Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 48
MINNINGAR 48 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ VilhelmínaSteinunn Elís- dóttir fæddist á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd 2. september 1938. Hún lést á heimili sínu á Akranesi 12. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Elís Ríkharð Guðjónsson, f. 27. janúar 1906, d. 20. september 1980, og kona hans Petra Guðlaug Guðjóns- dóttir, f. 27. febrúar 1909, d. 19. ágúst 1968, búsett á Akranesi. Systkini Vilhelmínu eru: 1) Ómar Alfreð, f. 17. maí 1932, maki Ingibjörg Þorleifs- dóttir, f. 23. mars 1934. 2) Guð- rún Margrét, f. 6. júlí 1933, maki Sverrir Hinrik Jónsson, f. 12. júlí 1933. 3) Vilborg, f. 16. ágúst 1934, maki Sigurbjörn Sigur- jónsson, f. 22. maí 1930. 3) Pétur Brekkan, f. 18. júlí 1936, maki Guðríður Jónsdóttir, f. 2. maí 1936. 4) Ingvar, f. 6. janúar 1941, maki Birna Óskarsdóttir, f. 13. maí 1942. 5) Guðbjörg Jóna, f. 21. apríl 1944, maki Jón Jónsson, f. 31. júlí 1948. Vilhelmína var sú fimmta í aldursröð systkinanna. Vilhelmína Steinunn giftist 31. desember 1961 Jóni Bjarna Sig- urðssyni stýrimanni frá Gneista- völlum á Akranesi, f. 6. október 1936, d. 25. desember 1982. Þau eiga fjög- ur börn: 1) Gunnar Már vélvirki á Akranesi, f. 15. des- ember 1960. 2) Guð- laugur Elís sjómað- ur á Akranesi, f. 3. desember 1961, maki Guðríður Dóra Árnadóttir, f. 25 ágúst 1964, son- ur þeirra er Jón Steinar, f. 4. októ- ber 1986. 3) Sigurð- ur Bjarni sjúkranuddari í Hvera- gerði, f. 3. júní 1965, maki Ólöf Guðrún Björnsdóttir, f. 29. nóv- ember 1960, börn þeirra eru Björn Aron, f. 24. júní 1985, og þríburarnir Jón Bjarni, Mel- korka Elín og Vilhelmína Stein- unn, fædd 17. mars 1998. 4) Sig- urlín skrifstofumaður í Reykjavík, f. 27. nóvember 1967. Eftir að Vilhelmína lauk skyldunámi fór hún í Húsmæðra- skóla Reykjavíkur. Á meðan börnin voru að vaxa upp var hún heimavinnandi, en eftir lát eig- inmanns síns fór hún að starfa á Dvalarheimilinu Höfða og vann þar til síðasta dags. Útför Vilhelmínu Steinunnar fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku mamma, við eigum eftir að sakna þín sárt, þökkum þér fyr- ir hvað við fengum að alast upp við gott atlæti og hvað þú skapaðir okkur yndislegt heimili sem veitti okkur mikið öryggi. Alltaf varstu til staðar fyrir okk- ur, boðin og búin með útrétta hjálparhönd. Lífið er hverfult, aft- ur þurfum við að upplifa mikla sorg á jólunum, þú varst tekin svo snöggt frá okkur alveg eins og pabbi. En við vitum að pabbi tekur vel á móti þér og að þið fylgist með okkur. Þú, Guð míns lífs, ég loka augum mínum í líknarmildum föðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. Æ, tak nú, Drottinn, föður og móður mína í mildiríka náðarverndan þína, og ættlið mitt og ættjörð virztu geyma og engu þína minnsta barni gleyma. Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga, en sér í lagi þau, sem tárin lauga, og sýndu miskunn öllu því, sem andar, en einkum því, sem böl og voði grandar. Þín líknarásján lýsi dimmum heimi, þitt ljósið blessað gef í nótt mig dreymi. Í Jesú nafni vil ég væran sofa og vakna snemma þína dýrð að lofa. (M. Joch.) Við elskum þig, Gunnar, Elís, Sigurður, Sigurlín, Ólöf og Guðríður. Elsku amma Villa, takk fyrir að vera besta amma í heimi. Við erum rík að hafa fengið að kynnast þér og njóta margra góðra stunda með þér. Alltaf varstu til staðar fyrir okkur og því skipaðir þú stóran sess í lífi okkar. Ó, Jesú bróðir bezti og barna vinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. Mig styrk í stríði nauða, æ, styrk þú mig í dauða. Þitt lífsins ljósið bjarta þá ljómi’ í mínu hjarta. Með blíðum barnarómi mitt bænakvak svo hljómi: Þitt gott barn gef ég veri og góðan ávöxt beri. Við elskum þig og þökkum fyrir allar góðu minningarnar sem við eigum um þig, Jón Steinar, Björn Aron, Vilhelmína Steinunn, Melkorka Elín og Jón Bjarni. