Morgunblaðið - 09.11.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 51
DAGBÓK
Útsölumarkaður
á Langholtsvegi 130
Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12.00-18.00
Snertilinsur fyrir byrjendur
Linsur f. 3 mán. • mátun • kennsla
• vökvi og box frá 6.500 kr.
Daglinsur 85 til 100 kr. stk.
Mánaðarlinsur 750 kr. stk.
Árslinsur 3.000 kr. stk.
á meðan birgðir endast
Ath. þetta!
Einnig mátun
fyrir sjónskekkju
og progressiv/
margskiptar linsurLaugavegi 36,
sími 551 1945
Bað- og sundskórnir
komnir aftur!
Við viljum að þér líði vel.
Össur verslun,
Grjóthálsi 5, sími 515 1335.
Bílageymsla í hjarta miðbæjarins
Til sölu er gott stæði (1/12 hluti bílageymslunnar)
í kjallara Suðurgötu 7, 101 Reykjavík.
Upplýsingar í síma 896 5566
EFTIR mjög góða byrjun
fór að halla undan fæti hjá
Norðmönnum í fimmtu
lotu úrslitaleiksins við
Bandaríkjamenn á HM. Í
sumum tilfellum gátu
Norðmenn sjálfum sér um
kennt, en stundum var
heppnin einfaldlega ekki á
þeirra bandi. Eins og hér:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 1073
♥ --
♦ KD98764
♣Á93
Vestur Austur
♠ D9652 ♠ 84
♥ G63 ♥ ÁD97
♦ Á52 ♦ G10
♣42 ♣K10875
Suður
♠ ÁKG
♥ K108542
♦ 3
♣DG6
Martel og Stansby höfðu
stansað í þremur tíglum í
opna salnum og tekið tíu
slagi, eða 130. Nokkuð
eðlileg niðurstaða, en ekki
í anda þeirra Brogelands
og Sælensminde:
Vestur Norður Austur Suður
Meltzer Brogeland Larsen Sælensm.
-- 1 tígull ! Pass 1 hjarta
Pass 2 tíglar Pass 3 lauf
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Fáir myndu láta sér
detta í hug að opna á ein-
um tígli með norðurspilin –
spurningin er frekar sú
hvort betra sé að passa
eða byrja á þremur tíglum.
En Brogeland er ungur og
ákafur. Eftir opnunina
hlaut Sælensminde að
keyra í geim, og gerði það
raunar á mjög djúphugul-
an hátt. Yfir tveimur tígl-
um hefðu flestir sagt tvo
spaða frekar en þrjú lauf,
en hugmynd Sælensminde
var að tryggja sér útspil í
spaða. Snjallt og vel lukk-
að, því Rose Meltzer, kon-
an í sigurliði Bandaríkja-
manna, kom út með spaða
upp í gaffalinn.
Sælenseminde spilaði
tígli á kónginn í öðrum
slag og horfði tortrygginn
á tíuna koma frá Larsen.
Var tían heiðarlegt spil frá
G10 eða blekking frá
G10x? Miðað við útspilið
virtist vestur eiga lengd í
spaða og með tilliti til þess
ákvað Sælensminde að
spila vestur upp á ás ann-
an í tígli. Hann spilaði
LITLUM tígli úr borði í
þriðja slag og Larsen fékk
slaginn á gosann. Þar með
var spilið gjörtapað og
Sælensminde endaði þrjá
niður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 9. nóv-
ember, er fimmtugur Gunn-
ar Hafsteinsson, Brekku-
braut 2, Akranesi. Eigin-
kona hans er Rósa Kristín
Albertsdóttir. Hjónin verða
að heiman á afmælisdaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 9. nóv-
ember, er sjötug Erla Þor-
valdsdóttir, Blásölum 24,
Kópavogi. Eiginmaður
hennar er Bjarni Gíslason.
Þau eru að heiman í dag.
LJÓÐABROT
VIÐLÖG
Skemman gullinu glæst,
glóir hún öll að sjá.
Þar leikur jafnan
minn hugurinn á.
Taki sá við dansi,
sem betur kann og má.
Hér víkur allur
minn hugurinn frá.
Viltu ekki eiga mig
með kolli mínum brúnum,
heldr en annar villi þig
með rúnum?
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5
4. Rf3 Be7 5. Bg2 O-O 6.
O-O b6 7. Re5 Bb7 8. Rc3
Ra6 9. cxd5 exd5 10. b3 c5
11. Bb2 Re4 12. e3 He8 13.
Dh5 g6 14. De2 Rb4 15.
Rxe4 dxe4 16. dxc5 Bxc5
17. Hfd1 Dg5
Björn Þorfinnsson
(2248) er mikill bragðaref-
ur við skákborð-
ið. Að jafnaði er
allt í háaloft í
skákunum hans.
Styrkleiki hans
felst í útsjónar-
semi, baráttu-
gleði og góðu
taktísku auga. Í
stöðunni sýndi
hann síðast-
nefnda hæfileik-
ann gegn Sigurði
Páli Steindórs-
syni (2213) á
minningarmóti
Jóhanns Þóris
Jónssonar. 18.
Rxf7! Kxf7 19. Hd7+ He7
20. Hxb7! Hxb7 21. Bxe4
Svarta staðan er rjúkandi
rúst þótt hvítur sé hróki
undir. Framhaldið varð:
21...Rd5 22. h4 Dd8 23.
Hd1 Hd7 24. Df3+ Ke6 25.
Bxd5+ Hxd5 26. De4+ Kf7
27. Hxd5 og svartur gafst
upp saddur lífdaga. Þessa
dagana fer fram Evrópu-
mót landsliða í Leon á
Spáni. Ísland hefur lið í
opnum flokki og kvenna-
flokki. Hægt er að fylgjast
með gangi mála á skak.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
80 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag, 11. nóv-
ember, er áttræður Sigurð-
ur Sveinsson frá Góustöð-
um, Hlíðarvegi 1, Ísafirði.
