Morgunblaðið - 19.12.2001, Side 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
JÓLAUNDIRBÚNINGURINN er
nú í fullum gangi á flestum heim-
ilum landsins og smákökuilm og
angan af grenitrjám leggur víða
fyrir vitin. Allt er að verða tilbúið
fyrir hátíðina sem senn fer í
hönd. Hjá mörgum hefst jólaund-
irbúningurinn á jólahreingern-
ingu og skreytingum, innan dyra
sem utan. Ár frá ári virðast
skreytingar utandyra færast í
vöxt og víða um land má sjá hús
skreytt ljósum, jólasveinum og
öðru tilheyrandi í öllum regnbog-
ans litum og ýmsum skemmti-
legum útfærslum. Ýmsir hlutir
eru nýttir til skreytinga, svo sem
þakskegg, tré og svalahandrið svo
eitthvað sé nefnt og sumir
skreyta jafnvel farartæki og fána-
stangir. Jólaljósin auka óneitan-
lega á jólastemmninguna og eru
birtugjafi í svartasta skammdeg-
inu, sérstaklega þar sem jóla-
snjórinn er af skornum skammti
þessa dagana.
Jólahúsin í bænum
Víða á höfuðborgarsvæðinu er
að finna hús svo veglega skreytt
að halda mætti að sjálfur jól-
sveinninn byggi þar. Íbúar heilu
fjölbýlishúsanna taka sig saman
og skreyta í sama stíl, við götur í
einbýlishúsahverfum má finna
hvert húsið á fætur öðru skreytt á
ýmsa vegu. En flestir eru sam-
mála um að sífellt fleiri séu farnir
að skreyta hús sín að utan hátt og
lágt, þó að nokkrir frumkvöðlar
standi enn upp úr, enda búnir að
fá forskot og bæta flestir við
skrauti og ljósum fyrir hver jól.
Hjónin Gréta Alfreðsdóttir og
Smári Þ. Ingvarsson hafa í átján
ár búið í Urriðakvísl 3 í Ártúns-
holti. Á meðan Gréta slettir í
form fyrir jólin tekur Smári
skraut og stiga fram, arkar út í
garð og skreytir húsið að utan,
hátt og lágt. „Það eru svona 10–
12 ár síðan ég byrjaði að skreyta
og smátt og smátt hefur verið að
bætast við skrautið og ljósin,“
segir Smári sem kveikir fyrstu
jólaljósin fyrsta sunnudag í að-
ventu ár hvert. „Fram undir jól er
ég að setja ljósin og skrautið upp
og dunda mér við þetta í flestum
frístundum í desember.“ Smári
segir að jólaskrautið sé allt keypt
í Bandaríkjunum og árlega fari
hann þangað og kaupi nýtt í safn-
ið. Nú í október fór hann í sól-
skinið á Flórída og keypti nýtt
skraut sem færir löndum hans hér
heima birtu og hjartayl í jólamán-
uðinum.
Smári segir að þegar hann fór
að skreyta húsið í Urriðakvíslinni
fyrir alvöru fyrir nokkrum árum
hafi margir litið við og skoðað og
stöðugur straumur fólks og bíla
verið um götuna. „Það hefur nú
minnkað, enda mun fleiri farnir
að skreyta svona mikið. En ég hef
mjög gaman af þessu, þetta lífgar
upp á tilveruna. Venjulega slekk
ég ljósin á þrettándanum en ég er
svolítið að berjast við konuna, því
mig langar að hafa ljósin uppi
lengur,“ segir hann hlæjandi.