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Elsku systir. Ég vildi óska að við hefðum átt lengri tíma saman, þú hefur verið tekin frá börnum þínum og barna- börnum sem elskuðu þig svo heitt. Svo skyndilega án fyrirvara. Mig langar að þakka þér elsku Villa mín fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og fjölskyld- an mín. Elsku Gunni, Elli, Siggi og Lína og fjölskyldur, ég sendi ykkur innilegar samúðarkveðjur á þess- um erfiða tíma. Megi Guð vera með ykkur. Ég mun ávallt minnast þín elsku systir. Þín Guðbjörg. Elsku Villa, systir hans pabba míns, er dáin. Mikið er sárt að eiga ekki eftir að hitta hana Villu aftur hér á jörðinni. Það var alltaf svo notalegt að hitta hana hjá mömmu og pabba. Hún var svo ljúf og góð og vildi allt fyrir alla gera. En ég veit að það hefur verið vel tekið á móti elsku Villu á himn- um. Sérstaklega af Jóni eigin- manni hennar sem varð bráð- kvaddur á jóladag fyrir tæpum tuttugu árum. Fallin er hjartans fögur rós og föl er kalda bráin. Hún sem var mitt lífsins ljós ljúfust allra er dáin. Þú alltaf verður einstök rós elsku vinan góða. Í krafti trúar kveiki ljós og kveðju sendi hljóða. (Jóna Rúna Kvaran.) Já, hún elsku Villa var hjartans fögur rós og ég mun alltaf minnast hennar með hlýju og væntum- þykju. Guð varðveiti minningu hennar. Elsku Gunni, Elli, Siggi og Lína, tengdadætur og barnabörn, pabbi minn og mamma, systkin og mak- ar og aðrir aðstandendur. Ég og fjölskyldan mín vottum ykkur öll- um okkar dýpstu samúð og biðjum ykkur Guðs blessunar. Margrét Rósa Pétursdóttir. Varpar dauðinn ljósi á lífið. Varpar lífið ljósi á dauðann. (Árni Ibsen.) Með þessum ljóðlínum byrjuðum við fyrir 19 árum minningargrein um mág okkar Jón Bjarna Sig- urðsson, eiginmann Villu svilkonu, sem kvödd er í dag. Í sömu sporum stöndum við nú við fráfall Villu, en fráfall hennar er ekki tímabært nú, frekar en Jóns þá. Henni og börnunum og okkur öllum var það mikið áfall þegar Jón varð bráðkvaddur á jóladag 1982. Hún eignaðist með manni sínum fjögur góð börn, sem hún lifði fyrir og var sannur vinur í leik og starfi. Hún Villa er búin að vera sam- ferðamaður okkar á fimmta ára- tug. Hún var alltaf Villa svilkona sem kom með bros á vör til allra fjölskylduviðburða hjá okkur, hvort sem það voru fermingar, brúðkaup, afmæli, útskriftir eða hvaða nafni sem það nefndist. Hún var líka dul um eigin hag, en eru hetjur ekki þannig? Minningabrotin hrannast upp og af mörgu er að taka, eins og þegar Villa og Jón giftu sig í stofunni á Gneistavöllum á gamlársdag árið 1961, og lífið þeirra blasti við. Þar stofnuðu þau sitt fyrsta heimili í húsi sem þeir feðgar Sigurður og Jón byggðu saman. Þangað var gott að koma og oft gestkvæmt. Villa reyndist tengdamóður okkar einstaklega vel allar götur, ekki síst eftir að hún varð ekkja, og fyrir það viljum við þakka nú. 1. desember sl. hittum við Villu í fjöl- skyldukaffi á Akranesi, ljúfa og glaða eins og ávallt. Ekki áttum við von á því, að það yrði í síðasta skipti sem við drykkjum kaffi sam- an. Kæru systkin, Gunni, Elli, Siggi