Morgunblaðið - 09.11.2001, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 47
Föstudagskvöldið 9. nóvember heldur
bókaútgáfan Forlagið árlega hátíð sína í Iðnó.
JÓLAKORT MS-félags Íslands eru
komin út og eru tvær gerðir í ár,
en kortin eru gerð af listakonunni
Guðrúnu Elínu eða Gunnellu.
MS-félagið hefur umfangsmikla
starfsemi, eiga m.a. og reka
sjúkradagvist fyrir fólk með MS-
sjúkdóminn o.fl.Búið er að byggja
við húsnæði félagsins og bæta þjón-
ustuna við félagsmenn og dagvist.
Til stendur að stækka húsnæðið
enn frekar og auka þjónustu.
Sala jólakortanna er aðal-
tekjulind félagsins. Pakkinn af
jólakortum með 6 stk. kosta 600 kr.
Jólakortin eru til sölu á skrifstofu
MS-félagsins á Sléttuvegi 5 í
Reykjavík og er skrifstofan opin
mánudaga til fimmtudaga frá kl.
10–15, segir í fréttatilkynningu.
Jólakort
MS-félagsins
ÁRLEGUR viðburður á Hrafnistu í
Hafnarfirði er basar heimilisfólks-
ins. Verður hann nú haldinn laugar-
daginn 10. nóvember kl. 13–17 og
mánudaginn 12. nóvember kl. 9–16.
Á basarnum verður til sölu og sýn-
is fjölbreytt handavinna heimilis-
fólksins. Fær hver og einn andvirði
þeirra muna sem hann hefur unnið.
Allir velkomnir.
Basar á Hrafnistu
í Hafnarfirði
♦ ♦ ♦
STYRKTARSJÓÐUR
Friðriks E. Sigtryggsson-
ar var stofnaður 21. októ-
ber sl. við Barnaspítala
Hringsins. Sjóðurinn er
stofnaður af Friðriki Elíasi
Sigtryggssyni og er til-
gangur sjóðsins að styðja
starfsemi Barnaspítala
Hringsins með gjöfum til
tækjakaupa eða á annan
hátt, sem best þjónar vel-
ferð skjólstæðinga Barnaspítalans
að mati sjóðstjórnar.
Friðrik Elías Sigtryggs-
son fæddist 21. október ár-
ið 1916 á Ytri-Brekkum í
Sauðaneshreppi í Norður-
Þingeyjarsýslu. Friðrik
hefur stundað ýmis störf
en síðustu áratugi starfs-
ævi sinnar vann hann í
Áburðarverksmiðju ríkis-
ins.
Stofnfé styrktarsjóðsins
er 2,5 milljónir og er þar
um að ræða gjafafé frá Friðriki
Elíasi á stofndegi sjóðsins. Jafn-
framt hefur Friðrik gert erfðaskrá
um að styrktarsjóðurinn muni erfa
allar eigur hans, fastar og lausar.
Úthlutað verður úr Styrktarsjóði
Friðriks E. Sigtryggssonar ár
hvert á afmælisdegi Friðriks, 21.
október.
Barnaspítali Hringsins stendur í
þakkarskuld við Friðrik Elías Sig-
tryggsson fyrir þessa rausnarlegu
gjöf. Friðrik hefur raunar áður
styrkt Barnaspítala Hringsins.
Barnaspítali Hringsins þakkar
Friðriki af heilum hug stuðninginn.
Sjóður til styrktar
Barnaspítala Hringsins
Friðrik E.
Sigtryggsson
NORRÆN samtök háskólakenn-
ara og fræðimanna í handmennt-
um halda þing í Reykjavík dagana
8.–13. nóvember.
Dagskrá: Í dag, föstudaginn 9.
nóvember: Norræna húsið, kl. 9–
12, Listaháskóla Íslands, Skipholti,
kl. 17–18, og Kennaraháskóla Ís-
lands, kl. 18.15. Laugardaginn
10.nóvember: Norræna húsið, kl.
9–12. Sunnudaginn 11. nóvember:
Norræna húsið, kl. 9. 12, Reyk-
holti í Borgarfirði kl. 16–18. Mánu-
daginn 12. nóvember: Norræna
húsið, kl. 9–11, Kennaraháskóla Ís-
lands kl. 17–18. Þriðjudaginn 13.
nóvember: Norræna húsið, kl. 9–
12.
Norrænt þing í
handmenntum