Morgunblaðið - 09.11.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GÍSLI S. Einarsson var málshefjandi
í umræðunni og gagnrýndi harðlega
að ekki fengjust upplýsingar um
notkun flugvélarinnar sem hann
sagði að ættu að vera sjálfsagðar.
Sagði þingmaðurinn afgreiðslu máls-
ins vera „klúður“ og og vísaði til upp-
lýsingaskyldu ráðuneyta sem fæli
m.a. í sér þá skyldu, sbr. reglur um
þjóðskjalasöfnun, að varðveita ætti
farþegalista vélarinnar.
Þá lét Gísli í ljós þá afstöðu að eðli-
legra væri að ríkið byði út ýmis verk-
efni sem vélinni væru ætluð, svo sem
þau er vörðuðu öryggismál og flug-
vallaraðstæður og eðlilegra væri að
leitað væri til starfandi flugfélaga um
flutning á embættismönnum sem TF-
FMS væri notuð til. Velti hann auk-
inheldur upp tryggingastöðu þeirra
einstaklinga sem ferðuðust sem gest-
ir í umræddri vél og hversu margir
samstarfssamningar hefðu verið
gerðir um notkun vélarinnar.
Flugvélin sinnir einungis vel
skilgreindum verkefnum
Sturla Böðvarsson (D) sagði flug-
vélina einungis sinna vel skilgreind-
um verkefnum fyrir opinbera aðila,
öðru ekki. Þar á meðal flutningum á
æðstu embættismönnum ríkisins um
landið. Sagði hann það hagkvæmt
fyrir ríkið að nota vélina til slíkra
hluta þegar hún væri ekki bundin í
öðrum verkefnum og áætlunarflug
dygði ekki til vegna anna ráðherra.
Sagði Sturla að einungis 12% ár-
legs flugtíma TF-FMS á árunum
1998–2001 hefði farið í flutninga með
æðstu embættismenn þjóðarinnar.
Varðandi þá skyldu að varðveita far-
þegalista vélarinnar sagði ráðherra
sjálfsagt mál að flugmálastjóri færi
yfir það með þjóðskjalaverði í hvaða
farvegi það mál skyldi vera.
Sagði Sturla Böðvarsson að verið
væri að semja í samgönguráðuneyt-
inu frumvarp um mannflutninga í
lofti og þar væri kveðið á um skyldu
um varðveislu farþegalista. Það ætti
þó ekkert skylt við umræðuna nú.
Óskiljanleg afstaða til verkefna
og starfsskilyrða ráðherra
Samgönguráðherra sagði um-
ræðuna bera öll einkenni þess að Gísli
S. Einarsson gerði eðlilega notkun
flugvélar Flugmálastofnunar tor-
tryggilega. „Ég tel að það séu ekki
miklar fréttir fyrir þingmenn að tími
ráðherra er oft knappur til þeirra
mörgu verkefna sem þeim eru ætluð
vítt og breitt um landið. Þá skiptir
verulega miklu máli að velja farar-
máta sem sparar tíma og auðveldar
ráðherrum að gegna störfum sínum,“
sagði Sturla og bætti því við að flug-
vél Flugmálastjórnar gæfi ráðherr-
um kost á að fara um landið, sinna er-
indum og verða við óskum um að
mæta á mannamót sem væri hluti af
starfsskyldum ráðherra. „Að þing-
maðurinn skuli hafa leyft sér að tala
um þægindaflug ráðherra, líkt og
hann hefur látið hafa eftir sér, er
óskiljanleg afstaða til verkefna ráð-
herra og starfsaðstöðu þeirra,“ sagði
Sturla ennfremur og sagði það und-
arlegt hjá þingmanninum að höfða til
þeirra „gamaldags viðhorfa“ að flug-
ferðir hljóti að vera munaður. Sagði
hann allan málatilbúnað Gísla til þess
fallinn að ýta undir fordóma í garð
stjórnmálamanna, en fyrst og fremst
lýsti hann þó málefnafátækt Sam-
fylkingarinnar.
