Morgunblaðið - 09.11.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.11.2001, Blaðsíða 18
AKUREYRI 18 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Handmálaðir englar Nýjar haust sendin gar af hön skum. Mjög góð verð. Litir: Svart, brúnt og camel. Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814 Stærsta töskuverslun landsins Verð kr: 3.200.- Þjónusta í 40 ár! Verð kr: 2.900.- Verð kr: 2.900.- Verð kr: 3.200.- Verð kr: 3.900.- Verð kr: 3.200.- Verð kr: 3.200.- Nýjar sendingar af töskum JÓHANN Már Jóhannsson ten- órsöngvari hefur afhent Um- hyggju, félagi til stuðnings lang- veikum börnum fé sem safnaðist á tvennum tónleikum sem hann hélt. Fyrri tónleikarnir voru á Hólum en þeir síðari í Akureyr- arkirkju. Tónleikana hélt Jóhann Már til minningar um látna ætt- ingja sína, Konráð Jóhannsson bróður sinn, Sindra Konráðsson bróðurson sinn, föður sinn Jóhann Konráðsson og mágkonu, Doriett Kavanna. Allir sem á einhvern hátt tóku þátt í tónleikunum gáfu vinnu sína. Samtals söfnuðust 194.500 krónur en dæmi voru þess að fólk sem ekki átti heimangengt lagði málefninu engu að síður lið. Jó- hann Már sagði að alltaf hefði staðið til að láta ágóða tón- leikanna renna til góðgerðarmála og var hann sérlega ánægður með hversu fjölsóttir tónleikarnir á Akureyri voru. Sigurlaug Sigurð- ardóttir, varaformaður Hetjanna, félags aðstandenda langveikra barna á Akureyri, tók við pening- unum fyrir hönd Umhyggju. Morgunblaðið/Kristján Jóhann Már Jóhannsson afhendir Sigurlaugu Sigurðardóttur peningagjöfina til Umhyggju. Studdi langveik börn með söng sínum AKUREYRARBÆR er að ganga frá samningi við bandaríska fyrirtækið Artec um ráðgjöf og undirbúning vegna byggingar menningarhúss í bænum. Þá hefur bæjarstjórn skipað 12 manna verkefnahóp sem ætlað er að starfa með hinum bandarísku að- ilum í þeirri vinnu sem framundan er. Sigurður J. Sigurðsson bæjar- fulltrúi og einn þeirra sem skipa verk- efnahópinn sagði að ef allt gengi eftir myndu þessir bandarísku aðilar hefja sína vinnu við þarfagreiningu á menn- ingarhúsinu í næsta mánuði. Sigurður sagði að þarna væri um að ræða þriggja til fjögurra mánaða vinnu þar sem farið yrði yfir alla efnisþætti. Hann sagði að fulltrúar Artec hefðu óskað eftir því að hafa verkefnahóp á bak við sig, sem þeir gætu hitt nokkr- um sinnum meðan á ferlinu stendur og því hafi verið ákveðið að skipa hann með formlegum hætti. Sigurður sagði að hinir bandarísku aðilar hefðu víðtæka reynslu í þessum málum og það skipti miklu máli. Þetta eru sömu aðilar og hafa unnið að þess- um málum í tengslum við byggingu ráðstefnu- og tónlistarhúss í Reykja- vík. Verði áhugavert verkefni fyrir sveitarfélagið og stjórnvöld „Tilgangurinn með þessu er að þetta verkefni komist í þann búning að það verði áhugavert fyrir bæði sveitarfélagið og stjórnvöld til sam- eiginlegrar þátttöku,“ sagði Sigurður. Í verkefnahópnum eru fulltrúar úr bæjarstjórn, frá menningarmála- nefnd, Fasteignum Akureyrarbæjar, Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, Ferðamálaráði, Ferða- og ráðstefnu- þjónustu, Tónlistarskólanum á Akur- eyri, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Leikfélagi Akureyrar. Verkefnahópur skipaður vegna byggingar menningarhúss á Akureyri Samið við Banda- ríkjamenn um ráð- gjöf og undirbúning VETRARSTARF Karlakórs Eyja- fjarðar er komið á fulla ferð, en kór- inn heldur söngskemmtanir í Höfða- borg á Hofsósi á morgun, laugardag, kl. 14 og í Siglufjarðarkirkju sama dag kl. 17. Með kórnum í för verður þriggja manna hljómsveit, skipuð þeim Rafni Sveinssyni, Birgi Karlssyni og Eiríki Bóassyni, en píanóleikari er Sólveig Anna Jónsdóttir. Stjórnandi kórsins er Björn Leifsson. Einsöngvarar úr röðum kórfélaga eru Bryngeir Krist- insson, Haraldur Hauksson, Snorri Snorrason og Stefán Birgisson. Söngskráin er blanda af voldugum karlakórssöng og léttum slögurum frá ýmsum