Morgunblaðið - 09.11.2001, Page 44

Morgunblaðið - 09.11.2001, Page 44
KIRKJUSTARF 44 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KVENFÉLAG Grensássóknar heldur ár- legan basar sinn í safnaðarheimili Grens- áskirkju á morgun, laugardag 10. nóv., og hefst hann kl. 14. Á basarnum er hægt að gera góð kaup á munum og fatnaði. Þess er einnig að vænta að á boðstólum verði kaffi og kaffibrauð. Kvenfélag Grensássóknar hefur frá stofnun safnaðarins verið öflugasti og öt- ulasti bakhjarl kirkjustarfsins, bæði beitt sér fyrir ytri framkvæmdum og stutt hið innra starf af myndarskap. Ófáir eru þeir gripir og munir sem Kvenfélagið hefur gefið Grensáskirkju. Nýjasta dæm- ið er stofuhúsgögn í viðtalsherbergi. Söfnuðurinn nýtur ævinlega góðs af þeim fjármunum sem kvenfélagið aflar. Velunnarar félagsins og Grensássafn- aðar eru því hvattir til að koma á bas- arinn á morgun, í þágu félagsins og safn- aðarins en jafnframt í eigin þágu með hagstæðum innkaupum. Basar kvenfélags Fríkirkjunnar í Reykjavík HINN árlegi basar kvenfélags Fríkirkj- unnar í Reykjavík verður haldinn næst- komandi laugardag, 10. nóvember, í safn- aðarheimili kirkjunnar á Laufásvegi 13. Basarinn hefst klukkan 14. Komum og styðjum gott málefni. Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í Reykja- vík. Guðsþjónusta í Skeiðflatarkirkju GUÐSÞJÓNUSTA verður í Skeiðflat- arkirkju í Mýrdal nk. sunnudag, 11. nóv- ember, kl. 14. Sóknarprestur, kór og org- anisti undan Eyjafjöllum koma í heimsókn. Séra Halldór Gunnarsson, sóknarprestur í Holti, predikar. Kór- félagar undan Eyjafjöllum og við Skeið- flatarkirkju leiða söng undir stjórn org- anistanna Jónu Guðmundsdóttur og Kristínar Björnsdóttur. Vinsamlega athugið að eftir messuna er öllum viðstöddum boðið í pönnuköku- kaffi í Ketilsstaðaskóla, þar sem allir munu taka lagið og syngja saman ætt- jarðarlög o.fl. Verum dugleg að mæta til kirkju og í Ketilsstaðaskóla og tökum virkan þátt í messunni og söngnum yfir rjúkandi kaffibolla og pönnukökum. Tök- um vel á móti góðum gestum. Sóknarprestur, organisti og kirkjukór. Basar Kvenfélags Grensássóknar Háteigskirkja. Samverustund eldri borgara kl. 13 í umsjón Þórdísar, þjónustufulltrúa. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Mömmumorgunn kl. 10–12 í umsjá Eyglóar Bjarnadóttur meðhjálpara. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir börn. Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið næstu samveru á morgun, laugardag, kl. 11.15–12 í Víkurskóla. Sókn- arprestur. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 14.30 helgistund á Heilbrigðisstofnun í dagstofu á 3. hæð. Karítas Kristjánsdóttir guðfræðingur verður með hugleiðingu. Allir hjartanlega velkomnir. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laug- ardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíufræðsla þar sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og svarað. Barna- og unglingadeildir á laug- ardögum. Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel- komnir. Sjöundadagsaðventistar á Íslandi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Bænavika. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Bæna- vika. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Bæna- vika. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Bænavika. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðsþjón- usta/biblíufræðsla kl. 11. Bænavika. Safnaðarstarf R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Aðalfundur Hraðfrystihúss Hellissands verður haldinn á skrifstofu fyrirtækisins föstudaginn 16. nóvember kl. 16. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. TILKYNNINGAR UPPBOÐ Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Byggðavegur 115, Akureyri, þingl. eig. Páll H Egilsson, gerðarbeiðend- ur Íslandsbanki-FBA hf. og Landsbanki Íslands hf., miðvikudaginn 14. nóvember 2001 kl. 10.00. Lyngholt 16, neðri hæð, Akureyri, þingl. eig. Lára Ólafsdóttir, gerðar- beiðandi Tryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 14. nóvember 2001 kl. 10.30. Skíðabraut 4b, Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Ferðaþjónusta Dalvíkur ehf., gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og STEF, samb. tónskálda/eig. flutnr., þriðjudaginn 13. nóvember 2001 kl. 14.00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 8. nóvember 2001. Harpa Ævarrsdóttir, ftr. ÝMISLEGT Lagerútsala Hrím, umboðs- og heildverslun, verður með lagersölu í húsnæði sínu, Smiðjuvegi 5. Ýms- ar vörur, s.s. haglabyssur, rifflar, skot, veiði- fatnaður, aukahlutir, golfsett, handverkfæri, loftpressur, háþrýstidælur, kýtti, festifrauð, rekskrúfur, múrboltar, múrtappar, rafmagns- verkfæri o.m.fl. Opið virka daga frá kl. 9.00—17.30, laugard. og sunnud. frá kl. 11.00—17.00. Upplýsingar í síma 544 2020. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1  1821198  Fl. I.O.O.F. 12  1821198½  Fl. Sunnudagur 11. nóv. Brynju- dalur — Botnsdalur Um 3—5 tíma ganga. Fararstjóri Sigurður Kristjánsson. Brottför frá BSÍ kl 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6. Minnum á myndakvöld þann 14. nóv. Sýndar verða myndir frá Hornströndum. Sýnandi verður Guðmundur Hallvarðsson. Munið Aðventuferð FÍ 1.—2. des. Nánari upplýsingar á skrifstofu og á www.fi.is . Í kvöld kl. 21 heldur Guðfinnur Jakobsson erindi „Brot af fræð- um mannspekinnar” í húsi fél- agsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjón Gunnlaugs Guðmundsson, sem fjallar um stjörnuspeki og túlkun á stjörnu- kortum þátttakanda. Á sunnudögum kl. 17-18 er hugleiðingarstund með leiðbein- ingum fyrir almenning. Hug- ræktarnámskeið Guðspekifé- lagsins verður framhaldið fimmtudaginn 15. nóvember kl. 20.30 í umsjá Jóns Arnalds „Hugur er heimur”. Á fimmtudögum kl. 16.30- 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.