunin til Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi
Virðing og
umhyggja höfð
í fyrirrúmi
Morgunblaðið/Golli
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti Þór G.
Þórarinssyni, framkvæmdastjóra Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á
Reykjanesi, Íslensku gæðaverðlaunin 2001.
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands hefur boðað mið-
stjórn og formenn landssambanda til fundar 20.
nóvember nk. til að ræða endurskoðun launaliðar
kjarasamninga sem ganga á frá í febrúar á næsta
ári. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir ljóst að
forsenda verði fyrir uppsögn samninga í febrúar.
Hann segir afar brýnt að ríkisstjórnin bregðist við
vegna stöðu efnahagsmála. Tíminn sé orðinn
naumur en viðbrögð ríkisstjórnarinnar geti skipt
máli varðandi það hvort samningum verði sagt
upp eða ekki.
Grétar sagði að á fundinum 20. nóvember færi
fram efnisleg umræða um endurskoðun á launalið
kjarasamninganna. Í síðustu viku hefðu forystu-
menn ASÍ átt fund til að undirbúa þennan fund en
þar hefði umræðan aðallega snúist um hvernig
hreyfingin nálgaðist viðfangsefnið félagslega.
Hann sagði að ríkur vilji væri innan ASÍ til að
menn stæðu saman í þeim viðræðum sem fram-
undan væru. Það kynnu hins vegar að vera eitt-
hvað mismunandi skoðanir á því hvernig ætti að
standa að málinu efnislega.
Forsendur eru fyrir uppsögn
„Það blasir við öllum að verðbólgan er allt önnur
og mun verða allt önnur í febrúar en þegar menn
voru að semja í byrjun árs 2000. Það mun því
væntanlega ekki skorta forsendur fyrir uppsögn
ef því er að skipta. Spurningin er hvort það er ein-
hver raunverulegur vilji stjórnvalda til að taka til
hendinni og gera eitthvað sem hefur áhrif núna.
Það hefði auðvitað átt að vera búið að því fyrir ein-
hverjum mánuðum. Mér liggur við að segja að það
væri það eina sem gæti stuðlað að því að menn
settust af alvöru yfir það að komast að samkomu-
lagi án uppsagnar. Ég ætla þó ekki að vera með
neina spádóma um hvað menn gera þegar þar að
kemur. Það verður bara að koma í ljós.“
Grétar sagði að ASÍ hefði lagt mikla áherslu á
að vextir yrðu lækkaðir. Aðgerðir ríkisstjórnar-
innar þyrftu að beinast að efnisþáttum sem skil-
uðu sér strax. Forysta ASÍ hefði margoft lýst því
yfir að hún væri tilbúin til samráðs. Stjórnvöldum
hefðu verið kynntar hugmyndir um aðgerðir í
efnahagsmálum.
Forystumenn ASÍ áttu fund með leiðtogum rík-
isstjórnarinnar fyrir tveimur vikum. Grétar sagði
að sá fundur hefði verið ágætur en það hefði mátt
halda hann fyrr.
„Við eigum von á að heyra frá ríkisstjórninni
þessa dagana. Ráðherrar hafa verið önnum kafnir
síðustu daga vegna Norðurlandaráðsþings, en við
eigum von á því að heyra eitthvað frá stjórnvöld-
um áður en þessi vika er öll. Það er ekki seinna
vænna ef það á að gera eitthvað með þetta samráð
eða ef það á yfirhöfuð eitthvað að gera af viti þess-
ar vikur sem lifa fram til febrúar,“ sagði Grétar.
Grétar sagði að aðgerðir ríkisstjórnarinnar
gætu augljóslega haft áhrif á umræður á fundi
ASÍ 20. nóvember.
Forysta ASÍ boðar til fundar
um launalið kjarasamninga
HEIMSÓKN Halldórs
Blöndals, forseta Al-
þingis, í skoska þingið í
gær einkenndist að
nokkru leyti af því að
sama dag sagði Henry
McLeish, leiðtogi
skosku heimastjórnar-
innar, af sér embætti
vegna ásakana um fjár-
málaspillingu. Halldór
var staddur í þinghús-
inu þegar tilkynnt var
að McLeish hefði sagt
af sér. Halldór sagði að
heimsóknin í þingið
hefði engu að síður ver-
ið lærdómsrík og fróð-
leg.
Í gær hitti Halldór Sir David
Steel, forseta skoska heimastjórnar-
þingsins og nokkra þingmenn, sem
sitja á skoska þinginu.
„Að sjálfsögðu hefur óvænt afsögn
leiðtoga skosku heimastjórnarinnar
haft áhrif á heimsókn-
ina. Þingmennirnir
þurfa að sinna öðrum
skyldum vegna þess-
ara tíðinda. Stjórn-
málamenn hér eru
uppteknir á áríðandi
fundum af þessu til-
efni. Þetta er auðvitað
persónulegur harm-
leikur sem hér er að
gerast,“ sagði Halldór
um afsögn Henry
McLeish.
Halldór Blöndal
sagði að þrátt fyrir
þetta hefði hann fengið
tækifæri til að hitta all-
marga skoska þing-
menn. „Það er margt sem tengir
þjóðirnar saman. Við ræddum m.a.
ferðaþjónustu, fiskveiðar og fleira.
Við fórum kannski fljótar yfir sögu
en við hefðum kosið vegna þessara
óvæntu tíðinda. Viðræðurnar voru
engu að síður gagnlegar.
