Morgunblaðið - 11.12.2001, Qupperneq 62
HEIMILDUM ber ekki saman um
hvort írski stórleikarinn Richard
Harris, fyrrum vandræðagepill,
drykkjurútur og hneykslunarefni
fjölmiðla, er fæddur 1930, eða ’32.
Í öllu falli er hann að nálgast átt-
ræðisaldurinn – og aldrei spræk-
ari. Harris situr sem fastast í
minningunni sem uppreisnargjarn,
ósveigjanlegur harðjaxl með firna-
sterka útgeislun, hljómmikla rödd
og frábæra raddbeitingu. Rusta-
lega heillandi persónuleiki umvaf-
inn leiksigrum, lægðum, óteljandi
drykkjutúra- og kvennafarssögum.
Ekki síst með nafntoguðum svall-
bræðrum sínum, Peter O’Toole og
Richard Burton, en þeir urðu nán-
ast goðsagnakenndir svallarar á
sjöunda og áttunda áratugnum.
Höfðu allt sem menn dreymir um;
frægð, frama, hæfileika, kvenhylli.
Í blárri fjarlægð virtist líf þeirra
ein samfelld, öfundsverð veisla
gleðskapar og leiksigra. Hin hliðin
á ævintýrinu blasti við er Burton
féll frá árið 1984 í blóma lífsins. Þá
tóku félagarnir sér tak og sneru til
heilbrigðari lífshátta. Partíið var
búið, Harris og O’Toole hálfút-
brunnir, en tókst með herkjum að
halda því sem eftir var af fyrri
frægð, glæsileika og getu. Þeir
settu sannarlega svip sinn á sam-
tíðina og setja enn. Þvílíkir kar-
akterar, litríkir og einhvernveginn
ódrepandi.
Það er rétta orðið yfir Harris,
sem um þessar mundir fer með
hlutverk seiðkarlsins í Harry Pott-
er og óskasteininum, sem hefur
alla burði til að verða vinsælasta
mynd ársins.
Alls kyns myndir
Á löngum ferli hefur Harris
komið við sögu jafn sundurleitra
mynda og hinnar sígildu Unforgiv-
en og dreggja á borð við Til móts
við gullskipið og Orca, the Killer
Whale. Hinn holdskarpi, ljóshærði
og bláeygi skapgerðarleikari hefur
látið innihaldið litlu máli skipta og
komið uppréttur frá hverri raun.
Harris er bóndasonur frá Lim-
erick á Írlandi þar sem hans er
ennþá minnst sem eins besta ruðn-
ingsleikmanns þar um slóðir, fyrr
og síðar. Leiðin lá til Englands,
þar sem Írinn hóf leiklistarnám í
London Academy of Music and
Dramatic Art. Fyrsta sviðshlut-
verkið var í The Quare Fellow árið
1957 og tveimur árum síðar birtist
Harris á tjaldinu í Alive and Kick-
ing. Hann vakti samstundis athygli
sem áhugaverður flytjandi, hæfi-
leikarnir gneistuðu í aukahlutverk-
um nokkurra ágætismynda: Shake
Hands With the Devil, The Wreck
of the Mary Deare (báðar ’59),
Byssurnar í Navarone og Jungle
Fighters (’61) og Uppreisninni á
Bounty (’62).
1963 nýtti Harris sér ruðnings-
leikreynsluna til hins ýtrasta í
This Sporting Life, sem nokkuð
óvænt færði leikaranum verðlaun í
Cannes, Óskarsverðlaunatilnefn-
ingu, frægð og skyndilega var
Harris kominn á lista yfir kvik-
myndaleikara í 1. gæðaflokki. 1965
fór hann reffilega með hlutverk
bresks leyniþjónustumanns á
norskri grund, hersetinni af Þriðja
ríkinu, í The Heroes of Telemark,
og lék einnig í vestranum Major
Dundee. Samhliða óx vegur hans
með ári hverju á fjölunum í West
End, Dyflinni og Broadway. Eink-
um eftir að hann leysti Richard
Burton af í söngleiknum Camelot.
1967 fór Harris með hlutverk Art-
úrs konungs í kvikmyndagerðinni
og var, ásamt Michael Caine og
Sean Connery, í hópi karlmannleg-
ustu leikara hvíta tjaldsins. Áhorf-
endur áttu ekki von á að Harris
hefði umtalsverða sönghæfileika,
þeir komu í ljós í Camelot, og
hljómplatan með tónlistinni úr
söngleiknum varð vinsælli en
myndin. Harris komst einnig á
toppinn á plötulistunum með hin-
um rómaða flutningi á McArthur
Park, sem samið var af vini hans,
Jimmy Webb.