löndum. Kórinn hefur fengið orð fyrir að vera á léttari nót- unum og fara ekki hefðbundnar slóðir í lagavali. Kórinn mun í tilefni af 5 ára afmæli sínu halda skemmtun í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit um aðra helgi, laug- ardagskvöldið 17. nóvember. Næsta vor tekur kórinn svo þátt í karlakóra- móti í Danmörku. Karlakór Eyjafjarðar Syngur á Hofs- ósi og Siglufirði LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju- skóli í Svalbarðskirkju á morgun, laugardag, kl. 11. Messa í Sval- barðskirkju á sunnudag kl. 14. Minnst látinna og í messunni geta kirkjugestir kveikt á kertum í minningu látinna ástvina. Kyrrð- arstund í Svalbarðskirkju á sunnu- dagskvöld kl. 21. Kirkjuskóli í Grenivíkurkirkju kl. 13.30 á laug- ardag, 10. nóvember. Kirkjustarf ANNA S. Hróðmarsdóttir opn- ar gluggasýningu í Samlaginu, Kaupvangsstræti á Akureyri, á laugardag, 10. nóvember. Þar getur að líta málverk og leir- muni. Sýningin er opin 14–18 þriðjudaga til föstudags og 11– 16 laugardaga nema opnunar- daginn frá kl 11–18. Glugga- sýningar eru nýjung hjá Sam- lagsmeðlimum og er þetta sú fimmta á árinu. Einnig stendur yfir til 30. nóvember samsýning 10 meðlima Samlagsins í Há- skólabókasafninu á Akureyri, þar er opið alla virka daga frá kl. 8–18 og 12–15 laugardaga. Gluggasýning í Samlaginu KAMMERKÓR Norðurlands held- ur tónleika á þremur stöðum á Norð- urlandi um helgina. Kórinn verður á Þórshöfn og Kópaskeri á laugardag og heldur svo tónleika í Akureyrar- kirkju á sunnudag. Kammerkór Norðurlands er skip- aður söngfólki víða að Norðurlandi, allt frá Sauðárkróki til Kópaskers. Markmið hans er að flytja krefjandi kórverk og að þessu sinni eru öll verkin á efnisskránni a capella, eða án meðleiks hljóðfæraleikara. Nefna má verkið Sapientia eftir Þorstein Hauksson sem sjaldan hefur heyrst flutt og blóðheita tónlist finnska tón- skáldsins Rautavaara við kvæði eftir spænska skáldið Garcia Lorca. Á efnisskránni eru einnig fimm falleg- ir, enskir madrígalar frá átjándu öld- inni, tvö madrígalettó eftir Atla Heimi Sveinsson og gullfallegt verk eftir Henry Purcell, Music for a While, þar sem Hildur Tryggvadótt- ir sópran syngur einsöng með kórn- um. Fyrstu tónleikar Kammerkórs Norðurlands eru í Þórshafnarkirkju á laugardag klukkan 15. Á laugar- dagskvöld klukkan 20.30 verður sungið í grunnskólanum á Kópaskeri og á sunnudag kl. 16 í Akureyrar- kirkju. Kammerkór Norður- lands á tónleikaferð UNGLINGAMEISTARAMÓT Ís- lands 2001 í skák fer fram á Akur- eyri um helgina og er það í fyrsta sinn sem mótið er haldið á Akureyri. Mótið hefst kl. 13 á morgun, laug- ardag, í húsnæði Skákfélags Akur- eyrar í Íþróttahöllinni og lýkur á sunnudag. Á morgun verða tefldar fjórar umferðir en alls verða tefldar 7 umferðir eftir Monrad-kerfi og er umhugsunartími keppenda 45 mín- útur. Mótið er opið öllum skákmönn- um fæddum 1981 og síðar, keppn- isgjald er 800 kr. og skráning fer fram á mótsstað fyrir kl. 13 á laug- ardag. Verðlaun fyrir 1.–5. sætið eru skákbækur, auk þess sem sigurveg- arinn vinnur sér farseðil á skákmót erlendis. Einnig er keppt um farand- bikar og þá eru veittir eignabikarar fyrir þrjú efstu sætin. Fyrir ári hélt Skákfélag Akureyr- ar Íslandsmót í drengja- og telpna- flokki sem heppnaðist mjög vel og nú er tækifæri fyrir unglinga á Norður- landi og víðar að vera með. Unglingameistaramót í skák á Akureyri KAFFISALA á vegum kristniboðs- félags kvenna verður í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð á sunnudag, 11. nóvember kl. 15, en kristniboðsdagur hinnar íslensku þjóðkirkju er þann dag. Salan stend- ur frá kl. 15 til 17. Um þessar mundir starfa fjórir kristniboðar á vegum Krisniboðssambandsins í Eþíópíu og Kenýa og fjórir á Íslandi, en mikill vöxtur er í þessu starfi. Kaffisala á kristniboðsdegi ♦ ♦ ♦ Geisladiskahulstur aðeins 500 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.