Hann og eiginkona hans,
Gerður Pétursdóttir, hafa
opið hús af þessu tilefni í
húsnæði Netagerðar Vest-
fjarða á Ísafirði laugardag-
inn 10. nóvember kl. 17–20.
90 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 9. nóv-
ember, er níræð Ásta Jón-
asdóttir, Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík. Ásta er að heim-
an í dag.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert djarfur og nýtur þess
að taka áhættu og ögra sjálf-
um þér. Storkaðu samt ekki
örlögunum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Myndaðu þínar eigin skoðan-
ir frekar en að fylgja hópn-
um. Þú hefur sterka réttlæt-
iskennd og átt að vera
óhræddur við að segja mein-
ingu þína.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugsaðu þig vandlega um
áður en þú segir eitthvað sem
verður ekki aftur tekið. Þá er
betra að þegja. Veltu þér svo
ekki upp úr því sem liðið er.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert alltaf tilbúinn til að
umvefja aðra og veita þeim
skjól og mátt vera viss um að
þér verður launað í sömu
mynt þurfirðu á því að halda.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gefðu þér tíma til að taka
þátt í samræðum í góðra vina
hópi því um leið og það víkk-
ar út sjóndeildarhringinn
styrkir það vinaböndin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er dagur athafna svo
vertu óhræddur við að ríða á
vaðið og fara þínar eigin leið-
ir. Þú hefur þá ekki við neinn
að sakast nema sjálfan þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það kann ekki góðri lukku að
stýra að leggja af stað í leið-
angur áttavitalaus. Það sama
á við á öðrum sviðum lífsins
svo gerðu það sem gera þarf.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Leggðu drög að fjárhags-
áætlun sem þú getur staðið
við og leggðu jafnt og þétt til
hliðar og þá muntu geta látið
drauma þína rætast á nýju
ári.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Dragðu þig í hlé frá erli
dagsins og farðu í frí. Finndu
einhvern til að sjá um þín
mál meðan þú ert í burtu svo
þú getir verið rólegur á með-
an.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er í góðu lagi að gefa
öðrum ráð svo framarlega að
þú lesir þeim ekki pistilinn
því það er ekki á þínu valdi.
Vertu því sanngjarn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Skyldur þínar gagnvart fjöl-
skyldunni eiga að vera núm-
er eitt og það skaltu muna
þegar þú verður beðinn um
að taka að þér einhverja
aukavinnu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vitirðu ekki í hvorn fótinn þú
átt að stíga skaltu fara eftir
því sem hjartað segir þér því
það skrökvar aldrei. Vertu
svo sáttur við ákvörðunina.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einbeittu þér að þeim verk-
efnum sem liggja fyrir og
taktu ekki fleiri að þér fyrr
en þú hefur afgreitt þau svo
vel að þú getir verið ánægð-
ur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
MÁLFUNDUR á vegum Ungra
sósíalista og aðstandenda baráttu-
blaðsins Militant verður haldinn
föstudaginn 9. nóvember kl. 17.30 í
Pathfinderbóksölunni, Skólavörðu-
stíg 6B.
Yfirskrift fundarins er: And-
spyrna vinnandi fólks og borgaraleg
stjórnmálaumræða síðustu vikna.
Málfundur
Ungra sósíalista
♦ ♦ ♦
NORRÆNN skjaladagur verður
haldinn laugardaginn 10. nóvember.
Tilgangurinn er að kynna skjalasöfn á
Norðurlöndunum, bæði þjóðar- og
héraðaskjalasöfn. Markmiðið með
slíkum skjaladegi er að minna á söfn-
in og hlutverk þeirra í samfélaginu og
er ætlunin að norræni skjaladagurinn
verði árviss atburður.
Að þessu sinni er þema dagsins ást
í víðum skilningi, kærleikur og um-
hyggja. Áhersla verður lögð á að sýna
gögn um föðurlandsást, ást til maka
og skyldmenna, umhyggju fyrir
náunganum, ræktarsemi við heima-
byggð eða skóla og náttúrudýrkun
svo eitthvað sé nefnt.
Þjóðskjalasafn Íslands og flest hér-
aðsskjalasöfnin hafa opið hús þennan
dag, mislengi þó. Leitast verður við
að sýna gögn er tengjast ástinni með
einhverjum hætti. Auk þess mun
starfsfólk kynna starfsemina og leið-
beina gestum sem geta t.d. kynnt sér
gögn um uppruna sinn. Einnig verður
tekið á móti gögnum ef því er að
skipta.
Loks verða í Þjóðskjalasafni til
sýnis afrit skjala um vesturfara, sem
safnið fékk nýlega að gjöf frá Þjóð-
skjalasafni Kanada, og er þar greint
frá landnámi Íslendinga í Manitoba.
Þjóðskjalasafn Íslands verður opið
frá 11 til 16 þennan dag og verður
kaffi á könnunni. Það er til húsa á
Laugavegi 162.
Einnig verður opið þennan dag á
Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Hér-
aðsskjalasafni Akraneskaupstaðar,
Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar,
Héraðsskjalasafni Ísfirðinga og Ísa-
fjarðarsýslna, Héraðsskjalasafni Ak-
ureyrarbæjar og Eyjafjarðarsýslu,
Héraðsskjalasafni Austfirðinga, Hér-
aðsskjalasafni Austur-Skaftafells-
sýslu, Héraðsskjalasafni Vestmanna-
eyja og Héraðsskjalasafni Árnesinga.
Norræni skjaladag-
urinn á laugardag