Upp og niður
Á næsta áratug skiptust á skin
og skúrir. Harris fór geysivel með
aðalhlutverkið í vestranum A Man
Called Horse (’70), sem naut vin-
sælda um allar jarðir. Bloomfield
(’72), fyrsta og eina handritshöf-
undar-leikstjórnarverkefnið, fékk
einnig ágæta dóma. Vestrarnir
Man in the Wilderness (’71), þar
sem mótleikari hans var goðsögnin
John Huston, og A Return of a
Man Called Horse (’76) voru frísk-
legir. Juggernaut (’74) og Robin
and Marian (’76), þar sem Harris
lék með Connery og Audrey
Hepburn, voru mætar myndir, sú
síðarnefnda harla óvenjuleg sýn á
hetjurnar í Skírisskógi, guggnar
og gráar. Hortittirnir urðu mun
fleiri: 99 and 44/100% Dead (’74),
Echoes of a Summer (’76), Orca
(’77), The Golden Rendezvous – Til
móts við gullskipið (byggð á reyf-
ara Alistairs McLeans), voru arfa-
slakar. Sömuleiðis ævintýramynd-
in The Wild Geese (’78), þar sem
Harris lék á móti Richard Burton,
og sögur gengu um að þeir hefðu
báðir blótað Bakkus ótæpilega
meðan á tökum stóð.
Ekki byrjaði sá níundi með
lúðrablæstri og söng, heldur botn-
leðjunni Tarzan the Apeman (’81),
bláleitri dellu með Bo Derek, has-
arkroppnum hæfileikalausa. Þær
versnuðu uppfrá því. Your Ticket
Is no Longer Valid (’81) er inn-
antóm mynd byggð á sögu Rom-
ains Gary; A Triumph of a man
Called Horse var líkkistunagli
Horse-vestranna. Martin’s Day
(’84), Maigret (’88) og Strike
Commando (’89). Engin þeirra
samboðin stórleikaranum, sem nú
sigldi hraðbyri niður á við.
Sá tíundi kemur hinsvegar með
betri tíð og blóm í haga. Fyrstar
skal frægar telja The Field (’91)
eftir Jim Sheridan, Patriot Games
(’92) og klassíska Eastwood-vestr-
ann Unforgiven (’92), þar sem
Harris fer nærri því að stela sen-
unni af firna sterkum leikarahóp
sem roskinn byssubófi. Allar gáfu
þær Harris tækifæri til að sýna
hvað í honum bjó, sem hann nýtti
sér til fullnustu. Marka enn ein
tímamót á ferli leikarans, sem
rankar við sér, rís úr langvarandi
sleni og verður á ný áberandi í sín-
um rétta höfuðleikarasessi. Síðan
hefur írski sjarmörinn notið virð-
ingar og velgengni í aukahlutverk-
um sterkra mynda á borð við
Wrestling Ernest Hemingway
(’93), þar á hann skemmtilega
magnaðan leik á móti Robert Duv-
all. Báðir ellilífeyrisþegar sem
mega muna sinn fífil fegri og
Harris slær um sig með lygasög-
um á borð við þá sem myndin
dregur nafn sitt af. Hann er eft-
irminnilegur í endurgerð Grát ást-
kæra fósturmold – Cry, the Belo-
ved Country (’95) og sem ómennið
í Smilla’s Sense of Snow (’97), mis-
lukkaðri kvikmyndagerð Bille
August á metsölubókinni. Gaml-
ingjarnir Harris og Oliver heitinn
Reed fóru langleiðina með að hirða
leiklistarverðlaunin í stórmynd
Ridleys Scotts, Gladiator (’00).
Nýjust á lista Richards Harris er
myndin um Harry Potter, sem
virðist stefna í að verða ein vinsæl-
asta mynd leikarans á hartnær sex
áratuga ferli. Framhaldið kemur
að ári. Öll þessi hlutverk hafa
skipað Harris á bekk með eftir-
sóttustu skapgerðarleikurum kvik-
myndaheimsins.
Sérvitringslegt
Einkalífið hefur jafnan verið
stormasamt. Harris er tvígiftur.