Fjölbýlishúsið Flétturimi 9–15
er fagurlega skreytt fyrir hver
jól. Guðrún S. Róbertsdóttir, sem
er í stjórn húsfélagsins, segir að
fyrst í stað hafi tveir stigagangar
tekið sig saman og skreytt eins en
síðan hafi aðrir bæst við og núna
séu allir fjórir stigagangarnir
með eins skreytingar. „Við höfum
voða gaman af þessu. Allir íbú-
arnir eru samstíga um að gera
blokkina okkar að ljósablokk og
það er hún svo sannarlega. Auð-
vitað er þetta fyrst og fremst gert
fyrir okkur íbúana en það er
mjög gaman að aðrir geta notið
þess með okkur.“
Met í rafmagnsnotkun
í fyrradag
Rafmagnsnotkun landans nær
hámarki í desember og und-
anfarin ár er notkunin lang mest
vikuna fyrir jól, en áður var hún
mest á sjálfan aðfangadag. Draga
má þá ályktun að matarvenjur Ís-
lendinga hafi eitthvað breyst sem
orðið hefur til þessa, að sögn
Gunnars Aðalsteinssonar fram-
kvæmdastjóra kerfisstjórnunar
hjá Orkuveitunni, og einnig hefur
álag aukist hjá fyrirtækjum fyrir
hátíðarnar svo síðustu virku dag-
ana fyrir jólin er rafmagnsnotk-
unin lang mest. „Jólaskreyting-
arnar koma vissulega inn í sem
álagsvaldur. Þær hafa aukist
mjög undanfarin ár, en að sama
skapi hafa sparneytnar jólaseríur
komið á markað svo aukningin
hefur ekki verið veruleg þar, þó
svo mætti halda í fyrstu.“
Fyrir síðustu jól var slegið met
í rafmagnsnotkun á höfuðborg-
arsvæðinu og fór notkunin mest í
155,5 MegaWatt-stundir (hæsta
meðaltal yfir klukkutíma). En
þessu nýfengna meti var skákað í
fyrradag því þá fór orkunotkunin
í 163,1 MW sem er hæsti toppur
sem mælst hefur til þessa. Til við-
miðunar má geta þess að með-
alnotkunin á haustin er um 140
MW. Þessi mikla notkun á eftir að
haldast nokkurn veginn út vikuna
að mati Gunnars. „Það hefur ver-
ið hlýtt og því minni notkun á
heitu vatni en gengur og gerist á
þessum árstíma. En ef að kólnar
núna eigum við von á nýju meti,
því dælurnar fyrir heita vatnið
taka töluvert rafmagn.“
Nýtt met var sett í raforkunotkun á höfuðborgarsvæðinu í vikunni
Morgunblaðið/Þorkell
Íbúar í fjölbýlishúsinu Flétturima 9–15 eru samstiga í skreytingunum fyrir jólin.
Morgunblaðið/Kristján
Flögusíða á Akureyri er ein bjartasta gatan í bænum fyrir jólin nú sem endranær enda íbúar
við götuna hvað duglegastir við skreyta hús sín og garða. Myndin er tekin við Flögusíðu 2.
Morgunblaðið/Sverrir
Við Suðurgötu í Reykjavík stendur timburhús sem er árlega flæðandi í ljósum og vekur
óskipta athygli vegfarenda. Í garðinum er svo að finna þennan skemmtilega jólasvein.
Morgunblaðið/Þorkell
Smári og Gréta í Urriðakvísl 3 sjá um að hátíð ljóss og friðar standi undir nafni í desember.
Lífgað upp á tilveruna
með jólaljósum HÆSTIRÉTTUR hefur dæmtútgerðarfélag til að greiða sjó-
manni 8 milljónir króna vegna
slyss sem varð um borð í tog-
skipinu Pétri Jónssyni RE-69 í
janúar 1998. Mjög slæmt veð-
ur var þegar slysið átti sér
stað og taldi Hæstiréttur að
slysið mætti fyrst og fremst
rekja til þeirrar háttsemi skip-
stjóra að hefja veiðar á ný
þrátt fyrir vonskuveður, svo
og til ófullnægjandi verk-
stjórnar.
Slysið varð með þeim hætti,
að þegar trollið var látið fara
festist svokallaður grandari
uppi á seiðaskilju, sem var
bundin upp neðan í efra þilfar
skipsins. Sjómaðurinn hljóp þá
yfir þilfarið og hugðist komast
undir grandarann til þess að
geta spyrnt í hann þannig að
hann losnaði ofan af seiðaskilj-
unni. Þegar hann var undir
grandaranum slitnaði seiða-
skiljan niður og skall grand-
arinn á bak og háls mannsins,
sem keyrðist niður á dekkið.
Maðurinn hætti síðar sjó-
mennsku, þar sem hann þoldi
ekki veltinginn vegna verkja í
hálsi og höfði. Rétturinn taldi
að þaulvönum sjómanninum
hefði hlotið að vera ljóst að
hættulegt væri að fara undir
strengdan grandara til að losa
hann og hann ætti því að bera
sjálfur þriðjung tjónsins.
Átta millj-
óna bætur
vegna slyss