Morgunblaðið - 09.11.2001, Síða 29

Morgunblaðið - 09.11.2001, Síða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 29 Verðtryggð skuldabréf Kaupþings hf., 3. flokkur 2001, á Verðbréfaþing Íslands. Verðbréfaþing hefur samþykkt að taka skuldabréf Kaupþings hf., 3. flokk 2001, á skrá þingsins. Bréfin verða skráð 13. nóvember nk. Skuldabréfin ásamt áföllnum vöxtum greiðast í einu lagi 25. júlí 2006. Skuldabréfin bera 7,25% fasta flata ársvexti og eru bundin vísitölu neysluverðs. Bréfin eru innkallanleg þann 27. janúar 2004 og eru með innlausnarheimild þann 5. febrúar 2004. Skráningarlýsingu og þau gögn sem vitnað er til í henni er hægt að nálgast hjá Kaupþingi hf. Ármúla 13A, 108 Reykjavík Sími 515 1500, fax 515 1509 CORKY Romano (Chris Kattan), lætur ekki mikið fara fyrir sér, sátt- ur við guð, menn og ferfætlinga. Enda dýralæknir og friðsemdar- náungi – þó svo að hann sé sonur „Pops“ Romano (Peter Falk), eins forhertasta mafíósa og glæpafor- ingja landsins. Pops leist engan veg- in á sonarnefnuna sem frekar vildi hugsa um heimilisköttinn en gerast bófi og gerði strákinn brottrækan úr fjölskyldunni. Nú eru blikur á lofti í glæpaheiminum, Pops er gert skylt að mæta fyrir dómstólunum að hálfum mánuði liðnum og bendir flest til að lög og regla komi til með að veita honum fæði og húsnæði um ókomna framtíð. Pops er ekki á því að gefast upp og minnist nú afmánarinnar Corkys og útbýr ásamt sonum sínum og glæpaspírum, Paulie (Peter Berg) og Peter (Chris Penn), kænsku- bragð til að sleppa við múra réttvís- innar. Það felst í því að villa heim- ildir á dýralækninum, dubba hann upp í spæjara Alríkislögreglunnar, að sjálfsögðu á fölskum pappírum. Corky finnst hann hafa himin hönd- um tekið, að fá að sanna sig sem út- valinn frelsari Rómanóanna og legg- ur ótrauður út í svartnætttið. Ekki gengur það átakalaust fyrir sig að smygla ættarskömminni í raðir ofurvarða laganna, en það hefst og við tekur ævintýraleg at- burðarás þar sem oft skellur hurð nærri hælum. Gamanleikarinn Chris Kattan er góðkunningi allra þeirra sem horfa á skemmtiþættina vinsælu, Saturday Night Live, sem jafnframt hefur verið ein öflugasta uppeldisstöð gamanleikara í Vest- urheimi. Kattan hefur verið fasta- maður í SNL í fimm ár og er farinn að hasla sér völl á hvíta tjaldinu, að hætti forvera sinna í þáttunum, eins og Eddie Murphy, Chevy Chase og Bill Murray, svo aðeins örfáir séu nefndir. Leikarar: Chris Kattan (A Night at the Roxbury, The House on Haunted Hill); Peter Berg (Cop Land, The Great White Hype, The Last Seduction); Chris Penn (The Funeral, Rush Hour, Reservoir Dogs); Richard Roundtree (Shaft, City Heat, Seven); Vanessa Shaw (Eyes Wide Shut); Fred Ward (Henry and June, Tremors, Miami Blues). Leikstjóri: Rob Pritts (frum- raun). Sjálf ættar- skömmin kemur til skjalanna Chris Kattan í kvikmyndinni Corky Romano. Sambíóin frumsýna Corky Romano með Chris Kattan, Vanessu Shaw, Peter Falk, Peter Berg, Chris Penn. FRANSKI leikstjórinn og framleið- andinn góðkunni Luc Besson stend- ur að baki spennumyndarinnar Yamakasi, sem stefnir í að verða ein vinsælasta mynd í Frakklandi á þessu ári. Hún kemur með nýja hlið á átakamyndinni, hetjurnar eru þrautþjálfaðir fimleika- og bardaga- listamenn. Besson á að baki frægar aðsóknar- og spennumyndir sem hafa notið mikilla vinsælda hér sem annars staðar, líkt og Leon, Subway og La Femme Nikita. Yamakasi-hópurinn er flokkur sjö ungra Parísarbúa, sem hafa sérþjálf- að sig í ýmiskonar bardagalistum, þrautum og líkamsrækt, svo árang- urinn minnir helst á teiknimynda- hetjur á borð við X-Men og Köngullóarmanninn. Rocket hleypur á sannkölluðum eldflaugarhraða, Tangó er nánast liðamótalaus og Köngullóin endasendist upp lóðrétta veggi háhýsa einsog aðrir á