og Lína, mikill er missir ykkar og söknuður, en það er huggun harmi gegn að pabbi ykkar og aðrir gengnir ástvinir munu taka vel á móti henni. dauðinn skín gegnum lífið sólargeisli gegnum vatnsdropa. (Árni Ibsen.) Við vottum aðstandendum öllum okkar dýpstu samúð. Árný og Heiðrún. Kveðja frá samstarfsfólki á Dvalarheimilinu Höfða Með tilhlökkun höfum við verið að undirbúa komu jólanna, hátíðar ljóss og friðar. Þessarar fagnað- arhátíðar sem bindur enda á skammdegið og vísar okkur veginn til ljóssins og birtunnar. En skyndilega höfum við verið minnt á hverfulleika hins jarðneska lífs og það að enginn ræður sínum næturstað. Villa eins og hún var ávallt kölluð, vinur okkar og vinnufélagi, hefur á snöggu auga- bragði verið kölluð burt. Síðustu daga hefur skammdeg- ismyrkrið því verið óvenju svart. Ekki bara úti, heldur í huga okkar sem þekktum og störfuðum með henni Villu. Ótal minningar um samverustundir í starfi og leik líða um hugann. Villa var kannski svo- lítið hrjúf á yfirborðinu, en undir því leyndist gull af manni, kona sem öllum vildi vel og var ætíð boðin og búin til aðstoðar ef ein- hver þurfti á að halda. Hún var af- ar hreinskilin og sagði meiningu sína um menn og málefni umbúða- laust. Öll sín störf vann hún af samviskusemi og kostgæfni og snyrtimennska hennar var einstök. Lífið var henni ekki alltaf auðvelt, hún fékk að kynnast sorginni og þurfti að glíma við ýmsa aðra erf- iðleika. En sorgin og gleðin eru systur og hún átti líka margar gleðistundir og sérstaklega naut hún þess að vera í ömmuhlutverk- inu. Ömmubörnin áttu hug hennar allan síðustu árin og með þeim reyndi hún að vera hvenær sem færi gafst. Komið er að leiðarlokum. Villa hefur haldið til nýrra heimkynna, þar sem ný hlutverk bíða hennar án efa. Við kveðjum hana með söknuði og þökkum henni af heil- um hug fyrir samfylgdina. Við sendum börnum hennar, fjölskyld- um þeirra, systkinum hennar og öðrum ástvinum einlægar samúð- arkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Við sviplegt andlát Villu vinkonu minnar, setur mann hljóðan, og skilur ekki tilgang lífsins, kona í fullu fjöri er kvödd á brott úr þessum heimi án nokkurns fyr- irvara. En okkur er ekki ætlað að skilja af hverju hún fékk ekki lengri tíma hér á meðal okkar. Hún sem hafði svo margt að lifa fyirir, börnin sín, tengdabörn og barnabörnin sem voru henni svo kær. Sárt verður ömmu saknað af þeim, nafna hennar Jóni Steinari sem lengi vel var eina barnabarnið þar til litlu þríburarnir komu, þá var oft skroppið í fríum til þeirra til Hveragerðis, söknuður þeirra allra verður mikill. Kynni okkar Villu hófust fyrst fyrir 16 árum í gegnum sameig- inlega vini okkar. Ung giftist hún Jóni Bjarna Sig- urðssyni skipstjóra og var hann á sjó allan þeirra búskap. Lífið hefur ekki alltaf farið mjúkum höndum um hana. Hún varð fyrir þeim sorglega missi að maður hennar varð bráðkvaddur á jóladagsmorg- un 1982. Stóð hún þá uppi ekkja, rétt fertug með fjögur börn, en það var ekki til hjá Villu að gefast upp, heldur hélt hún hópnum sín- um vel saman og studdi börn sín vel og tók þátt í þeirra áhuga- málum og má þá helst nefna áhuga hennar á fótboltanum. En Lína dóttir hennar og Sigurður sonur hennar spiluðu bæði með meist- araflokki ÍA. Aldrei lét Villa sig vanta á völlinn. Eftir að hún varð ekkja hóf hún störf á Dvalarheim- ilinu Höfða og starfaði þar alla tíð síðan í fullu starfi og veit ég að hún var vel látin af heimilisfólkinu og starfsfólkinu þar sem saknar góðs