Fyrri konan ól honum þrjá sonu,
sú síðari var bandaríska leikkonan
Ann Turkel (1974–81). Síðan hefur
þessi litríka goðsögn í leikarastétt
látið reka fyrir lausu í kvennahaf-
inu. Harris hefur hlotið fjölda við-
urkenninga, er heiðursdoktor við
Scranton-háskólann í Bandaríkjun-
um, þar sem hann hefur starfað
sem gestaprófessor við leiklistar-
deildina; var sleginn til riddara
1985 í Danmörku o.fl. o.fl. Harris
lifir sérvitringslegu lífi, sama hót-
elsvítan hefur m.a. verið lögheimili
hans á annan áratug, og líkar lífið
vel. Þangað bauð hann m.a. ís-
lenskum kvikmyndagerðarmanni á
síðasta áratug í sambandi við end-
urgerð Barna náttúrunnar, sem
hefur því miður ekki komist á
koppinn.
RICHARD HARRIS
Stjörnurkvikmyndanna
eftir Sæbjörn Valdimarsson
Þessi mynd
var tekin af
Harris á ný-
afstaðinni
Cannes-
hátíð.
FÓLK Í FRÉTTUM
62 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 15
Mögnuð mynd með stórleikurunum
Bruce Willis, Cate Blanchett
og Billy Bob Thornton
E.P.Ó.
Kvikmyndir.com
Empire
SV Mbl
Rás 2
MOULIN
ROUGE!
Hausverkur
DV
Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni.
1/2
Ungfrú Skandinavía
Íris Björk
Ljóskur
landsins
sameinist!
Reese Witherspoon
fer á kostum sem
ljóska sem sannar
hvað í ljóskum býr
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10.Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Missið ekki af nýjasta glæpaþriller Bruce Willis
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0030-3021
4543-3700-0015-5815
4507-2800-0001-4801
4507-4500-0030-6412
! "#
"$%&'
()( )$$$
The Sporting Life (1963)
Richard Harris klæðir holdi hinn „unga,
reiða mann“ breskra bókmennta, leikrita og kvik-
mynda sjöunda áratugarins öðrum betur. Er
ógleymanlegur í sinni jafnbestu mynd á löngum
ferli. Fer með hlutverk rusta; kolanámumanns sem
verður frægur um sinn sem ruðningsleikmaður. Á
erfitt með að semja sig að nýjum reglum, háttum
og umhverfi og lendir í fráleitu ástarsambandi við
leigusala sinn, sem Rachel Roberts afgreiðir jafn-
eftirminnilega. Mynd Lindsays Anderson, sem er
byggð á handriti Davids Storey á eigin met-
sölubók, er beitt ádeila á staðnað stéttaþjóðfélag
og aflóga tíðaranda. Atriðin á íþróttavellinum eru
einnig með þeim mögnuðustu sinnar tegundar, fyrr
og síðar.
A Man Called Horse (1970)
1/2 Athyglisverður og, fyrir margra hluta
sakir, óvenjulegur vestri, sem markaði tímamót (í
kjölfarið fylgdu tvær framhaldsmyndir og nokkrar
eftirlíkingar). Harris leikur aðalsmann sem lendir í
höndum indjána sem prófa hann í hinum erfiðustu
manndómsraunum og taka síðan fullgildan. Ein af
eftirminnilegustu myndum með stórleikaranum
Richard Harris. Grimm, ófrýnileg og einstaklega
ofbeldisfull, prýdd snjallri kvikmyndatöku og
áhrifaríkri tónlist. Ein örfárra kvikmynda sem
nota tungu frumbyggjanna og gefa áhorfandanum
ósvikna innsýn í framandi heim og menningu sem
allajafna er kæfð í drápum og herópum. Byggð á
skráðum heimildum um siðvenjur Sioux-rauð-
skinna. Einnig koma fram í myndinni Dame Judith
Anderson og Jean Gascon.
The Field (1990)
Richard Harris fer fer á kostum í magn-
þrunginni mynd Jims Sheridan og sýnir sinn lang-
besta leik í áraraðir. Leikur bónda sem vill kaupa
landið sem hann hefur erjað hörðum höndum alla
ævi en stendur nú forríkum Bandaríkjamanni til
boða. Mögnuð líkingasaga um innanríkisvanda
írsku þjóðarinnar, ódrepandi baráttu hennar fyrir
eigin sjálfstæði, óbilandi reisn og stolt. Harris
drottnar yfir góðum meðleikurum (Brenda Frick-
er, John Hurt, Sean Bean).
Richard Harris leikur skóla-
stjórann Albus Dumbledore í
hinni feikivinsælu Harry Potter
og viskusteinninn.
Hér er Harris í stórmyndinni Gladiator. Hagur leikarans vænkaðist
nokkuð á tíunda áratugnum.