jafn- sléttu. Afrek þeirra og fimi hafa gert sjömenninga að lifandi goðsögn í augum borgarbúa. Unglingarnir líta á flokkinn sem ósviknar hetjur og taka þá til fyr- irmyndar. Einn þeirra er pilturinn Djamel, sem reynir að líkja eftir Köngullónni og hyggst klífa skýja- kljúf en fær hjartaáfall á miðri leið. Ástand Djamels er grafalvarlegt, hann verður að fá nýtt hjarta innan sólarhrings. Yamakasi-hópurinn telur sig ábyrgan og kemur drengnum til hjálpar en tíminn er naumur. Leikararnir hafa vakið athygli víða um Evrópu og koma tveir þeirra til landsins í tilefni frumsýningarinn- ar. Munu þeir sýna listir sínar og sýna nokkur bíræfin áhættuatriði. Leikarar: Charles Perriere, Laurent Piemontesi, Chau Belle, Williams Belle, Malik Diouf, Yann Hnautra, Guylain N’Guba-Boyeke og Maher Kamoun. Fífldjarfir fimleikamenn Atriði úr frönsku kvikmyndinni Yamakasi. Smárabíó og Stjörnubíó frumsýna Yamakasi með Charles Perriere, Laur- ent Piemontesi, Chau Belle, Williams Belle og Malik Diouf. EITT snjallasta meistaraverk þöglu kvikmyndanna var á dagskrá fyrir þétt setnu Háskólabíói í gær- kvöld á svokölluðum kvikmyndatón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands, þar sem sýnt er við lifandi hljómsveitarundirleik, líkt og tíðk- aðist í stærstu kvikmyndahúsum er- lendis í árdaga hreyfimynda. Raun- ar kváðu margir kvikmynda- fræðingar ganga svo langt að telja Beitiskipið Potemkin beztu afurð þögla skeiðsins (1895–1929) – sumir m.a.s. allra tíma. Alltjent er víst, að hvað kvikmyndatöku og formræna uppbyggingu varðar hefur hún haldið fullu gildi sem óþrjótandi við- fangsefni til skoðunar og kennslu í kvikmyndaskólum um allan heim. Dimitri Sjostakovitsj (1906–75) samdi tónlist við allmargar kvik- myndir upp úr 4. áratug. Hið kröft- uga myndmál og hin einstaklega skýra og áhrifamikla formskipan hefði því vafalítið höfðað til tón- skáldsins, hefði hann verið fenginn til að semja við byltingaróð Sergeis Mikhailovitsj Eisensteins í lifandi myndum frá árinu 1925. Þá ákváðu Sovétmenn að minnast byltingar- tilraunarinnar 1905 og litu réttilega á hana, þótt misheppnuð væri, sem helzta undanfara októberbyltingar- innar 1917. Ytri hvati hennar var ófarir Rússa í stríðinu við Japana, þegar augu alþýðu opnuðust fyrir því hvað kúgunarstjórn tsarsins var í raun völt í sessi, úr því að austurlandaþjóð gæti náð slíkum ár- angri gagnvart evrópsku nýlendu- veldi. En í myndinni er grimmd yf- irmanna og ömurlegur aðbúnaður óbreyttra sjóliða um borð í beiti- skipinu Potemkin á Svartahafi aftur á móti látinn vera kornið sem fyllir mælinn. Uppreisn þeirra varð kveikjan að byltingu þeirri sem frá Odessu breiddist út sem eldur í sinu, en var á endanum kæfð í blóði. Kvikmyndasafn Íslands stóð, ásamt SÍ, að viðburði kvöldsins með stuðningi frá menntamálaráðuneyt- inu. Við stjórnvölinn var valinkunn- ur sérfræðingur í meðferð sinfón- ísks kvikmyndaundirleiks, þýzki hljómsveitarstjórinn Frank Strobel, sem undirritaður sá síðast í slíku hlutverki fyrir tveim árum, þegar hljómsveitin lék undir við Borgar- ljós Chaplins. Sú ljúfsára og gáska- blendna rómantík var af gjörólíkum toga en það sem hér blasti við á hvíta tjaldinu. Því fylgdi snörp og helgrimm tónlist, sem oftast féll svo vel að myndskeiðum Eisensteins að halda mætti að hún væri samin sér- staklega við myndina af einum manni. Það var því meira en lítið furðu- efni að tónlistin skyldi vera púsluð saman löngu síðar af Arnim Brunn- er, tónlistarstjóra svissneska út- varpsins, tónskáldi og hljómsveitar- stjóra, er sótti tónefnið úr 4., 11. og 14. sinfóníum Sjostakovitsj, að við- bættri „Vélartónlist“ eftir sjálfan sig frá 1992. Eiginlega er á mörk- unum að geta fjallað um slíka nið- urröðun sem sjálfstætt tónverk, enda næsta óvíst hvort