Augljóslega pottur brotinn
Auk málshefjanda og ráðherra
tóku fjölmargir þingmenn þátt í um-
ræðunni. Ögmundur Jónasson (Vg)
sagði þannig hið besta mál að Flug-
málastjórn ræki flugvél og að stjórn-
sýslan nýtti hana á stundum. „Frá
sjónarhóli opins lýðræðissamfélags
er augljóslega pottur brotinn,“ sagði
Ögmundur og sagði ljóst að halda
ætti farþegalista og þeim síðan haldið
til haga. Þegar um þær væri beðið á
Alþingi ætti að reiða þær fram.
Kristinn H. Gunnarsson (B) sagði
ekki deilt um þörf fyrir vélina, að
reglur um hana væru skýrar og að
Ríkisendurskoðun fylgist með því að
þeim sé fylgt. Sagði hann ekkert
liggja fyrir um það að um misnotkun
hafi verið að ræða og kvaðst treysta
Ríkisendurskoðun til þess að skera úr
um það. Sagði Kristinn það skoðun
sína að málshefjandi gengi fulllangt í
því að varpa rýrð á ráðherra í þessum
efnum, en engu að síður væri það sín
skoðun að upplýsingar um farþega
vélarinnar ættu að liggja fyrir.
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, sagðist ekki
kannast við það að ríkisstjórnin hefði
verið vænd um misnotkun. Ráðherra
hefði að því er sér virtist tekist að
klúðra þessu máli. Vísaði Sverrir,
sem sjálfur var lengi ráðherra, að
eins væri komið með samgönguráð-
herra og landbúnaðarráðherra um
sölu ríkisjarða, að þeir neiti löggjaf-
arsamkomunni um umbeðnar upplýs-
ingar. Á hinn bóginn sagði Sverrir
sjálfsagt að ríkisstjórnin nýtti sér
flugvélina þegar þurfa þætti, en hér
áður fyrr hefði það ekki verið svo að
menn þyrftu að „vígja vegi nýja
beggja megin eða klippa borða yfir
brú“.
Aðrir þingmenn, þau Bryndís
Hlöðversdóttir, Guðmundur Hall-
varðsson, Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir og
Arnbjörg Sveinsdóttir gagnrýndu
ekki notkun vélarinnar í sjálfu sér en
töldu flestir sjálfsagt að skrá um far-
þega hennar yrði varðveitt og að upp-
lýsingar um notkun vélarinnar yrðu
veittar greiðlega svo ekki þyrfti að sá
fræjum tortryggni um afnot ríkis og
ráðuneyta af henni.
Sagði félagsmálaráðherra þó að
kröfur um að Þjóðskjalasafn varðveiti
farþegalista „væru út yfir allan þjófa-
bálk“, eins og hann orðaði það.
Að leyna upplýsingum
skapar tortryggni
Í lok umræðunnar sagði Gísli þing-
umræðuna hafa kristallast í því að
upplýsingum væri leynt og það skap-
aði tortryggni. Flugmálastjórn og
síðar ráðuneyti hefði ekki veitt um-
beðnar upplýsingar. Væri það sam-
merkt öllum opinberum stofnunum
nema embætti forseta Íslands að
veita ekki upplýsingar um ferðalög.
Sturla Böðvarsson átti lokaorðið og
sagðist þakklátur fyrir umræðuna
þar sem hún hefði leitt í ljós að ekki
væri um þvílíkt stórmál að ræða sem
látið hefði verið í veðri vaka og
ástæðulaust hefði verið að reiða eins
hátt til höggs og gerð hefði verið til-
raun til.
Umræður utan dagskrár um notkun flugvélar Flugmálastjórnar TF-FMS
12% flugtíma vegna
æðstu embættismanna
Morgunblaðið/Kristinn
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði Gísla S. Einarsson, þing-
mann Samfylkingarinnar, ýta undir fordóma í garð stjórnmálamanna.
Gísli S. Einarsson, þingmaður Samfylk-
ingar, gagnrýndi í gær vöntun á upplýs-
ingum um notkun flugvélar Flugmálastjórn-
ar. Samgönguráðherra sagði Gísla gera
eðlilega notkun vélarinnar tortryggilega.
ÞINGMENN Samfylkingarinnar
gagnrýndu harðlega við upphaf
þingfundar á Alþingi í gær, að
heilbrigðis- og trygginganefnd
hefði ekki sinnt beiðni stjórnar
Sjúkraliðafélags Íslands um fund
með nefndinni vegna kjaradeil-
unnar við ríki og sveitarfélög.