Það hefur verið mjög gagnlegt
fyrir mig að hafa Einar K. Guðfinns-
son alþingismann með mér á þessu
ferðalagi. Hann hefur gert mjög
góða grein fyrir okkur sérstöku sem
fiskveiðiþjóðar og fært mjög góð rök
fyrir mikilvægi þess að við getum
hafið hvalveiðar að nýju.“
Í dag fer Halldór til Inverness og
kynnir sér m.a. miðstöð byggðamála
í Skotlandi, en þar er einnig unnið að
uppbyggingu háskólakennslu í land-
inu. „Við höfum fundið það í heim-
sókninni að Skotar leggja mjög mik-
ið upp úr því að byggja upp sterkt
mennta- og heilbrigðiskerfi. Þeir
vilja standa þar framar en Englend-
ingar.“
Á sunnudag fer Halldór í heim-
sókn til Írlands, en með honum verða
þingmennirnir Guðmundur Árni
Stefánsson, Gunnar Birgisson,
Hjálmar Árnason og Þuríður Back-
man.
Forseti Alþingis í heim-
sókn í skoska þinginu
Halldór Blöndal,
forseti Alþingis.
VÉL Flugleiða, sem var um
það bil að lenda á Heathrow-
flugvelli í London í gærmorg-
un, var snúið við og flogið hring
yfir borginni uns hún gat lent.
Að sögn Guðjóns Arngrímsson-
ar, upplýsingafulltrúa Flug-
leiða, var flugstjóri beðinn frá
flugturni vallarins um að hætta
við lendingu þar sem flugvélin,
sem var fyrir á flugbrautinni,
hafi ekki verið farin. Vélinni var
síðan lent um 15–20 mínútum
síðar.
Guðjón segir alvanalegt að
hætta þurfi við lendingu af
þessum sökum og sjálfur hafi
flugstjórinn orðið fyrir því
þrisvar sinnum á árinu. Hann
segir enga hættu hafa verið á
ferðum. Flugstjórinn greindi
farþegum frá því hvers kyns
væri til að koma í veg fyrir að
ótti gripi um sig meðal þeirra.
Flugleiðavél
í lendingu
snúið frá
Heathrow
LÖGREGLAN í Reykjavík
hefur gripið í inn í atburðarás
sem hófst þegar fyrirtækið
Costgo lét birta auglýsingar
um heimilistæki á mjög lágu
verði í Fréttablaðinu á mánu-
dag. Lögreglan boðaði fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins til
skýrslutöku á miðvikudag og
var hann í haldi lögreglu þar til
í gær er honum var sleppt.
Ekki þótti ástæða til frekari
varðhalds og var hann sam-
vinnufús á meðan yfirheyrslum
stóð.
Hald lagt á gögn er
varða reksturinn
Lögregaln lagði hald á gögn
er varða reksturinn en sam-
kvæmt upplýsingum hennar
var fyrirtækið ekki skráð í
firma- eða hlutafélagaskrá eins
og skylt er samkvæmt lögum
um verslunaratvinnu. Rann-
sókn lögreglunnar beinist m.a.
að auglýstum vörulista og
möguleikum aðstandanda hans
til að standa við verðtilboð og
vöruafhendingu. Lögreglan
segir að tiltölulega fáir hafi nýtt
sér tilboðin, en þeir, sem telji
sig þurfa að leggja fram kæru
vegna máls, geti haft samband
við lögregluna næstu daga.
Samkeppnisstofnun mun
ekkert aðhafast frekar í máli
Costgo en stofnunin hafði ár-
angurslaust óskað eftir eintaki
af pöntunarlista fyrirtækisins,
sem boðinn hafði verið almenn-
ingi í símsölu.
Málefni
Costgo
komin í
lögreglu-
rannsókn
ÞRÍR Íslendingar verða meðal
þeirra nærri tvö þúsund full-
trúa Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu sem fylgjast
munu með þingkosningunum í
Kosovo sem fram fara hinn 17.
nóvember nk. Íslendingarnir
sem halda utan á morgun, laug-
ardag, eru Finnbogi Rútur
Arnarson sendiráðunautur,
Jón Ólafsson heimspekingur og
Ögmundur Jónasson alþingis-
maður. Fyrstu dagana munu
þeir dvelja í Þessalóníku í
Grikklandi þar sem þeir fá til-
sögn og þjálfun ásamt öðrum
fulltrúum ÖSE en um miðja
næstu viku fara þeir til Kosovo.
Samstaða virðist um
að virða úrslitin
„Þar munum við hafa umsjón
með kosningunum og fylgjast
með því að þær fari fram sam-
kvæmt lögum og reglu,“ segir
Ögmundur. Hann sagði enn-
fremur í samtali við Morgun-
blaðið að svo virðist sem það sé
samstaða meðal þjóðarbrota í
héraðinu að virða þingkosning-
arnar og niðurstöðu þeirra. „Í
sveitarstjórnarkosningunum
sem haldnar voru í Kosovo í
fyrra tóku Serbar hins vegar
ákvörðun um að hundsa kosn-
ingarnar. Það virðist ekki vera
upp á teningnum núna.“
Fulltrúar frá Sameinuðu
þjóðununum munu, að sögn Ög-
mundar, einnig vera á svæðinu
til að hafa umsjón með kosning-
unum. Segir Ögmundur að síð-
ustu að ekkert bendi til annars
á þessari stundu en að kosning-
arnar muni fara friðsamlega
fram.
Þrír Íslend-
ingar fylgjast
með kosn-
ingum í
Kosovo