það myndi nokkurn tíma „virka“ eitt sér án myndmáls. En sem kvikmyndatón- list gekk púslið upp. Væri varla of mikið sagt að mynd og tónlist hafi í sameiningu gengið upp í enn stærri heild, og má það alveg eins kalla snilld – þó að hún felist mestmegnis í „ritstjórn“. Að uppátækið skyldi heppnast svo vel sem raun bar vitni, var ugg- laust mikið til fagmannlegri stjórn Franks Strobels að þakka, sem leiddi hljómsveitina hnífnákvæmt í svo samtvinnaðri heildartjáningu mynda og músíkur að undrum sætti. Hljómsveitin lék af óvenjuinnlifaðri snerpu og tilfinningahita, líkt og slík sérhæfð verkefni væru henni dag- legt brauð. Útkoman varð fyrir vik- ið eftirminnileg í meira lagi. Helzt mætti jafna henni við upplifun í þrí- vídd, þar sem eldgamlar svarthvítar skuggamyndapersónur öðluðust göldrum líkast hold og blóð, svo við lá að sýningargestir fyndu líka sjáv- arseltuna og púðurreykinn í „odo- rama“. Slíkt er ekki heiglum hent, og ætti að hvetja margan til að vitja léttari eftirleiks á laugardag, þegar Sirkus meistara Chaplins verður brugðið á tjald við sinfónískan und- irleik. Púslið sem heppnaðist TÓNLIST H á s k ó l a b í ó „Beitiskipið Potemkin“ í leikstjórn S. M. Eisensteins. Tónlist eftir Sjostakovitsj og Brunner. Sinfón- íuhljómsveit Íslands u. stj. Franks Strobels. Fimmtudaginn 8. nóv- ember kl. 19.30. KVIKMYNDA- TÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Hafnarborg Þremur sýningum lýkur í Hafnar- borg á sunnudag: Myndlistarsýn- ingu 20 heimsþekktra listamanna sem sýna verk sín á vegum WHO, Alþjóðlegu heilbrigðisstofnunarinn- ar til stuðnings baráttunni gegn tób- aksreykingum – leiðsögn verður um sýninguna kl. 14 þann dag –, sýningu Jónínu Guðnadóttur í Apóteki og sýningu Kristjáns Péturs Guðnason- ar í Sverrissal. Sýningarnar eru opnar alla daga nema þriðjudaga frá kl 11-17. Sýningum lýkur „SVÖRTU skólar – trú og töfrar“ nefnist erindi sem Matthías Viðar Sæmundsson, dósent við Háskóla Ís- lands flytur að Skriðuklaustri í kvöld kl. 20.30. Þar fjallar hann um töfra- heim íslenskra rúna, merkingu þeirra og hlutverk fyrr og nú. Matthías Viðar er dósent í íslensk- um bókmenntum en hefur undanfar- in ár rannsakað íslenska galdra- menningu og gefið út bækur um það efni. Erindi um íslenskar rúnir SÝNINGAR á verki Lars Norén, Laufin í Toskana, hefjast á ný í Þjóð- leikhúsinu í kvöld. Verkið var frum- sýnt í mars á síðasta leikári. Leikendur eru Ragnheiður Stein- dórsdóttir, Sigurður Skúlason, Guð- rún S. Gísladóttir, Valdimar Örn Flygenring, Erlingur Gíslason, Hjalti Rögnvaldsson, Atli Rafn Sig- urðarson, Stefán Jónsson og Nanna Kristín Magnúsdóttir. Laufin í Toscana aftur á svið ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ HÁTÍÐARKÓR Vestmannaeyja og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna ásamt einleikurunum Helgu Bryn- dísi Magnúsdóttur, píanó, og Védísi Guðmundsdóttur, þverflautu, undir stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar, halda tónleika í Höllinni, Vest- mannaeyjum, á morgun kl. 16. Ein- söngvari verður Anna Cwalinska. Í Hátíðarkórnum eru félagar úr Kór Landakirkju og Samkór Vest- mannaeyja ásamt söngnemum í Tón- listarskóla Vestmannaeyja. Tónlistarveisla í Vestmannaeyjum BÓKAÚTGÁFAN Forlagið heldur sitt árlega „festíval“ í Iðnó í kvöld kl. 20.30. Forlagshöfundar lesa úr væntanlegum og útkomnum jólabók- um. Þátttakendur eru: Jón Atli Jón- asson – Brotinn taktur; Stefán Máni – Hótel Kalifornía; Magnús Guð- mundsson – Sigurvegarinn og Guð- bergur Bergsson – Anna. Þá mun Gunnar Lárus Hjálmars- son rekja íslenska rokksögu með tóndæmum á kortéri. Sérstakur gestur er Oddný Sturludóttir auk leynigesta. Kynnir er Kristján B. Jónasson. Forlagshöfundar lesa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.