vinar, því Villa hafði einstakt lag á að umgangast fólk. Hún var hreinskilin og sagði sína meiningu. Villa var vinur vina sinna, hún mátti ekkert aumt sjá, alltaf var hún boðin og búin til að hjálpa. Ef eitthvað stóð til; ferming, afmæli var Villa mætt, hjálpsemi hennar var einstök. Alltaf hafði hún tíma fyrir aðra og hefur fjölskylda mín notið þess í ríku mæli. Minnisstætt er mér ferðalag er við fórum saman á Strandirnar fyrir nokkrum árum og heimsótt- um Önnu og Kalla í Djúpuvík, þá var skroppið á ball í Árnesi og aldrei höfðum við verið á balli sem gert var hlé á dansleiknum, til að leyfa fólkinu að fara út og sjá sól- ina dansa við sjóndeildarhringinn kl. tvö að nóttu í júlí byrjun, það var tilkomu mikil sjón. Þessa ferð og aðrar minningar geymi ég sem perlur í minninga- sjóði mínum. Að leiðarlokum vil ég þakka Villu alla þá tryggð er hún sýndi okkur hjónunum og ekki síst börn- unum okkar því hún var líka vinur þeirra, minning hennar lifir í hjörtum okkar. Elsku Gunni, Elli, Siggi, Lína og fjölskyldur. Guð gefi ykkur styrk á erfiðri stundu og megi minning hennar verða ljós í lífi ykkar. Blessuð sé minning hennar. Herdís Þórðardóttir. VILHELMÍNA STEINUNN ELÍSDÓTTIR Harmafregn, sviplegt og óvænt fráfall góðrar frænku og vinar. Maður stendur berskjaldaður frammi fyrir sorginni. Unnur Elva fæddist 16. júní 1932 í Reykjavík, dóttir hjónanna Sig- urlaugar Guðmundsdóttur og Gunn- ars Eggertssonar. Fyrir að eiga hana að vini erum við einlæglega þakklát. Um nokkurra ára skeið höfum við haldið jólin hátíðleg sam- an og mun verða tómlegt við jóla- borðið í ár. Unnur Elva, eða Elva eins og við kölluðum hana ætíð, var ákaflega gjöful, gaf af kærleika. Því var gott að þiggja gjafir hennar sem voru ætíð svo fallegar því fagurkeri var hún. Hún var sérlega trygglynd, hreinskilin, næm var hún á fólk og UNNUR ELVA GUNNARSDÓTTIR ✝ Unnur ElvaGunnarsdóttir fæddist í Reykjavík 16. júní 1932. Hún lést á heimili sínu 15. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurlaug Guð- mundsdóttir, ættuð úr Breiðafjarðareyj- um, f. 28. mars 1906, d. 3. mars 1983, og Gunnar Eggertsson, ættaður frá Bíldsey, Breiðafirði, f. 15. júlí 1906, d. 14. maí 1991. Unnur Elva var einkabarn þessara mætu hjóna. Bálför Unnar Elvu fór fram frá Fossvogskapellu. þess vegna ekki allra, hún sagði oft að best væri að eiga fáa vini og góða. Elva fór í Verzl- unarskóla Íslands og lauk þaðan verslunar- prófi með láði. Árið 1951 hóf Elva störf hjá Flugfélagi Íslands, og vann samfleytt hjá Flugfélaginu í 32 ár, lengi sem flugfreyja og einnig sem gjaldkeri. Hafði hún sterkar til- finningar til Flug- félagsins. Unnur Elva ferðaðist mikið, hún naut þess að skoða heiminn enda ferðalög hennar helsta áhugamál. Elva missti móður sína árið 1983, og eftir það hugsaði hún um föður sinn, hún umvafði hann elsku sinni og kærleika. Samband þeirra var afar fagurt. Eftir að hann lést seldi hún húsið þeirra í Granaskjóli og keypti sér fallega íbúð í Hvassaleiti og leið henni mjög vel í austurbænum, Elva var fæddur og uppalinn vesturbæ- ingur og það kom henni skemmti- lega á óvart hve ánægð hún var í Hvassaleitinu, þar eignaðist hún góða vini. Elva átti sér einlæga og sterka trú sem hún ræktaði af alúð. Við trúum að geislaskin Betlehems- stjörnunnar umlyki hana um jólin. Við kveðjum Elvu frænku og vin- konu með þakklæti fyrir ánægju- stundirnar sem við áttum saman. Almarr Gunnarsson og Inga Ingvarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.