Morgunblaðið - 09.11.2001, Side 23

Morgunblaðið - 09.11.2001, Side 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 23 Bremsuklossar 3.995 kr. Verð miðað við Corolla. Hér er eitt verðdæmi: Veldu rétt miðað við aldur bílsins. Viltu spara? Optifit varahlutir eru framleiddir af Toyota og henta vel eldri gerðum Toyotabifreiða. VARAHLUT IR Nýbýlavegi 8 • S: 570 5070 N O N N I O G M A N N I • N M 0 4 7 2 5 /s ia .is FÉLAG löggiltra endurskoðenda hélt í gær ráðstefnu um væntanlegar breytingar á skattkerfinu, stefnu ríkisstjórnarinnar og stöðu Íslands í alþjóðlegu ljósi. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, flutti ræðu á ráð- stefnunni og sagði miklar skatt- breytingar hafa orðið hér á landi síð- astliðinn áratug og hefðu þær meðal annars verið gerðar í því skyni að auka samkeppnishæfni atvinnulífs- ins. Þrátt fyrir þessar breytingar hafi íslenskt atvinnulíf ekki lengur það forskot í skattamálum sem það hafi haft eftir skattbreytingar á fyrri hluta síðasta áratugar. Þess vegna hafi verið ráðist í þær breytingar sem nú standi fyrir dyrum, þar sem meðal annars eigi að lækka skatt- hlutfall fyrirtækja úr 30% í 18%, lækka eignarskatt um helming og af- nema sérstaka eignarskattinn. Þrátt fyrir þær breytingar á skatta- og uppgjörsmálum fyrir- tækja sem gert sé ráð fyrir að fari í gegn á yfirstandandi þingi sagði Geir að störfum að endurbótum skatt- kerfisins væri hvergi nærri lokið og lyki raunar aldrei. Nú sagði hann rétt að doka við um stundarsakir og sjá áhrifin af þessum breytingum, en halda svo áfram. Geir sagði til dæmis rétt að stefna að því að lækka tekju- skatt fyrirtækja í 10%, en einnig að lækka tekjuskatt einstaklinga og fella niður hátekjuskattinn. Þá beri að stefna að því að eignarskattar hverfi alveg, að stofn stimpilgjalda verði minnkaður og þau afnumin að hluta. Fjármagnstekjuskattinum ætti að halda óbreyttum, enda sé hann ekki hár í alþjóðlegum saman- burði. Raunverulegt skatthlutfall fyrirtækja lækkar verulega Símon Á. Gunnarsson, formaður Félags löggiltra endurskoðenda, fór í erindi sínu á ráðstefnunni meðal annars í gegnum tölulegar stað- reyndir í sambandi við fyrirhugaða lækkun á tekjuskatti og eignarskatti fyrirtækja. Símon bar saman raun- verulegt skatthlutfall fyrir og eftir að fyrirhugaðar breytingar taka gildi árið 2003. Raunverulegt skatthlutfall er samanlagður tekju- og eignarskattur fyrirtækis í hlutfalli við hagnað fyrir skatta. Ef arðsemi fyrirtækis er lítil vegur eignar- skatturinn þungt í útreikningum á raunverulegu skatt- hlutfalli, en þegar arðsemi er þokka- leg vegur tekjuskattsgreiðslan meira en eignarskatturinn. Símon tók sem dæmi fyrirtæki með 1% arðsemi eigin fjár fyrir skatta, sem telst vera léleg arðsemi. Fyrir skattbreytinguna er raunveru- legt skatthlutfall slíks fyrirtækis 176,5% af hagnaði, en eftir skatt- breytinguna verður hlutfallið 78,6%. Fyrir breytinguna er fyrirtækið með öðrum orðum að greiða meira en all- an hagnað sinn í skatta, en eftir breytinguna heldur það hluta hagn- aðarins eftir. Ef gert er ráð fyrir 15% arðsemi, sem almennt þykir viðunandi, er raunverulegt skatthlutfall fyrir skattbreytingu 41,1%, en 22,6% eftir lækkun skattsins. Skattbreytingum verði haldið áfram Morgunblaðið/Kristinn Símon Á. Gunnarsson, formaður Félags löggiltra endurskoðenda, við setningu haustráðstefnu félagsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.