Kom fram í umræðunni að
sjúkraliðar sendu nefndinni
beiðni um fund 14. maí sl. en því
erindi hefur ekki enn verið svar-
að.
Bryndís Hlöðversdóttir, for-
maður þingflokks Samfylkingar-
innar, sagðist gera sér grein fyrir
því að kjaradeilur yrðu ekki
leystar í sölum Alþingis eða á
fundum nefnda. „Það er hins veg-
ar mikilvægt að fulltrúar á lög-
gjafarsamkundunni fylgist vel
með því alvarlega ástandi sem er
að skapast,“ sagði hún og gat
þess að sjúkraliðar hefðu komið á
fund þingflokks Samfylkingarinn-
ar á miðvikudag til að ræða stöðu
mála. Verkfall sjúkraliða hefst á
mánudag, semjist ekki fyrir þann
tíma. Bryndís sagði að á fund-
inum hefði komið fram að sjúkra-
liðar hafa fyrir löngu óskað eftir
fundi með heilbrigðis- og trygg-
inganefnd en þeirri beiðni hefur
ekki verið svarað. Sagði hún slík
vinnubrögð ólíðandi og taldi mik-
ilvægt að bæta úr þessu hið
fyrsta, enda gæti ekki spillt fyrir
málinu að hlýða á sjónarmið
sjúkraliða, þar sem verkfall
þeirra hefði alvarlegar afleiðingar
fyrir heilbrigðiskerfið og fjölda
fólks.
Katrín Fjeldsted (D), starfandi
formaður heilbrigðisnefndar, gat
þess að formaður nefndarinnar,
Jónína Bjartmarz (B), væri er-
lendis. Sagðist Katrín hafa kann-
að málið eftir að fulltrúar Sam-
fylkingarinnar hefðu rætt það við
sig og komið hefði í ljós að for-
maður nefndarinnar hefði stefnt
að fundi með sjúkraliðum í næstu
viku.
Erindi þeirra hefði borist
skömmu fyrir þinglok sl. vor og
ekki hefði gefist tími til að hitta
þá í upphafi þingstarfa í haust.
Sagði Katrín Fjeldsted að hún
hefði því beitt sér fyrir því að
heilbrigðis- og trygginganefnd
settist niður með fulltrúum
sjúkraliða eftir helgi.
Gagnrýni á heilbrigðis-
og trygginganefnd
KARL Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins, segir
að það séu ósannindi, sem fram
komu í Sjónvarpinu á þriðjudags-
kvöld þegar rætt var við Þórarin
Jónsson formann Tannlæknafélags
Íslands, að ekki hefði verið skipuð
samninganefnd frá TR til að annast
samningaviðræður við tannlækna.
„Samninganefnd hjá Trygg-
ingastofnun er starfandi allt árið og
hún hefur gert um 70 samninga við
hinar ýmsu heilbrigðisstéttir síðan
deila við tannlækna hófst,“ segir
Karl Steinar. „Einu aðilarnir sem
ekki hefur tekist að semja við eru
tannlæknar. Í öðru lagi hefur því
verið haldið fram að Trygg-
ingastofnun hafi sagt samning-
unum upp, sem eru ósannindi. Hið
rétta er að samningurinn rann út.
Ég hef bréf frá Tannlæknafélagi Ís-
lands þar sem þeir fagna því að þeir
eru loksins frjálsir. Í framhaldi af
þessu gerði ráðherra gjaldskrá sem
hefur verið óbreytt síðan.“
„Það hefur einnig verið vikið að
því af hálfu Tannlæknafélags Ís-
lands, að Tryggingastofnun mi-
stúlkaði reglugerðir um réttindi
aldraðra og þroskaheftra, sem er
dæmalaus fullyrðing sem þarf að
rökstyðja. Tryggingastofnun legg-
ur metnað sinn í að gera það sem
mögulegt er til að aldraðir og
þroskaheftir njóti fullra réttinda.
Þess er ætíð gætt að láta sjúklinga
njóta vafans.“
Rangt að
ekki hafi
verið skip-
uð samn-
inganefnd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svaraði ekki fundarbeiðni sjúkraliða